Fréttablaðið - 09.10.2008, Side 48

Fréttablaðið - 09.10.2008, Side 48
28 9. október 2008 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Við skoðuðum gögnin þín og það virðist sem þú eigir nokkra ógreidda reikninga hjá fyr- irtæki sem heitir Gulrótasalan! Af hverju heitir þetta „Að borða kirsuber með þeim stóru“? Ja... sjáðu þarna. Þeir stóru borða jú frekar sjaldan kirsuber! Uss! Borðaðu ísinn þinn! Bless... ég elska þig! Mamma, þetta er of gamal- dags. Að segja að ég elski þig? Já, það er skelfilegt. Hvað á ég þá að segja? Það veit ég ekki, reyndu að finna eitthvað nútímalegra. Friður á jörð! Haltu áfram að hugsa... Lánadeild Hættu þessu! Svona hljómar þú! Úps! Ég næ þessu! Sleik! Sleik! Sleik! Puff! Puff! Puff! Þurrka! Þurrka! Þurrka! Maður verður að passa sig á bakterí- unum. Ég gekk í sjóinn í gær. Það var ekki slæmt ástand í efnahagsmálum sem fékk mig til þess að taka þessa ákvörðun heldur ákvörðun vinnufélaga að prófa sjósund í Nauthólsvík. Mig hefur lengi langað til að fara í sjóinn við Ísland en samt ekki látið slag standa, hann er svo helvíti kaldur og óárennilegur nema kannski á heitustu sumardögum. Hvað hefur maður ekki oft horft út á haf og hryllt sig við gráum öldum og hugsað að bráður bani biði þess sem lenti úti í íslensku ölduróti? Út undan mér hef ég samt heyrt af fólki sem stundaði sjóböð við Ísland og ég hef verið full aðdáunar. Ég var því fljót að tilkynna þátttöku mína í ferð vinnufé- laga sem höfðu tekið þá ákvörðun að kasta sér í sjóinn. Því skal ekki neitað að ég var kvíðin. Vatnið er sjö gráður heyrði ég umsjónarmann segja einhverjum þaulvönum kappa rétt áður en ég skipti um föt en ég gerði mitt besta til þess að hugsa ekki frekar um það. Og svo var ég komin á steyptan rampa, horfði á sjóinn og byrjaði að vaða. Sjórinn var kaldur, ég varð andstutt af kulda bara þegar sjórinn var kominn upp á mið læri. Eftir nokkrar atlögur tókst mér að fara dýpra en það var ekki fyrr en þaulvanur sjósundkappi kallaði til okkar viðvaning- anna að anda hægar að ég áttaði mig á því að ég gæti það. Og með það synti ég af stað. Að vísu örstutta leið en ég synti samt og mikið var ég ánægð þegar ég steig upp úr hafinu og rölti í pottinn. Mögnuð reynsla og ekki spurning að ég mæti aftur í Nauthólsvík fljótlega til að ganga í sjóinn í góðum félagsskap. Gengið í sjóinn NOKKUR ORÐ Sigríður Björg Tómasdóttir Villidýr á verði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.