Fréttablaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 38
● heimili&hönnun
„Ég hef verið að taka til hendinni
með föður mínum, Páli Ólafi Páls-
syni, en hann hefur rekið fyrirtæk-
ið Vef í fjölmörg ár. Vefur hefur til
dæmis þjónustað flest hótel á Ís-
landi með textílvöru en nú ætlum
við að breyta um áherslur og nafn.
Fyrirtækið ber nú heitið Arctic
Designs og ætlum við að leggja
áherslu á nokkur fyrirtæki í efna-
og veggfóðursbransanum sem eru
hvað vinsælust á alþjóðavísu,“
segir Ragna Erwin sem rekur einn-
ig virt textílfyrirtæki í London með
fjórtán starfsmenn.
„Fyrirtækið mitt, Chase Erwin,
hefur höfuðstöðvar í London og er
merkið orðið vel þekkt þar fyrir fal-
leg silkiefni. Við erum með dreif-
ingu og sölu í flestum heimsálfum,“
útskýrir Ragna hógvær en fyrir-
tæki hennar var nýlega valið einn
besti birgir fyrir Sunseeker þetta
árið. Sunseeker er einn helsti fram-
leiðandi skemmtisnekkja í heimin-
um og eru verðlaunin veitt fyrir
þjónustu og gæði. Er þetta í
fyrsta sinn sem textílfyr-
irtæki hlýtur þessi verð-
laun. Hið nýja fyrir-
tæki, Arctic De-
signs, mun þó
vera með
aðrar áhersl-
ur.
„Það er
margt nýtt
hjá okkur, svo
sem meira af
náttúrulegum efnum, eins og hör,
bómull, ull, íslensk skinn og fiski-
roð. Efni og veggfóður eru í hlýjum
og mildum litum eins og silkilínan
mín er þekkt fyrir.
Við erum einnig
með ný vöru-
merki sem
ekki hafa verið
til á Íslandi
áður,“ segir
Ragna og nefnir
að innblásturinn
fái hún helst frá
landinu sjálfu en
áferð og litir eru
valin með tilliti til
þess. „Mig hefur lengi
langað til að að vinna
með framleiðslu frá Ís-
landi og hefur dreymt um
að koma vörum héðan á framfæri
erlendis. Úr þessum hugleiðingum
varð Arctic-línan til.“ Ragna hann-
ar sjálf fyrir Arctic-línuna og hefur
unnið að henni í á annað ár. Línan
verður kynnt í fyrsta sinn á sýningu
í París í byrjun næsta árs.
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni og er ég nú að leggja lokahönd
á það, þar á meðal myndatöku hér
á Íslandi fyrir auglýsingar og bæk-
linga. Þó að Ísland hafi beðið mikla
álitshnekki í Bretlandi undanfar-
ið, sem er okkar stærsti markað-
ur, ætla ég ekki að hætta við heldur
halda ótrauð áfram því ég er jafn-
stolt af því að vera Íslendingur og
ég var fyrir tveimur vikum og tel
mig geta haldið flagginu á lofti með
einstakri vöru og góðri þjónustu,“
segir Ragna að lokum. - hs
Íslensk náttúra veitti Rögnu innblástur
við hönnun á nýju Arctic-línunni.
Með breyttu nafni koma breyttar áhersl-
ur í textílvöru Arctic Designs.
Chase Erwin var nýlega
valið besti birgir fyrir
skemmtisnekkjufyrirtæk-
ið Sunseeker þetta árið.
Höfuðstöðvar Chase
Erwin eru í London
en þar er merkið vel þekkt.
Ragna hannar sjálf mynstur og sendir
efnin í vinnslu víða um heim.
Íslensk textílhönnun
og heillandi efniviður
● Ragna Erwin rekur hið virta textílfyrirtæki Chase Erwin í London en ætlar nú einnig að
fara í samstarf með föður sínum hér á landi. Þau ætla að bjóða upp á nýja vöru og hefja út-
flutning.
Nýja Arctic-línan byggist á náttúruleg-
um efnum og mildum litum.
E instök húsagerð hefur verið áberandi í Pugliahéraði á Suður-Ítalíu í aldaraðir, einkum í bænum Alberobello. Trulli eða trullo eru húsin
nefnd og eru hlaðin úr steinum án sements. Þökin eru eins og keila í
laginu og mörg þeirra eru með táknum, meðal annars kristnum. Húsin
hafa verið á náttúruminjaskrá UNESCO síðan 1996.
Þótt rekja megi aðferðina við byggingu trullo til Grikkja sem voru
fjölmennir í Puglia á 8. öld þá ruddi hún sér einkum til rúms á 17. öld.
Sagan hermir að þá hafi skattar verið hækkaðir ótæpilega í héraðinu og
að fátækir bændur sem ekki gátu staðið í skilum hafi getað rifið húsin
sín með litlum fyrirvara ef fréttist af skattheimtumönnum á leiðinni.
Einn steinn í þakinu var nefnilega burðarsteinn og hægt var að láta
þakið hrynja með því að taka þann stein úr. Slíkt hrun er ekki óþekkt nú
á dögum.
Allt valt á einum steini
Bærinn Alberobello er auðugur af trullo. Hægt er fá húsin keypt en sérstakar
verndunarreglur gilda um endurbætur á þeim. MYND/ANNA BETA GÍSLADÓTTIR
M
Y
N
D
/A
R
C
T
IC
D
E
S
IG
N
S
M
Y
N
D
/C
H
A
S
E
E
R
W
IN
●ÚTVARPSLEIKHÚSIÐ Fátt er betra en að koma sér vel fyrir uppi
í sófa og hlusta á útvarpsleikrit. Öll fjölskyldan getur sameinast með rjúk-
andi kakó í bollum í kringum útvarpstækið og átt saman notalega stund
meðan kuldaboli krafsar á gluggann.
Ríkisútvarpið frumflytur á morgun klukkan 14, útvarpsleikritið Annar
maður eftir Brian FitzGibbon. Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverk
í leikritinu sem fjallar um miðaldra mann sem missir stjórn á eigin lífi
þegar hann heldur sig feigan. Hann heldur inn í ringulreið stórborgarinn-
ar og leitar huggunar í áfengi. En spurningin er hvort hann sé
virkilega kominn að leiðarlokum eða að hefja nýtt líf.
Aðrir leikendur eru meðal annars Margrét
Guðmundsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir, Róbert Arnfinnsson og Þórhallur
Sigurðsson. Edda Heiðrún Backman leik-
stýrir en leikritið þýddi Karl Ágúst Úlfsson.
Höfundurinn er írskur að uppruna
en hefur búið hér á landi frá árinu 1996.
Ríkisútvarpið hefur áður flutt eftir hann
leikritin Farðu til helvítis og Paparnir.
kósí stund
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
30% afsl.
Helgar
tilboð
af öllum nýútkomnum
íslenskum bókum gegn afhendingu
þessarar auglýsingar
1. NÓVEMBER 2008 LAUGARDAGUR6