Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 20
MARKAÐURINN 20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
„Þegar maður kemur inn í Wool-
worths-verslun hér í London sést
fljótt að eitthvað er að. Það vant-
ar vörur í hillurnar. Þá er salan árs-
tíðabundin, er mest um jólin. Allir
sjá að þessu þarf að breyta,“ segir
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs
Group.
Breska dagblaðið Daily Tele-
graph sagði í júní að um fjöru-
tíu árum frá dýrðardögum Wool-
worths væri hún að visna upp og
ætti skammt eftir.
Baugur og Malcolm Walker, for-
stjóri matvörukeðjunnar Iceland,
sem selur fryst matvæli, gerði fyrir
nokkru tilboð í smásöluhluta versl-
unarinnar. Því var hafnað um síð-
ustu helgina. Næstu skref eru í
skoðun, að hans sögn.
Hann bendir á að Baugi hafi tek-
ist vel til með uppstokkun í rekstri
verslana, svo sem með bresku versl-
unina House of Fraser og frysti-
vörukeðjuna Iceland, sem fjölmiðl-
ar höfðu nánast afskrifað. Verslanir
Baugs í Bretlandi gangi nú mjög vel
þrátt fyrir erfitt árferði í smásölu.
Gunnar segir virðast sem nú-
verandi og fyrrverandi stjórnend-
ur Woolworths hafi misst sjónar á
rekstrinum. Sé nauðsynlegt að að
nýir stjórnendur komi að verslun-
inni og verði nýr forstjóri að taka á
öllu sínu eigi að takast að bæta af-
komuna. - jab
GUNNAR SIGURÐSSON Forstjóri
Baugs segir nýjan forstjóra Wool-
worths verða að einbeita sér að rekstri
verslunarinnar.
Stjórnendur misstu sjónar á rekstrinum
„Markaðshlutdeild er meðal þess
sem við förum yfir,“ segir Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins.
Stofnunin hyggst kanna tengsl
Eikar, Landic og Þyrpingar. Hún
kannaði nýverið kaup FL Group,
nú Stoða, á eignarhlutum í Landic
og Þyrpingu. Niðurstaðan varð sú
að samruni hefði orðið. Náin tengsl
séu milli eigendanna, sem margir
tengjast Baugi. Ekki væri ástæða
til að aðhafast vegna samrunans og
félögin hefðu ekki markaðsráðandi
stöðu. Meðan Samkeppniseftirlitið
rannsakaði málið eignuðust Glitn-
ir og Saxbygg Eik Properties. Páll
Gunnar segir að málið verði kann-
að sérstaklega, á grundvelli sam-
runatilkynningar sem eftirlitinu
barst í sumar.
Óvíst er um markaðshlutdeild
einstakra fyrirtækja á leigumark-
aði fyrir atvinnuhúsnæði. Þar eru
meðal annars Eik, Þyrping og
Landic, auk þeirra Nýsir, Klasi,
Smáragarður og fleilri. - ikh
Rannsaka Landic, Þyrpingu og Eik
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá ára mót um
Alfesca 0,1% -2,0%
Atorka -1,3% -44,9%
Bakkavör 1,8% -51,1%
Exista 15,5% -55,4%
Glitnir 2,0% -29,2%
Eimskipafélagið 0,0% -59,2%
Icelandair 6,8% -32,4%
Kaupþing -0,7% -19,0%
Landsbankinn 4,1% -32,3%
Marel 4,5% -14,1%
SPRON 0,0% -61,7%
Straumur 1,9% -36,9%
Teymi 21,5% -72,4%
Össur 4,6% -7,6%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
hefur hækkað nokkuð að und-
anförnu og stóð í 4.398 stigum
í lok viðskipta á mánudag sem
er hæsta gildi hennar í rúma
tvo mánuði. Vísitalan hafði þá
hækkað um 7,4 prósent síðan hún
náði lágmarki í lok júlí. Frá ára-
mótum hefur vísitalan lækkað
um 28,4 prósent. Verðsveiflurnar
hafa verið mun meiri í einstök-
um félögum. Við lok viðskipta á
mánudag höfðu hækkað um 53,3
prósent frá því að þau náðu lág-
marki þann 16 júlí. Exista lækk-
aði aftur um 6 prósent í viðskipt-
um á þriðjudag.
„Það er ekkert í undirliggj-
andi þáttum sem réttlætir mikl-
ar hækkanir í sumum félögum“
segir Grétar Már Axelsson hjá
greiningardeild Glitnis. Hann
segir markaðinn munu áfram
eiga undir högg að sækja, en
lægra skuldatryggingaálag á ís-
lensku bankana og lægra olíuverð
séu þó jákvæðar fréttir. Kristj-
án Bragason hjá greiningardeild
Landsbankans segir sveiflur hér
á landi enduróm að utan: „Það er
mikil taugaveiklun á erlendum
mörkuðum og undirliggjandi nei-
kvæðni sem endurspeglast hér á
landi.“ -msh
Ekkert undirliggjandi
sem réttlætir hækkanir
V E R Ð Þ R Ó U N E X I S T A
Hvenær keypt Hagnaður/tap
fyrir 1 mánuði (18.7) 45,6%
fyrir 2 mánuðum (18.6) 7,3%
fyrir 3 mánuðum (18.5) -15%
fyrir 6 mánuðum (22.2) -23,5%
fyrir ári síðan (22.8 07) -71,5%
(Miðað er við söluverð í lok dags mánudag)
Unnið er að því að auka hluta-
fé Árvakurs. Þetta staðfestir
Einar Sigurðsson, forstjóri Ár-
vakurs.
„Við erum að vinna að þessu
núna en ég gef engar tölulegar
upplýsingar að svo stöddu,“
segir hann, en kveður frekari
fregna að vænta í lok vikunnar.
Heimildir Markaðarins herma
að hlutafjáraukningin verði um
eða yfir hálfan milljarð og að
hún eigi að ganga fljótt fyrir
sig. Aðalástæðan sé að mæta
háum rekstrarkostnaði, en ekki
lækka skuldir. - ghh
Hlutafé
Árvakurs aukið
Framkvæmdastjóri Keops De-
velopment, Preben Thomsen, er
ósáttur við nýja eigendur félags-
ins Stones Invest.
Hann segir að um 350 milljónir
íslenskra króna hafi verið tekn-
ar út úr fyrirtækinu og notaðar í
önnur verkefni. Vísar hann þá til
endurgreiðslu virðisaukaskatts
sem aldrei var lögð inn á reikn-
ing Keops Development.
Framkvæmdastjórinn stytti
sumarleyfi sitt vegna málsins og
er harðorður í viðtali við dönsku
fréttaveituna Ritzau: „Ég get
lifað með því að stytta sumar-
leyfið mitt en ég get ekki sætt
mig hljóðalaust við þá óreiðu sem
augljóslega hefur verið í gangi
án minnar vitundar.“
Framkvæmdastjórinn er einn-
ig afar ósáttur við að stjórn
Keops Development hafi nú
dregið sig til baka og rift einhliða
kaupsamningnum við Landic
Property. - ghh
Ósáttur framkvæmdastjóri
HÖFUÐSTÖÐVAR KEOPS
Framkvæmdastjóri Keops er harðorður í
garð stjórnenda Stones Invest sem nýlega
riftu kaupsamningi á Keops við Landic
Property. FRÉTTABLAÐIÐ/NORDICPHOTOS
Faxafen 10
gott húsnæði til leigu
Gott húsnæði, allt að 420m2 (180m2 +
240m2), til leigu á 2. hæð í Faxafeni 10.
Húsnæðið hentar vel fyrir skrifstofur eða
kennslu. Leiguverð er kr. 1.400 pr. m2 á
mánuði (enginn vsk). Áhugasamir sendi
fyrirspurn á netfangið ohj@hradbraut.is
eða leiti upplýsinga hjá Ólafi í síma
517-5040.