Fréttablaðið - 20.08.2008, Side 6

Fréttablaðið - 20.08.2008, Side 6
6 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR SKOÐANAKÖNNUN Tæpur meirihluti borgarbúa segist ekki vilja að lista- háskóli rísi á Laugavegi samkvæmt verðlaunatillögu. 55,0 prósent seg- ist ekki vilja að verðlaunatillagan rísi, en 45,0 prósent eru því fylgj- andi. Þeir sem eru á móti tillögunni eru marktækt fleiri en þeir sem eru henni fylgjandi. Karlar eru því frekar fylgjandi að Listaháskólinn rísi eins og tillag- an gerir ráð fyrir en konur. Af körl- um eru 47,7 prósent því fylgjandi en 42,4 prósent kvenna. Meirihluti kjósenda Framsókn- arflokks, 69,2 prósent, og Samfylk- ingar, 52,1 prósent, eru fylgjandi því að háskólinn rísi samkvæmt kynntri tillögu. Meirihluti kjósenda annarra flokka og þeirra sem ekki gefa upp stuðning við stjórnmála- flokk eru því andvígir. Allt stuðn- ingsfólk Frjálslynda flokksins sagðist verða því andvígt, 60,0 pró- sent vinstri grænna, 57,4 prósent sjálfstæðismanna og 57,0 prósent þeirra sem ekki gáfu upp stuðning við stjórnmálaflokk. Hringt var í 600 borgarbúa á kosningaaldri laugardaginn 16. ágúst og skiptust svarendur jafnt eftir kyni. Spurt var: Á að reisa Listaháskóla Íslands við Laugaveg eins og verðlaunatillagan gerir ráð fyrir? Tóku 76,7 prósent aðspurðra afstöðu til spurningarinnar. - ss Skoðanakönnun um Listaháskóla Íslands samkvæmt verðlaunatillögu: Vilja ekki listaháskóla á Laugaveg Á AÐ REISA LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS VIÐ LAUGAVEG EINS OG VERÐLAUNATILLAGAN GERIR RÁÐ FYRIR? SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 16.08 ´08 NEI 55% JÁ 45% TASKI swingo XP TASKI swingo 3500 B TASKI swingo 1250 B TASKI swingo 750 B Engin útborgun, engin fjárbinding, aðeins mánaðarlegar greiðslur. TASKI Swingo 1250 B Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum og ráðgjöfum RV TASKI swingo gólfþvottavélar Einfaldar í notkun - liprar og leika í höndunum á þér Bjarnþór Þorláksson, bílstjóri hjá RV RV U N IQ U E 02 08 01 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Gólfþvottavélar á rekstrarleigu LANDBÚNAÐUR „Þetta er ákaflega erfið staða,“ segir Jóhannes Sig- fússon, sauðfjárbóndi á Gunnars- stöðum í Þistilfirði og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Norðlenska hefur, fyrst afurðastöðva, gefið út verð- skrá fyrir lambakjöt vegna komandi sláturtíðar. Verð til bænda hækk- ar um fimmtán prósent. Í vor höfðu sauðfjárbænd- ur gefið út að verð þyrfti að hækka að lág- marki um 27 prósent vegna verðhækkana á öllum aðföng- um. Aðeins áburðarverð hafði þá hækk- að um 80 pró- sent og miklar hækkanir orðið á olíuverði og fjármagnskostnaði. Frekar hækk- anir hafa orðið síðan þá. Jóhannes segir að þótt verðskrá Norðlenska valdi vonbrigðum geri hann sér fulla grein fyrir þröngri stöðu sláturleyfishafa. „Vaxta- okrið á fyrirtækjunum er svo rosalegt og gerir allt dæmið erfið- ara,“ segir hann. Sigmundur E. Ófeigsson, fram- kvæmdastjóri Norðlenska, segist skilja áhyggjur bændanna. Fyrir- tækið hafi hins vegar teygt sig eins langt og það gat í því efna- hagsárferði sem nú sé. „Lamba- kjötið er í samkeppni við annað kjöt og ef við kaupum dýrt og náum ekki að selja það þá er rekstrargrundvöllur okkar brost- inn,“ segir Sigmundur. Jóhannes telur einsýnt að ein- hverjir bændur bregði búi þar sem þeir nái ekki endum saman. Ekki sé öllum fært að halda áfram rekstri við núverandi aðstæður. Verð á kjöti er ákveðið með verðskrá sláturleyfishafa. Lands- samtök sauðfjárbænda mega gefa út eigið viðmiðunarverð en það er undir hælinn lagt