Fréttablaðið - 29.09.2008, Síða 26
29. SEPTEMBER 2008 MÁNUDAGUR2
Menningarstofnanir Kópavogs
spila stórt hlutverk á suður-
amerískri menningarhátíð um
Ekvador þar sem hægt verður
að kynnast menningu landsins
í hnotskurn.
Hátíðin, sem hefst næstkomandi
laugardag, fer öll fram á sama
bletti, eða á menningarhæðinni, og
verður dagskrá í Gerðarsafni, Mol-
anum, Salnum og Safnahúsinu.
„Þetta er í fimmta sinn sem
við höldum hátíð af þessu tagi,
en hún er haldin í samstarfi við
listamenn og menningarstofnan-
ir í Ekvador auk innlendra aðila.
Í hvert skipti setjum við okkur
inn í menningu viðkomandi lands
og bjóðum Kópavogsbúum sem
og landsmönnum öllum að kynn-
ast henni með okkur,“ segir Linda
Udengaard, deildarstjóri menn-
ingarmála hjá Kópavogsbæ. Það
verður hægt að gera með fjöl-
breyttum hætti að þessu sinni en
lista-, dans-, ljósmynda og kvik-
myndasýningar verða í brenni-
depli.
„Í Gerðarsafni verða til dæmis
sýndir munir sem við höfum feng-
ið að láni frá Guayasamín-safninu
í Ekvador og þar má meðal annars
berja verk Oswaldo Guayasamín,
eins þekktasta myndlistarmanns
Suður-Ameríku, augum.“
Dansflokkurinn Jacchigua
kemur svo til með að sýna dans fyrir
alla fjölskylduna í Salnum en hann
þykir lýsa þjóðarsál og menningu
Ekvador af miklu innsæi. „Í Safna-
húsinu verður svo sýning tileink-
uð náttúru Galapagos og menningu
frumbyggja á meginlandi Ekvador.
Þar verður meðal annars hægt að
skoða sýnishorn af stærstu risa-
skjaldbökum heims auk þess sem
leyndardómsfullur gripur verður
afhjúpaður. Í bókasafninu verður
svo boðið upp á kvikmyndasýning-
ar og í Molanum verður hægt að
kynna sér matarhefð Ekvador svo
eitthvað sé nefnt.“
Linda fór sjálf ásamt Gunnari
I. Birgissyni bæjarstjóra og Ara
Trausta Guðmundssyni jarðfræð-
ingi og rithöfundi til landsins
síðast liðinn vetur og kynntist þar
heillandi andstæðum. „Þar upp-
lifðum við bæði sveit og borg en
Ekvador er land andstæðna. Þú
ert uppi í fjöllum og öðru megin
við þig er Amasón-frumskógurinn
en hinum megin ströndin. Landið
er að vissu leyti ekki svo ólíkt Ís-
landi. Þetta er bæði eldfjalla- og
jarðhitaland og náttúrufegurðin
mikil. Þótt þarna sé bæði að finna
gríðarlegt ríkidæmi og fátækt er
stjórnarfarið tiltölulega stöðugt
miðað við það að landið er í Suður-
Ameríku og það sést best á því að
ferðamannastraumur þangað er að
aukast,“ segir Linda og hvetur fólk
til að koma í Kópavog og kynnast
suður-amerískri menningu í hnot-
skurn. - ve
Land andstæðna
Linda Udengaard segir Ekvador að vissu leyti ekki svo ólíkt Íslandi. Þetta er bæði eldfjalla- og jarðhitaland og náttúrufegurðin mikil.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● ekvador
Útgefandi: Kópavogsbær l Heimilisfang: Fannborg 2, 200 Kópavogi Vefsíða: www.kopavogur.is
Netfang: kopavogur@kopavogur.is l Ritstjóri: Hrefna Sigurjónsdóttir l Ábyrgðarmaður: Linda
Udengaard Forsíða: PORT hönnun l Auglýsingar: Fréttablaðið/Bjarni Þór Sigurðsson Sími: 512 5471.
Kópavogsbær beinir sjónaukanum að Ekvador á menningarhátíð 4.–
12. október en Ekvador er stundum sagt vera Suður-Ameríka í hnot-
skurn.
Suður-amerísk menning og saga, þar á meðal tímabil Inkanna, er
heillandi, tónlistin seiðandi og myndlist jafnt sem listiðnaður litrík og
fjölskrúðug með tengsl við dulúð fortíðar og þjóðlegar hefðir, jafnvel
töfra.
Íbúar Ekvador hafa á sama hátt áhuga á landi okkar og þjóð. Á ferð
minni um landið síðastliðið vor sagði varaforseti Ekvador að margt
mætti læra af Íslendingum á sviði orkunýtingar, menningar, jarð-
hita og fiskvinnslu. Menningarhátíðir í Kópavogsbæ eru skemmti-
legar og fræðandi en þeim er einnig ætlað að greiða götu viðskipta og
frekari samskipta Íslendinga við aðrar þjóðir. Áður hefur verið haldin
spænsk, rússnesk, kanadísk og kínversk menningarhátíð í Kópavogi
og þær hafa allar vakið verðskuldaða athygli.
