Fréttablaðið - 09.10.2008, Síða 34
9. OKTÓBER 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Smæð landsins er jafnvel til
bóta fyrir skartgripasölu á Ís-
landi, að mati Huldu B. Ágústs-
dóttur skartgripahönnuðar
en hönnun hennar er til sölu í
Kirsuberjatrénu.
„Ég hef verið skartgripahönnuður
í fjöldamörg ár og er búin að vera
í Kirsuberjatrénu síðan 1995. Það
var samt ekki þannig að ég hafi
alltaf ætlað mér að verða skart-
gripahönnuður. Ég lærði mynd-
list í Frakklandi og bjó þar í fjögur
ár. En hlutirnir þróuðust þannig að
ég fór að hanna skartgripi,“ segir
Hulda B. Ágústsdóttir og bætir við
að hún hafi í upphafi aldrei verið
mikið með skartgripi. „Ég var alin
upp á þeim tíma þar sem maður var
frekar hippalegur en síðan prófaði
ég og þótti þetta skemmtilegt.“
Huldu þykir gaman að reyna
eitthvað nýtt og gera tilraun-
ir með efni, eins og sjá má á fjöl-
breyttu skartgripaúrvali hennar.
„Ég hef alltaf haft meiri áhuga á að
hanna stærri hluti. Fyrst var ég að
vinna úr leir en af því að ég vildi
hafa skartgripina stóra, og leir-
inn er þungur, þá fór ég að
nota pappamassa. Í kjölfar-
ið gerði ég tilraunir með
alls konar efni. Það sem
mér finnst höfða til mín
er eitthvað sem sést,“
útskýrir Hulda og á hún
þá við skartgripi sem eru
litskrúðugir og lyfta mann-
eskjunni upp.
„Síðustu ár hef ég mikið
notað plexígler en þar áður var ég
mikið með plastslöngur og málaði
að innan með pensli. Svo setti ég
stundum organsa silki inn í og ég
hef notað blýsilfur, dúska, skeljar
og fleira.“ Skeljarnar kallast sæ-
eyra og kaupir Hulda þær í París.
„Þær eru mjög viðkvæmar en afar
fallegar. Þær lita ég með taulitum.
Ég reyni að finna eitthvað hérna
heima og finn til dæmis mikið efni
í byggingavöruverslunum en síðan
fer ég oft til Parísar.“
Oft
getur
verið erfitt
að hafa uppi
á efni í skartgripina.
„Það er svolítil kúnst að finna til
dæmis góðar festingar og smærra
efni en ég þekki París vel og veit
hvar ég á að leita þar.“ Gúmmíið og
plexíglerið kaupir hún hins vegar
hér á landi.
En hvaðan koma hugmyndirnar?
„Ein hugmynd leiðir mig að þeirri
næstu og mér finnst allt efni í raun
spennandi,“ segir Hulda áhugasöm
og þykir henni gaman að prófa sig
áfram með nýja hluti. Skartgripa-
smíði getur hins vegar verið tölu-
vert nostur. „Mestur tími fer í hug-
myndavinnuna og að finna upp
eitthvað nýtt. Þegar ég er búin að
ákveða hvað ég ætla að gera og
finna allar lausnir með samsetn-
ingar þá er ég kannski ekki mjög
lengi að vinna skartið.“
Að sögn Huldu ganga viðskipt-
in vel og eru Íslendingar mjög já-
kvæðir. „Það er stór hópur kvenna
sem kemur alltaf í Kirsuberjatréð
og ég held að smæð landsins sé
kostur. Þetta spyrst fljótt út og ef
fólk er ánægt þá kemur það aftur
þannig að það er fínt að vera skart-
gripahönnuður á Íslandi,“ segir
Hulda og brosir. - hs
Litríkt og leikandi
Hulda segir hugmyndavinnuna að skartinu vera tímafrekasta. MYND/HULDA B. ÁGÚSTSDÓTTIR
Hulda vann fyrst
með leir en hefur
svo verið ófeimin
að prófa alls kyns
efni.
Skart Huldu, armbönd og hálsmen bera
hugmyndaauðgi hennar vitni.
Hulda vill hafa
skartgripina
áberandi.
