Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 17.10.2008, Qupperneq 10
10 17. október 2008 FÖSTUDAGUR WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Ekki bíða F í t o n / S Í A Komdu við hjá næstu hjólbarðaþjónustu N1. Þannig sleppur þú við allar biðraðir þegar snjórinn kemur. BJÖRGUN Starfsmaður kvikmynda- framleiðslufyrirtækisins True North slapp með rifbeinsbrot þegar hann féll ofan í sprungu á Langjökli í fyrradag. Maðurinn fór á vélsleða á undan halarófu jeppa sem á eftir kom. Hann steig af sleðanum til að kanna hvort ísinn væri traustur, fór skrefi of langt og féll. Fallið var um fimm metrar og því mikil lukka að maðurinn skyldi ekki slasast alvarlega. Hann er vanur fjallamaður og kippti sér ekki mikið upp við óhappið, að sögn Rafns Her- mannssonar, fjölmiðlafulltrúa True North, sem var á staðnum. „Hann var stífur og stirður og aumur í kviðnum svo við keyrðum hann heim. En hann vildi reyndar ekki fara, heldur bara halda áfram að vinna.“ Óskað var eftir aðstoð björgun- arsveita og voru tvær þeirra komnar í viðbragðsstöðu. Áður en þær fóru af stað var beiðnin þó afturkölluð. Vanir jöklamenn voru í hópnum sem höfðu slakað til hans belti og híft hann upp úr sprungunni. Fimmtíu manna hópur fólks er á vegum True North á Langjökli við tökur á breskri sjónvarpsauglýs- ingu. Áætlað er að tökunum ljúki um helgina haldist veður gott. - hhs Starfsmaður True North var hætt kominn við tökur á auglýsingu: Féll ofan í sprungu á Langjökli FRÁ LANGJÖKLI Starfsmaður True North slapp með rifbeinsbrot þegar hann féll ofan í sprungu á Langjökli í fyrradag. Myndin er frá ótengdri jeppaferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALÞINGI Gestkvæmt verður á fundi viðskiptanefndar í dag þar sem staðan á fjármálamarkaði verður rædd. Fulltrúar Fjármálaeftirlits- ins, Kauphallarinnar, viðskipta- ráðuneytisins og fleiri aðila koma fyrir nefndina. Þingmenn Framsóknarflokksins óskuðu eftir að breskir lögmenn sem kanna grundvöll málaferla á hendur breskum stjórnvöldum fyrir Kaupþing kæmu á fundinn. Ágúst Ólafur Ágústsson, for- maður nefndarinnar, segir að því miður geti ekki orðið af því nú þar sem lögmennirnir séu farnir til síns heima. Reynt verði að fá þá á fund í næstu viku. - bþs Viðskiptanefnd Alþingis: Bankamálin rædd í dag AUSTURRÍKI Talið er að tugir þúsunda manna leggi leið sína að kistu Jörgs Haiders, þar sem hún stendur frammi í ráðhúsi Kärnten-héraðs í Austurríki í dag og í gær. Haider fórst í bílslysi á laugardaginn var og verður jarðsunginn á morgun. Hann var einn umdeildasti stjórnmálamað- ur Austurríkis, hægri sinnaður þjóðernissinni sem fyrir nokkrum árum fór ekki dult með andúð sína á útlendingum og aðdáun sína á þýskum nasistum. Hann var með 1,8 prómill af áfengi í blóði sínu þegar hann ók á ofsahraða á þjóðvegi með fyrrgreindum afleiðingum. - gb Líkvaka í Austurríki: Tugir þúsunda syrgja Haider SYRGJENDUR Fjöldi manns hefur vottað Haider hinstu virðingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKIPULAGSMÁL Sjóstangveiðifyrir- tækið Kjarnabúð fær ekki úthlut- að lóð við hafnarsvæði Bolungar- víkur til að reisa 20 burstabæi fyrir sjóstangveiðimenn sam- kvæmt skipulagstillögum umhverfisráðs. Tillagan var sam- þykkt í ráðinu í síðustu viku og verður tekin fyrir í bæjarstjórn næsta fimmtudag. Auður Hanna Ragnarsdóttir og Jóhann Hannibalsson, sem sitja í umhverfismála- ráði fyrir minni- hlutann, eru afar ósátt við þessa niður- stöðu og segja meirihlutann vera að vinna gegn atvinnuupp- byggingu fólks í bænum og saka Katrínu Gunnarsdóttur, fulltrúa meirihlutans og varaformann ráðsins, um persónulega óvild í garð forsvarsmanna Kjarnabúðar. Kjarnabúð hefur gert 400 millj- ón króna samning við þýsku ferða- skrifstofuna Kingfischer Reisen þar sem gert er ráð fyrir uppbygg- ingu burstabæjanna. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Teiknistofan Tröð sem vann að málinu með umhverfis- ráði hafi lagt upp með tillögur sem miðuðu við það að burstabæirnir yrðu reistir en síðan hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um að falla frá þeim tillögum. Aðspurður hvort óvild fulltrúa meirihlutans í garð forsvars- manna Kjarnabúðar hafi ráðið för segir Elías Jónatansson bæjar- stjóri ekki telja svo vera. „Maður spyr sig hins vegar hvort það sé einhver óvild í minnihlutanum sem fái menn til að vilja hrista svolítið upp í hlutunum,“ segir hann. Hann segir að lóðin við höfn- ina sem Kjarnabúð hafi sótt um sé ekki hæf til úthlutunar að svo stöddu því þar eigi eftir að leggja fráveitulagnir, brú og veg en und- irstaðan í honum fellur til við upp- gröft í höfninni sem farið verði í á næstu misserum. „Hins vegar er í deiliskipulaginu gert ráð fyrir lóðum fyrir hús eins og Kjarnabúð hyggst byggja á árbökkum Hólsár um 100 metrum ofar en umræddar lóðir.“ Hrólfur Vagnsson, einn eigenda Kjarnabúðar, segist ekki vilja tjá sig um viðbrögð Þjóðverjanna að svo stöddu en hann segir að tilboð hafi borist frá öðru sveitarfélagi um að færa starfsemina þangað. „Við viljum þó helst vera í Bolung- arvík en ef menn vilja ekki fá starfsemina þangað þá náttúru- lega endurskoðum við það,“ segir hann. Í vor slitnaði upp úr meirihluta- starfi A og K lista sem nú deila í umhverfismálaráði. Elías kemur frá D lista. jse@frettabladid.is Segja ferða- frömuði líða fyrir óvild Svo virðist sem ekki verði af byggingu 20 burstabæja sem átti að reisa við höfnina í Bolungarvík. Fulltrú- ar minnihlutans í umhverfismálaráði segja í fundar- bókunum að óvild meirihlutans ráði för. FRÁ BOLUNGARVÍK Hart er deilt um skipulagsmál í Bolungarvík enda er 400 milljóna króna samningur í húfi. HRÓLFUR VAGNSSON Við viljum helst vera í Bolungarvík en ef menn vilja ekki fá starfsemina þangað þá náttúrlega endurskoðum við það. HRÓLFUR VAGNSSON EINN EIGENDA KJARNABÚÐAR FÖGNUÐUR Gríðarlegur fögnuður var á Trafalgar-torginu í gær þegar fólk fagn- aði bresku keppendunum sem stóðu sig með eindæmum vel á Ólympíu- leikum fatlaðra í Peking. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.