Menningarhátíðin að þessu sinni færir Íslendingum áhugaverð
brot af því besta frá Ekvador. Hún opnar fjarlæga heima sem hafa
gert Suður-Ameríku að draumaveröld svo margra. Aldrei fyrr hefur
svo viðamikil sýning á menningu og listum frá Ekvador og jafnframt
Suður-Ameríku verið sett
upp hér á landi.
Ekvador liggur við sjó
milli Kólumbíu í norðri,
Brasilíu í austri og Perú í
suðri. Það nær yfir mörg
loftslags- og gróðurbelti þótt
það sé aðeins tveimur og
hálfum sinnum stærra en Ís-
land; frá Kyrrahafinu í yfir
6.000 metra hæð og niður
í regnskóga Amasón hand-
an þeirra. Mörg stór eldfjöll
eru í Ekvador og nær tugur
telst virkur. Rúmar 13 millj-
ónir manna af ýmsu þjóðerni
búa í Ekvador og eru indíán-
ar um 40%.
Á hátíðinni í Kópavogi
kennir ýmissa grasa, eins og blað þetta ber glögglega með sér, til
dæmis sýning hins óviðjafnanlega dansflokks Jacchigua, málverk Os-
waldos Guayasamín, eins þekktasta myndlistarmanns Suður-Amer-
íku, og næfar myndir indíána, náttúrulífssýning tileinkuð Galapa-
gos-eyjaklasanum, Inkagull og þjóðargersemar úr kirkjum nýlendu-
tímans og glæsilegur teppavefnaður. Þess má geta að elstu munirnir
á sögulegri menningarsýningu frá Ekvador eru frá því um 4000 fyrir
Kristsburð og hafa aldrei jafngamlir gripir verið til sýnis hér á landi.
Forsmekkinn að menningarhátíðinni má fá í Vetrargarðinum í
Smáralind sunnudaginn 5. október kl. 15. Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Ég þakka öllum sem hafa komið að undirbúningi þessarar hátíðar
um leið og ég þakka einstaklingum og fyrirtækjum fyrir að styðja við
framtakið.
Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri Kópavogs
Ávarp bæjarstjóra
Ekvador – Suður-
Ameríka í hnotskurn
Hangikjötið í uppáhaldi
Alex Játiva Ramos flutti til Íslands frá Ekvador
þegar hann var tólf ára og hefur búið hér í fjórtán
ár.
Móðir hans kom á undan, en hann kláraði grunn-
skólann í Ekvador áður en hann flutti á Mánagötuna í
Reykjavík með móður sinni.
„Mér fannst ekkert erfitt að aðlagast og ég var
fljótur að læra íslenskuna. Það var erfitt fyrst í
skólanum en krakkarnir voru góðir við mig. Ég tal-
aði hvorki ensku né annað og varð bara að læra ís-
lenskuna,“ rifjar Alex upp. í Ekvador gekk hann í
kaþólskan skóla þar sem reglur kváðu á um skóla-
búninga og jakkaföt á mánudögum.
„Mér fannst alveg frábært að geta verið í því sem
ég vildi í skólanum. Það er meiri agi úti en það er
ekkert endilega betra, bara öðruvísi. En mér fannst
mjög gott að vera í frelsinu í skólanum hér. Ég sakn-
aði matarins mikið en það er rosalega góður matur í
Ekvador og mikil fjölbreytni. Algjör matarparadís.
En svo vandist ég bara matnum og þetta varð ekkert
mál. Jólamaturinn er uppáhalds íslenski maturinn
minn og hangikjötið er mjög gott.“
Alex segir þjóðirnar tvær ólíkar í lund en blæs á
þá sögusögn að Íslendingar séu kuldaleg þjóð. Fólkið
í Ekvador sé þó opnara og glaðlyndara. „Munurinn
liggur helst í skapinu. Mér finnst Íslendingar hjálpa
manni ef maður þarf þess. Í Ekvador er fólk glatt
yfir höfuð sama hvernig ástandið er en það er líka
alltaf gott veður þar,“ segir hann hlæjandi.
Á miðvikudagskvöldið 8. október heldur Alex
fyrir lestur á menningarkvöldi um muninn á Íslandi
og Ekvador út frá sinni eigin reynslu. Hann hefur
verið tengiliður bæjarstjórnarinnar við Ekvadora
við undirbúning hátíðarinnar og er ánægður með
framtak Kópavogsbæjar.
„Mér finnst þetta frábært framtak og ég er rosa-
lega stoltur af að geta kynnt land mitt og þjóð. Allt
sem Ekvador er og hefur upp á að bjóða verður
kynnt á þessari viku og það er tækifæri sem býðst
ekki tvisvar.“ - rat
Alex Játiva Ramos er ánægður með framtak Kópavogsbæjar í að
kynna menningu Ekvador fyrir Íslendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR