Fréttablaðið - 17.10.2008, Page 46

Fréttablaðið - 17.10.2008, Page 46
26 17. október 2008 FÖSTUDAGUR Í kvöld og á morgun býður Sinfóníuhljómsveit Íslands öllum sem áhuga hafa á tónleika í Háskólabíó. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 19.30 en á morgun verða þeir kl. 17. Á dagskránni eru sinfóníur eftir finnska tónjöfurinn Jean Sibelius, en flutningur þeirra var liður í undirbúningi hljómsveitarinnar fyrir tónleikaferð til Japans. Hljómsveitinni var boðið þangað en eins og kunnugt er hefur för- inni austur verið aflýst vegna fjár- málaástandsins. Ferðin er ein sú viðamesta sem skipulögð hefur verið og undirbúningur staðið í um tvö ár. Hjá hljómsveitinni ráða menn nú ráðum sínum hvernig verður fyllt í það þriggja vikna gat sem kemur í starfsemi hljómsveitar- innar. Er hin aflagða ferð mikið áfall fyrir hljómsveitina og setur strik í reikning þeirra. Áður en kom til þess varð hljómsveitin fyrir öðru áfalli sem voru ógöngur Stoða sem voru helsti styrktaraðili hennar. Ofan í kaupið bætist nú óvssa um stöðu á tónlistarhúsinu sem er í hættu. Því er um að gera fyrir alla þá sem hafa fylgst með Sinfóníunni undanfarin ár og áratugi að taka boði hennar um tónleika í kvöld og á laugardag, en þangað eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, og þannig sýna samstöðu með hljómsveitinni á þessum örlaga- tímum í sögu hennar. Á fyrri tón- leikunum verða fluttar sinfóníur nr. 2 og 4, en á þeim síðari er röðin komin að þeim síðustu þremur, númer 5, 6 og 7. Sinfónían hefur á liðnum áratug hljóðritað allar sin- fóníur Sibeliusar fyrir Naxos og eru þær nú fáanlegar í safnútgáfu. Hefur flutningurinn víða fengið hrós og er til marks um þann styrk sem hljómsveitin býr yfir á góðri stund. Stjórnandi á tónleikunum er Petri Sakari. pbb@frettabladid.is Ókeypis sinfóníur í kvöld TÓNLIST Petri Sakari leiðir Sinfóníuna á tónleikum í kvöld og á morgun. Þangað eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. MYND: SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Listahátíð í Reykjavík verður haldin í 39. sinn á vori komanda og er nú hafinn undirbúningur fyrir hátíðina undir stjórn nýs listræns stjórnanda, Hrefnu Haraldsdótt- ur. Hefur hátíðin nú auglýst eftir umsóknum um tónleikahald í heimahúsum í Reykjavík í maí 2009. Óskað er eftir tónlistarfólki á öllum sviðum tónlistar. Fjöldi flytjenda má vera frá einum til fimm. Umsóknum fylgi upplýs- ingar um efnisskrá, flytjendur og húsnæði sem tekur að lágmarki 25 manns í sæti. Hugmyndin um stofutónleika á Listahátíð 2009 felur í sér að fá framúrskarandi tónlistarmenn til þess að bjóða gestum heim í stofu til sín. Þannig fá áheyrendur ein- stakt tækifæri til að njóta tónlist- ar í nálægð við listamennina. Til stendur að tónleikarnir fari fram á tveggja tíma fresti víðs vegar um borgina sunnudaginn 24. maí. Áætlað er að hverjir tónleikar verði 30 til 40 mínútna langir. Valið verður úr innsendum umsóknum og öllum umsækjend- um svarað. Valnefndina skipa full- trúar Listahátíðar í Reykjavík, Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) og Félags íslenskra hljóm- listarmanna (FÍH). Umsóknir berist eigi síðar en 25. nóvember til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar STOFUTÓN- LEIKAR. Nánar verður greint frá greiðslu fyrir tónleikahaldið við afgreiðslu umsókna. - pbb Listahátíð leggur net fyrir vorið LISTAHÁTÍÐ Hrefna Haraldsdóttir list- rænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Metsöluskáldsaga um lífið í bandarískum farandsirkus í kreppunni miklu. skáldsagnaverðlaun cosmopolitan „Sannkallaður gimsteinn.“ denver post 1. sætimetsölulisti new york times s t ór s ag aSkilaboðaskjóðan Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson Geysivinsælt ævintýri fyrir alla fjölskylduna! sun. 19/10 örfá sæti laus Macbeth William Shakespeare Blóð vill blóð... Ekki missa af ögrandi sýningu Takmarkaður sýningafjöldi Klókur ertu, Einar Áskell Bernd Ogrodnik Heillandi og krúttleg brúðusýning fyrir yngstu börnin sun. 19/10 tvær sýningar örfá sæti laus Hart í bak Jökull Jakobsson Ástsælt verk sem hittir okkur öll í hjartastað Frumsýning 17. október Örfá sæti laus á fyrstu átta sýningar www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Þjóðleikhúsið Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Sá ljóti Marius von Mayenburg Nú á leikferð um landið, sýningar í Reykjavík í nóvember Utan gátta Sigurður Pálsson Snarskemmtileg sýning í Kassanum Frumsýning 24. október Ástin er diskó, lífið er pönk Hallgrímur Helgason Ekki missa af eldfjörugum söngleik og ekta diskófjöri! lau. 18/10 uppselt, sýningum lýkur í nóvember BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR „Bryndís og Ilmur eru æði” – Gerður Kristný, Stöð 2 „Músíklega séð: Stórkostleg upplifun…Ég hélt ekki að það væri nokkur söngkona á Íslandi sem gæti gert þetta. Ég segi bara: Hallelúja! “ – Halla Sverrisdóttir, RÚV „Ég gleymdi alveg öllu…frábær söngur …flott skemmtun! – Þór Elís Pálsson, RÚV „Stuð í óperunni” – Ingibjörg Þórisdóttir, Mbl. „Dúndurmúsík!” – Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttabl. FÖSTUD. 17. OKT. KL.20 – UPPSELT LAUGARD. 18. OKT. KL.20 – NOKKUR SÆTI LAUS FÖSTUD. 24. OKT. KL.20 – LAUS SÆTI LAUGARD. 1. NÓV. KL.20 – LAUS SÆTI MIÐASALA Á OPERA.IS, MIDI.IS OG Í MIÐASÖLU ÍSLENSKU ÓPERUNNAR. SÍMI MIÐASÖLU: 511 4200.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.