hvort sláturleyf- ishafar taka tillit til þess. Sam- kvæmt samkeppnislögum er sam- tökunum óheimilt að semja um verð fyrir hönd bænda. Slíkt heitir samráð. Jóhannes formaður telur eðli- legt að lögunum verði breytt og að bændur fái að semja um verð á vörum sínum. Eins og nú sé ástatt séu þeir í raun þvingaðir til að selja á því verði sem afurðastöðv- arnar setja upp. Heita eigi að afurðastöðvarnar eigi í samkeppni sín á milli og þannig eigi verðið að hækka en þær séu alltaf samstíga. Jafnan muni um einu prósenti á verðskrám þeirra. „Það eru víða Öskjuhlíðar,“ segir Jóhannes en tekur fram að með þeim orðum sé hann að benda á að samráð afurða- stöðva sé mögulegt, ekki að það sé viðhaft. bjorn@frettabladid.is Sauðfjárbændur sjá fram á erfiða daga Viðbúið er að sauðfjárbændum fækki og aðrir berjist í bökkum vegna mikilla hækkana á aðföngum og lítilla hækkana á afurðaverði. Verðskrá Norðlenska hækkar um fimmtán prósent. Bændur segjast þurfa minnst 27 prósenta hækkun. Væri rétt að þurrka upp Skerjafjörðinn? Já 40,5% Nei 59,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Á Gísli Marteinn að fara í launalaust leyfi frá borgarstjórn á meðan hann er í námi? Segðu þína skoðun á visir.is Á BEIT Sauðfjárbændur eru óánægðir með það verð sem Norðlenska hyggst greiða fyrir lambakjöt í haust. Formaður þeirra telur að einhverjir bændur kunni að bregða búi. Hann vill að Landssamtökin fái að semja um verð við afurðastöðvarnar og að núverandi þvingungarfyrirkomulag gegn bændum verði aflagt. JÓHANNES SIGFÚSSON SIGMUNDUR E. ÓFEIGSSON EFNAHAGSMÁL „Afkoma ríkissjóðs ber merki uppsveiflunnar,“ segir Katrín Ólafsdóttir, lektor við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík, um afkomu ríkissjóðs í ríkisreikn- ingi sem birtur var í gær. Hún reiknar með að draga muni úr tekjuhliðinni á næsta ári. Sérstak- lega muni draga úr skatttekjum, þá sérstaklega fjármagnstekjuskatti. Svipuðu máli geti gegnt um virðis- aukaskatt verði samdráttur í einka- neyslu, að hennar sögn. Tekjuafgangur ríkissjóðs nam 86 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er 6,8 milljörðum krónum betri afkoma en árið áður, sam- kvæmt ríkisreikningi sem fjár- málaráðuneytið birti í gær. Í reikningnum kemur fram að tekjur ríkissjóðs hafi numið 486 milljörðum króna á síðasta ári sem er 66 milljarða króna hækkun á milli ára. Þar af námu fjármagns- tekjur og skattar á einstaklinga og hagnað fyrirtækja 153 milljörðum króna samanborið við 138 millj- arða árið á undan. Á móti námu gjöldin 398 mill- jörðum króna sem er hækkun upp á 58 milljarða á milli ára. Tæpur fjórðungur útgjaldanna rann til heilbrigðismála og er stærsti útgjaldaliðurinn líkt og fyrri ár. - jab Líkur eru á að erfitt árferði nú skerði skattatekjur ríkissjóðs: Tekjuafgangur var 86 milljarðar STJÓRNARRÁÐIÐ Lektor við Háskólann í Reykjavík segir góðærið á síðasta ári lita afkomu ríkissjóðs. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR AFGANISTAN, AP Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hélt til Afganistans í gær, eftir að tíu franskir hermenn féllu og 21 særðist þegar uppreisnarmenn sátu fyrir þeim í Surobi, skammt austan við höfuðborgina Kabúl. Um hundrað uppreisnarmenn réðust á frönsku hermennina og hófust hörð átök í kjölfarið þar sem þrettán uppreisnarmenn féllu. Þetta er mesta mannfall erlendra hermanna í Afganistan í meira en þrjú ár. Ástandið í Surobi hefur lengi verið ótryggt og átök hafa verið þar tíð síðustu mánuði. - gb Sarkozy til Afganistans: Tíu franskir hermenn féllu KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.