Fréttablaðið - 17.10.2008, Page 24
2 föstudagur 17. október
núna
✽ game over...
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is
Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.is Forsíðumynd Arnþór Birkisson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
augnablikið
Ö ll fjölskyldan er meira og minna í tónlist og það hefur
verið handhægt fyrir Atla að fá
mig í verkefni fyrst það vill svo
til að hann á systur sem er söng-
kona,“ segir Þórhildur Örvarsdótt-
ir, söngkennari á leiklistarbraut
Listaháskóla Íslands, sem syng-
ur lag í kvikmyndinni Bab-
ylon A.D. sem nú er sýnd í
Regnboganum. Þórhildur er
systir Atla Örvarssonar tón-
skálds sem samdi tónlistina í
myndinni, en hefur undanfarin ár
getið sér gott orð fyrir kvikmynda-
tónlist sína og samið tónlist fyrir
sjónvarpsþætti og kvikmyndir á
borð við Pirates of the Caribbean,
The Holiday og Vantage Point.
„Atli hefur búið í Bandaríkjun-
um í fimmtán ár og ég hef búið í
Danmörku og á Íslandi, en tækn-
in er orðin þannig í dag að það er
hægt að búa til tónlist við allar
aðstæður. Atli sendir mér tón-
listina í tölvupósti ásamt nótum
og svo tek ég upp ýmist í stúdíói
eða heima og sendi honum svo
skrárnar til baka. Það er tekið upp
við ýmsar aðstæður, en það hefur
verið redding að taka upp heima.
Ef ég hef ekki komist inn í stúd-
íó með stuttum fyrirvara hef ég
bara notað tölvuna og míkrafón og
tekið upp í eldhúsinu heima,“ út-
skýrir Þórhildur sem lauk nýlega
við upptökur á stefi við nýjustu
mynd Antonio Banderas, Thick as
Thieves.
„Mér skilst að stefið sé undir
ástarsenu í myndinni. Ég fæ ekki
að sjá hana sjálf áður en ég tek
upp, heldur fæ ég bara grófa lýs-
ingu á því hvað er að gerast,“
segir Þórhildur sem hefur í nógu
að snúast, því auk þess að starfa
sem söngkennari syngur hún með
Kjarnakór íslensku Óperunnar. „Ég
vil hafa þetta sem fjölbreyttast á
meðan maður kemst upp með að
sérhæfa sig ekki of mikið,“ segir
Þórhildur að lokum og brosir. - ag
Þórhildur Örvarsdóttir syngur í stórmyndinni Babylon A.D.
BREYTTI ELDHÚSINU
Í ALVÖRU HLJÓÐVER
Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir ákvað að fara til spákonu til að tengjast
persónunni Árdísi betur sem hún leikur í leikritinu Hart í bak sem frumsýnt er í
Þjóðleikhúsinu í kvöld. „Ég fór einu sinni til spákonu og þá rætt-
ist ótrúlega margt af því sem hún sagði. Ég var mjög skept-
ísk, en hún las mig samt mjög vel. Hún sagði meðal annars
að ég ætti eftir að fara meira út í skrif, sem er eitthvað sem
ég hef mjög gaman af, en hef aðallega gert fyrir skúffuna,“
útskýrir Þóra og segir heimsóknina hafa veitt sér innblástur
enda hafi hún gaman af andlegum málum. - ag
Skellti sér til spákonu
Þórhildur Örvarsdótt-
ir syngur stef í nýjustu
mynd Antonio Banderas,
Thick as Thieves.
Ef ég hef ekki komist í stúdíó með
stuttum fyrirvara hef ég bara notað
tölvuna og míkrafón og tekið upp í
eldhúsinu heima
þetta
HELST
Jón Gnarr er alsæll með viðbrögðin sem Dagvaktin hefur fengið. „Ég
hélt að þetta væri þjóð sem myndi bara hafa gaman af Spaugstof-
unni, en Íslendingar eru að verða mjög víðsýn og þroskuð þjóð, með
fjölbreyttari húmor. Þegar við gerðum Fóstbræður á
sínum tíma varð fólk alveg brjálað. Áskrifendur
Stöðvar 2 voru mjög reiðir yfir þáttunum, fannst
þeir dónalegir, særandi og ekki fyndnir.“ Aðspurð-
ur segir hann ekki standa til að framleiða fleiri
sjónvarpsþætti eftir Dagvaktina. „Við ætlum ekki
að framleiða fleiri þætti, en við höfum íhugað að
gera bíómynd byggða á þeim. Það er allt í vinnslu, en
svoleiðis kostar pening og peningar liggja
einhvern veginn ekki á lausu í dag.“ - ag
Dagvaktarmenn íhuga gerð bíómyndar
Langar í bíó
Georg Bjarnfreðarson Það verða ekki framleiddir fleiri
þættir þegar Dagvaktinni lýkur, en Jón Gnarr segir að til
standi að framleiða jafnvel bíómynd.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
hefur rýrnað um heilan helling síðan
góðærið leið undir lok. Kreppan er
kannski ekki alslæm?
PÉTUR ÖRN GUÐMUNDSSON TÓNLISTARMAÐUR
Á föstudagskvöldið er ég að spila á tónleikum á Selfossi með hljómsveitinni
Dúndurfréttum. Á laugardaginn ætla ég að heimsækja foreldra mína og yngstu
systur í Hveragerði, en um kvöldið verður tekið nördakvöld og horft á aðra seríu
af Battlestar Galactica. Á sunnudaginn ætla ég að vera í sloppnum allan daginn.
helgin
MÍN
Egill hámar í sig ham-
borgara Í vikunni greindi
DV frá því að sjónvarpsmað-
urinn Egill Helgason væri kom-
inn í átak, hann væri hættur að
borða óhollan mat og farinn að
æfa stíft í ræktinni. Daginn áður en
blaðið kom út sást hins vegar til
Egils á Hamborgarabúllu Tómasar.
Þegar Föstudagur hafði samband
við Egil var hann sakleysið uppmál-
að. „Ég fékk mér bara einn ham-
borgara, engar franskar eða kokk-
teilsósu, þannig að þetta var í
rauninni allt í lagi,“ sagði Egill og
tók það sérstak-
lega fram að hann
hefði borðað heil-
an poka af radís-
um daginn eftir og
væri því í
toppmál-
um.
Tískuslys Síðustu ár hafa aldrei
verið fleiri Range Rover-bílar á göt-
unum. Nú bregður hins vegar við
nýjan tón því bílarnir eru einhvern
veginn orðnir táknmynd liðins tíma
og kvarta Range Rover-eigendur
yfir því að svo mikið sé glápt inn í
bílana að eigendurnir hálfskammist
sín fyrir bílakostinn. Það er
spurning hvort Steini í Kók, Þór
Sigfússon í Sjóvá,
Magnús Ármann
fjárfestir, Björgólfur
Guðmundsson, Lilja
í Cosmo og Svava
Johansen þurfi ekki
bara að fá sér
hauspoka
þegar
þau fara á
rúntinn?
Örvandi ástarráð
Frábær ráð
til að örva, tæla
og erta.
Ljúfir ástarleikir
Lostafullir
leikir sem efla
sjálfsöryggi
elskenda.
Fáanlegar á ný.