Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 62
34 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
Hljómsveitin Bang Gang með
Barða Jóhannsson í fararbroddi
hitar upp fyrir dúettinn Air á
tvennum tónleikum í Frakklandi í
október. Tónleikarnir verða óhefð-
bundnir að því leyti að þeir verða
órafmagnaðir hjá báðum hljóm-
sveitunum.
Uppselt var á tónleikana fyrir
tveimur mánuðum, en þeir verða
haldnir í klassískum tónleikahöll-
um í borgunum Reims og París.
„Þetta verður gaman. Þetta eru
dálítið sérstakir tónleikar því þeir
eru í þessu klassíska umhverfi
sem mér finnst eiga vel við tón-
listina mína,“ segir Barði.
Um mikinn heiður er að ræða
fyrir Barða enda er Air ein fræg-
asta hljómsveit Frakklands og vel
þekkt á heimsvísu. Skemmst er að
minnast tónleika hennar í Laugar-
dalshöll síðasta sumar sem heppn-
uðust einkar vel. Frægasta plata
sveitarinnar er Moon Safari sem
kom út fyrir tíu árum og seldist í
milljónum eintaka.
Bang Gang er á leiðinni í hefð-
bundari tónleikaferð um Evrópu í
haust og passa tónleikarnir með
Air vel inn í þá dagskrá. Á túrnum
ætlar sveitin að kynna sína nýj-
ustu plötu, Ghosts From the Past,
sem kom út á dögunum við góðar
undirtektir. „Þetta leggst allt
saman gríðarlega vel í mig,“ segir
Barði, spenntur fyrir komandi
verkefnum.
Auk vinnunnar með Bang Gang
hefur Barði að undanförnu unnið
að tónlistinni fyrir nýjustu kvik-
mynd Óskars Jónassonar, Reykja-
vík Rotterdam, sem verður frum-
sýnd í október. Upptökum á
myndinni er lokið og stendur
hljóðsetningin nú yfir. -fb
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
GAMLA MYNDIN
LÁRÉTT
2. getraun, 6. hæð, 8. krá, 9. ringul-
reið, 11. íþróttafélag, 12. goðmögn,
14. masar, 16. ætíð, 17. þrí, 18.
angan, 20. tónlistarmaður, 21. þefa.
LÓÐRÉTT
1. máta, 3. í röð, 4. keppikefli, 5.
dýrahljóð, 7. lengdareining, 10. svif,
13. hnoðað, 15. land, 16. taug, 19.
sjúkdómur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gátu, 6. ás, 8. bar, 9. tjá,
11. kr, 12. tótem, 14. malar, 16. sí, 17.
trí, 18. ilm, 20. kk, 21. nasa.
LÓÐRÉTT: 1. hátt, 3. áb, 4. takmark,
5. urr, 7. sjómíla, 10. áta, 13. elt, 15.
ríki, 16. sin, 19. ms.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Ég rakst á þessa bók í Kolaport-
inu í fyrra. Og sá þá að þarna
vorum við komnir með „kover“ á
plötuna okkar,“ segir Freyr Eyj-
ólfsson, gítarleikari og söngvari í
hljómsveitinni Geirfuglunum.
Undarleg og skemmtileg hug-
mynd sem virðist ganga fullkom-
lega upp kviknaði þegar Freyr sá
bókina Geirfuglarnir eftir Árna
Bergmann. Þar var sem plötuum-
slag á plötu, þá sjöttu sem Geir-
fuglarnir voru þá byrjaðir að
vinna, væri fyrirliggjandi með
yfirskriftinni: Geirfuglar Árni
Bergmann. Bókin kom út árið
1982. Sá sem er skráður fyrir
hönnun bókakápunnar er Harald-
ur Guðbergsson myndlistarmað-
ur. „Við hringdum í Harald en
hann er á elliheimili. Honum
fannst þetta skrítið og fyndið og
gaf okkur góðfúslegt leyfi til að
endurvinna hönnun hans og
myndskreytingar,“ segir Freyr og
bætir því við að þeir Geirfuglar
þyrftu þá ekki að leggja mikla
vinnu í gerð plötuumslagsins.
