Fréttablaðið - 29.09.2008, Side 12
12 29. september 2008 MÁNUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is
ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
UMRÆÐAN
Andrés Pétursson skrifar um Evrópu-
mál
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, fer mikinn í Fréttablaðinu 22. september og
ásakar okkur Evrópusinna um að gefa í skyn
að til sé eitthvað sem nefnist heiðursaðild að
Evrópusambandinu. Ég hef ekki heyrt
nokkurn tala um þess konar aðild enda er
hún ekki til. Þjóðir ganga í ESB af því að
þær telja að hagsmunum sínum sé betur borgið
innan þess en utan. Þetta snýst því ekki um heiður
heldur hagsmuni. Hins vegar rembast margir
andstæðingar aðildar að ESB við að finna leið til að
taka upp evruna eftir aðildarlausum krókaleiðum.
Það má því færa góð rök fyrir því að það séu einmitt
andstæðingar aðildar Íslands að ESB sem séu að „slá
ryki í augu fólks“, svo notuð séu orð þingmannsins.
Árni heldur því fram að allar samþykktir og
sáttmálar um aðild liggi fyrir og að öll aðildarríki
verði að beygja sig undanbragðalaust undir þá
skilmála. En af hverju eru þá Danir, Svíar og Bretar
ekki í myntbandalaginu? Af hverju eru Danir með
undanþágur frá Maastricht-samkomulaginu
í utanríkis- og varnarmálum? Af hverju
semja ný aðildarlönd um aðild sína að
Evrópusambandinu ef allir sáttmálar og
samþykktir ESB eru jafn niðurnjörvaðir og
Árni heldur fram? Geta þessi ríki ekki
einfaldlega kvittað undir staðlaðan samn-
ing?
Staðreyndin er sú að öll lönd sem sótt
hafa um aðild að ESB hafa fengið aðlögun að
reglum sambandsins. Sem dæmi má nefna
undanþágu sem Danir fengu á kaupum
erlendra aðila á sumarbústaðalandi í Danmörku,
sérákvæði varðandi sjávarútvegsstefnuna í land-
helgi Möltu, sérákvæði um heimskautalandbúnað í
Svíþjóð og Finnlandi og þannig mætti lengi telja.
Það sem kemur mér mest á óvart er að Árni dvaldi
á kostnað Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Reykjavíkurborgar í hálft ár í Brussel til að kynna
sér starfsemi ESB. Annað hvort hefur Árni slugsað í
lærdómnum eða að pólitísk stefna flokks hans kallar
á að þingmaðurinn beri svona málflutning á borð
fyrir þjóðina.
Höfundur er formaður Evrópusamtakanna.
Hvað lærði Árni í Brussel?
ANDRÉS
PÉTURSSON
Ísland farsælda frón
Oft hefur okkar farsælda frón fengið
að kenna á því hversu margt er í
heiminum hverfult. Það sést afar vel
þegar umræða síðustu daga er borin
saman við þá er fram fór fyrir örfáum
árum. Árið 2006 viðraði Pétur Blöndal
þær hugmyndir að gera Ísland að
fjármálamiðstöð. Í dag er hins vegar
sóknarleik af þessu tagi lokið og nýj-
ustu hugmyndir Péturs fjalla um það
hvernig megi koma skuldur-
um til aðstoðar og jafnvel
draga þá til ábyrgðar sem
hvatt hafa fólk til að taka
áhættu með lánum
í erlendri mynt, til
dæmis fasteigna-
sala og banka-
starfsmenn.
Og hagsælda hrímhvíta
móðir
Oftast voru stjórnmálamenn gagn-
rýndir fyrir að vera of mikið erlendis
og skeyta minna um það sem var að
gerast hér heima fyrir. Fékk til dæmis
Halldór Ásgrímsson oft að heyra slík-
ar pillur. En einnig þetta virðist hafa
breyst því nú þegar Geir H. Haarde
brá sér til New York til að ávarpa
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna þá bíður Gísli Tryggva-
son, talmaður neytenda, hann
um að koma ekki heim. Geir
lét þó ekki segjast.
Hvar er þín fornaldar
frægð?
Það sem fyrir Gísla vakti var að Geir
kæmi ekki heim fyrr en hann næði
samningum við Bandaríkjamenn,
sem kæmu þá okkur til bjargar í
lausafjárkreppunni sem við eigum
við að etja. Gísli segir á bloggsíðu
sinni: „Ekki koma heim, Geir - fyrr en
þú hefur samið við vini okkar í
Bandaríkjunum (við erum
með varnarsamning við
þá), helst fyrir opnun
markaða á mánudags-
morgun (í dag).“ Þetta er
líka tónn sem heyrðist ekki
fyrir nokkrum árum; hvað
þá þegar Bandaríkin
voru til umræðu.
jse@frettabladid.is
Helsti gallinn við ráðherradóm Björns Bjarnasonar er að
hann er enn ráðherra í ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar. Og einn helsti
gallinn við þjóðlífið almennt er að
ríkisstjórn Davíðs Oddssonar skuli
enn vera að störfum.
Hvað eru þeir búnir að ríkja
lengi? Er þetta ekki svolítið
sambærilegt við það að Ellert
Schram og Hermann Gunnarsson
væru enn í landsliðinu í fótbolta?
Hefðu neitað að víkja og enginn
kæmi sér að því að biðja þá að
hætta...
Þeir Ellert og Hermann fundu
sér nýjan vettvang þegar nóg var
sparkað þar sem þeir gátu þróað
gáfur sínar – Hermann í fjölmiðl-
um sem allsherjar gleðipinni og
ljósgjafi og Ellert réttsýnn og
einarður í pólitíkinni.
Yfir-ráðherrann
Stundum er sagt um okkur sem
ósammála erum Davíð í pólitíkinni
að við elskum að hata hann. Ég er
ekki viss um að það sé alveg rétt.
Ég held að nær væri að segja að
við hötum að elska hann. Þegar sá
gállinn er á honum er hann manna
snjallastur í tilsvörum, sjarmer-
andi og fyndinn og eldsnöggur að
bregða háðslegu ljósi á andstæð-
ingana. En Seðlabankastjóri... ég
veit það ekki.
Vera má að Davíð Oddsson sé
einhvers konar hagstjórnarsnill-
ingur þótt sú snilli blasi kannski
ekki beinlínis við um þessar
mundir – en það skiptir bara engu
máli. Jafnvel þótt hann væri besti
og hæfasti Seðlabankastjóri allra
tíma mundi það einu gilda. Hann
getur hreinlega ekki verið í þessu
embætti á þessum viðsjárverðu
tímum vegna þess að hann hefur
of lengi eldað grátt silfur við ýmsa
menn í viðskiptalífinu. Ummæli
hans og aðgerðir eru skoðaðar í
ljósi þessara átaka. Það er eins og
hann sé enn staddur í miðri
rimmunni um Framkvæmdabanka
atvinnulífsins, óskabarnið sem
götustrákarnir hrifsuðu fyrir
framan nefið á honum. Fólk hefur
á tilfinningunni að afkoma þess sé
á einhvern máta komin undir
skapsmunum og jafnvel dyntum
Davíðs Oddssonar í baráttu hans
við götustrákana. Kannski er það
óréttmætt. En þannig er það.
Þegar maður hættir í pólitík
dugir ekki að skipa sjálfan sig í
embætti einhvers konar yfirráð-
herra.
Hundraðogellefta meðferð
á þingmönnum
Björn Bjarnason hefur hins vegar
ennþá eiginlega ráðherranafnbót,
og mun óhætt að segja að hann
sitji ekki auðum höndum. Hann
hefur nú afrekað að hrekja úr
embætti virtan lögreglustjóra
fyrir engar sakir og jafnframt
staðið fyrir einhverri einkennileg-
ustu sneypuför sem íslenskir
þingmenn hafa farið síðan Árni
frá Múla fann ekki Ameríku.
Hópur íslenskra þingmanna var
sendur til Brussel þeirra erinda að
safna neium við þeirri uppástungu
Björns að Íslendingar gætu tekið
upp evru án aðildar að Evrópu-
sambandinu. Svarið lá að vísu
löngu fyrir en hópurinn þrammaði
svipugöngin þrautseigur og ámóta
gæfulegur og Njálssynir í sinni
liðsbón á Alþingi – þar til meira að
segja Illugi Gunnarsson lét hafa
eftir sér að sennilega væri svarið
nei og var vísað til 111. greinar
Maastricht-sáttmálans, sem
einhver fróður maður hefði nú
kannski getað sagt Birni bara frá.
Reyndar sagði Illugi að 111.
greinin væri „túlkuð þröngt“, en
við munum eftir því davíðska
orðalagi í umræðunum um
synjunarvald forsetans og það
hvort virða beri stjórnarskrá
landsins: sjálfstæðismenn tala um
að eitthvað sé „túlkað þröngt“
þegar þeir vilja ekki fara að
lögum. En þessa hundraðogellefta
meðferð á íslenskum þingmönnum
hafði það eitt í för með sér að
íslenskum ráðamönnum tókst að
koma því á framfæri við umheim-
inn að þeir hefðu ekki trú á
íslensku krónunni sjálfir.
Og hún féll og hún féll og hún
féll. Og féll. Var það ekki í Bréfi til
Láru sem Þórbergur talaði um
„baráttuna gegn veruleikanum“?
Þannig virka þeir stundum á mann,
Davíð-istarnir. Sjálfur neitar
foringinn að horfast í augu við
skipbrot peningastefnunnar í
landinu og heldur áfram að hækka
vexti í þeirri von að það „virki
kannski núna“; Illugi Gunnarsson
er sendur til að bera upp spurning-
ar sem öll þjóðin veit svarið við –
nema Björn Bjarnason – í þeirri
von að „svarið verði annað núna“.
