Fréttablaðið - 17.10.2008, Síða 50

Fréttablaðið - 17.10.2008, Síða 50
30 17. október 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is N1-deild karla Fram-FH 28-28 (15-17) Mörk Fram (skot): Rúnar Kárason 15/2 (17/2), Andri Berg Haraldsson 5/1 (10/2), Guðjón Finnur Drengsson 3 (7), Magnús Stefánsson 2 (3), Magnús Einarsson 1 (1), Halldór Jóhann Sigfús- son 1 (1), Brjánn Bjarnason 1 (2), Stefán Baldvin Stefánsson 0 (2), Haraldur Þorvarðarson 0 (2/1). Varin skot: Magnús G. Erlendsson 10 (19/2, 34%), Davíð Svansson 7 (9, 44%). Hraðaupphlaup: 3 (Rúnar 2, Andri Berg 1). Fiskuð víti: 5 (Halldór Jóhann 2, Brjánn, Magnús Einars., Rúnar). Utan vallar: 20 mínútur. Mörk FH (skot): Ólafur Guðmundsson 12 (18), Aron Pálmason 5 (12), Sigurður Ágústsson 4 (5), Benedikt Kristinsson 3 (4), Ásbjörn Friðriksson 3/2 (5/2), Þorkell Magnússon 1 (3), Ari Þorgeirs- son 0 (1), Jón Helgi Jónsson 0 (2). Varin skot: Daníel Andrésson 9/2 (19/2, 32%), Mangús Sigmundsson 5 (9/1, 36%). Hraðaupphlaup: 5 (Ólafur 2, Sigurður, Benedikt, Þorkell). Fiskuð víti: 2 (Sigurður, Aron). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Gunnar Jarl Jónsson og Hörður Aðal- steinsson, áttu ekki góðan dag. HK-Stjarnan 26-29 Iceland Express-deild karla KR-ÍR 94-79 (52-40) Stig KR: Jason Dourisseau 26 (8 stoðs.), Jakob Sigurðarson 24(6 stoðs., 5 stolnir), Helgi Már Magnússon 11, Darri Hilmarsson 6, Fannar Ólafs- son 6, Hjalti Kristinsson 6, Skarphéðinn Freyr Ingason 5, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5, Baldur Ólafsson 2, Ólafur Már Ægisson 2, Jón Arnór Stefánsson 1. Stig ÍR: Þorsteinn Húnfjörð 18 (7 frák.), Sveinbjörn Claessen 18 (7 frák.), Hreggviður Magnússon 14, Ómar Sævarsson 8 (8 frák.), Sigurður Tómasson 7, Ólafur Aron Ingvason 5, Eiríkur Önundarson 5 (7 stoðs.), Ólafur Þórisson 2, Davíð Þór Fritzson 2. Grindavík-Stjarnan 110-109 (48-42, 98-89) Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 39, Brent- on Birmingham 18, Þorleifur Ólafsson 14, Helgi Jónas Guðfinnsson 13, Páll Kristinsson 13, Guðlaugur Eyjólfsson 6, Morten Szmiedowicz 4, Nökkvi Már Jónsson 2, Arnar Freyr Jónsson 1. Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 47, Jovan Zdrav- evski 18, Fannar Helgason 17, Birkir Guðlaugs- son 9, Kjartan Kjartansson 7, Ólafur Sigurðsson 7, Guðjón Lárusson 4. FSu-Njarðvík 103-78 (55-40) Stig FSu: Sævar Sigurmundsson 29, Tyler Dunway 19, Árni Ragnarsson 18, Vésteinn Sveinsson 16, Björgvin Valentínusson 13, Chris Caird 6, Nick Mabbutt 2. Stig Njarðvíkur: Logi Gunnarsson 19, Slobodan Subasic 17, Friðrik Stefánsson 15, Hjörtur Þór Einarsson 14, Sævar Sævarsson 11, Sigurður Gunnarsson 2. ÚRSLIT Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, valdi í gær myndarlegan hóp fyrir umspilsleikina tvo á móti Írum í næstu viku. Hann velur 23 leikmenn og tók inn tvo markmenn í stað Þóru Bjargar Helgadóttur sem getur ekki tekið þátt í leikjunum vegna veikinda. „Mér finnst nauðsynlegt að vera með svona stóran hóp. Það er ein í leikbanni, þrjár á gulu spjaldi og hugsanlega ein í viðbót meidd. Liðin eru ekki að æfa þannig að ég vel stóran hóp núna sem myndi þá æfa vel fram yfir þessa tvo leiki og vera jafnframt inni í því sem við erum að gera,“ segir Sigurður Ragnar. „Ég er ánægður með ástandið á hópnum. Þær eru allar heilar nema Guðrún Sóley. Ég gat síðan ekki valið Þóru af því að hún er með einkirningssótt,“ segir Sigurður Ragnar. Guðrún Sóley er ekki byrjuð að æfa og spurning um hana. „Ég er frekar bjartsýnn á að Guð- rún Sóley nái að vera með og vona það. Það væri slæmt að missa hana út,“ segir Sigurður Ragnar. „Við tilkynntum það fyrir tveimur árum að við ætluðum í úrslita- keppnina og nú eru tveir leikir eftir til að ná því markmiði. Við eigum að vera sterkara liðið en við þurfum bara að sýna það og sanna að við séum betri,“ segir þjálfarinn en leikirnir fara fram 26. og 30. október og er síðari leikurinn á Laugardalsvellinum. „Ég vona að stelpurnar hafi fundið það eftir Frakkaleikinn hvað liðið er nálægt því að stíga þetta skref. Ég vona að það verði hvatning fyrir þær að gera enn betur í þessum leikjum sem fram undan eru. Þar stíga þær vonandi þetta skref sem allir eru að bíða eftir að þær geri,“ segir Sigurður Ragnar, sem ætlar að spila æfingaleik við strákalið. „Við förum þar yfir það hvernig við viljum spila á móti Írlandi. Það verður fín æfing fyrir okkur og brýtur aðeins upp undirbúninginn,“ segir Sigurður Ragnar sem er ekki búinn að ákveða hver tekur stöðu Þóru í markinu. „Sú ákvörðun verður tekin á síðustu stundu. Það verður bara hörkusamkeppni um markmannsstöðuna sem er mjög jákvætt,“ sagði Sigurður Ragnar. SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: VALDI TVO NÝLIÐA Í 23 MANNA HÓP FYRIR ÍRLANDSLEIKINA Velur markmanninn ekki fyrr en á síðustu stundu >Tveir nýliðar í Írlandshópnum Fanndís Friðriksdóttir úr Breiðabliki og Þórunn Helga Jóns- dóttir úr KR eru nýliðar í 23 manna landsliðshópi Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar fyrir leikina á móti Írlandi. Markverðir eru María B. Ágústsdóttir (KR), Sandra Sigurðardóttir (Stjörnunni) og Guðbjörg Gunnarsdóttir (Val). Aðrir leik- menn eru Edda Garðarsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdótt- ir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Embla Sigríður Grétarsdóttir (KR), Katrín Jónsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Ásta Árnadóttir, Sif Atladóttir, Málfríður Sigurðardóttir og Hallbera Gísla- dóttir (Val), Sara Björk Gunnarsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir (Breiðabliki), Dóra Stefánsdóttir (LdB Malmö), Erla Steina Arnardóttir (Kristianstad) og Rakel Hönnudóttir (Þór/KA). KÖRFUBOLTI KR-ingar byrjuðu Ice- land Express-deild karla með 15 stiga sigri á ÍR-ingum, 94-79, í DHL-höllinni í gær en Breiðhylt- ingar létu þó ekki vesturbæinga vaða yfir sig eins og í fyrri leikj- um liðanna í haust. KR var með frumkvæðið allan tímann en baráttuglatt ÍR-lið gafst aldrei upp og átti nokkrar góðar endurkomur í leiknum. KR- liðið var nánast án Jóns Arnórs Stefánssonar í hans fyrsta deild- arleik á Íslandi í sex ár þar sem kappinn glímdi við bakmeiðsli og gat lítið beitt sér. „Við höfum oft spilað betur og ég tel að við eigum mikið inni. Þetta var svona dæmigerður fyrsti leikur á tímabilinu, við pressuðum en það tekur tíma að slípa hana og venjast því. Það er margt sem við getum lagað en það er margt sem var líka mjög gott,“ sagði KR-ingurinn Jakob Örn Sigurðarson, eftir leik. Jakob átti frábæran fyrri hálf- leik (18 stig, 5 stoðsendingar) og endaði leikinn með 24 stig og 6 stoðsendingar. KR-ingar þáðu hans framlag með þökkum, ekki síst þar sem að Jón Arnór var óþekkjanlegur með aðeins með 1 stig á sársaukafullum fimmtán mínútum. „Það er mjög gaman að byrja svona vel í KR-búningnum og ekki síst fyrir framan stuðningsmenn- ina og miðjuna,“ sagði Jakob sem kunni vel við það að heyra lög úr stúkunni. „Það var mjög skemmti- legt að heyra einhver lög um sig,“ sagði Jakob og hann veit að það gæti orðið erfitt að standast vænt- ingarnar sem eru til liðsins. „Það er búist við mjög miklu af okkur en þetta verður ekkert auðvelt í vetur eins og sást í dag. Við erum bara ánægðir með að fyrsti sigur- inn sé kominn í hús.“ Jakob var besti maður KR ásamt Jason Dourisseau sem var með 26 stig og 8 stoðsendingar. ÍR-ingar bitu frá sér í gær og sýndu allt annan og betri leik heldur en í síðustu tveimur leikj- um á móti KR. Jón Arnar Ingvars- son, þjálfari liðsins sá líka jákvæða hluti í leik liðsins. „Þeir eru með rosalega sterkt lið en ég er nokkuð ánægður með mína menn. Við gerðum það sem við lögðum upp með og sýndum líka að menn hafa trú á því sem þeir eru að gera. Við vorum alltof linir í þessum leikjum sem við spiluðum á móti KR í haust en núna mættum við með rétt hugar- far, létum þá aðeins hafa fyrir þessu og tókum á þeim af fullum krafti. Það var margt jákvætt í þessu og mikilvægt að við náum að byggja á þessu. Þetta skilaði okkur engu í dag en þetta gefur von um að það sé hægt að gera góða hluti,“ sagði Jón Arnar. Hreggviður Magnússon (14 stig á 18 mínútum) átti góða innkomu í sínum fyrsta leik eftir meiðsli sem og Ólafur Aron Ingvason en bestu menn liðsins voru Þorsteinn Húnfjörð og Sveinbjörn Claes- sen. Nýliðar FSu unnu glæsilegan 25 stiga sigur á Njarðvík, 103-78, í sínum fyrsta leik í úrvalsdeild. Sævar Sigurmundsson átti frá- bæran leik en hann var með 29 stig, 8 fráköst og 3 stoðsendingar í gær en þá léku bakverðirnir efnilegu Árni Ragnarsson (18 stig, 10 fráköst og 5 stoðsending- ar) og Vésteinn Sveinsson (16 stig, 4 stoðsendingar) einnig mjög vel. Brynjar Karl Sigurðs- son er greinilega gera flotta hluti með hið unga lið FSu eins og Njarðvíkingar fengu að kynnast í Iðunni í gær. Grindvíkingar komust í hann krappan á heimavelli gegn Stjörn- unni en unnu að lokum 110-109 sigur eftir framlengingu. Páll Axel Vilbergsson átti stórleik og var með 39 stig og 15 fráköst. ooj@frettabladid.is Meiðsli Jóns stöðvuðu ekki KR KR-ingar unnu 15 stiga sigur á ÍR-ingum þrátt fyrir meiðsli Jóns Arnórs Stefánssonar. Nýliðar FSu komu á óvart og unnu 25 stiga sigur á Njarðvík í sínum fyrsta leik í úrvalsdeild. Sævar Sigurmundsson átti stórleik. MIKILVÆGUR Jakob Örn Sigurðarson var mikilvægur fyrir KR í forföllum Jóns Arnórs Stefánsson í sigrinum á ÍR í gær. Hér skorar hann í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR HANDBOLTI Fram og FH skildu jöfn, 28-28, í bráðfjörugum leik í Fram- húsinu í Safamýrinni í gærkvöldi. Gestirnir í FH byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótt fjögurra marka forskoti, 2-6. Framarar lögðu mikið kapp á að stöðva hinn unga og efnilega Aron Pálmason en voru minntir harka- lega á að FH á fleiri unga og efni- lega leikmenn. Ólafur Guðmunds- son er einn þeirra og hann var með skotsýningu á fyrsta stundarfjórð- ungnum þegar hann skoraði sjö mörk úr sjö skotum og sá til þess að FH var alltaf skrefinu á undan. FH hafði enn fjögurra marka for- skot, 10-14, þegar rúmar tuttugu mínútur voru búnar af hálfleikn- um. Þá tóku Framarar við sér og náðu að laga stöðuna í 15-17 þegar flautað var til hálfleiks. Seinni hálfleikur var hnífjafn þar sem baráttan var í algleymi og hvorugt liðið gaf tommu eftir. Framarar náðu að jafna leikinn mjög fljótt og komust svo yfir í fyrsta skiptið í leiknum þegar rúmur stundarfjórðungur lifði leiks. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi og stemningin í Framhúsinu frábær. Aron kom FH í 27-28 þegar um þrjár mínútur voru eftir en Rúnar Kárason jafn- aði fyrir Fram mínútu síðar, 28-28, með sínu fimmtánda marki í leikn- um. Hvorugu liðinu tókst að skora á síðustu tveimur mínútunum og niðurstaðan því jafntefli. „Ég er mjög ánægður með að við tókum stig sem flestir reikn- uðu ekki með því að við myndum taka fyrir mótið og við erum að læra með hverjum leik,“ segir Elvar Erlingsson, þjálfari FH. Viggó Sigurðsson, þjálfari Fram, vildi ekki gefa Fréttablaðinu við- tal eftir leikinn. - óþ Nýliðar FH gerðu jafntefli gegn Fram, 28-28, í skemmtilegum handboltaleik: Enn koma FH-ingar á óvart FRÁBÆR Stórleikur Rúnars Kárasonar, sem skoraði fimmtán mörk, dugði Fram ekki til sigurs í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STÓRLEIKUR Sævar Sigurmundsson átti frábæran leik með FSu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.