Fréttablaðið - 09.10.2008, Qupperneq 30
9. OKTÓBER 2008 FIMMTUDAGUR
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
prjónar öllum stundum og
framleiðir barnalopapeysur í
nokkuð stórum stíl.
Kennarinn og næringarráðgjafinn
Guðrún Þóra Hjaltadóttir prjónar
við öll möguleg og ómöguleg tæki-
færi og framleiðir töluvert af barna-
lopapeysum. Upphaflega prjónaði
hún á ættingja og vini en í dag er
hægt að kaupa peysurnar í verslun-
inni Lykkjufalli á Laugavegi.
„Þetta byrjaði fyrir um þremur
árum þegar dóttir mín var ófrísk.
Ég var nýbúin að prjóna á hana að-
sniðna lopapeysu eins og þá voru
í tísku og spurði hún mig hvort ég
gæti ekki prjónað eins á barnið. Ég
hugsaði með mér að ég gæti ekki
gert peysu úr lopa þannig að ég varð
mér úti um barnaull sem má þvo.
Ég gerði eina dökka með munstri
og aðra hvíta sem voru mikið notað-
ar,“ segir Guðrún.
Svo fór að ættingjar og vinir fóru
að biðja Guðrúnu að prjóna á börnin
sín og á endanum bað Sigrún Bald-
ursdóttir, eigandi Lykkjufalls og
æskuvinkona dóttur Guðrúnar,
hana um að prjóna fyrir búð-
ina. Ég reyni að hafa peys-
urnar í sauðalitunum
en þær allra nýjustu
eru með smá lit.
Guðrún seg-
ist ávallt hafa
verið mikil handa-
vinnukona. „Ég fékk
sykursýki þegar ég
var barn og gat því ekki tekið þátt í
því sama og jafnaldrar mínir en sat
gjarnan inni og gerði handavinnu.
Þótt mig hafi eflaust langað til að
gera eitthvað annað þá bý ég að því
í dag.“
Guðrún prjónar öllum stundum.
„Ég prjóna fyrir framan sjónvarp-
ið, ef ég er farþegi í bíl og á öllum
fundum. Ég held betri einbeitingu
ef ég prjóna,“ fullyrðir hún.
Í síðustu viku lauk hún við fimm
peysur sem allar fóru til vinkvenna
hennar sem eiga barnabörn. „Ég
gæti nú bara verið í þessu en það
er verst að þetta gefur svo lítið af
sér. Handavinna er ofboðslega illa
metin og gerir fólk lítinn greinar-
mun á því hvort hlutirnir séu hand-
gerðir eða úr vél.“ - ve
Guðrún segist halda bestri ein-
beitingu með prjóna í hönd.
Prjónar á fundum
Peys-
urnar fást
í versluninni
Lykkjufalli.
Gísli Jóhannsson og Helena Jóns-
dóttir, garðyrkjubændur í Dals-
garði í Mosfellsdal, segja að blómin
séu viðkvæm vara sem huga þurfi
vel að jafnt að nóttu sem degi.
„Blómin veita vellíðan,“ segir
Gísli Jóhannsson, garðyrkjubóndi
í Dalsgarði í Mosfellsdal, þegar
hann er spurður út í blómaræktina
sem hann þekkir vel allt frá blautu
barnsbeini. Fyrir um sextíu árum
hófu foreldrar Gísla búskap með
blómarækt í Dalsgarði. Gísli og
kona hans Helena Jónsdóttir tóku
síðan alfarið við búskapnum fyrir
um áratug. „Íslensk blómarækt
hefur byggst upp á miklum dugn-
aði,“ segir Gísli og minnist þess að
menn höfðu mikla trú á að hægt
væri að nýta heita vatnið. Engin
launung er á því að það hefur tekið
langan tíma að byggja upp markað-
inn með mikilli elju og þrautseigju.
„Það má segja að við séum að
mjólka rósir,“ segir garðyrkjubónd-
inn þegar hann líkir starfi blóma-
ræktandans við vinnu kúabónd-
ans sem mjólkar kýr alla morgna.
„Blómin eru viðkvæm vara sem
þarf að hugsa vel um dag og nótt,“
segir Gísli og vísar til þess að eftir
því sem atlætið við blómin er meira
því meira blómstra þau.
Gísli nefnir að á haustin séu
rauðir og appelsínugulir litir ráð-
andi í rósum. En með vorinu í kring-
um fermingar og útskriftir eru það
bleikir litir sem verða ríkjandi. Ís-
lenskir blómabændur sjá kaup-
mönnum að mestu fyrir blómum
allt árið um kring, en það er helst á
konudaginn eða þegar mikið liggur
við að bændur anna ekki eftirspurn.
„Við bændurnir erum auðvitað að
keppast um hver er með bestu vör-
una. Markaðurinn er lítill og þetta
er hörkuslagur.“
Á undanförnum árum hefur
fækkað í greininni að sögn Gísla.
„Ætli við séum ekki í kringum tíu
blómabændur sem halda uppi þjón-
ustunni í dag.“ Rósirnar vaxa allan
ársins hring í gróðurhúsunum en
túlípanaræktunin er árstíðabundin.
Í Dalsgarði er einmitt þessa dagana
verið að undirbúa túlípanaræktun-
ina fyrir jólin. - vg
Blómin veita vellíðan
F
R
É
T
TA
B
L
A
Ð
IÐ
/A
N
T
O
N
Helena og Gísli
segja blómin vera
viðkvæm og hugsa
þurfi vel um þau.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
F
R
É
T
TA
B
L
A
Ð
IÐ
/S
T
E
FÁ
N
Gæðabakstur ehf • Álafabakka 12 • 109 Reykjavík
sími 564-2024 • kleina@centrum.is
Hollur biti í
dagsins önn.
Sólkjarnarúgbrauð,
Maltbrauð, Normalbrauð
Speltrúgbrauð, Orkukubbur