Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 8

Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 8
8 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR 1 Hverjum þarf Reykjavíkur- borg að greiða hundruð millj- óna vegna tafa á deiliskipulagi? 2 Úr hvaða flokki gekk Marsibil Sæmundardóttir varaborgarfulltrúi? 3 Hver hefur birt dagbókar- færslur með trúnaðarsamtölum á heimasíðu sinni? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 VITA er í eigu Icelandair Group og flýgur með Icelandair á vit ævintýranna. VITA er lífið Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur Skráðu þig í netklúbbinn - VITAferðir.is Til Ítalíu á skíði hið ljúfa la dolce líf Madonna di Campiglio og Canazei Verð frá 109.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar á mann í þríbýli, 2 fullorðnir og 1 barn, í 7 nætur, með hálfu fæði, á Hotel Splendid, brottför 31. jan. Almennt verð: 119.900 kr. NÝTT! Njóttu lífsins í fegurð ítölsku Alpanna. Fylltu lungun af fersku fjallalofti áður en þú svífur niður brekkurnar með roða í kinnum af mjallhvítu fjöri og sól. Fararstjórar: Anna og Einar Beint morgunflug til Verona: 24. og 31. janúar og 7., 14., 21. og 28. febrúar. Vetur 2009 ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 4 21 26 0 8. 20 08 NEYTENDUR Neytendastofa hefur sektað níu bakarí um samtals ell- efu hundruð þúsund krónur fyrir vanrækslu á verðmerkingum. Í öllum bakaríunum voru vörur í kæli óverðmerktar og í tveimur þeirra var verðmerkingum í borði mjög ábótavant. Bakaríin sem um ræðir eru Gamla góða bakaríið á Borgar- holtsbraut í Kópavogi sem rekið er af Bettís ehf., Hjá Jóa Fel í Smáralind og Holtagörðum, Kornið Bíldshöfða, Borgartúni og Ögurhvarfi, Oddur bakari á Grensásvegi og Sveinsbakarí í Engihjalla og á Arnarbakka. Neytendastofa gerði könnun á ástandi verðmerkinga í bakarí- um í júní sem leiddi í ljós að þrettán bakarí þurftu að koma verðmerkingum sínum í viðun- andi horf. Í byrjun ágúst var könnuninni fylgt eftir og kom þá í ljós að níu bakarí höfðu ekki farið að tilmæl- um Neytendastofu. Voru bakaríin sektuð um eitt hundrað þúsund krónur fyrir hvert brot. Ragnhildur Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Sveinsbakar- ís, segir bakaríið löngu vera búið að kippa þessu í liðinn. „Þeir komu í bakaríið, og höfðu þá komið áður, og það næsta sem gerðist var að við fengum fyrir- varalaust samtals þrjú hundruð þúsund króna sekt.“ Í ákvörðun Neytendastofu stendur að bakaríið hafi fengið viðvaranir. Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs- stjóri neytendaréttarsviðs, segir að bakaríið hafi fengið fullnægj- andi viðvaranir. Hún segir að við- brögð við sektunum hafi verið nokkur. „Þetta er það sem koma skal, svona verður eftirlit okkar fram- vegis.“ helgath@frettabladid.is Neytenda- stofa sektar níu bakarí Sveinsbakarí, Oddur bakari, Kornið, Jói Fel og Gamla góða bakaríið eru fyrstu verslanirnar sem hafa verið sektaðar fyrir vanrækslu á verðmerking- um í átaki Neytendastofu. Hvert brot kostar 100.000. HEITT ÚR OFNINUM Samkvæmt lögum er skylt að verðmerkja alla vöru, líka brauð og bakkelsi. LÖG OG REGLUR UM VERÐMERKINGAR Fyrirtæki, sem selur vörur eða þjónustu til neytenda, skal merkja vöru sína og þjónustu með verði eða sýna það á svo áberandi hátt á sölustaðnum að auðvelt sé fyrir neytendur að sjá það. 17 gr. laga nr. 57/2005 Verðmerking skal vera skýr svo greinilegt sé til hvaða vöru verðmerkingin vísar. Auðvelt á að vera að sjá verð vöru og þjón- ustu á sölustað. Ef fleiri en ein verðmerking er á vöru, skal koma skýrt fram hvaða verð neytendur eiga að greiða. Í reglum Neytendastofu MENNING „Fólk getur sótt sér pínu- lítið forrit og fengið alla dagskrá Menningarnætur og texta um hvert og eitt atriði í símann sinn,“ segir Skúli Gautason, viðburða- fulltrúi Höfuðborgarstofu. Í sím- anum megi svo sjá á korti hvar og hvenær atriði Menningarnætur verða. Skúli segir forritið mjög einfallt í notkun og virka í lang flestum gerðum síma. Forritið er unnið af Ými mobile og er ókeypis. „Þú sendir bara sms á símanúmerið 1910 og skrifar textann „menn- ing“ eða nálgast forritið á síðunni menningarnott.is.