„Við erum svo nýtnir. Erum að
loka hringnum,“ segir Freyr og
viðurkennir fúslega að þetta sé
póstmódernískur aulabrandari
öðrum þræði. Freyr lýsir yfir
mikilli aðdáun á Árna Bergmann
og verkum hans. Með þessari
nafngift og vísun eru Geirfuglar
að votta Árna virðingu sína. „Ein-
hver snjallasti blaðamaður og rit-
höfundur, kennari og fræðimaður
sem við höfum átt. Uppáhalds-
bókin mín eftir hann er Þorvaldur
víðförli. Einhver merkilegasta
skáldsaga sem hefur komið út á
Íslandi hin síðari ár. Svo var Árni
svo mikill brautryðjandi á ýmsum
sviðum. Til að mynda er hann
einn fyrsti glæpasagnahöfundur
landsins. Eftir hann liggur frá-
bær krimmi sem heitir Með
kveðju frá Dublin.“
Geirfuglarnir verða með sér-
lega útgáfutónleika á föstudags-
kvöldið en þeir hafa haft fyrir
venju að troða upp á menningar-
nótt í Iðnó og hefur alltaf verið
troðfullt hús við það tækifæri. En
hvernig er svo platan? Freyr segir
þetta eins og í stofunni heima
eftir að konan henti út antíksófa-
settinu og vildi kaupa allt nýtt.
Geirfuglar keyra að þessu sinni
á hefðbundinni hljóðfæraskipan.
„Nú er ekkert harmonikku-,
mandólín- og polkakjaftæði leng-
ur. Við svikum polkann.“
jakob@frettabladid.is
FREYR EYJÓLFSSON: G EIRFUGLAR HAFA SVIKIÐ POLKANN
Gefa Árna Árna Bergmann
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Valsmönnum.
2 Framsóknarflokki.
3 Matthías Johannessen.
Vinsælasti útvarpsþáttur lands-
ins, Reykjavík síðdegis, gengur í
gegnum tímabundnar manna-
breytingar vegna sumarleyfa. Nú
eru Þorgeir Ástvalds og Bragi
Guðmunds í fríi og hleypur hinn
glaðværi Ásgeir Páll Ágústsson
í skarð þeirra beggja og stendur
vaktina með Kristófer Helgasyni.
Ásgeir var lengi vel einn af föstum
stjórnendum þáttarins - þekktur
fyrir afbragðs skemmti-
legan og smitandi
hlátur. Nú þegar Ásgeir
hefur snúið aftur hafa
gárungarnir endurnefnt
þáttinn - Krissi og Flissi.
Golfæði virðist
hafa gripið lands-
menn en þeirra á
meðal er Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttardómari. Jón Steinar
er þekktur fyrir að taka allt það sem
hann leggur fyrir sig heljartökum.
Hann byrjaði í golfi fyrir tæpum
þremur árum og hefur ástundunin
verið með ágætum, svo miklum að
hæstaréttardómarinn er kominn
í 12 í forgjöf sem þykir gott. Jón
Steinar á sumarbústað við Heklu
og þar í nágrenni eru
afbragðs aðstæð-
ur til að stunda
golfið.
