Fréttablaðið - 20.08.2008, Side 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í fyrri viku gekk athyglisverður dómur á Norðurlandi þar sem
maður var sýknaður af að hafa
refsað börnum fyrir óskilgreinda
óþekkt með flenginum á beran
rassinn. Í rökstuðningi dómsins er
vísað til hugsanlegrar hefðar fyrir
því í samfélaginu að flengja börn
og ekki sé hægt að kveða á um
refsingu fyrir slíkt ef uppalandi
tekur á því ábyrgð með samþykki
sínu og nærveru.
MIÐAÐ við þetta er foreldrum
heimilt að berja börnin sín til
hlýðni eða fá aðra til verksins.
Þótt Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna kveði á um að börn skuli
njóta verndar gegn öllu ofbeldi af
hvers kyns tagi virðist dómurinn
frekar vilja miða við það sem hann
hefur á tilfinningunni að tíðkist á
Íslandi. Burtséð frá samþykktum
réttindum barna er þar semsé
stuðst við óstaðfesta hugmynd um
refsiaðferðir sem íslenskir for-
eldrar í hrönnum beiti börnin sín.
EN raunar eru áratugir síðan
flengingar þóttu boðleg uppeldis-
aðferð. Fyrir nokkuð löngu fór að
hvarfla að fólki að ef til vill væru
barsmíðar ekki vænlegar til að
byggja upp sjálfstraust barna og
trúnaðartraust við foreldra. Þar á
undan þótti kannski í fínu lagi að
flengja smá. Þá þótti gefa góða
raun að hræða með Grýlu og
Kuldabola því hvað er nú með-
færilegra en barið og hrætt barn?
TRÚLEGA eru fleiri en ég sem
stundum mislíkar ögn hegðun litlu
grísanna. Stundum fara þeir jafn-
vel töluverða vegalengd yfir strik-
ið og æði misjafnt hvernig við
sjálf erum upplögð til að höndla
uppsteytinn. Göfugri manneskja
getur kannski litið á nauðsynlega
búðarferð með heimtufrekan
krakka síðla dags sem dásamlega
upplifun en ekki harðneskjulega
þjálfun í jafnaðargeði. Reyndar
þekki ég ekkert foreldri sem
aldrei hefur dottið í hug eitt örstutt
augnablik að taka oggulítið í
hnakkadrambið á krakkaormin-
um. Ekkert er eins yndislegt og
sofandi börn.
MARKMIÐ sæmilega þenkjandi
fólks er vitaskuld að hafa góð
áhrif á afkvæmi sín og til þess eru
yfirvegaðar leiðbeiningar vænleg-
astar til árangurs. Börn hafa yfir-
leitt tilhneigingu til að skilja prýði-
lega ýmsar aðferðir sem eru
lausar við bæði ofbeldi og niður-
lægingu. Og þó enn eimi eftir af
gamaldags uppeldisaðferðum
getur varla verið hlutverk dóm-
stóla að leyfa það sem er bannað.
Að leyfa það
sem er bannað
Í dag er miðvikudagurinn 20.
ágúst, 233. dagur ársins.
5.35 13.31 21.24
5.11 13.16 21.18
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
32
03
0
8/
08
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Sól og bíll - Með Toyota
Með flestum tegundum nýrra seldra Toyota bifreiða
fylgir utanlandsferð á sólarströnd fyrir allt að fjóra í allt
að tvær vikur, að verðmæti allt að 550 þúsund kr.
Öll gjöld og skattar innifalin.
Viðskiptavinur velur hversu lengi hann vill vera
(1 eða 2 vikur), hverjum hann býður með sér
og hve mörgum (1 til 3).
Gjafabréfið er framseljanlegt.
Komdu sem fyrst á sölustaði Toyota um land allt
og tryggðu þér gjafabréf að þínum draumaáfangastað.
Þetta tilboð rennur út 14. september 2008.
Áfangastaðir: Krít, Mallorca, Tyrkland (Marmaris),
Portúgal, Kanarí (Tenerife) og Costa del Sol.
Bílar: Yaris, Auris, Corolla, Verso, Avensis, RAV4, Prius,
Land Cruiser, Hilux og Hiace.
Allar nánari upplýsingar á www.toyota.is
Handa þeim sem þér þykir vænst um !