Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2008, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 06.10.2008, Qupperneq 12
12 6. október 2008 MÁNUDAGUR  Vantar þig undirbúning í stærð-, eðlis- og efnafræði fyrir háskólanám? Opni Háskólinn í HR Námskeið í stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði fyrir nemendur með stúdentspróf og a.m.k. 12 einingar í stærðfræði framhaldsskóla hefjast á vorönn 2009 Kennsla hefst 8:15 á daginn og lýkur 14:35 Námskeið 1 og 2: 12. janúar – 27. febrúar. 2009 Próf 2. – 6. mars 2009 Stærðfræði (algebra): 90 kennslustundir Efnafræði: 90 kennslustundir og verklegar æfingar Námskeið 3: 9. mars – 30. apríl. 2009. Próf 4. maí 2009 Stærðfræði (rúmfræði): 90 kennslustundir Námskeið 4: 9. mars – 15. maí. 2009. Próf 18. maí 2009 Eðlisfræði: 120 kennslust. og verkl. æf. Allar nánari upplýsingar veita: Málfríður Þórarinsdóttir s. 599 6438 netfang: malfrid@ru.is Vilborg Jónudóttir s. 599 6255 netfang vilborg@ru.is STJÓRNMÁL Ráðherrar ríkisstjórn- arinnar fá samtals 87 milljónir króna til frjálsrar ráðstöfunar á næsta ári, samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu, sömu fjárhæð og á yfirstand- andi ári. Menntamála- ráðherra fær mest fé, eða átján milljónir, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra fá níu milljónir, dómsmálaráð- herra, heilbrigðisráðherra og iðnaðarráðherra fá átta milljónir og fjármálaráðherra fær sex. Þeir fimm ráðherra sem eftir standa fá allir fimm milljónir króna til ráðstöfunar. - bþs Ráðstöfunarfé ráðherra: Nemur samtals 87 milljónum DÓMSMÁL Átján ára piltur hefur verið dæmdur í sekt fyrir að hafa svikið út vörur og peninga með debetkorti annars manns. Pilturinn var dæmdur í Héraðs- dómi Reykjaness til að greiða 60 þúsund krónur í ríkissjóð. Samtals sveik pilturinn út peninga og vörur fyrir um 42 þúsund krónur á allmörgum stöðum. Hann mætti ekki fyrir dóm og var málið því lagt í dóm að honum fjarstöddum. Var talið sannað að hann hefði svikið út umræddar upphæðir og var hann því dæmdur til greiðslu sektar sem fyrr segir. - jss Dæmdur til að greiða sekt: Sveik út á kort annars manns FINNLAND Matti Juhani Saari, ungi maðurinn sem skaut skólafélaga sína og kennara í Kauhajoki í Finnlandi nýverið, skaut um 200 skotum inni í skólabyggingunni. Rannsókn lögreglu hefur einnig sýnt að Saari talaði við vini sína meðan á fjöldamorðinu stóð, meðal annars hringdi fyrrverandi kærasta í hann, að sögn dagblaðs- ins Hufvudstadsbladet. Hann sagðist þá vera á klósettinu. Talið er að Saari hafi skipulagt mun meira blóðbað en raunin varð. Hann skaut um nokkur hundruð skotum inni í skólanum og var alls ekki búinn með skotfærin þegar hann stytti sér aldur. Þremur stúdentum tókst að flýja en ekki hefur enn verið hægt að yfirheyra þá. - ghs Skólamorðið í Finnlandi: Talaði við vini í miðju morði KAUHAJOKI Fórnarlambanna hefur verið minnst með kertaljósum. NOREGUR Íslenskur karlmaður var nýlega dæmdur í 36 daga fangelsi í héraðsdómi í Romsdal í Noregi fyrir að hafa misnotað velferðar- kerfið og tekið við barnabótum í nokkurn tíma eftir að hann flutti aftur heim til Íslands. Maðurinn bjó með fjölskyldu sinni í Molde í Noregi árin 2002- 2003 og fékk þá barnabætur fyrir börn sín tvö. Þegar fjölskyldan flutti til Íslands árið 2003 var ekki látið vita af því og hélt því maður- inn áfram að taka við greiðslum úr velferðarkerfinu vegna barnanna. Heildarupphæðin sem fjölskyld- an fékk nemur tæplega 1,2 millj- ónum íslenskra króna. Þegar athygli mannsins var vakin á því að hann hefði fengið greiðslur sem hann ekki átti rétt á endurgreiddi hann upphæðina fyrir utan tæplega 7.800 norskar krónur, eða rúmlega 115 þúsund íslenskar, sem voru fyrndar, að sögn Romsdals budstikke. Með dómnum var hann þó dæmdur til að greiða þá peninga líka til baka. Maðurinn bar fyrir rétti að vinir hefðu sagt honum að barna- bæturnar héldu áfram að berast í nokkurn tíma eftir að hann flytti heim og svo myndu greiðslurnar sjálfkrafa hætta. Maðurinn sagð- ist hafa tekið við greiðslunum í góðri trú og væri því ekki sekur. Dómarinn taldi hins vegar að það hefði verið gróft af honum að kynna sér ekki málið betur. - ghs FÉKK DÓM Dómari í Noregi taldi sakborninginn ekki eiga sér neinar málsbætur. Íslendingur tók við barnabótum í Noregi eftir flutning heim til Íslands: Dæmdur í 36 daga fangelsi BÓKAÚTGÁFA Bókaútgáfan For- lagið, sameinuð Edda og JPV- útgáfa, skilar miklum hagnaði í ár, eða nálægt 120 milljónum. Þar á bæ var eins árs starfsafmæli fagnað um mánaðamótin. Fyrirtækið er eitt af fáum skuld- lausum fyrirtækjum í landinu. „Þetta er ávöxtun upp á 300 pró- sent af eiginfé, en það segir ekki neitt. Fyrirtækið er vel fjármagn- að og borgar ekki vaxtagjöld. Við lögðum líka allt í þetta,“ segir Árni Einarsson, stjórnarmaður í For- laginu og formaður stjórnar Máls og menningar. Árni vísar þarna til þess að Mál og menning seldi í fyrra húseign sína að Laugavegi 18 til að kaupa útgáfuhluta forlagsins Eddu af Björgólfi Guðmundssyni. Jóhann Páll Valdimarsson í JPV- útgáfu lagði sitt fyrirtæki á móti og úr varð Forlagið. Árni segir ekki hægt að bera saman rekstur Eddu og Forlags- ins, vegna þess hve Forlagið skuldi lítið. Einnig hafi fólkið þar á bæ lært af reynslunni. „Þetta er hag- kvæmur rekstur. Við vorum með eitthvað um 26 starfsmenn í fyrra og það er enginn flottræfilsháttur á okkur. Því miður féllum við í þá gryfju [í Eddu] að eyða of miklu í samein- ingunni. Það voru aðrir tímar. Í staðinn fyrir sex hæðir erum við nú á tveimur, og önnur þeirra er kjallari,“ segir hann. Sameiningin við JPV hafi geng- ið vel og því sé útlit fyrir sterka bókaútgáfu næstu árin. Fram- leiðsla fyrirtækisins er að miklu leyti innlend og því hefur gengi krónu ekki úrslitaáhrif á rekstur. Um jólaútgáfuna segir Árni að góðir samningar hafi verið gerðir um prentun innanlands snemma hausts. „Og fólkið fær að njóta þess. Við ætlum ekki að velta öllum hækkunum út í verðlagið og vonum að við fáum stuðning til þess að stilla verðhækkunum í hóf.“ klemens@frettabladid.is Skuldlaust fyrirtæki blómstrar í kreppu Afkoma ársins 2007 var mjög góð hjá Forlaginu og útgáfa á árinu verður meiri en í fyrra. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir meira lesið á samdráttartímum. „Ætlum ekki að velta öllum hækkunum út í verðlagið,“ segir stjórnarmaður. SJÁVARÚTVEGUR Landssamband íslenskra útvegsmanna heiðraði á liðinni Kristján Ragnarsson fyrir störf hans í þágu íslensks sjávarútvegs. Kristján var um árabil formaður LÍÚ. Við sama tækifæri voru Íslensku sjávarútvegsverðlaunin veitt. Mörg verðlaun voru veitt og hlaut Kristbjörn Árnason, skipstjóri á Sigurði VE-15 frá Vestmannaeyjum, viðurkenningu sem framúrskarandi íslenskur skipstjóri. Þá fékk útgerðin Bergur-Huginn í Vestmannaeyj- um viðurkenningu og fiskvinnsl- an Skinney-Þinganes á Höfn í Hornafirði. - kóp Kristján Ragnarsson: Heiðraður fyrir framlag sitt til sjávarútvegs FÉKK VIÐURKENNINGU Kristján Ragnars- son var heiðraður fyrir störf í þágu sjávarútvegs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÍSLENDINGAR LESA MEIRA Í KREPPUNNI „Þetta er ákaflega krefjandi umhverfi en bækur hafa alltaf selst vel á krepputímum. Íslendingar virðast þá lesa meira,“ segir Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins. Fyrirtækið áformar að gefa út hátt í 350 titla í ár, að kennslubókum, endurútgáfum og endurprent- unum meðtöldum. Það mun vera heldur meira en Edda og JPV gáfu áður út, sitt í hvoru lagi. „Sameiningin hefur gengið vonum framar og við horfum bjartsýn fram á veginn,“ segir Egill Örn á eins árs afmæli fyrirtækisins. LEIKUR MEÐ BOLTA Þessi fallegi ísbjörn í dýragarðinum í Búdapest í Ungverjalandi brá á leik í gær, á alþjóðadegi dýra. MYND NORDICPHOTOS/AFP Með stolinn sófa í eftirdragi Þrír menn voru handteknir við umferðareftirlit um helgina. Voru þeir með talsvert þýfi, meðal annars sófa á kerru. Ekki er vitað hvaðan hann kom. Uppdópuð í bíl í borginni Lögregla handtók fjóra aðfaranótt sunnudags í bíl við Lágmúla. Við leit fannst nokkuð af fíkniefnum. Ekki var hægt að yfirheyra fólkið vegna þess í hve annarlegu ástandi það var. LÖGREGLUFRÉTTIR ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.