Fréttablaðið - 29.09.2008, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 9ekvador ●
langar og tæp 300 kíló. Meðal-
ævi þeirra er um 100 ár og þær
elstu verða allt að 200 ára. Vert er
líka að nefna sækembuna, sem er
eina sjóeðlan á jörðinni, og sér-
stætt fuglalíf, meðal annars fugla
sem eru náskyldir súlum en hafa
heiðbláa fætur,“ segir Hilmar og
bætir við að Galapagoseyjar séu
heill heimur út af fyrir sig, sem
finnist hvergi annars staðar.
„Dýrin eru spök því þau þekkja
ekki afræningja og lítið er um rán-
dýr. Það skýrir hvers vegna risa-
skjaldbakan verður svona stór
og hægfara, því hún þarf ekki að
forða sér undan ræningjum, eins
og ljónum og tígrisdýrum.“ Sýn-
ingin stendur til 16. nóvember.
- þlg
ljónin
Eyjarnar heita eftir þessari dýrategund. „Galapagos þýðir ekkert annað en risaskjald-
baka,“ segir Ari Trausti.
Súlur með heiðbláa fætur á Galapagos. MYND/KLAUS N. HAUSSMANN
● STOFNAÐ VAR TIL STJÓRNMÁLA-
SAMBANDS Á MILLI EKVADOR OG ÍS-
LANDS 11. DESEMBER 2003. Kjörræðis-
maður Íslands í Quito er Oswaldo Munoz. Íbúar
Ekvador eru þrettán milljónir manns. Meirihluti
landsmanna, eða um 65 prósent, er mestísar;
blanda af innflytjendum frá Spáni og fólki af indí-
ánaættbálkum, en um 25 prósent eru af indíána-
ættum. Um tíu prósent íbúanna eru svo Spánverjar
eða eiga rætur að rekja til annarra landa. Spænska
er opinbert tungumál Ekvador, en þó eru indíána-
tungumál enn víða töluð á meðal innfæddra, eink-
um Quechua. Um 95 prósent íbúa tilheyra róm-
versk-kaþólsku kirkjunni, sem er þjóðkirkja landsins.
Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 575 7500
www.veisluturninn.is
Líttu við og njóttu suður-amerískra kokteila og glæsilegs útsýnis
á T20 bar, í Turninum Kópavogi.
Opið fimmtudag til laugardags frá 17.00 til 01.00.
Ógleymanlegur brunch að hætti Nítjánda alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 11.30 til 15.00.
Suðræn sveif la á hæsta bar landsins