Fréttablaðið - 29.09.2008, Qupperneq 36
29. SEPTEMBER 2008 MÁNUDAGUR
Fáir Íslendingar eru fróðari um
ævintýraeyjarnar Galapagos
en Ari Trausti Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur. Þangað
hefur hann farið þrisvar á síð-
ustu ellefu árum með íslenska
hópa.
„Lífríkið bæði á sjó og landi er
það sem heillar okkur Íslend-
inga mest því landslagið er minna
framandi, eiginlega sambland af
Vestmannaeyjum og Reykjanesi,“
segir Ari Trausti þegar hann er
spurður hvað sé áhugaverðast við
Galapagos. Hann hefur verið sér-
stakur ráðgjafi Kópavogsbæjar
um menningu Ekvador við undir-
búning hátíðarinnar og er einn
þeirra sem flytja erindi á sérstöku
kynningarkvöldi í Salnum fimmtu-
dagskvöldið 9. október. Auk þess
er Ari Trausti meðhöfundur heim-
ildarmyndarinnar Ævintýralandið
Ekvador – náttúruparadísin Gal-
apagos sem þar verður sýnd.
„Ég tek eftir ákveðnum breyt-
ingum á Galapagos frá því ég kom
þangað fyrst árið 1997,“ segir Ari
Trausti. „Mannaferðir eru mun
meiri um þjóðgarðinn og sumar
dýrategundir orðnar hvekktari.
Kvótinn var þá sextíu þúsund
manns, hann er kominn upp í átta-
tíu þúsund núna. Það er alltaf
verið að ýta markinu hærra vegna
efnahagslegs ávinnings.“
Galpagoseyjarnar eru þúsund
kílómetra undan ströndinni. Þang-
að er flogið að sögn Ara Trausta.
Síðan er ferðast milli eyjanna í ein-
hvers konar fleytu og gist og mat-
ast um borð. Í skoðunarferðum má
einungis ganga um með leiðsögu-
manni sem hefur sérstakt leyfi
frá stjórn Ekvador. Alltaf er verið
að skoða eitthvað nýtt en ekkert
má taka með sér né skilja eftir.
„Þessar eyjar eru ólíkar hver ann-
arri, meðal annars af því að þær
eru misgamlar. Hver þeirra hefur
einstaklinga innan sömu dýrateg-
undar sem eru samt frábrugðnir
hver öðrum og sú staðreynd fékk
Darwin til að huga að þróunar-
kenningunni. Það var á nítjándu
öld sem hann kom til Galapagos,“
útskýrir Ari Trausti. Hann segir
gróðurinn á eyjunum mjög sér-
stæðan, fugla- og dýralífið fjöl-
skrúðugt og mikið um að vera í
sjónum fyrir þá sem snorkla eða
kafa.
„Það sem vekur mesta athygli
eru stóru dýrin, risaskjaldbök-
urnar, sæljónin og eðlurnar,“ lýsir
hann. „Sækembur sem synda í
sjónum og líta út eins og risaeðlur
en eru auðvitað litlar og svo land-
eðlur í fallegum litum.“ Hann segir
þetta allt hættulausar skepnur.
„Þó að skjaldbökurnar séu risa-
stórar eru þær jurtaætur og tann-
lausar og það er ekkert vandamál
að synda í návígi við sæljónin. Svo
eru fuglarnir kapítuli út af fyrir
sig. Margir þeirra eru mjög gæfir.
Frægar finkutegundir, glæsilegir
freigátufuglar og hinir stóru
albatrosar sem dansa tígulega í
tilhugalífinu. En skjaldbökurnar
eru nú kannski það sem þekktast
er af öllu og hafa líka gefið eyjun-
um nafn. Galapagos þýðir ekkert
annað en risaskjaldbaka.“ - gun
Synt í návígi við sæ
Ari Trausti er hagvanur á Galapagos.
MYND/RAGNAR TH. SIGURÐSSON
Að sögn Ara Trausta er ekkert mál að synda í kringum sæljónin en það sem vekur
mesta athygli á Galapagos eru stóru dýrin; risaskjaldbökur, sæljón og eðlur.
MYND/ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
Í Safnahúsi Kópavogs verður
opnuð afar spennandi og
fágæt sýning hinn 4. október.
Meðal sýningargripa eru risa-
skjaldbökuskildir.
„Sýningin er tileinkuð menningu
frumbyggja Ekvadors og nátt-
úru Galapagoseyja, en eyjaklas-
inn er þekktur um allan heim
fyrir einstaka náttúru og fjöl-
breytt lífríki,“ segir dr. Hilmar J.
Malmquist, forstöðumaður Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs, um
forvitnilega sýningu á jarðhæð
Safnahússins í tilefni Ekvadors,
suður-amerískrar menningar-
hátíðar í Kópavogi.
Á sýningunni gefst kostur á að
skoða risaskjaldbökuskildi, nátt-
úrulífsmyndir eftir þýska ljós-
myndarann Klaus N. Haussmann
og afar fágæta gripi, tól og tæki
frá frumbyggjum Ekvadors.
„Galapagos eyjar eru mikil
náttúruparadís. Þar hafa þróast
margar dýrategundir sem ekki
finnast annars staðar, en Charles
Darwin fór í rannsóknaleiðangra
til Galapagoseyja sem höfðu mikil
áhrif á hann og átti öðru fremur
þátt í að hann setti fram þróunar-
kenninguna,“ segir Hilmar.
Á Galapagoseyjum finnast
margar innlendar tegundir dýra,
en það eru dýr sem finnast bara á
tilteknu svæði eða landi. „Óvenju
margar innlendar dýrategundir
eru á Galapagos, en þær hafa þró-
ast þar langt frá meginlöndum, í
einangrun úti í hafi og eru því allt
öðruvísi útlítandi en sambæri-
leg eða skyld dýr á meginlönd-
unum,“ segir Hilmar og nefnir
fyrst risaskjaldbökurnar og fink-
ur Darwins.
„Risaskjaldbökurnar eru
stærstu landskjaldbökur á jörð-
inni og verða allt að 1,5 metra
Risaskjaldbökur og blá-
fættir fuglar frá Galapagos
Dr. Hilmar J. Malmquist forstöðumaður
Náttúrustofu Kópavogs er þessa dagana
með dularfulla muni frá Ekvador á safni
sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON