Fréttablaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 4
4 17. október 2008 FÖSTUDAGUR
Þau leiðu mistök urðu við vinnslu
forsíðufréttar blaðsins í gær að
nefnd voru hlutabréf í tengslum við
peningamarkaðssjóði Landsbankans.
Blaðinu er bæði rétt og skylt að árétta
að slík tengsl eru ekki fyrir hendi.
Samkvæmt upplýsingum frá Lands-
bankanum hafa peningamarkaðssjóð-
ir aldrei fjárfest í hlutabréfum, enda
sé þeim það ekki heimilt. Fjármála-
eftirlitið nefnir jafnframt á vefsíðu
sinni að engin hlutabréf sé að finna í
eignasafni peningamarkaðssjóða.
LEIÐRÉTTING
Skútuvogur - Grafarholt - Akureyri - Egilsstaðir
Selfoss - Reykjanesbær - Kringlan - Smáralind
699
Blóm
fyrir alla
á helgartilboði
Blómvendir
kr
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
12°
12°
11°
9°
12°
14°
15°
13°
13°
10°
24°
22°
14°
13°
23°
15°
31°
22°
Á MORGUN
Víðast 5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
3-10 m/s en hvessir
talsvert með kvöldinu.
3
-1 -3
-2
3
6
5
13
6
9
6
5
58
3
10
7
6
5
4 4
4
5
6
5
8
1
4
2
0
-10
ÖRT KÓLNANDI Á
MORGUN
Hann er að snúa sér
í norðlæga átt eftir
daginn í dag og sam-
fara því kólnar ört á
landinu. Það frystir
nyrðra en syðra verð-
ur hitinn yfi r núllinu
að deginum. Þessu
fylgir éljagangur með
norðurströndinni.
Það má því búast við
hálku víða um land.
Á sunnudag tekur
lægð land síðdegis
með hlýnandi veðri
og hvössum vindi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
LÖGREGLUMÁL Í tvígang slökkti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
eld sem logaði í gámi fullum af
dekkjum í Dvergholti í Mosfells-
bæ í gær. Fyrsta útkallið kom upp
úr miðnætti og var eldurinn
slökktur. Aftur kviknaði svo í
gámnum upp úr eitt. Ekki var
ljóst hvort eldurinn hefði tekið
sig upp aftur eða kveikt hefði
verið í honum aftur, samkvæmt
upplýsingum frá Slökkviliðinu.
Gámurinn var safngámur frá
Sorpu, fullur af ónýtum dekkjum,
og því ljóst að um íkveikju var að
ræða. Brennuvargurinn var
hvergi sjáanlegur. - hhs
Íkveikja í Mosfellsbæ:
Tvisvar kveikt í
hjólbörðum
SLYS Starfsmaður SAH afurða á
Blönduósi missti framan af
fingri við störf í sláturhúsi á
mánudag.
Reynt var að græða bútinn
aftur á en það tókst ekki. Gísli
Garðarsson sláturhússtjóri segir
að maðurinn hafi verið vanur
vélinni og hún í fullkomnu lagi.
Augnabliks athugunarleysi væri
um að kenna. Starfsmaðurinn er
á batavegi. - hhs
Starfsmaður SAH Afurða ehf.:
Missti framan
af fingri í slysi
VIÐSKIPTI Farið er að bera á vöru-
skorti hjá innflutningsfyrirtækj-
um vegna treglegra gjaldeyrisvið-
skipta. Andri Þór Guðmunds son,
forstjóri Ölgerðarinnar, segir að
nú þegar hafi hveitið klárast þar.
„Reyndar náðum við að senda pen-
ing í dag [gær] svo það eru gámar
með hveiti á leiðinni,“ segir hann.
„En við óttumst það mjög að það
verði skortur á ákveðnum vörum.
