Fréttablaðið - 29.09.2008, Qupperneq 2
2 29. september 2008 MÁNUDAGUR
SLYS Alvarlegt umferðarslys átti
sér stað á mótum Hringbrautar og
Miklubrautar klukkan hálffjögur
aðfaranótt sunnudags. Karlmaður
á þrítugsaldri liggur þungt haldinn
á gjörgæsludeild Landspítalans
eftir slysið, en hann var farþegi í
bifreið sem ekið var austur eftir
Miklubraut. Maðurinn gekkst
undir aðgerð stuttu eftir slysið, en
er haldið sofandi í öndunarvél.
Fjórir aðrir voru í bílnum og
sluppu með minniháttar áverka, en
ökumaður bifreiðarinnar missti
stjórn á bílnum með þeim afleið-
ingum að bíllinn lenti á stálgrind-
verki á umferðareyju. Málið er í
rannsókn, en ekki liggur fyrir hvað
olli slysinu. - ag
Karlmaður þungt haldinn:
Alvarlegt
umferðarslys
LÖGGÆSLUMÁL Valgerður Sverris-
dóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins og fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, segist telja að
sjálfstæðismenn hafi lengi haft
áform um að bola Jóhanni R.
Benediktssyni, fráfarandi lög-
reglustjóra, frá embætti. Í þeim
tilgangi hafi þeir látið vera að
mæta fjárhagsvanda embættis-
ins.
Valgerður var yfirmaður
Jóhanns þegar hann var sýslu-
maður á Kefla-
víkurflugvelli
fyrir samein-
ingu lögreglu-
embættanna
sem tók gildi 1.
janúar 2007.
„Þegar ég var
utanríkisráð-
herra var verið
að ræða að fá
aukafjárveit-
ingu til þess að
klippa á skulda-
hala embættis-
ins og það virt-
ist vera nokkur
samstaða um
það,“ segir hún.
„En svo allt í
einu komu
skilaboð að
ofan, ég veit
ekki alveg hvað-
an, um að slíkt skyldi ekki gert.
Svona eftir á að hyggja datt mér í
hug að ástæðan hefði verið sú að
þeir (sjálfstæðismenn) hefðu
skipulagt frá upphafi að losa sig
við Jóhann og þess vegna ekkert
verið að bæta stöðu hans.“
Lögreglustjórafélag Íslands
lýsir hins vegar yfir eindregnum
og óskoruðum stuðningi við dóms-
málaráðherra og starfsmenn
dómsmálaráðuneytisins. Þetta
kemur fram í tilkynningu sem
félagið sendi frá sér í gær.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri sendi einnig frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem hann
undrast framgöngu Jóhanns í fjöl-
miðlum síðustu daga. Enn fremur
segir þar: „Skipulagsbreytingar
hafa reynt á hæfni og getu yfir-
manna og hafa þeir sýnt festu og
áræðni til að ná settum markmið-
um. Um þetta hefur verið sam-
staða meðal allra lögreglustjóra.
Einn úr hópnum kýs nú að fara
aðra leið. Það er hans val.“
Aðspurð um viðbrögð Lögreglu-
stjórafélagsins segir Valgerður:
„Það er náttúrlega svo að Sjálf-
stæðisflokkurinn er búinn að raða
gjörsamlega inn í þetta kerfi og
alveg upp í Hæstarétt, svo að
menn verða náttúrlega að standa
réttu megin við línuna þegar
svona mál koma upp.“
„Ég skil vel þá stöðu sem þeir
(lögreglustjórar) eru í og ég óska
bara mínum gömlu og góðu starfs-
bræðrum velfarnaðar,“ segir
Jóhann um yfirlýsingu félagsins.
Spurður um viðbrögð dómsmála-
ráðherra í Fréttablaðinu í gær og
yfirlýsingu ríkislögreglustjóra
segir hann: „Ég hef útskýrt mín
sjónarmið og hef engu við þau að
bæta.“ jse@frettabladid.is
Segir löngu áformað
að losna við Jóhann
Valgerður Sverrisdóttir segist telja að sjálfstæðismenn hafi áformað að koma Jó-
hanni R. Benediktssyni, fyrrverandi undirmanni sínum, úr embætti. Lögreglu-
stjórar styðja dómsmálaráðherra. Ríkislögreglustjóri gagnrýnir Jóhann R.
