Fréttablaðið - 29.09.2008, Side 52
20 29. september 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> NATALIE EINHLEYP
Natalie Portman og tónlistar-
maðurinn skeggjaði Devendra Ban-
hart eru hætt saman, en samband
þeirra hófst eftir að Natalie lék í
myndbandi við lag hans, Carmens-
ita. Portman fluttist nýlega frá
New York til Los Angeles til að
vera nær kærastanum.
V
in
n
in
g
a
r
ve
rð
a
a
fh
e
n
d
ir
h
já
B
T
S
m
á
ra
lin
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
e
ð
þ
v
í a
ð
t
a
k
a
þ
á
tt
e
rt
u
k
o
m
in
n
í
S
M
S
k
lú
b
b
. 1
4
9
k
r/
sk
e
yt
ið
.
FRUMSÝND 26 • 09 • 08
9. hver vinnur!
e
yt
ið
.
FRAMTÍÐAR SPENNUTRYLLIR
Í ANDA BLADE RUNNER.
SENDU SMS BTC BAB
Á NÚMERIÐ 1900
Vinningar eru bíómiðar, tölvuleikir,
DVD myndir og margt fleira!
Þegar CIA-starfsmaðurinn
Osbourne Cox er rekinn vegna
drykkju leggst hann í að skrifa
endurminningar sínar. Geisla-
diskur með þeim týnist og lendir í
höndunum á tveimur starfsmönn-
um líkamsræktarstöðvar, sem
ákveða að kúga fé úr honum. Á
meðan er kaldlynd eiginkona Cox
að íhuga að yfirgefa hann fyrir
viðhaldið sitt, sem er sjálfur að
halda framhjá sinni konu.
Gamanmyndir þeirra Coen-
bræðra hafa verið æði misjafnar í
gegnum tíðina og ýmist verið
klassískar, líkt og The Big Lebow-
ski, eða furðulega slappar, eins og
The Ladykillers. Með Burn After
Reading snúa þeir aftur með
gaman mynd og það aðeins nokkr-
um mánuðum eftir þeirra alvar-
legu Óskarsverðlaunamynd No
Country for Old Men. Burn After
Reading er blanda af aulalegri
gamanmynd og gríni að alvarleg-
um njósnatryllum, þar sem allir
sem koma við sögu eru annað
hvort fífl eða heimskingjar sem
lenda upp á kant hver við annan.
Það bólar á nokkrum kostuleg-
um atriðum, einu ótrúlegu ofbeldis-
verki og skemmtilegum atvikum í
myndinni. En hún ráfar undarlega
stefnulaust um, auk þess sem það
er skortur á ákveðnum alvarleika
og almennilega viðkunnanlegri
persónu, til samanburðar við allan
fáránleikann. Mynd sem saman-
stendur af einhliða fíflum er frá-
hrindandi og Burn After Reading
gerist sek um það.
En stjörnum prýddur leikara-
hópur gerir sitt gagn og gera
flestir sitt besta úr sínu. John
Malkovich er bráðskemmtilegur
sem síblótandi drykkjumaður,
ætíð á ystu nöf, og Brad Pitt er
bestur sem algjör asnakjálki, og á
bestu atriði myndarinnar. George
Clooney reynir kannski helst til
mikið að vera fyndinn, en hann
fær eitt frábært atriði; Tilda
Swinton á í engum vandræðum
með sína köldu persónu. Frances
McDormand fær, engum að óvör-
um, sín bestu hlutverk í Coen-
myndum og stendur sig vel hér
sem miðpunktur myndarinnar. En
í mynd þar sem ekkert virðist í
raun skipta máli er það J.K. Simm-
ons sem stelur senunni í aukahlut-
verki, sem ráðvilltur yfirmaður
CIA sem reynir að átta sig á stöð-
unni.
Einnig má minnast á tónlist
Carter Burwell og kvikmynda-
töku Emmanuel Lubezki, sem
kaldhæðnislega gefa myndinni
alvarlegt yfirbragð. En þótt Burn
After Reading eigi nokkur góð
andartök er hún vonbrigði frá
Coen-bræðrum og langt frá þeirra
bestu verkum.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Líkamsræktarfólk í njósnaleik
KVIKMYNDIR
Burn after Reading
Leikstjórn: Coen-bræður.