Sérstaklega hef ég áhyggjur af
aðföngum sem við flytjum inn til
matvöruframleiðslu en það segir
sig sjálft að framleiðsla leggst
niður hjá matvælafyrirtækjum ef
þau hafa ekki aðföngin til
vinnslunnar.“
Seðlabanki Íslands býður nú
upp á tímabundna hjáleið í við-
skiptum við útlönd með því að
beina greiðslum bankastofnana
til og frá landinu um eigin reikn-
inga og reikninga erlendra sam-
starfsaðila Seðlabankans sem að
öðru jöfnu hafa ekkert með starf-
semi íslenskra bankastofnana að
gera.
„Þeir eru hins vegar ekki mikið
að benda á okkur,“ segir Agnar
Hansson, bankastjóri Icebank.
„Það hefur verið opið flæði hjá
okkur nema hvað að það virðast
vera einhverjir erfiðleikar í Lond-
on. Svo virðist sem breskir bank-
ar séu að hafa einhverjar áhyggj-
ur af því að ef þeir eru að eiga
viðskipti við Ísland séu þeir að
leggja blessun sína yfir þennan
uppskurð á nýju íslensku ríkis-
bönkunum. Svo lögfræðingar
hafa ráðlagt þeim mörgum hverj-
um frá því að hafa viðskipti við
Ísland.“
Seðlabankinn samþykkti í gær
beiðni Samtaka iðnaðarins um að
setja hráefni til iðnaðarfram-
leiðslu í forgang við afgreiðslu
gjaldeyris. Einnig lýsti bankinn
því yfir við erlendar lánastofnan-
ir að hann tryggi að allar greiðsl-
ur sem bankar sendi um reikn-
inga Seðlabankans á reikninga
innlendra lánastofnana muni skila
sér til eigenda reikninga í við-
komandi lánastofnunum.
jse@frettabladid.is
Bretar stöðva flæði fjármagns til Íslands svo útlit er fyrir að framleiðendur fái ekki aðföng til framleiðslu:
Náðu að kría út gjaldeyri fyrir hveiti
Í FLUTNINGUM Erfitt er með inn- og
útflutning þessa dagana og óttast menn
að framleiðsla stöðvist þar sem erfitt er
að fá aðföng.
EFNAHAGSMÁL „Mig hefði aldrei
grunað að svona viðsnúningur
myndi verða á jafn skömmum
tíma,“ segir Óskar Þórðarson,
framkvæmdastjóri starfsmanna-
miðlunarinnar Voot. Undanfarnar
tvær vikur hafa milli fimmtíu til
sextíu Íslendingar leitað til fyrir-
tækisins í von um að fá vinnu í
Færeyjum eða öðrum nágranna-
löndum.
Óskar segir að markaðurinn í
Færeyjum sé nú fullmettur.
Skömmu áður en bankahrunið varð
höfðu um fimm-
tíu manns farið
héðan af landi
og til starfa í
Færeyjum á
vegum Voot. Í
þeim hópi hafi
flestir verið Pól-
verjar. Skyndi-
lega hafi mikill
áhugi vaknað
meðal Íslend-
inga á störfunum en ekki sé um
auðugan garð að gresja þar í landi
eins og staðan sé nú.
Færeyska blaðið Dimmalætting
greindi frá ásókn Íslendinga í störf
þar í landi í vikunni. Helstu ástæð-
ur þessa nývaknaða áhuga þjóðar-
innar á störfum í litla grannríki
okkar segir Óskar vera hve miklu
hærri laun sé þar að fá. Aðalástæð-
an helgist þó af því að fólk vilji
einfaldlega fá vinnu.
Óskar tekur samt fram að hjá
honum sé enga vinnu að hafa á
næstunni. Hann sé þó að leita tæki-
færa á Grænlandi og í Kanada
fyrir iðnaðarmenn. „Ég sá snemma
í hvað stefndi og byrjaði að leita
leiða til að geta flutt menn út. Ég
fékk leyfi til að flytja menn frá
Íslandi til Færeyja í júlí og bíð nú
eftir því að þau verði afgreidd
annar staðar,“ segir Óskar og bætir
við að Íslendingar séu eftirsótt
vinnuafl í öðrum löndum.
