Fréttablaðið - 29.09.2008, Síða 62
30 29. september 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Sellófon er örugglega það íslenskt
leikrit sem hefur verið sett upp
hvar víðast í Evrópu,“ segir Björk
Jakobsdóttir sem nú leggur land
undir fót til að setja á svið verk sitt
Sellófon – að þessu sinni í Rúss-
landi.
Um fimm ár eru síðan Sellófon
var sett upp á Íslandi við miklar
vinsældir og nú stendur til að setja
það upp í tveimur leikhúsum í Rúss-
landi í vetur: Teatr Kamerny í Jar-
ovslavl og Teatr New interstudio í
St Pétursborg. Fyrri frumsýning er
21. nóvember og sú seinni í febrúar.
Rússland er þrettánda landið í Evr-
ópu til að sýna Sellófon og mun
Björk sjálf leikstýra, er búin að
kaupa sér hljóðbók og lærir rúss-
nesku þegar færi gefst svo hún geti
talað við þá leikkonu sem mun
flytja einleikinn sem fjallar um
stöðu konunnar í nútímasamfélagi
– það álag sem því fylgir að sinna
bónda, börnum, heimili, útlitsdýrk-
un og vinnu, kynlífi og starfsframa.
„Ég reyni að fá leikkonur sem eru
mæður. Og vil að textinn komi út úr
þeim eins og þær séu að tala við
vinkonur sínar – að þær noti sinn
orðaforða,“ segir Björk. Staðfæra
þarf verkið til að það vísi beint í
rússneskan veruleika. Staða kon-
unnar þar er ekki sú sama og hér.
Ýmislegt hefur gengið á í þau
fimm ár sem markaðssetning og
uppfærsla á Sellófon í Evrópu hefur
staðið yfir en fimm ára planið eru
svo Bretland og Ameríka. „Já, og
Oprah Winfrey. Þetta hefur verið
lærdómsríkt. Nú hefur til dæmis
verkið verið sýnt í þrjú ár í Belgíu.
Hjá Backstage Gent sem eru alger-
ir mafíósar. Það hvarflar ekki að
þeim að borga höfundargreiðslur
eins og þeim ber lögum samkvæmt.
Ég hef verið að reyna að sækja
minn rétt. Þeir skulda mér ein-
hverjar milljónir miðað við áætlun.
En það er erfitt fyrir mig að sækja
þetta og baklandið er lítið sem ekk-
ert. Það kostar offjár að sækja
þetta í gegnum belgíska dómstóla.
Ég hafði samband við leikskálda-
félagið hér og einu svörin þaðan
eru þau að þetta sé bara mitt mál.
Það endar með því að ég láti þetta
frá mér, ég nenni ekki að eyða orku
minni í þetta,“ segir Björk ósátt við
getuleysi fagfélagsins.
Sellófon eldist betur en Björk
þorði að vona en sjálf hefur hún
sett verkið upp víða um lönd. „Það
er gaman að fylgja eftir eigin verki.
En fjarvera frá fjölskyldu getur
reynst erfið. Glamorinn er fljótur
að fara af þessu og þetta getur
verið einmanalegt. Við hjónin
[Gunnar Helgason leikari og leik-
stjóri] höfum bæði verið að leik-
stýra í útlöndum og þetta tekur á.
En ég ákvað að þetta væri sem hver
önnur markaðsvara, ég hitti á góða
vöru með Sellófon og er ákveðin að
fylgja því eins vel eftir og hægt
er.“
jakob@frettabladid.is
BJÖRK JAKOBSDÓTTIR: MAFÍÓSAR Í BELGÍU SKULDA MÉR MILLJÓNIR
Björk lærir rússnesku
LÁRÉTT 2. elds, 6. frá, 8. hryggur, 9.
dýrahljóð, 11. ung, 12. dul, 14. þunn-
ur ís, 16. tveir eins, 17. farvegur, 18. í
viðbót, 20. tvö þúsund, 21. sæla.
LÓÐRÉTT 1. gaul, 3. í röð, 4. nýrækt-
un lands, 5. móðuþykkni, 7. hefting,
10. kusk, 13. nálægt, 15. stefna, 16.
vefnaðarvara, 19. mun.
LAUSN
„Í augnablikinu er ég heima-
vinnandi húsmóðir og hlusta
mikið á Hjaltalín þegar ég
vaska upp. Með níu mánaða
dóttur minni, Margréti, hlusta
ég oft á barnaplöturnar
Babbidíbú með Olgu Guðrúnu
Árnadóttur, Engla í ullarsokkum
með Hafdísi Huld og Hvað á að
gera? eftir Möggu systur.“
Álfrún Örnólfsdóttir leikkona.
Tískuritið Women’s Wear Daily
fjallaði um nýja verslun Kisunnar
í SoHo í New York í síðustu viku.
Ritið er eitt það allra virtasta í
tískubransanum og lesið af flest-
öllum sem í honum starfa. Í grein-
inni er rætt við Þórunni Anspach
og Olivier Bremond, eigendur
Kisunnar bæði hér heima og í
New York, og lýsir blaðamaður
WWD Kisunni sem blöndu af „fág-
aðri Parísartísku og grófum
skrautmunum og prjónavörum
frá fæðingarlandi Anspach,
Íslandi.“
Hjónin segja meðal annars að
verslunin á Íslandi gangi vel þrátt
fyrir kreppu hér á landi. „Reykja-
vík er mjög lítil. Þar er færra fólk
en í SoHo. Á Íslandi eru miklir
fjámálaörðugleikar. Fasteigna-
markaðurinn er á niðurleið og
margar búðir eru að loka. Samt er
Kisan alltaf troðfull,“ segir
Olivier, sem býst við góðu gengi í
New York líka.
Hjónin segjast hefja reksturinn
í New York með vörum að virði
yfir 1 milljón Bandaríkjadala á
lager og búast við góðu gengi.
„Lúxus ætti að vera öllum aðgengi-
legur,“ segir Bremond í greininni,
en þar kemur fram að verð var-
anna í Kisunni sé á bilinu 5-5.000
dollarar, fyrir allt frá geisladisk-
um og bókum til merkjavara og
húsgagna. „Þetta er mjög per-
sónulegt,“ segir Þórunn. „Hug-
myndin var að safna öllu því sem
við elskum saman.“
Kisan er til húsa á 125 Greene
Street í SoHo, en húsakynni henn-
ar voru hönnuð af stofunni Work
Architects, sem hönnuðu einnig
verslun Diane Von Furstenberg í
New York. Þar er að finna ýmsar
íslenskar vörur, svo sem frá Stein-
unni Sigurðardóttur, Farmer‘s
Market, Aurum og 66° Norður,
sem blaðamaður WWD kallar
„svar Íslands við The North
Face“.
Kisan vekur athygli í New York
Hnífur Abrahams eftir Óttar M. Norðfjörð var ein af
metsölubókum síðustu jólavertíðar og seldist í sex
þúsund eintökum. Nú fylgir Óttar bókinni eftir með
nýrri skáldsögu, Sólkrossi. „Þessi bók gerist á
Íslandi og kærasta Adams Swift, Embla Þöll, er
aðalsöguhetjan þótt Adam komi líka við sögu,“ segir
Óttar. „Þetta er miklu metnaðarfyllri bók. Síðast var
ég að gera tilraun með að skrifa svona flugvallar-
metsölubók, en þessi er rólegri og skandinavískari.“
Sólkross er byggð á róttækum kenningum Einars
Pálssonar um fyrstu landnámsmennina. Lesandinn
er leiddur í eltingarleik um norræna goðafræði og
horfna kirkjugarða, og elsta leyndarmál þjóðarinnar
er jafnvel upplýst í bókinni. „Það þekkja fáir
kenningar Einars en þeir sem kynna sér þær fá þær
alveg á heilann,“ segir Óttar, sem sökkti sér í
fræðin. „Einar var þaggaður niður á sínum tíma af
ríkjandi fræðimönnum, en er smátt og smátt að fá
uppreisn æru. Það er hálfgerður neðanjarðarheimur
í kringum kenningar hans. Þegar ég var að skrifa
bókina fékk ég skuggalegt símtal og var spurður
hvort ég væri að skrifa um Einar Pálsson.“
Óttar segist vera að brúa þennan neðanjarðarheim
og koma honum til almennings í poppaðri og
söluvænlegri bók. En hvað með þriðja og síðasta
bindi ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar?
„Úff, Hannes er algjör spennitreyja,“ stynur
Óttar. „Þetta er brandari sem fór of langt en ég verð
auðvitað að klára hann.“ - drg
Elsta leyndarmál þjóðarinnar
RÓLEGRI OG SKANDINAVÍSKARI Segir Óttar M. Norðfjörð um
væntanlegan reyfara sinn, Sólkross.
BJARTSÝN Þórunn Anspach og Olivier
Bremond, hér með rekstrarstjóranum
Lionel Guy-Bremont, segjast bjartsýn
á gott gengi í New York í greinni í
Women‘s Wear Daily.
BJÖRK JAKOBSDÓTTIR
Lærir rússnesku enda
á leið til Rússland til
að leikstýra tveimur
uppfærslum á verki sínu
Sellófon.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
LÁRÉTT: 2. báls, 6. af, 8. bak, 9. urr,
11. ný, 12. leynd, 14. skæni, 16. tt, 17.
rás, 18. auk, 20. mm, 21. unun.
LÓÐRÉTT: 1. baul, 3. áb, 4. landnám,
5. ský, 7. frestun, 10. ryk, 13. nær, 15.
ismi, 16. tau, 19. ku.
Pétur Hafstein, fyrrum forseta-
frambjóðandi, vakti mikla athygli
þegar hann sagði sig
frá stöðu hæsta-
réttardómara en
þess munu fá
dæmi. Pétur virð-
ist ætla að helga
tónlistinni líf
sitt en bygg-
ingarnefnd
Rangárþings
ytra tók vel
í erindi hans og Ingu Ástu Haf-
stein sem vilja breyta notagildi
heyhlöðu við Stokkalæk í hús til
tónlistariðkunar.
Forlagsmenn eru afskaplega
ánægðir með sína krimmahöf-
unda. Þannig var
bók Árna
Þórarins-
sonar, Tími
nornarinnar,
að koma út hjá
virtu þýsku
forlagi og
hefur fengið
lofsamlegar
viðtökur.
Bækur
Arnaldar
Indriðasonar fara jafnvel enn
lengra og var Mýrin að koma út í
Kína og Grafarþögn er væntanleg
á markað þar innan skamms.
Geir Ólafsson
söngvari hefur sést
í World Class í
Laugum undanfar-
ið við stífar æfing-
ar. Einkaþjálfari
fylgir honum
hvert sem hann
fer og að sjálf-
sögðu er Geir
með aðstöðu í
lúxusklefunum
með öðrum
fyrirmennum.
- jbg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Paul Newman.
2 Fram.
3 Jónína Bjartmarz.