HARALDUR
JOHANNESSEN
JÓHANN R.
BENEDIKTSSON
FYRRVERANDI UTANRÍKISRÁÐHERRA Valgerður Sverrisdóttir segist telja að sjálfstæðis-
menn hafi lengi haft áform um að bola Jóhanni R. frá embætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Jóhannes, er þetta ekki
skandall?
„Jú, Kompás þyrfti að kanna málið.“
Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri Kompáss,
sagði frá því í viðtali við Fréttablaðið að
hann hefði verið rekinn úr skóla þrettán ára.
MENNING Kvikmyndaframleiðand-
inn Harrison Bohrman vinnur nú
að heimildamynd um Bobby
Fischer þar sem meðal annars
verður leitast við að svara þeirri
spurningu hvar erfðaréttur eftir
hann eigi að falla. „Ég tel að ýmsu
sé ósvarað í þeim efnum,“ segir
Bohrmann. Hann segist ekki geta
sagt til um hvenær myndin verði
tilbúin.
„Ég er eiginlega þriðja kynslóð-
in í minni ætt sem er upptekin og
heilluð af Fischer,“ bætir hann
við. „Faðir minn, David, fór til
Íslands sem fréttamaður fyrir
Channel 9 News í heimsmeistara-
einvíginu við Spassky árið 1972.
Stan, afi minn, var þá á sömu stöð
og sagði frá einvíginu heima í
Kaliforníu. Þess má til gamans
geta að Fischer, sem oft kvartaði
yfir óhljóðum meðan á einvíginu
stóð, lét föður minn eitt skiptið
heyra það þegar hann var að taka
utan af sælgætismola. En afi minn
fjallaði einnig um Fischer á sínum
fjölmiðlaferli.“
Þess má geta að David, faðir
Harrisons, er stjórnarmaður í
CNN-fréttastöðinni og hefur nú
umsjón með umfjöllun stöðvar-
innar um forsetaslaginn þar í
landi. Stan, afi Harrisons, stjórn-
aði spjallþætti með Maríu Cole,
ekkju Nat King Cole. Harrison
kemur hingað til lands á morgun
en heimildarmynd hans Bomb It
verður sýnd á Kvikmyndahátíð
Reykjavíkur sem nú fer fram. - jse
Kvikmyndaframleiðandi af frægri fjölmiðlaætt:
Gerir heimildarmynd um Fischer
HARRISON BOHRMAN Faðir Harrisons
fylgdist með einvíginu árið 1972 fyrir
sjónvarpsstöð í Los Angeles.
SLYS Kona á þrítugsaldri lenti
ofan í gili eftir að hún missti
stjórn á fjórhjóli sem hún ók á
Nesjavallaleið í gær.
Tvær konur voru á hjólinu
þegar þær komu að gilsbrún í
Foldadal og snögghemluðu. Við
það féll önnur konan af hjólinu og
rann nokkra metra ofan í gil þar
sem hún skorðaðist á milli steina.
Fjórhjólið valt einnig niður gilið
og lenti á konunni með þeim
afleiðingum að hún hlaut áverka á
brjóstholi. Hin konan slapp með
minniháttar meiðsl en slökkvilið
var kallað til auk þess sem
björgunarsveitarmenn úr Ársæli
komu til aðstoðar. - ag
Slys á Nesjavallaleið:
Féll af fjórhjóli
niður í gil
SÚDAN, AP Súdanskir hermenn og
átta menn frá Tsjad sem tóku þátt
í að ræna hópi evrópskra
ferðamanna áttu í æsilegum
eltingarleik um eyðimörkina í
gær sem lyktaði með skotbar-
daga. Allir mannræningjarnir
utan tveir voru felldir. Hinir tveir
sögðu minnst 35 vopnaða menn
gæta gíslanna á tilteknum stað í
Tsjad. Þetta uppýsti talsmaður
Súdanshers í gær.