Georg Georgiou, hjá starfs-
mannaleigunni Kraftafli, staðfesti
að í ljósi þess mikla samdráttar
sem hefði orðið á Íslandi að undan-
förnu væri hann byrjaður að leita
leiða til að geta flutt vinnuafl
héðan úr landi. Hann vildi þó ekki
tjá sig um hvaða svæði hann teldi
fýsilegust að sinni.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir þetta
vera hluta af þeirri þróun sem
Íslendingar séu nú í vegna efna-
hagsörðugleika. „Íslendingar munu
leita út fyrir landsteinana í meira
mæli,“ segir hann og bætir við að
þróunin sé ekki óeðlileg, fólk vilji
vitanlega vera þar sem það á
möguleika á að fá vinnu. Of
snemmt sé að segja til um hvort
fólksflutningar sem þessir munu
hafa alvarleg áhrif á aldurssam-
setningu þjóðarinnar. „Vonandi
varir þetta bara ekki lengur en í
nokkur ár.“ karen@frettabladid.is
Íslendingar reyna
að komast úr landi
Starfsmannaleigur leita leiða til að koma íslensku vinnuafli úr landinu auk
þess sem erlendir starfsmenn snúa heim. Forstjóri Vinnumálastofnunar telur
flutningana rétt að byrja. Fólk vilji vera þar sem það hefur vinnu.
Í GÓÐUM MÁLUM Því er spáð að alþjóðlega efnahagskreppan muni leika Íslendinga
sérlega hart en líklega fara fremur mjúkum höndum um bræður okkar í Færeyjum.
MYND/AFP
Íslendingar munu leita út
fyrir landsteinana í meira
mæli.
GISSUR PÉTURSSON
FORSTJÓRI VINNUMÁLASTOFNUNAR
GISSUR PÉTURSSON
VIÐSKIPTI Forsvarsmenn bresku
verslanakeðjunnar House of
Fraser og Mosaic Fashions, sem
að hluta til eru í eigu Baugs,
segjast eiga nægt fé til að mæta
skuldbindingum sínum. Ekki sé
þörf á að selja eignir.
Baugur keypti House of Fraser
árið 2006 í félagi við aðra og
Mosaic Fashions var í úrvalsvísi-
tölunni í Kauphöllinni fram undir
mitt síðasta ár, þegar félag tengt
Baugi tók það yfir.
Philip Green hefur sóst eftir
því að kaupa skuldir Baugs á
miklu undirverði. Í frétt Reuters
kemur fram að fleiri hafi hug á
því, svo sem fjárfestingarfélögin
TPG, Permira og Alchemy.
- kóp
Fyrirtæki tengd Baugi:
Segjast ekki í
vandræðum
FÓLK Ari Matthíasson, sem gegnt
hefur starfi framkvæmdastjóra
félags- og útbreiðslusviðs SÁÁ,
er hættur hjá samtökunum. Hann
óskaði eftir að
fá að hætta
strax.
„Þetta varð
að samkomu-
lagi í kjölfar
sparnaðarað-
gerða hjá
SÁÁ,“ segir
Ari. „Það er
augljóst að
þegar búið er
að leggja niður sviðið sem ég hef
starfað á þá hef ég engar
starfsskyldur. Skyldur þess voru
að miklu leyti færðar undir
meðferðarsvið.“
Sjálfur kveðst Ari hafa nóg að
gera, þar sem hann leggi stund á
meistaranám í heilsuhagfræði
við HÍ, auk þess sem hann hafi
mikinn áhuga á að sinna leiklist
og framleiðslu leiksýninga.
- jss
Ari Matthíasson:
Hættur hjá SÁÁ
ARI MATTHÍASSON
GENGIÐ 16.10.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
200,418
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,6 112,14
192,43 193,37
150,08 150,92
20,135 20,253
17,171 17,273
15,047 15,135
1,1123 1,1189
169,84 170,86
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR