Fréttablaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 22
Tungumálaskólinn Frú Mínerva hefur verið starfræktur um nokkurt skeið en nemendur hans geta fengið kennarann heim til sín. Að sögn kennarans Þuríðar Bjargar Þorgrímsdóttur er auðveldara að læra tungumál í smærri hópum. Þuríður Björg Þorgrímsdóttir spænskukennari stofnaði í árs- byrjun tungumálaskólann Frú Mínervu ásamt vinkonu sinni, Sig- ríði Rögnu Birgisdóttur. Þuríður Björg býður upp á spænsku- kennslu og kennir námskeiðin bæði heima hjá sér og heima hjá nemendum. „Ég innréttaði litla kennslustofu heima hjá mér og held námskeið þar fyrir litla hópa. Það er gott fyrir nemendurna að vera í smærri hópum og auðveldara að læra tungumál þannig. Síðan býð ég líka upp á að fara heim til fólks í vetur. Til dæmis ef fjölskyldan vill læra spænsku, þá kem ég bara til þeirra með mínar græjur.“ Vinsælust hafa verið námskeið sem Þuríður kallar Grúskarann, sem eru hefðbundin tungumála- námskeið með áherslu á talþjálfun og málfræði. Á döfinni er svo að bjóða upp á námskeið fyrir ferða- menn. „Fólk lærir þá eitthvað sem nýt- ist þeim í fríinu. Svo er ég líka að skipuleggja námskeið í íslensku fyrir útlendinga. Námskeiðin hjá mér eru fimm vikur, þrír klukku- tímar á viku, eða einn og hálfur tími tvisvar í viku.“ Þuríður Björg kenndi spænsku í framhaldsskóla en hafði gengið með draum í maganum um eigin námskeið þar sem hún kenndi þeim sem vildu læra. Heitið Frú Mínerva sótti hún til gyðju þekk- ingarinnar og líkir tungumálum við ólífur. „Mínerva var líka verndari ólíf- unnar og það má segja að ólífan sé eins og tungumál. Annaðhvort finnst fólki ólífan rosalega vond eða rosalega góð en það er alltaf hægt að venjast henni ef maður pínir hana nógu oft í sig. Það er eins með tungumálin. Það getur verið erfitt að læra þau en með því að pína sig nógu lengi þá kemur þetta allt í einu.“ Hægt er að skrá sig á námskeið á heimasíðu skólans, www.frum- inerva.is. Fólk getur mætt í fyrsta tímann og ákveðið eftir hann hvort það vill halda áfram. heida@frettabladid.is Tungumálin eru eins og ólífur Í tungumálaskólanum Frú Mínervu geta nemendur fengið kennarann heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Margir foreldrar skipuleggja ein- hverja tilbreytingu í vetrarfríi barnanna, að sögn Bjarkar Einis- dóttur, framkvæmdastjóra sam- takanna Heimila og skóla. „Und- anfarin ár hefur verið talsvert um utanlandsferðir og dvöl í bústöð- um á þessum tíma. En fleira er hægt að gera skemmtilegt og án þess að leggja í það mikla peninga. Það er hægt að fara á söfn, í bíó eða skoða eitthvað í umhverfinu. Við foreldrar þurfum að vera vak- andi fyrir hvað samveran hefur mikið gildi og að fjölskyldan getur átt innihaldsríkan tíma saman innan veggja heimilanna líka,“ segir hún. Þegar fimm daga vetrarfríin í skólunum voru lögfest fyrir nokkrum árum komu þau foreldr- um í opna skjöldu og þeir lentu í vandræðum með pössun fyrir yngri börnin, að sögn Bjarkar. „En nú er að skapast sátt um fríin, flestir reikna með þeim og taka þeim fagnandi,“ segir hún. „Sveit- arfélögin og skólarnir hafa líka sums staðar haft þá með í ráðum þegar fríin eru skipulögð. Jafnvel komið á kosningum. Einstaka skól- ar hafa að ósk foreldranna kosið að sleppa vetrarfríinu og stytta skólatímann að vorinu sem því nemur. Það er líka punktur því spurning er hvort við séum ekki komin með skólana alltof langt inn í sumarið.“ Björk kveðst þó fylgjandi því að vetrarfríið sé tvískipt og tekið bæði fyrir og eftir jól. „Þegar kemur fram á veturinn eykst möguleikinn á skíðaiðkun í vetrar- fríinu en haustönnin er líka oft löng, erfið og dimm og börnin hafa gott af því að fá tilbreytingu,“ segir hún. „Þar sem fríin eru ákveðin á vordögum er mikilvægt að upplýsingaflæðið sé þannig milli skóla og heimila að foreldr- arnir séu snemma meðvitaðir um tímasetninguna. Þá geta þeir skil- ið eftir daga af sumarfríinu sínu svo þeir geti varið tíma með börn- unum í vetrarfríinu og þar þarf auðvitað líka samkomulag við atvinnurekendur að koma til.“ gun@frettabladid.is Tilbreyting er til góðs Vetrarfrí eru fram undan í flestum grunnskólum landsins. Þau brjóta upp hversdaginn hjá börnunum og ættu að nýtast fjölskyldum til fleiri samverustunda, svo fremi foreldrarnir geti litið upp úr sínu amstri. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA „Við foreldrar þurfum að vera vakandi fyrir hvað samveran hefur mikið gildi,“ segir Björk Einisdóttir, fram- kvæmdastjóri samtakanna Heimili og skóli. VERKEFNASTJÓRNUN er tveggja daga námskeið sem Impra, miðstöð upplýs- inga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, stendur fyrir 30. og 31. október. Dvöl athvarf í Kópavogi Reynihvammi 43 // Kópavogi // sími 554 1260// dvol@redcross.is // www.redcross.is/dvol Markmiðið með starfsemi Dvalar er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum, auka lífsgæði, efla andlega, líkamlega og félagslega vellíðan þeirra sem glíma við geðraskanir. Athvarfið er öllum opið og koma gestir í athvarfið á eigin forsendum. Fyrir marga hefur það verið mikið gæfuspor að heimsækja Dvöl. Opið er virka daga kl. 9-16 (10-16 á fimmtudögum) og kl. 11-14 á laugardögum. Á laugardögum er gestum boðið upp á léttan hádegisverð þeim að kostnaðarlausu. Dvöl er samstarfsverkefni Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands, Kópavogsbæjar og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.