Fréttablaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 16
16 29. september 2008 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is SIGMUNDUR GUÐBJARNASON PRÓFESSOR ER 77 ÁRA. „Það besta í heimi hér verður aldrei mælt með neinni mælistiku en það er ást og hamingja.“ Sigmundur Guðbjarnason er prófessor í efnafræði við Há- skóla Íslands og var rektor sama skóla á árunum 1985 til 1991. Sér Auður Eir Vil- hjálmsdóttir var vígð til prests á Suðureyri við Súg- andafjörð þennan dag árið 1974. Hún varð fyrst kvenna á Íslandi til að taka við prestsembætti. Þar með var alda- löng hefð rofin og einstaka andmæli heyrðust. Þó að Geirþrúð- ur Hildur Bern- höft væri fyrsta konan til að ljúka guðfræðiprófi 1948 sótti hún aldrei um brauð. Auður lauk námi 1962 og tíu árum síðar sótti hún í fyrsta sinn um embætti, í Kársnes prestakalli í Kópavogi. Þá voru prestskosningar í gildi og Auður fékk aðeins 148 atkvæði af 1.829. Súgfirðingar sáu því hins vegar ekk- ert til fyrirstöðu að ráða Auði Eir sem sóknarprest. Þar hafði enginn sótt um þegar emb- ættið var auglýst en Auður Eir fór vestur og bauð sig fram til starfans. Herra Sigurbjörn Einarsson fann enga guðfræðilega meinbugi á því að kona yrði prestur og vígði Auði í Dómkirkjunni í Reykjavík. ÞETTA GERÐIST: 29. SEPTEMBER 1974 Fyrsti íslenski kvenpresturinn vígður MERKISATBURÐIR 1906 Landssími Íslands tekur til starfa. Hannes Hafstein ráðherra sendir konungi fyrsta símskeytið um ný- lagðan neðansjávarstreng. 1918 Búlgaría verður fyrst Mið- veldanna til að undirrita vopnahléssamkomulag við Bandamenn. 1922 Norræna félagið er stofn- að í Reykjavík til að efla norræna samvinnu. 1980 Flugvél er flogið til Reykja- víkur frá Færeyjum með mann standandi á þak- inu til að setja heimsmet. Flugið tekur sex tíma. 1990 Nesjavallavirkjun í Grafn- ingi gangsett. Fyrsti áfangi hennar er 100 megawött. 1996 Jarðskjálfti upp á 5 stig á Richter finnst við Bárðar- bungu. Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, Þorlákur Sævar Halldórsson barnalæknir verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 2. október kl. 13.00. Sigrún Erla Skúladóttir Dóra Soffía Þorláksdóttir Linda Sif Þorláksdóttir og barnabörn. „Þeir fara aldrei úr höfðinu á mér þessir krakkar sem ég kynntist í bröggunum og mig langar svo að hóa þeim saman. Ég er búin að fá aðstöðu fyrir okkur í Múlakaffi eina kvöld- stund og bið þá sem áhuga hafa að slá á þráðinn í síma 865 3316,“ segir Guðbjörg Benjamínsdóttir. Hún býr núna í Reykjanesbæ en ólst upp í braggahverfunum við Suðurlands- braut, Múlakampi og Herskálakampi. Kveðst eiga æskuvinkonur í Grinda- vík sem ásamt bræðrum sínum bjuggu í kömpunum til 1969 og deila með henni áhuganum á að hitta aftur braggabörnin. „Veistu, maður er bara kominn á þann aldur að það er annað hvort núna eða ekki að koma svona hitt- ingi á,“ segir Guðbjörg, sem á hlýj- ar endurminningar frá ungdómsár- um þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. „Á þeim tíma var svo mikill kærleikur og góðmennska á milli fólks þótt kjör- in væru kröpp,“ segir hún. Væntanlegur samkomustaður er vel valinn því Múlakaffi stendur við rætur Múlakamps að sögn Guðbjargar. „Múlakampur náði upp að kartöflugörðunum í Safamýri og teygði sig austur með Suðurlands- brautinni. Þar tók Herskálakampur við og náði langleiðina að Grensás- vegi. Ég átti heima í Múlakampi til ellefu ára aldurs og síðar Herskála- kampi,“ lýsir hún. „Það var byrjað að byggja Laugardalshöllina þegar ég man síðast eftir mér þarna.