Huldu þykir
gaman að reyna
eitthvað nýtt og
gera tilraunir með
efni, eins og sjá
má á fjölbreyttu
skartgripaúrvali
hennar. Skart-
gripir hennar fást
í Kirsuberjatrénu.
F
R
É
T
TA
B
L
A
Ð
IÐ
/A
N
T
O
N
Hulda hannar gripina
meðal annars með það
fyrir augum að bæta
sálarlífið.
Vallhumall, mjaðjurt og hvannarót. Þessar íslensku jurtir eru
meðal þess sem Kolbrún grasalæknir notar í sínar vörur. Hún
ræður ríkjum í Jurtaapótekinu á Laugavegi 2.
-Kolbrún ertu lengi búin að eiga Jurtaapótekið? „Það verða fjögur
ár núna í desember.“
-Hvaða erindi á fólk helst hingað? „Að halda heilsunni. Við erum
með alls konar efni sem styðja við hana, bæði andlega og líkam-
lega.“
-Eru þetta lífselexírar sem þú ert að framleiða? „Já, þú þarft ekk-
ert endilega að byrja að hugsa um heilsuna þegar eitthvað klikk-
ar. Það er miklu skynsamlegra að reyna að fyrirbyggja heilsu-
brest. Jurtir eru mjög orkugefandi og þær hreinsa vel líkamann
líka.“
-Hvaða jurtir eru þetta helst sem þú notar? „Við notum mikið af
steinselju til dæmis í töflur sem við köllum grænu bombuna og
innihalda mörg vítamín og steinefni. Vallhumallinn er í ýmsum
blöndum, hann er blóðþrýstingslækkandi og róandi og styrk-
ir æðakerfið líka. Einnig er
hann góður í græðismyrsl og
svo bara te.“ Mjaðarjurtin
er íslensk líka og nýtist vel í
magabólgublöndu.“
-Hm,.. ertu með einhver fegr-
unarkrem? „Já já. Nokkrar
gerðir.
-Og gera þær eitthvert gagn?
„Þær byggja húðina upp og
næra en eru jafnframt mjög mildar. Við erum með til dæmis eina
blöndu gegn rósaroða en það er æðaslit í kinnunum og afar við-
kvæm húð. Blandan heitir Rán og hefur hjálpað mörgum.
-Ertu með eitthvað sérstakt fyrir krakka? „Já, við erum með
eyrnaolíu vegna eyrnabólgu og kvefmixtúru sem virkar mjög vel
líka. Í henni er blómavatn frá Bretlandi. Ég þarf að flytja margt
inn til framleiðslunnar en allt er búið til hérna heima. Við erum
sjö sem vinnum í þessu húsi en framleiðslan fer mikið fram í
Ölvisholti í Flóa.“
-Þú ert á besta stað í bænum. „Já. Það er frábært að vera hér og
góður andi í húsinu.“ - gun
Grasalyf og græn
bomba fyrir heilsuna
„Það er nauðsynlegt að hugsa um heilsuna áður en eitthvað klikkar,“ segir
Kolbrún Björns sem býr til blöndur og krem. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jafnvel nöfnin blása okkur hreysti í
brjóst.
Bændurnir Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg
Guðmundsdóttir eru að byggja upp heimavinnslustöð að Erps-
stöðum í Búðardal. Þau stefna að því að hefja þar framleiðslu á
ís, skyrkonfekti og ostum
öðru hvoru megin við jól.
Í fyrra gerðu þau
skemmtilega skyrkonfekt-
mola í samstarfi við nemend-
ur úr Listaháskóla Íslands
en ekki þarf að fjölyrða um
hvaðan innblásturinn að
lögun þeirra og litum kemur.
Þorgrímur vonast til að þá
verði hægt að nálgast ásamt
öðru innan skamms.
„Við erum að byggja nýtt
1.000 fermetra húsnæði þar
sem 800 fermetrar fara í fjós
en 200 í heimavinnslu. Auk þess gerum við ráð fyrir móttöku-að-
stöðu þar sem verður hægt að halda fyrirlestra og sýna gestum
inn í fjós. Í framtíðinni á fólk svo að geta keypt afurðir af okkur
hér heima.“ -ve
Kusukonfekt úr skyri