Og á meðan lögregluembættin í
raunverulega veruleikanum emja
undan fjársvelti svo öryggi er
ógnað telur Björn Bjarnason að
næsta mál á dagskrá sé að stofna
leyniþjónustu. Kannski heldur
hann að Bin Laden hafist við uppi
á Kili. Hann er a.m.k. í „stríðinu
gegn hryðjuverkum“ og vill ólmur
hlera: munum að þetta er maður-
inn sem telur að réttlætanlegt hafi
verið að hlera á sínum tíma
símann hjá Kjartani Ólafssyni og
Finnboga Rúti, Arnari og Þórhildi,
Úlfi Hjörvar og öðru sómafólki –
okkur er ætlað að eiga það undir
dómgreind hans hvar mannrétt-
indabrotin verða næst.
Baráttan gegn veruleikanum
GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON
Í DAG | Ráðherrarnir
Davíð og Björn
E
llefu hundruð fyrirtæki verða gjaldþrota á árinu, reyn-
ist spár Creditinfo réttar, sem er um 65 prósenta aukn-
ing frá síðasta ári. Þá er ótalinn sá fjöldi einstaklinga
sem mun ekki ráða við samdráttinn. Það er raunar svo
að bjartsýnisraddirnar eru orðnar fáar og fjarlægar,
og þeir sem á vormánuðum reyndu að draga í efa þungar spár
Seðlabanka og fleiri um dimmar framtíðarhorfur eru nú þagn-
aðir.
Eins og sjá má í Fréttablaðinu í dag er almenningur mjög ugg-
andi yfir ástandinu og sjá ekki hverjar aðgerðir ríkisstjórnar-
innar eru til aðstoðar. Bæði forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra hafa gefið í skyn að fjárlögin, sem kynnt verða á
miðvikudag, verði þannig úr garði gerð að íslenska ríki verði
rekið með þó nokkrum halla, til að vega upp á móti samdrætti.
Þannig verði lítið eða ekkert dregið úr opinberum framkvæmd-
um, sem ætti að koma framkvæmdafyrirtækjum til góða; þeim
fyrirtækjum sem eiga hvað helst undir högg að sækja nú.
Það er þrennt sem þarf að hafa áhyggjur af; vextir, gengis-
þróun og verðbólga. Vextir eru það háir að einstaklingar og
fyrirtæki geta ekki staðið undir þeim, en verða samt sem áður
að þiggja lán á þeim vöxtum sem bjóðast. Nú er það orðið að
keppni við tímann að reynast nógu burðugur aðeins lengur til að
hreinlega lifa af þangað til þessir háu vextir fara loks að bíta á
verðbólguna, þannig að Seðlabankinn geti farið að lækka stýri-
vextina.
Þrátt fyrir að vextir yrðu lækkaðir hið snarasta myndi það
ekki duga til fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Bankarnir þurfa
að komast í þá stöðu að geta veitt lán, bæði í íslenskum krónum
og erlendri mynt; vera nógu traustir til að geta verið bakhjarl-
ar atvinnulífsins. Við það bætist að gjaldeyrisskortur blasir við,
eins og kom fram í fréttum í gær, ef blessuð krónan fer ekki að
styrkjast.
Eins og langflestir hafa orðið varir við hafa lán í erlendum
gjaldmiðlum hækkað mikið, enda hefur gengisvísitalan aldrei
verið eins há, frá því hún var skráð 100 árið 1991. Krónan sekkur
bara og sekkur og enginn virðist vita hvernig snúa eigi þeirri
þróun við. Ræður forsætisráðherra og aðrar tilkynningar hafa
hingað til haft skammgóðan vermi. Gengið hefur styrkst í einn
dag eða tvo og svo sokkið aftur. Það þarf því að vera hreint út
sagt mögnuð stefnuræða forsætisráðherra á fimmtudag til að
hafa þau áhrif að krónan styrkist til langframa. Eða þá að sjá
það að krónan er bara of veikur gjaldmiðill og hefja aðgerðir
til að taka upp nýja mynt sem kyndir ekki verðbólgubálið þegar
eitthvað bjátar á í efnahagslífinu.
Forsætisráðherra sagðist reyndar í gær ekki geta svarað
því hvort þyrfti sérstakar aðgerðir eða inngrip til að styrkja
krónuna. Ef staða krónunnar nú og áhrif hennar gefa ekki til
kynna að einhverra aðgerða sé þörf, má spyrja í hversu vond
mál krónan þarf að vera komin til að forsætisráðherra telji að
aðgerða sé þörf?
Vextir, gengisþróun og verðbólga:
Gjaldmiðill í
andarslitrunum
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR SKRIFAR