“ Guðbjörg kveðst hafa farið snemma að heiman þótt hún sé stolt af sínum uppruna og hafi átt yndislega for- eldra. „Þetta var gott en fátækt fólk,“ segir hún. Beðin að rifja upp eitthvað frá æskuárunum, þó ekki sé nema til að kveikja í gömlu leikfélögunum, svar- ar Guðbjörg: „Þetta var bara eins og hjá öðrum krökkum á þeim tíma. Það var ekkert sjónvarp til að hanga yfir. Við renndum okkur á sleðum eða vorum inni í mömmuleik á vet- urna og á sumrin í búleik og bökuð- um þar blómum skreyttar drullu- kökur. Nóg var um efnivið í holtun- um og lítil bílaumferð því göturnar voru fáar og fæstir íbúanna áttu bíla. Þegar kalt var í veðri gat maður alls staðar farið inn og fengið heitt kakó og kökur. Einn strákur í götunni átti hjól og á því lærði ég að hjóla. Svo var róló á milli hverfanna og þar komum við krakkarnir mikið saman.“ Barnapössun er eitt af því sem Guðbjörg sinnti meðan hún var barn, eins og þá var títt, og talsvert var um sendiferðir í mjólkurbúðina í Her- skálakampi. „Það var fínt að fara þangað á morgnana því við krakk- arnir fengum enda af vínarbrauðum þar,“ rifjar hún upp. Erfiðari eru minningar Guðbjarg- ar frá skólaverunni enda kveðst hún hafa þjáðst af lesblindu sem á þeim tíma var enginn skilningur á. „Ég var stimpluð tossi og flosnaði upp úr námi en fékk uppreisn æru fyrir nokkr- um árum, því þá fór ég í skóla. Það er aldrei of seint. Nú starfa ég fyrir lesblinda auk þess að vinna með fötl- uðum bæði í skóla og á sambýli. Það hefur orðið lífsstarfið mitt. Mér hefur vegnað vel, ég hef verið reglusöm og sérlega heppin með börnin mín.“ gun@frettabladid.is GUÐBJÖRG BENJAMÍNSDÓTTIR: HÓAR SAMAN BRAGGABÖRNUM Kærleikur og góðmennska ríktu þótt kjörin væru kröpp FÉLAGSVERA „Ég er búin að fá aðstöðu fyrir okkur braggabörnin í Múlakaffi eina kvöldstund,“ segir Guðbjörg Benjamínsdóttir. MYND/JAKOBÍNA ÓLAFSDÓTTIR AFMÆLI LECH WAL- ESA fyrrver- andi forseti Póllands er 65 ára. ÞÓRUNN SIGURÐAR- DÓTTIR leikstjóri er 64 ára. ÓLAFUR ÖRN HAR- ALDSSON forstjóri er 61 ára. PÁLMI GUNN- ARSSON tónlistar- maður er 58 ára. ÁRNI BJARNASON forseti Far- manna- og fiskimanna- sambands- ins er 56 ára. Þorsteinn Sófusson setti, ásamt félögum sínum, heimsmet í sleðahunda- hlaupi fyrir skemmstu þegar þeir spenntu 57 sleðahunda fyrir dráttar- vél og létu þá draga hana fjögurra kílómetra langa leið. „Við höfum verið að æfa stíft og okkur datt í hug að spenna alla hundana okkar fyrir í einu. Met sem þetta hefur aldrei verið skráð og því er um heimsmet að ræða,“ segir Þorsteinn í samtali við Vísi. Þorsteinn er mikill áhugamaður um sleðahundahlaup og hefur hafið undirbúning fyrir komandi keppnistímabil í Noregi. Setur heimsmet í sleðahundahlaupi ÍÞRÓTTIR Íslendingar þjálfa nú hunda af kappi fyrir sleðahunda- hlaup í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MICHELLE BACHELET forseti Chile er 57 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.