Fréttablaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Manni rennur alltaf kalt vatn milli skinns og hörunds þegar
maður heyrir að Alþingi sé að taka
til meðferðar frumvörp sem séu
„svo leynileg að raunverulegt inni-
hald þeirra megi alls ekki spyrjast
út til þjóðarinnar“ – í hverrar
umboði Alþingi starfar. BB dóms-
málaráðherra hefur verið allra
manna duglegastur við að leggja
fram dularfull drög að dularfull-
um frumvörpum um dularfullar
stofnanir með dularfullan tilgang.
Að þessu sinni munu drögin dular-
fullu vera að frumvarpi um
öryggis- og greiningarþjónustu og
hafa verið kynnt fyrir fulltrúum
þingflokka og því lýst hvernig
skipa megi „þessum málum“ hér á
landi. Þá hafa nefnd á vegum utan-
ríkisráðherra „um hættumat“
einnig verið kynnt þessi frum-
varpsdrög.
FRAM kom í fyrirlestri sem
Björn flutti að meðal þeirra álita-
efna sem þyrfti að taka tillit til
áður en „slík“ lög yrðu sett, væru
hvar ætti að skipa slíkri öryggis-
og greiningarþjónustu innan
stjórnkerfisins og „hvaða Kína-
múrar“ þyrftu að vera á milli lög-
gæslu og öryggisþjónustu.
Í FYRIRLESTRINUM kom fram
að þessi stofnun myndi hafa „for-
virkar rannsóknarheimildir“, þ.e.
hún gæti hafið rannsókn áður en
brot yrðu framin með það að mark-
miði að koma í veg fyrir afbrot.
Þetta væru víðtækari heimildir en
lögreglan hefur nú, því að lög-
reglurannsóknir beinast að brot-
um sem þegar hafa verið framin.
(Sem er nú ekki alveg hreinasatt.
Innskot mitt. ÞB)
ÞETTA myndi gera íslenskum
yfirvöldum kleift að eiga sam-
skipti við erlend yfirvöld og stofn-
anir sem sinna sambærilegum
rannsóknum í öðrum ríkjum. Þetta
myndi beinast gegn skipulagðri
glæpastarfsemi eða hugsanlegum
hryðjuverkamönnum, sem hefðu
annað hvort það að markmiði að
fremja hryðjuverk hér á landi eða
skipuleggja hryðjuverk í öðrum
löndum.
Í ÞRIÐJA RÍKINU starfaði með
miklum afköstum leyniþjónusta á
borð við þessa og hét Geheime
Staatspolizei sem þýðir Leyni-
ríkislögregla, stytt í Leyrík-
Lögregl eða í munni fólks í Lýrík-
Lögrugl. Þessi stofnun náði aldrei
verulegum vinsældum og var lögð
niður að loknu stríði og flestir
hengdir sem ákafast höfðu unnið
við að koma henni á laggirnar.
Geheime Staats-
polizei á Íslandi
Í dag er mánudagurinn
29. september, 273. dagur ársins.
7.32 13.18 19.02
7.18 13.03 18.46
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is