Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 52
24 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af ...
Dauða trúðsins í endurflutningi
á vef RÚV en fyrsti þátturinn
rann út í gær. Hina má heyra
þar í endurvarpi en röðinni sem
byggist á sakamálasögu Árna
Þórarinssonar lýkur ekki fyrr en
29. ágúst. Þeir eru fluttir alla
virka daga kl. 13.
Sex erlend skáld og tólf
íslensk lesa í ljóðapartíum
á Smíðaverkstæði Þjóð-
leikhússins og taka þátt
í umræðum með Birnu
Bjarnadóttur og Ármanni
Jakobssyni í Norræna
húsinu á Fjórðu alþjóðlegu
ljóðahátíð Nýhils sem hefst
á föstudag. Glæsilegt þýð-
ingarit verður gefið út sam-
hliða hátíðinni, sem stendur
fram á sunnudag.
Nýhil efnir til hátíðarhalda um
ljóðið í fjórða sinn og fer hún fram
í Norræna húsinu og á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins og er dag-
skráin metnaðarfull og spennandi.
Um er að ræða einu íslensku hátíð-
ina þar sem ljóð eru í brennidepli,
en hún hefur þegar skipað sér sess
sem framsækinn listviðburður í
íslensku menningarlífi. Hún var
haldin í fyrsta sinn 2005 og hafa
skipuleggjendur lagt sérstaka
áhersla á að leiða saman íslenska
og erlenda strauma í ljóðlist, auk
þess sem frjótt samspil við aðrar
listgreinar hefur verið í fyrir-
rúmi.
Erlendir gestir hátíðarinnar að
þessu sinni eru þau Nina Søs Vinth-
er (Danmörk), Ida Börjel (Sví-
þjóð), Hanno Millesi (Austurríki),
Ann Cotten (Þýskaland), Süreyyya
Evren (Tyrkland) og Morten Søk-
ilde (Danmörk).
Þá munu eftirtalin íslensk skáld
koma fram á hátíðinni: Kristín
Svava Tómasdóttir, Kári Páll Ósk-
arsson, Ingólfur Gíslason, Eiríkur
Örn Norðdahl, Haukur Már Helga-
son, Kristín Eiríksdóttir, Linda
Vilhjálmsdóttir, Jón Örn Loðm-
fjörð, Örvar Þóreyjarson Smára-
son, Ófeigur Sigurðsson, Una
Björk Sigurðardóttir og Ragnar
Ísleifur Bragason.
Glæsilegt rit verður gefið út í
tilefni hátíðarinnar með þýðingum
á verkum íslenskra og erlendra
þátttakenda. Ritinu er ætlað að
efla kynningu á skrifum ljóðskáld-
anna, en í því birtast í fyrsta sinn
enskar þýðingar á verkum marga
íslenskra ungskálda. Kári Páll
Óskarsson, skáld og nemi í þýð-
ingafræði, er ritstjóri þýðinga- og
dagskrárritsins. Hönnun þess ann-
ast myndlistarkonan Sara Riel, en
frágangur bókarinnar verður bæði
óhefðbundinn og metnaðarfullur.
Dagskrá hátíðarinnar sam-
anstendur af tveimur ljóðapartí-
um, föstudags- og laugardags-
kvöld, sem standa frá 20:00 til
23:00. Bæði fara þau fram á Smíða-
verkstæði Þjóðleikhússins, en
seinna partíið er hluti af dagskrá
menningarnætur í Reykjavík. Ólöf
Arnalds leikur tónlist á föstudags-
kvöldinu, en útskriftarnemar í
fræðum og framkvæmd við
Listaháskóla Íslands munu ramma
inn dagskrána með óvæntum
uppákomum bæði kvöldin.
Ekki síður mikilvægur hluti
dagskrárinnar eru pallborðsum-
ræður þar sem landsins rósfingr-
uðustu bókmenntafræðingar, þau
Birna Bjarnadóttir og Ármann
Jakobsson, mun rekja garnirnar
úr ungum rithöfunum um skáld-
skap þeirra. Umræðurnar fara
fram milli 13 og 14.30 á laugardeg-
inum, í Norræna húsinu, og eru
einnig hluti af dagskrá menning-
arnætur. Milli 18 og 19 sama dag
verður einnig stuttur upplestur
norrænna ljóðskálda í Norræna
húsinu. Í fyrri lotu munu Ármann
og skáldin beina umræðum í far-
veg útfrá tveimur spurningum: Í
fyrsta lagi er spurt: leitar ljóðlist-
in ávallt að nýjum byrjunarreit? Í
öðru lagi er spurt: Er ljóðlist sam-
tímans síður ljóðræn en ljóðlist
fortíðarinnar? Í pallborði fyrri
lotu sitja þau Ann Cotten (Austur-
ríki), Nina Søs Vinther (Danmörk),
Süreyyya Evren (Tyrkland) og
Haukur Már Helgason. Seinni lota
pallborðsumræðna hefst að loknu
örstuttu kaffihléi, en þar verður
spurt: Hvert er rými listarinnar í
Ríki sjoppunnar á tíma kapítal-
ískrar neysluhyggju? Birna
Bjarnadóttir mun kría svör út úr
þessum skáldum: Ida Börjel (Sví-
þjóð), Morten Søkilde (Danmörk),
Eiríkur Örn Norðdahl og Kristín
Eiríksdóttir.