Aðalhlutverk: George Clooney,
Frances McDormand, John Mal-
kovich, Tilda Swinton, Brad Pitt,
David Rasche.
★★★
Frábær leikarahópur hjálpar annars
meðalgóðri Coen-mynd.
Tökumaðurinn Óttar Guðnason
hefur verið fenginn til að kvik-
mynda framhald hasarmyndar-
innar Point Break sem skartaði
Patrick Swayze og Keanu Reeves
í aðalhlutverkum.
Óttar staðfesti þetta í samtali
við Fréttablaðið en vildi annars
ekki tjá sig um verkefnið að svo
stöddu.
Talið er að Hayden Christen-
sen, sem sló í gegn sem Anakin í
Star Wars-myndunum, verði í
aðalhlutverkinu. Myndin gerist
tuttugu árum á eftir þeirri fyrri
og leikur Hayden brimbretta-
kappa og löggu sem kemst á
slóðir glæpagengis.
Tökur fara að mestu leyti
fram á Bali síðar á árinu.
Handritshöfundur verður W.
Peter Iliff, sem samdi hand-
ritið að fyrri myndinni, en óvíst
er hvort Swayze eða Reeves
komi aftur við sögu.
Leikstjóri myndarinnar, sem
kallast Point Break:Indo, verður
Jan De Bont sem á að baki mynd-
ir á borð við Speed, Twister og
Tomb Raider 2. Óttar og Jan De
Bont hafa unnið töluvert saman
við auglýsingagerð undanfarin
ár og gerðu þeir meðal annars
saman auglýsingu fyrir
Goodyear-dekkjaframleiðand-
ann hér á landi.
Upphaflega stóð til að Óttar
tæki upp hasarmyndina Stopp-
ing Power í leikstjórn De Bont
en henni hefur verið slegið á
frest og í staðinn ætla þeir að
einbeita sér að framhaldi Point
Break.
Óttar er einn færasti kvik-
myndatökumaður Íslands. Á
meðal verkefna hans í gegnum
tíðina eru myndirnar A Little
Trip to Heaven og Run for Her
Life, báðar í leikstjórn Baltasars
Kormáks.
Sú síðarnefnda er væntan-
leg í kvikmyndahús á
næsta ári, rétt eins og
Point Break:Indo.
- fb
Tekur upp fram-
hald Point Break
Hugh Hefner hefur vísað því á
bug að ekki sé allt með felldu í
Playboy-höllinni, en slúðursíður
ytra hafa sagt frá því að tvær af
þremur kærustum hans séu við-
riðnar aðra menn. Holly Mad-
ison, „kærasta númer eitt“ hefur
ítrekað sést í fylgd töframanns-
ins Criss Angel, og Kendra Wilk-
inson mun eiga í sambandi við
ruðningsleikmanninn Hank
Baskett. Nýlega birtust svo
fregnir af því að sú í miðið, ef
svo mætti að orði komast,
Bridget Marquardt, væri þegar
gift, og þar að auki að slá sér upp
með manni að nafni Nick Carp-
enter, sem áður var giftur leik-
konunni Marisu Tomei.
Hefner segir allt í hinu besta
hjá honum og kærustunum
þremur, en hefur þó ýjað að því
að sambandið við Holly muni
ekki vara að eilífu. „Ég elska
Holly mjög mikið, en hana lang-
ar mikið til að gifta sig og eign-
ast börn. Það er ekki á dag-
skránni hjá mér. Það þarf að
horfast í augu við veruleikann
hérna. Og ég er viss um að sá
tími mun koma þegar hún fer að
hitta aðra menn,“ sagði Hugh í
nýlegu viðtali.
Þó að Hugh virðist þannig afar
skilningsríkur gefur hann ekki
mikið út á meintan kærasta
Holly. „Maður vonar að þegar
hún fer að hitta aðra menn muni
hún hafa betri smekk,“ segir
Playboy-konungurinn um Angel.
