Fréttablaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 28
6 föstudagur 17. október
Íris Björk Tanya
Jónsdóttir athafna-
kona hefur byggt nokkr-
ar af flottustu villunum
í Reykjavík. Hún hefur
fundið fyrir breyttu
landslagi í efnahagsmál-
um og tapað töluverðum
peningum upp á síðkast-
ið. Með jákvæðnina að
vopni hefur henni tekist
að takast á við breyttar
aðstæður og átta sig á
því hvað skiptir mestu
máli í lífinu.
Viðtal: Marta María Jónasdóttir
Mynd: Anton Brink
Í
ris Björk Tanya Jónsdóttir
hefur oft verið kennd við
fatahreinsunina Úðafoss
sem faðir hennar stofnaði.
Þegar Íris var tvítug tók
hún yfir reksturinn ásamt systur
sinni og mági. Fyrir tveimur árum
seldi hún mági sínum sinn hlut
til að geta einbeitt sér að öðrum
verkefnum. Fyrir þremur árum
festi hún kaup á tískuvöruversl-
uninni GK en auk verslunarrekst-
ursins hefur hún haft atvinnu að
því að byggja og gera upp hús og
hafa verk hennar vakið mikla at-
hygli. Þegar hún er innt eftir því
hvort hún hafi viðskiptavit yppt-
ir hún öxlum. „Ég veit það nú
ekki. Ég held að þetta sé fyrst og
fremst heppni. Ég er einlæg í því
sem ég geri og er heiðarleg,“ segir
hún og segir að hún eigi mömmu
sinni og pabba mikið að þakka
því þau hafi stutt svo vel við
bakið á henni. „Mamma og pabbi
lögðu mikla ábyrgð í hendurnar á
okkur þegar þau létu okkur eftir
fjölskyldufyrirtækið og ég er mjög
þakklát fyrir það,“ segir hún.
Þegar Íris er spurð út í kaupin á
GK segir hún að Arnar Gauti hafi
leitað til hennar sem fjárfesti. „Ég
ákvað að slá til því Arnar Gauti
er vinur minn en þetta átti aldrei
að vera framtíðarverkefni. Þetta
var mjög skemmtilegur og krefj-
andi tími. Þessi tískuheimur kom
mér þó á óvart því hann er svo
harður og það er nauðsynlegt að
hafa breitt bak. Ég vissi ekki að
þar þrifist jafn mikið baktjalda-
makk og raun ber vitni. Það var
endalaust verið að reyna að hafa
af mér merkjum. Það tókst reynd-
ar aldrei enda hef ég alltaf pass-
að að vera í góðu og persónulegu
sambandi við alla mína birgja,“
segir Íris en hún seldi GK í síð-
ustu viku.
Hver keypti? „Hann heitir Rúnar
Þór Guðmundsson. Ég var ekki á
leiðinni að selja en þetta var til-
boð sem ég gat ekki hafnað. Hann
sér mikil tækifæri í þessu. Ég er
rosalega sátt enda er mitt aðal-
starf að hanna og ég fæ mest út
úr því. Það þýðir ekkert að vera í
einhverju hálfkáki. Rúnar Þór og
Arnar Gauti munu vinna að þessu
saman og munu halda sínu striki
og þeir stefna að því að opna GK í
Smáralind núna í lok mánaðar.
ÁST Á HÚSUM
Árið 1995 keypti Íris hús á Teig-
unum, mokaði öllu út úr því og
endurbyggði frá grunni. Íris þótti
algerlega snarvitlaus þegar hún
réðst í þessar framkvæmdir en
þegar húsið var tilbúið fékk hún
mikið hrós fyrir. Þetta verkefni
hafði þær afleiðingar í för með
sér að hún hefur ekki getað hætt
að kaupa hús, gera upp og selja.
Meðfram því hefur hún unnið við
að stílisera og hanna heimili bæði
ein síns liðs og með arkitektum.
Hún keypti Skrúðás 13 árið 2000.
Húsið var fokhelt þegar hún festi
kaup á því og hún hannaði það
allt frá grunni. Næst byggði hún
og hannaði Eikarás 7 sem var um
tíma í eigu Jóns Arnars og Ingi-
bjargar Þorvaldsdóttur, oft kennd
við Habitat, og svo keypti hún Ár-
skóga í Blönduhlíð og gerði upp.
Nú er það í eigu Lárusar Weld-
ing, fyrrum forstjóra Glitnis, en
það komst í fréttirnar þegar það
var selt á 130 milljónir árið 2006.
Nú býr Íris á Tjarnarflöt í Garða-
bæ. „Húsið sem ég bý í núna er
ekki alveg fullklárað. Ég er eigin-
lega svolítið hrædd við að klára
það því ég er svo hrædd um að
þá rjúki ég til og vilji flytja,“ segir
hún og brosir. Þegar hún er spurð
að því hvort hana hafi ekki lang-
að til að fara alla leið og læra arki-
tektúr segir hún svo ekki vera.
„Mér var ráðlagt af fagfólki
sem ég starfa með að sennilegast
mundi það skemma fyrir mér frek-
ar en hitt að læra arkitektúr þar
sem ég er sveigjanleg í allri minni
hönnun og yrði kannski lituð af
náminu og mundi þá missa minn
stíl,“ segir hún. Í framhaldinu
segir Íris að hún hafi alltof dýran
smekk og játar að rata yfirleitt á
dýrasta hlutinn í búðinni og þoli
það ekki. Ertu orðin rík af húsa-
braskinu? „Ég er komin þangað
sem ég er komin vegna þessara
verkefna. En það má ekki gleyma
því að það eru breyttir tímar í
dag. Nú þarf maður að halda rétt
á spöðunum,“ segir hún.
VARÐ FREK Í GÓÐÆRINU
Spurð um góðærið segist hún hafa
fundið vel fyrir því. „Ég var orðin
frek af öllum þessum peningum.
Ég fattaði ekki hvað ég hafði það
gott. Þegar ég var þrítug setti ég
mér það takmark að þegar ég yrði
35 ára ætlaði ég að vera búin að
fá mér Cherokee-jeppa. Svo þegar
það tókst þá langaði mig bara í
eitthvað annað og meira. Svona
vatt þetta upp á sig. Í fyrra ætl-
aði ég mér að kaupa hús í Frakk-
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n
GET ALLTAF BYRJAÐ UPP Á
Íris Björk Tanya Jónsdóttir Hún hefur ýmsa fjöruna sopið en hún lætur ekkert stoppa sig. Jákvæðnin kemur henni langt.
Ég var orðin frek af öllum þessum peningum.
Ég fattaði ekki hvað ég hafði það gott.
Uppáhaldsmaturinn:
Humar ala Gummi …
Diskurinn í spilaranum:
Dísa.
Besti tími dagsins:
Eftir kl. 18.00 á kvöldin.
Líkamsræktin:
Kannast eitthvað við Laugar.
Bíllinn minn er …
Touareg
Stjörnumerki:
Krabbi.
Lífsmottó:
Heiðarleikinn kemur þér lengra
en flest.
Mesti lúxusinn:
Nudd, rauðvín og heiti pott-
urinn.
Uppáhaldsárstími:
Ég elska haustið.
Ef þú þyrftir að spara, hverju
myndir þú sleppa?
„Pitty Shopping“.
Best geymda
leyndar-
málið í
Reykja-
vík:
Það er
geymt við
sjóinn í 101.Þráinn Skóari Skóbúð • Grettisgata 3