Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 43

Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 43
H A U S MARKAÐURINN 25MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 O P N U V I Ð T A L I GEIR HAARDE FORSÆTISRÁÐ- HERRA „Besta leið- in til að vinna sig út úr þessum aðstæð- um er hins vegar að sjálfsögðu fólgin í að framleiða, framleiða og aftur framleiða. Verðmætasköpun er það sem málið snýst fyrst og fremst um, að halda áfram að skapa verðmæti í vörum og þjónustu og nýta auðlindir okkar. Auðlindir eru ekki mikils virði ef þær eru ekkert nýttar og engin þjóð telur sig hafa efni á að nýta ekki þær auðlindir sem hún ræður yfir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA irlýsinga sem gengið hafa, að það álver muni rísa ef um það nást eðlilegir við- skiptasamningar milli aðila. Það kæmi þá á eftir álverinu í Helguvík. Að því leyti til hefur ákveðinni óvissu verið rutt úr vegi enda þótt úrskurður umhverfisráðherra hafi komið á óvart.“ Er ráðherrum ríkisstjórnarinnar ekki ljós þessi efnahagsvandi sem þú hefur lýst. Var úrskurðurinn borinn undir þig? „Nei, hann var ekki borinn undir mig og ég tel að hann hafi verið óþarfur og sagði það strax. Afla hefði mátt sömu upplýs- inga um umhverfisáhrif eftir þeim leiðum sem venjulega hafa verið farnar. En þetta var mat ráðherrans og hún var innan sinna valdheimilda í þessari ákvörðun. En það er skýr stefna ríkisstjórnarinnar að það verði virkjað fyrir norðan og reist álver á Bakka.“ Telurðu rétt að hefja undirbúning að Bitruvirkjun á Hellisheiði og virkjunum í neðri hluta Þjórsár? „Bæði þessi verkefni eru langt komin í undirbúningi og ég tel sjálfsagt að halda áfram undirbúningi að Bitruvirkjun og fara á fullt í þeirri vinnu. Síðan verður að koma í ljós hvar hún lendir í röðinni af virkjunarkostum á Hellisheiðarsvæðinu. Hvað varðar neðri hluta Þjórsár þá er sá undirbúningur auðvitað mjög langt kom- inn og fyrir skemmstu voru flestir á því að þar væru mjög skynsamlegir virkjun- arkostir Ég vona bara að fljótlega leysist úr þeim ágreiningi sem eftir er að leysa þar. Hins vegar eru hafin málaferli út af ákveðnum þætti málsins þannig að við verðum að bíða og sjá hver niðurstaðan úr því verður. Á meðan er sjálfgefið að ráðast í Búðarhálsvirkjun að mínum dómi.“ Kemur til greina að beitt verði heim- ildum um eignarnám á þessu svæði, eins og gert hefur verið annars staðar á land- inu, í því skyni að tryggja virkjunarfram- kvæmdir? „Það er of snemmt að kveða upp úr um það. Heimild iðnaðarráðherra er til stað- ar í lögum.“ Erfitt árferði bitnar á fjölmiðlum eins og öðrum. Kemur til greina að taka Ríkisút- varpið af auglýsingamarkaði til þess að jafna samkeppnisstöðu annarra miðla? „Menntamálaráðherrann hefur haft þessi mál til sérstakrar skoðunar. Hún er með hugmyndir í vinnslu varðandi þá stöðu, sem er ekki er tímabært að fara nánar út í á þessum tímapunkti.“ Vandi steðjar að mörgum fjármálafyr- irtækjum, til dæmis sparisjóðunum. Þarf ekki frekari samruni og hagræðing að eiga sér stað á innlendum bankamarkaði? Mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því að liðka fyrir slíku ferli, meðal annars með tilliti til samkeppnisumhverfisins? „Ég tel víst að það sé unnt að hagræða í bankakerfinu, til dæmis með samein- ingu eða samruna fyrirtækja. Ríkisstjórn- in mun stuðla að því fyrir sitt leyti.“ Eru áform um einhver skref til einka- væðingar ríkisfyrirtækja á næstunni? „Það hefur ekki verið ákveðið en ég tel vissa möguleika fyrir hendi í þeim efnum, sem fara þarf yfir. Nefni ég Íslandspóst í því sambandi.“ VILL UPPFYLLA MAASTRICHT-SKILYRÐI Forveri þinn í embætti, Halldór Ásgrímsson, taldi að Ísland yrði geng- ið í Evrópusambandið árið 2015. Ertu sammála því mati? „Nei, ég er ekki sam- mála því og ekki hlynnt- ur því.“ Í síðustu viku lýsti ut- anríkisráðherra þeirri skoðun sinni að upptaka evru væri nauðsynleg, „ef við ætlum að taka þátt í þessu alþjóðlega hnatt- vædda hagkerfi og vera með stóran fjármála- geira“ eins og hún orð- aði það. Fjölmörg sam- tök innan atvinnulífs- ins hafa lýst svipuðum sjónarmiðum, líka ASÍ, Starfsgreinasambandið, bankarnir og forsvars- menn margra stórra fyr- irtækja. Hafa allir þessir aðilar rangt fyrir sér? „Ég tel að margir af þeim aðilum sem þú nefndir tali um evru í stað krónu sem lausn á þeim vanda sem við glímum við nú um stundir. Sú tenging er óraunhæf. Við munum uppfylla öll Maastricht-skilyrðin ef við náum þeim árangri sem að er stefnt og lýst í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar og þá verður ekki nein ástæða til að taka upp annan gjaldmiðil því þá verð- ur kominn sá stöðugleiki sem nauðsynleg- ur er.