Hef þvertekur fyrir vandræði
ALLT Í HIMNALAGI Hugh Hefner segir ekkert ama að í sambönd-
um hans við kærusturnar þrjár, þó að þær hafi allar sést með
öðrum mönnum upp á síðkastið. NORDICPHOTOS/GETTY
Elsa Bára Traustadóttir
sálfræðingur hyggst bjóða
upp á sérstök reiðistjórn-
unarnámskeið á næstunni
og er full þörf á að stemma
stigu við reiðiköstum sem
grípa mann og annan.
„Já, reiðin er mitt sérsvið,“ segir
Elsa Bára Traustadóttir sálfræð-
ingur.
Elsa Bára ætlar að bjóða upp á
sérstök reiðinámskeið, eða reiði-
stjórnunarnámsskeið öllu heldur,
sem hefjast 6. október.
„Já, hún amma horfði skeptísk á
mig þegar ég var að segja henni af
þessu og sagði: Kannt þú eitthvað
í því? Ég varð rosalega móðguð og
fór að útskýra þetta fyrir henni.
Þá kom í ljós að henni hafði heyrst
ég segja „reiðnámskeið“ – en það
eru ýmsir í ættinni sem vita miklu
meira um hesta en ég,“ segir Elsa
Bára en hún er uppeldisdóttir hins
fræga hestamanns og leikara, Júlí-
usar Brjánssonar. Hún er létt í
lund og virðist djúpt á reiðinni –
segist enda vera vel þjálfuð.
Vann með dönskum ofbeldis-
mönnum
„Ég vil ekki fá fólk á námskeiðið
sem er sallarólegt alla daga en
langar á námskeið. Þetta er ætlað
hinum reiðu. Þeim sem eiga í erfið-
leikum með að stjórna reiði sinni,“
segir Elsa Bára. Hún hefur starf-
að talsvert úti í Danmörku sem
sérfræðingur á þessu sviði, í lok-
uðum fangelsum með ofbeldis-
mönnum. Slík meðferð er tíma-
frek og dýr og ekki í boði hérlendis.
Nýverið kom út dönsk bók eftir
blaðamanninn Jari Kickbush, Kom
godt hjem, þar sem meðal annars
er athyglisverður kafli sem byggir
á viðtali við Elsu Báru. Hún fór í
kjölfarið í viðtal við danska
útvarpið þar sem hún ræddi reið-
ina og það sem hún hafði lært af
dönskum ofbeldismönnum. Elsa
Bára er nú komin heim og starfar
á geðdeild Landsspítalans auk
þess sem hún rekur einkastofu –
og reiðir Íslendingar fá að njóta
góðs af því. Námskeiðið byggir á
hugrænni atferlismeðferð sem
mikið er notuð við kvíða og þung-
lyndi svo eitthvað sé nefnt.
Eðlilegt að reiðast
„En ég hef fengið fólk hér til með-
ferðar sem á við reiðivanda að
stríða sem skerðir lífsgæði þeirra.
Fólk sem reiðist yfir öllu og engu,“
segir Elsa Bára. Flokka má reiðina
í tvennt: Það eru þeir sem eru
reiðir og pirraðir allan daginn og
svo þeir sem missa sig þó tilefnin
séu lítil. „Einhver fer fram úr
þeim í röð úti í búð, ekki er búið að
búa um heima ... og svo það sem
alvarlegast er þegar ofbeldi fylgir.
Reyndar má færa rök fyrir því að
fólk sem stöðugt er reitt beiti and-
legu ofbeldi en þegar svo er fara
menn að tipla á tánum í kringum
slíka,“ segir Elsa Bára.
Elsa Bára segir að ekkert sé
eðlilegra en að reiðast – það sé
hugarástand sem sé manninum
mjög mikilvægt og hafi verið frá
örófi alda og kemur í veg fyrir að
vaðið sé yfir fólk. En mönnum
hættir til að reiðast um of. „Og það
hefur bæði skaðleg áhrif á þá sem
líður þannig sem og þá sem í kring-
um þá eru.“ jakob@frettabladid.is
Reiðu týpunni hjálpað
ELSA BÁRA Hún vill ekki pollrólegar týpur á námskeiðið heldur þær manngerðir sem
ekki kunna að stjórna reiði sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÓTTAR GUÐNASON
Einn færasti kvik-
myndatökumaður
landsins mun starfa við
framhald hasarmyndar-
innar Point Break 2.