Hátíðinni lýkur sunnudaginn 24.
ágúst með málþingi um óháða
útgáfustarfsemi og ljóðabókaút-
gáfu á alþjóðavísu. Þátttakendur í
umræðum verða þau Süreyyya
Evren og Nina Søs Vinther, en þau
hafa bæði komið að útgáfumálum í
sínum heimalöndum. Nina hefur
gegnt stöðu framkvæmdastjóra
rithöfundaforlagsins Arena sem
hefur verið leiðandi í ljóðabókaút-
gáfu í Danmörku, en býr að ára-
tuga hefð sem framsækið bókafor-
lag undir beinni stjórn starfandi
rithöfunda. Staður og nákvæmur
tími málþingsins verða auglýst
innan skamms.
Listrænn stjórnandi fjórðu
alþjóðlegu ljóðahátíðar Nýhils er
Kristín Eiríksdóttir, en fram-
kvæmdastjóri er Viðar Þorsteins-
son. Hátíðin er haldin í samstarfi
við Norræna húsið og Reykjavík-
urborg, en nýtur einnig stuðnings
frá Clara Lachmanns fond og
Prentsmiðjunni Odda. Dagskrá
hátíðarinnar í heild má sjá á http://
nyhil.blogspot.com/
pbb@frettabladid.is
Ljóðahátíð í ríki sjoppunnar
BÓKMENNTIR Kristín Eiríksdóttir skáldkona, er listrænn stjórnandi ljóðahátíðar Nýhils
sem hefst á föstudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/EÓL
Mál og menning sendi frá sér í vor skáldsöguna Laxveiðar
í Jemen eftir Paul Torday. Þetta er
fyrsta skáldsaga höfundar og hún
hefur vakið mikla lukku erlendis,
enda er hér um að ræða einstak-
lega fyndna, spennandi og hjart-
næma sögu. Bókin kemur út beint í
kilju og það er Sölvi Björn Sigurðs-
son sem þýðir.
Í bókinni segir
frá vellauð-
ugum fursta
frá Jemen,
sönnum hug-
sjónamanni,
sem telur
laxveiðar til
þess fallnar að
efla samlyndi
og frið. Hann
vill því gera
landsmönnum sínum kleift að
stunda þessa mannbætandi íþrótt í
heimahögum. Verkefnið er risavaxið
og byltingarkennt, og inn í það
fléttast pólitík, trú og ást, svo ekki
sé minnst á vísindaleg afrek og
duttlunga náttúrunnar.
NÝJAR BÆKUR
Í kvöld munu tveir bandarískir ljósmynd-
arar halda fyrirlestur um verk sín. Fyrir-
lesturinn hefst kl. 12.00 í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesarar eru
Linda Connor og Lonnie Graham.
Linda Connor er kennari við San Francico
Art Institute og nokkuð vel þekkt innan
þess geira sem hefur áhuga á fagurfræði-
legri ljósmyndun. Hún hefur ferðast víða
og rannsakað framandi menningarheima
en á Íslandi er hún nú í rannsóknum á
landslagi og hefur farið víða um land
undanafarinn mánuð. Hún notar 8x10
tommu myndavél, kontaktprentar myndir
sínar á POP-pappír og gulltónar síðan.
Lonnie Graham kennir við Penn State
School of Visual Arts í Pennsylvaníu.
Hann hefur víða myndað fólk og tekið
viðtöl við það. Hann leggur áherslu á arf-
leifð, trú og siðvenjur viðmælanda sinna.
Fyrirlestur um ljósmyndir
Kl. 20
Á morgun verða torg borgarinnar
skoðuð. Torg í borg er þema Menning-
arnætur í ár og því tilvalið að taka
forskot á sæluna í síðustu Kvosar-
göngu sumarsins og ganga á milli
flestra þeirra torga sem finna má á
svæðinu, þekktra sem minna þekktra.
Öll eiga þau sammerkt að hafa verið
vettvangur fjölbreytts mannlífs í
tímans rás. Leiðsögumennirnir eru
sérfræðingar frá Borgarbókasafni,
Listasafni, Ljósmyndasafni og
Minjasafni Reykjavíkur.
Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn
upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar
til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður
froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum
lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein-
indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði
Stellu Artois.
Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um
45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar
sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við
fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr-
efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni-
haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta.
Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem
hingað til hefur hallað um
45 gráður, hefur verið fylltur að
þremur fjórðu skal hann réttur
við. Með jafnri hreyfingu er hann
samtímis færður niður frá flösku-
opi um sem nemur hæð bikarins.
Þannig krýnum við ölið þéttri
froðu sem skýlir innihaldi bikars-
ins og tryggir ferskleika og líf
þessa fljótandi gulls.