“ „Þetta er svo meðfærilegt því maður er með alla dagskrána í vasanum,“ segir Skúli sem hvetur fólk þó til að skoða dagskrána áður en haldið er í bæinn. „Reynsla mín er að maður fer niður í bæ og ætlar að sjá eitthvað en maður berst svo með straumnum eitt- hvað annað og sér eitthvað allt annað, sem er líka gaman.“ Yfir 400 atriði eru á dagskrá Menningarnætur í ár og segir Skúli að aldrei hafi atriðin verið fleiri. Aðspurður segist hann halda mikið upp á vöfflukaffið þar sem íbúar í Þingholtunum bjóða gest- um og gangandi upp á rjúkandi heitar vöfflur. „Mér finnst eitthvað svo mikið traust í því að fólk opni heimili sín, mér finnst það vera það sem Menningarnótt gengur út á.“ - ovd Gestir Menningarnætur geta fengið dagskrána senda í símann sinn: Með dagskrána í vasanum SKÚLI GAUTASON Viðburðafulltrúi Höfuðborgarstofu heldur mikið upp á vöfflukaffi íbúa í Þingholtunum. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð. HELGA ÞÓREY neytendur@frettabladid.is Neytendahorninu barst eftirfar- andi bréf frá Hildi: Sæl! Langaði að segja þér frá að sumt er okur í Hagkaup af því ég las í blaðinu um konu sem fékk svo ódýrar skólatöskur þar. Ég keypti dósayddara í Griffli á 450 krónur en nákvæmlega eins í Hag- kaup kostar 640 krónur. Einnig keypti ég garn á 424 krónur í Rúm- fatalagernum en nákvæmlega eins garn kostar 479 krón- ur í Hagkaup. Þannig að það er nú ekki allt ódýrt í Hagkaup. Mér dettur ekki í hug að halda að Hagkaup sé lágvöruverslun, þótt hún hafi einhvern tímann verið það. Í Hagkaupum rekst ég líka oft á rangar eða engar verð- merkingar auk þess sem þar gleymist stundum að gefa afslátt á til dæmis grillkjöti við kassann. Hins vegar stóð verslun- in sig vel í skólatöskunum sem um var rætt á mánu- daginn og því ber að hrósa þeim fyrir það. Kannski verður hólið þeim nógu mikil upp- örvun til þess að lækka verðið á öðrum vörum. Neytandi segir Hagkaup ekki ódýra verslun: Yddarinn 200 krónum dýrari REYKJAVÍK Lögreglan í Reykjavík hefur ekki enn afgreitt umsókn Kaffi Stígs við Rauðarárstíg um rekstrarleyfi. Líkt og Fréttablaðið greindi frá lagðist heilbrigðis- nefnd Reykjavíkur gegn leyfis- veitingu og lagði til að staðurinn væri vínlaus. Lögreglunni ber að leita umsagna nokkurra aðila áður en hún tekur afstöðu til leyfisveit- ingar. Þær umsagnir eru bindandi og því ætti neikvæð umsögn heilbrigðisnefndar að hamla veitingu leyfis. Nágrannar hafa kvartað undan ónæði af staðnum og umgengni við hann. - kóp Engin ákvörðun tekin enn: Enn óvissa með leyfi Kaffi Stígs LÖGREGLUMÁL „Þetta var bara svona lítill sproti - kallaður veldis sproti,“ segir Egill Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Öryggis gæslunnar ehf. Öryggisvörður á vegum fyrir- tækisins á yfir höfði sér kæru fyrir vopna burð, eftir að hann dró upp það sem lögreglan kallar kylfu í átökum við þjóf í verslun 10-11 í Austurstræti í fyrrinótt. Vörðurinn greip mann við að stela úr búðinni og sýna upptökur öryggis myndavélar vörðinn grípa til útdraganlegrar kylfu í átökun- um, svipaðrar gerðar og þeirrar sem lögregla notar, að sögn varð- stjóra lögreglu. Slík kylfa flokkast sem vopn hérlendis og er ólögleg. Vörðurinn er erlendur og sagði lögreglu að í heima landi hans þætti sjálfsagt að öryggisverðir bæru sprota sem þessa. Egill fullyrðir að öryggisvörðurinn hafi borið sprot- ann án vitundar fyrirtækisins. Ekki er talið að sprotanum hafi verið beitt gegn þjófnum. - sh Öryggisvörður gæti verið kærður fyrir vopnaburð: Kylfa eða veldissproti SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir- litið hefur framlengt leyfi Hreyfils til útgáfu á sameiginleg- um ökutaxta fyrir leigubílstjóra sem aka á vegum bifreiðastövar- innar til 1. janúar 2010. Verðsamræming er almennt óheimil samkvæmt samkeppnis- lögum en Samkeppniseftirlitið getur veitt undanþágu þar frá. Skilyrði undantekningar Hreyfils er að hagsmunafélag bifreiða- stjóranna hjá Hreyfli ákveði sjálfir hámarkstaxtann, en ekki leigubifreiðastöðin. Seinna skilyrðið er að taxtinn verði auglýstur á áberandi stað í leigubílum með auðlæsilegu letri. Markaðshlutdeild Hreyfils á höfuðborgarsvæðinu og Suður- nesjum er líklega rúm sextíu prósent, en þar starfa fjórar aðrar bifreiðastöðvar. - gh Ákvörðun Samkeppniseftirlits: Leigubílstjórar samræma verð VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.