Fréttablaðið - 29.09.2008, Síða 64

Fréttablaðið - 29.09.2008, Síða 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Manni rennur alltaf kalt vatn milli skinns og hörunds þegar maður heyrir að Alþingi sé að taka til meðferðar frumvörp sem séu „svo leynileg að raunverulegt inni- hald þeirra megi alls ekki spyrjast út til þjóðarinnar“ – í hverrar umboði Alþingi starfar. BB dóms- málaráðherra hefur verið allra manna duglegastur við að leggja fram dularfull drög að dularfull- um frumvörpum um dularfullar stofnanir með dularfullan tilgang. Að þessu sinni munu drögin dular- fullu vera að frumvarpi um öryggis- og greiningarþjónustu og hafa verið kynnt fyrir fulltrúum þingflokka og því lýst hvernig skipa megi „þessum málum“ hér á landi. Þá hafa nefnd á vegum utan- ríkisráðherra „um hættumat“ einnig verið kynnt þessi frum- varpsdrög. FRAM kom í fyrirlestri sem Björn flutti að meðal þeirra álita- efna sem þyrfti að taka tillit til áður en „slík“ lög yrðu sett, væru hvar ætti að skipa slíkri öryggis- og greiningarþjónustu innan stjórnkerfisins og „hvaða Kína- múrar“ þyrftu að vera á milli lög- gæslu og öryggisþjónustu. Í FYRIRLESTRINUM kom fram að þessi stofnun myndi hafa „for- virkar rannsóknarheimildir“, þ.e. hún gæti hafið rannsókn áður en brot yrðu framin með það að mark- miði að koma í veg fyrir afbrot. Þetta væru víðtækari heimildir en lögreglan hefur nú, því að lög- reglurannsóknir beinast að brot- um sem þegar hafa verið framin. (Sem er nú ekki alveg hreinasatt. Innskot mitt. ÞB) ÞETTA myndi gera íslenskum yfirvöldum kleift að eiga sam- skipti við erlend yfirvöld og stofn- anir sem sinna sambærilegum rannsóknum í öðrum ríkjum. Þetta myndi beinast gegn skipulagðri glæpastarfsemi eða hugsanlegum hryðjuverkamönnum, sem hefðu annað hvort það að markmiði að fremja hryðjuverk hér á landi eða skipuleggja hryðjuverk í öðrum löndum. Í ÞRIÐJA RÍKINU starfaði með miklum afköstum leyniþjónusta á borð við þessa og hét Geheime Staatspolizei sem þýðir Leyni- ríkislögregla, stytt í Leyrík- Lögregl eða í munni fólks í Lýrík- Lögrugl. Þessi stofnun náði aldrei verulegum vinsældum og var lögð niður að loknu stríði og flestir hengdir sem ákafast höfðu unnið við að koma henni á laggirnar. Geheime Staats- polizei á Íslandi Í dag er mánudagurinn 29. september, 273. dagur ársins. 7.32 13.18 19.02 7.18 13.03 18.46 Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Svefnpokapláss kr. 1.500 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.