Ellefu ferðamenn og átta
egypskir fylgdarmenn þeirra
voru teknir til fanga af mannræn-
ingjum í eyðimörkinni syðst í
Egyptalandi fyrir viku. Að því er
virðist var farið með þá til
svæðisins þar sem landamæri
Egyptalands, Súdans, Tsjad og
Líbýu mætast. - aa
Eltingarleikur í eyðimörkinni:
Meintir mann-
ræningjar felldir
GÍSLATAKA Ferðamenn skoða forn-
egypsk hof í Philae við Aswan í
S-Egyptalandi. Evrópskum ferðamanna-
hópi var rænt í eyðimörkinni fyrir viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Þýski
utanríkisráðherrann Frank-Walter
Steinmeier fagnaði í gær nýrri
ályktun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna um kjarnorkumál Írans
og sagði hana til marks um
samstöðu
alþjóðasamfé-
lagsins. Hann
hvatti Írans-
stjórn til að
gefa „kjarnorku-
ævintýri“ upp á
bátinn.
Öryggisráðið
samþykkti
samhljóða nýja
ályktun á
laugardag þar sem ákveðið er að
halda áfram þeim refsiaðgerðum
sem áður hafði verið komið á
gagnvart Írönum fyrir að neita að
hætta auðgun úrans. Auk þess er
Írönum boðinn ýmis ávinningur af
því að sýna fullan samstarfsvilja.
Árlegt allsherjarþing SÞ
stendur nú yfir í höfuðstöðvum
samtakanna í New York. - aa
Kjarnorkumál Írans:
Samstaða um
refsiaðgerðir
FRANK-WALTER
STEINMEIER
EFNAHAGSMÁL Stærri lífeyrissjóðir
á almenna markaðnum hafa nú
þegar tekið stöðu með krónunni í
gjaldeyrisskiptasamningum, að
mati Gunnar Páls Pálssonar, for-
manns stjórnar Lífeyrissjóðs
verslunarmanna og stjórnarmanns
í lífeyrisnefnd ASÍ.
Í sama streng tekur Hrafn
Magnússon, framkvæmdastjóri
Landssamtaka lífeyrissjóða. Þetta
hafi staðið yfir allt síðan í vor.
Sjóðirnir hafi því verið „töluvert
á undan þeim þingmönnum [Helga
Hjörvari og Steingrími J. Sigfús-
syni] sem viðrað hafa þessa skoð-
un sína um tilflutning erlendra
eigna,“ segir Hrafn.
Gunnar Páll telur að brátt verði
komið að endimörkum þessara til-
flutninga.
„Að því er manni skilst eru þeir
meira og minna búnir að flytja
fjármunina til landsins,“ segir
Gunnar Páll. En geta lífeyrissjóð-
irnir þá beitt sér að einhverju leyti
til að bæta efnahag þjóðarinnar?
„Það er ekkert annað sem okkur
hefur dottið í hug, nema að þegar
botninum verður náð er gott tæki-
færi að kaupa hlutabréf,“ segir
Gunnar Páll.
Um þetta segir Hrafn: „Ein-
hverntíma verður botninum náð
og þá taka menn spyrnuna.“ - kóþ
Lífeyrissjóðirnir bíða þess að botninum verði náð í efnahagsþrengingum:
Voru á undan þingmönnum
GUNNAR PÁLL
PÁLSSON
HRAFN
MAGNÚSSON
Lífeyrissjóðir hafa lánað sautján milljarða
Lífeyrissjóðir lánuðu til íbúðakaupa fyrir eina sautján milljarða fyrstu sjö
mánuði ársins, að sögn Hrafns Magnússonar, framkvæmdastjóra Landssam-
taka lífeyrissjóða.
Hann segir þessi útlán lífeyrissjóða hafa aukist mikið og jafnist þeir nú á við
hálfan Íbúðalánasjóð að þessu leyti.
„Það vill oft gleymast að lífeyrissjóðirnir lána alveg geysilega mikið til sjóð-
félaga sinna,“ segir Hrafn. Þetta hafi eflaust haft einhver áhrif á íbúðamark-
aðinn.
Krefjast lausnargjalds
Talsmaður sómalskra sjóræningja
tjáði AP-fréttastofunni í gær að
samtök hans krefðust 20 milljóna
Bandaríkjadala, andvirði um 185
milljóna króna, í lausnargjald fyrir
úkraínskt flutningaskip hlaðið rúss-
neskum skriðdrekum sem ætlaðir
voru Keníaher. Bandarískt herskip
var á eftirlitssiglingu undan strönd
Sómalíu í gær og rússneskt herskip er
á leiðinni þangað.
SÓMALÍA
SPURNING DAGSINS