Nánast allir fjölmiðlar
landsins leituðu
til Íslenskrar
getspár og
vildu birta
viðtal við hina heppnu fjölskyldu
í Fellahverfinu sem hreppti 66
milljónir í lottóvinning um síðustu
helgi. Eftir að hafa fengið lista í
hendur yfir valinkunna fjölmiðla-
menn frá Íslenskri getspá völdu
hjónin Jakkapong Srichakan og
Penporn Theehakde nafn Þóru
Kristínar Ásgeirsdóttur, sem nú
er hjá Mogganum, til að
heimsækja sig í Fella-
hverfið. Jakkapong
og Penporn sögðu
Þóru meðal annars
að þau væru nú að
byggja hús í Taílandi
og kæmu peningarn-
ir sér því vel. -shs/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég litaði hárið á mér ljóst. Svo
varð ég að taka ákvörðun um
hvort ég vildi vera ljóshærð eða
dökkhærð í einhverri bíómynd
og mér fannst ég frekar heima
hjá mér með dökkt hár. Fyrir
það var ég búin að prófa fleiri,
fleiri liti. Þá þótti sjálfsagt að
vera með blátt í dag og appels-
ínugult á morgun.“
Ragnhildur Gísladóttir tónlistarmaður.
Myndin er tekin í september 1980.
„Nei, hörkutólið táraðist nú ekki.
Ég veit ekki alveg hvernig hægt er
að lýsa þessu á prenti, honum er
ekki um það gefið að honum sé
hampað. En hann var ánægður
með þetta. Greinilega,“ segir
Arnar Valgeirsson.
Arnar var leiðangursstjóri
Hróksmanna sem eru nýkomnir
frá Grænlandi. Þar gáfu þeir sér-
stökum „agent“ félagsins, Ísmann-
inum ógurlega, Sigurði Péturssyni,
afmælisgjafir í tilefni sextugsaf-
mælis hans sem er um þessar
mundir. Ísmaðurinn fékk forláta
skákborð áritað af Kasparov, tafl-
menn, íslenska tónlist frá Smekk-
leysu, íþróttagalla frá Henson og
konfekt frá Sandholti svo eitthvað
sé nefnt. Fyrir þá sem ekki þekkja
tók Sigurður sig upp og fluttist til
Grænlands og hefur búið þar und-
anfarin ár og verið Hróksmönnum
innan handar en þar hafa þeir stað-
ið fyrir víðtæku barnastarfi, kennt
skák, staðið fyrir skákmótum og
stuðlað að frekari samskiptum
landanna.
„Við vorum þarna í tíu daga, 17
manns alls en mér skilst að þetta
sé ferð númer 15,“ segir Arnar.
Ferðunum lýkur alltaf á Green-
land Open sem Róbert Harðarson
vann í ár.
„Svo var stofnað skákfélag í
Kúlúsúkk. Heiðursfélagi númer 13
varð til í þessari ferð; Harald
Bianco en hann hefur verið okkar
helsta stoð og stytta í Tasiilaq
undanfarin ár.“ - jbg
Ísmaðurinn fékk áritað tafl í afmælisgjöf
ARNAR FÆRIR ÍSMANNINUM GJAFIR Ísmaðurinn ógurlegi er sextugur um þessar
mundir og Hróksmenn færðu honum gjafir af því tilefni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
ÁRNI AFHENTUR
Árni Bergmann veitir sam-
nefndri plötu viðtöku Freyr
og Þorkell Heiðarsson,
félagar úr Geirfuglunum,
fóru í gær til að færa Árna
Bergmann eintak nýrr-
ar plötu sinnar með um-
slaginu góða. Haraldur
Guðbergsson myndlistar-
maður veitti Geirfuglum
góðfúslegt leyfi til að end-
urvinna hönnun sína og
myndskreytingar.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Bang Gang hitar upp fyrir Air
BARÐI JÓHANNSSON Barði og hljóm-
sveit hans Bang Gang hita upp fyrir
dúettinn Air á tvennum tónleikum í
Frakklandi.
AIR Franski dúettinn Air hélt vel
heppnaða tónleika í Laugardalshöll
síðasta sumar.
Löggildir
rafverktakar
Rafmagnsvandamál
Talaðu þá við okkur
Uppl. síma
8604507 / 8494007
islagnir@islagnir.is
www.islagnir.is