Fréttablaðið - 09.10.2008, Side 54
34 9. október 2008 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> SÚ KYNÞOKKAFYLLSTA
Halle Berry hefur verið kjörin kyn-
þokkafyllsta kona heims af tíma-
ritinu Esquire. Berry, sem er 42
ára og ól fyrsta barn sitt í mars,
var ánægð með útnefninguna.
„Ég veit ekki alveg hvað þetta
þýðir, en verandi 42 ára ný-
bökuð móðir, get ég ekki
ekki annað en verið sátt,“
sagði Halle Berry.
Nú þegar Britney Spears
virðist vera að ná sér á strik á
ný hefur skapast góður
grundvöllur fyrir systur
hennar til að komast á for-
síður slúðurblaðanna.
Jamie Lynn er nú sögð eiga
von á barni aftur en þessi
sautján ára leikkona
eignaðist sitt fyrsta
barn fyrr á þessu ári.
Ekki hefur fengist
staðfest hvort að þetta
sé raunin en víst er að
þær Spears-systur eru
frjósamar.
Samkvæmt bandarísk-
um slúðurblöðum er Jamie
kominn átta vikur á leið og
má því ljóst vera að barnið
varð til aðeins fjórum vikum
eftir að dóttirin Maddie kom í
heiminn. Ef þetta reynist rétt
má reikna með að barnaaf-
mælin hjá Spears-fjölskyld-
unni verði sífellt fjörugri
með ári hverju. Jamie Lynn
hefur átt í stopulu ástarsam-
bandi við Casey Aldrige en
hann ku ekki hafa vitað
hvernig málum er háttað.
„Jamie trúði því ekki að hún
gæti orðið ólétt svona fljótt
eftir barnsburð. Þær mæð-
gur vita eiginlega ekkert
hvernig þær eiga að bregðast
við,“ hefur tímaritið WENN
eftir heimildarmanni sínum.
„Hún hágrét þegar hún sá
óléttuprófið,“ bætir hann við.
Jamie Lynn sögð barnshafandi á ný
Mótmælatónleikar Bubba
Morthens á Austurvelli,
sem höfðu reyndar um-
breyst í samstöðutónleika
þegar stundin rann upp á
hádegi í gær, voru ágætlega
sóttir. Bubbi lék á als oddi
fyrir erlenda fréttamenn að
hljómleikunum loknum.
„I don´t care about the image of
Iceland, I care about the families
in Iceland,“ svaraði Bubbi Mort-
hens þegar hann var spurður hvort
hann teldi að ímynd landsins hefði
beðið álitshnekki í sjónvarpsviðtali
við bresku sjónvarpsstöðina BBC í
gær. Fleiri erlendir fjölmiðlar tóku
viðtal við Bubba eftir tónleika hans
á Austurvelli í hádeginu í gær, en
talið er að milli átta hundruð og
þúsund manns hafi lagt leið sína á
Austurvöll á tónleikana.
Á stuttum hljómleikunum var
Bubba tíðrætt um að nú skipti
miklu máli fyrir alla Íslendinga að
standa saman og láta kærleikann
ráða ferðinni í stað reiðinnar. Einn-
ig lagði hann áherslu á mikilvægi
þess að landsmenn lærðu af þeim
efnahagshörmungum sem gengið
hafa yfir síðustu daga og vikur.
Gott væri að eiga peninga, en pen-
ingar væru ekki guð.
„Íslendingar eru ein stór fjöl-
skylda, og í öllum fjölskyldum
verða einhver vandræði. Bleiki
fíllinn í stofunni er búinn að leggja
stofuna í rúst,“ sagði Bubbi áður en
hann renndi sér í frumflutning á
laginu „Ein stór fjölskylda“, sem
hann samdi að sögn snemma í gær-
morgun.
Að tónleikum Bubba loknum sáu
hljómsveitin Buff, Eyþór Ingi
Gunnlaugsson og rapparinn Poetr-
ix um að skemmta viðstöddum.
Skemmtilegur endapunktur hádeg-
isins var svo þegar sjálfur Sævar
Marinó Ciesielski steig á svið og
söng einsöng án undirleiks við
nokkurn fögnuð þeirra fáu sem þá
voru eftir á Austurvelli.
kjartan@frettabladid.is
ÍMYNDIN SKIPTIR EKKI MÁLI
„Ég var einmitt að semja lagið „Rússarnir
koma“ rétt áðan,“ segir Sigurjón Kjartans-
son, einn höfunda Skaupsins í ár. Hinir eru
Hjálmar Hjálmarsson, Hugleikur Dagsson,
Ilmur Kristjánsdóttir og Silja Hauksdóttir
leikstjóri. „Við gerum okkur grein fyrir
gríðarlegri ábyrgð okkar og þetta er mjög
mikil áskorun. Við sitjum við og fylgjumst
vel með öllum hreyfingum. Maður er
semjandi sketsa hægri, vinstri, enda
úreldast þeir svo hratt. “
Sigurjón hefur verið í fríi á Spáni síðan
fyrir helgi ásamt fjölskyldunni en kemur
heim í kvöld. „Evran var komin í 226 krónur
en nú var fararstjórinn að segja að búið
væri að loka fyrir viðskipti með íslensk
kort. Við tókum sem betur fer út um
helgina og lifum á því. Það reddast,“
segir Sigurjón í sólinni. „Við fórum
í dagsferð til Marokkó í gær og
það var mjög hollt. Sú ferð minnti
mann á það að þrátt fyrir allt er
nú ekki svo mikil kreppa á
Íslandi. Þetta var eins og að fara
3000 ár aftur í tímann, á
biblíutíma. Allt nema öskuhaug-
arnir, þeir voru nútímalegir.“ - drg
Ábyrgð okkar er mikil
BUBBI MESSAR
Bubbi hélt tónleika á Aust-
urvelli í gær. Nú er ekki rétti
tíminn til að leita söku-
dólga sagði Bubbi og tók
nokkur vel valin lög. Óvænt
steig Sævar Ciesielski á
svið við lok tónleikanna
en þarna slakar hann á við
Austurvöll. Fámennur hópur
setti lit á tónleikana með
torkennilegum skilaboð-
um eins og „Þú áttir aldrei
jeppann“.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
ÓTRÚLEGT Jamie
Lynn er aðeins
sautján ára en ef
marka má fréttir
frá Bandaríkjunum
á hún von á sínu
öðru barni.
ALLTAF AÐ
SEMJA SKETSA
Sigurjón Kjartans-
son, einn höfunda
Skaupsins í ár.
Keilufélag Reykja
víkur stendur fyrir
námskeiði
í október, nóvem
ber og desembe
r.
Námskeiðið er æ
tlað börnum yng
ri en 12 ára.
Kennt er í Keiluhö
llinni Öskjuhlíð
á þriðjudögum o
g fi mmtudögum
frá kl. 16.00 - 17
.00
Verð kr. 12.000.
Ath. Takmarkaðu
r fjöldi.
Keilufélag Reykja
víkur er aðili að F
rístundakortakerfi
ÍTR.
Skráning er í síma
6619585 (Dóra)
eða dora@keila.is
Keilunámskeið
fyrir börn