“ En gæti ekki verið skynsamlegur leikur í stöðunni að gefa út þau skilaboð að ríkis- stjórnin ásetji sér að uppfylla Maastricht- skilyrðin um upptöku evru á þessu kjör- tímabili, enda þótt ekki sé samstaða um að sækja um aðild að Evrópusambandinu? „Jú, við stefnum að sjálfsögðu að því að uppfylla þessi skilyrði sem fyrst. Það eru almennir hagsmunir okkar að gera það óháð Evrópusambandinu.“ Fleiri og fleiri sjálfstæðismenn tjá nú opinberlega stuðning sinn við inngöngu í ESB. Telurðu að tekist verði á um aðild að Evrópusambandinu á næsta landsfundi flokksins? „Mér er það til efs. Umræðan um þessi mál er mjög lifandi innan Sjálfstæðis- flokksins. Mér finnst ekki að þrýstingur innan flokksins í þessa veru hafi aukist neitt að ráði. Við ræðum þetta opinskátt í flokknum. Þingmenn hans fylgja þeirri stefnu sem mörk- uð var á síðasta lands- fundi en auðvitað gild- ir það um Sjálfstæðis- flokkinn eins og aðra flokka, að við getum ekki útilokað neitt um aldur og ævi. Það er mín skoðun, þegar allt er tekið með í reikninginn, að hagsmunum okkar Ís- lendinga sé betur borg- ið utan sambandsins en innan þess.“ ÓHJÁKVÆMILEG GENGIS- AÐLÖGUN Hvernig sérðu næstu vikur og mánuði þró- ast? „Staðan er sú að við höfum verið að fara í gegnum mikla gengis- aðlögun. Hún var óhjá- kvæmileg vegna þess að krónan var um allnokkra hríð of hátt skráð. Slík gengis- aðlögun kallar á tímabundinn verðbólgu- kúf en á eftir standa þeir atvinnuveg- ir sem keppa við innflutning miklu betur að vígi, sem og útflutningsatvinnuvegirn- ir. Staða þeirra verður mjög öflug þegar fram í sækir. Við höfum einnig tekið á okkur þrengingar til skemmri tíma í sjáv- arútvegi til þess að búa í haginn til fram- tíðar og byggja upp fiskstofna. Þegar þetta skilar sér í bættri afkomu atvinnu- veganna er ljóst að hér verða lífskjör al- mennings mjög góð. En það má búast við erfiðu hausti og vetri. Ég lít á það sem stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar að halda verðbólgu í skefjum og koma í veg fyrir fjöldaatvinnuleysi, en þá verður líka að skapa önnur störf í staðinn og gera fyr- irtækjum kleift að koma undir sig fótun- um. Á Íslandi skiptir sérhver einstakling- ur máli og mikilvægt að allir finni störf við hæfi.“ Hefurðu tekið þá gagnrýni að þú sért ekki að gera nóg nærri þér? „Nei, ég vissi að hverju ég gekk í þeim efnum, en reyni að leggja mig allan fram í því sem ég hef tekið að mér. Það er ekki hægt að elta ólar við allar ávirðingar sem tíndar eru fram en ég hlusta vandlega á málefnalega gagnrýni og tel að hún sé af hinu góða. Málsmetandi menn geta haft mismunandi skoðanir á því hvernig eigi að leysa tiltekinn vanda.“ DREG EKKI KANÍNUR UPP ÚR HATTI Eru kröfurnar til þín óraunhæfar? Er ætl- ast til þess að þú dragir kanínur upp úr hattinum? „Stundum er það, já. En flestir sem eru inni í þessum málum vita að það eru engin töfrabrögð í spilinu. “ Það er kallað eftir þjóðarsátt. „Já, en aðstæður hafa breyst mikið í þjóðfélaginu frá árinu 1990 þegar gerð var þjóðarsátt. Verðbólgan nú stafar ekki af víxlverkun launa og verðlags eins og þá heldur fyrst og fremst af hækkun inn- flutningsverðlags. Umhverfi efnahags- málanna er gjörbreytt og stjórnmála- menn ekki lengur með puttana í smáu sem stóru. Auknu frelsi á markaði fylgir aukin ábyrgð þeirra sem þar starfa. Samstarf ríkisvaldsins, sveitarfélaga og aðila vinnu- markaðarins er þó vissulega enn mjög mikilvægt, við leggjum áherslu á að við- halda því og eiga trúnað þessara aðila og vinnum áfram á þeim grundvelli, meðal annars á sérstökum samráðsvettvangi. En ég tel einnig að þegar virkilega bjátar á í þjóðarbúskapnum eigi stjórnmálaflokk- arnir allir, bæði stjórn og stjórnarand- staða, að vinna saman til þess að takast í sameiningu á við þau verkefni sem við er að fást. Það eru mörg atriði sem þarf að hafa samvinnu um og ég kalla eftir víð- tækri samstöðu þjóðinni allri til hagsbóta. Íslenska þjóðin hefur áður gengið í gegn- um erfiðleika og mun sigrast á þeim núna eins og jafnan áður.“ Staðan er sú að við höfum verið að fara í gegnum mikla gengis- aðlögun. Hún var óhjákvæmileg vegna þess að krónan var um allnokkra hríð of hátt skráð. Slík gengis- aðlögun kallar á tíma- bundinn verðbólgukúf en á eftir standa þeir atvinnuvegir sem keppa við innflutning miklu betur að vígi, sem og útflutningsatvinnu- vegirnir. Staða þeirra verður mjög öflug þegar fram í sækir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.