Fréttablaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 34
G
aman er að hugsa út fyrir kassann þegar verið er að innrétta
híbýli því oft búa húsgögn og hlutir yfir fjölbreyttara nota-
gildi en í fyrstu virðist. Dæmi um það er að finna hér í Heim-
ili og hönnun í dag en þar fékk viðmælandi okkar þá snið-
ugu hugmynd að setja gervigras á eldhúsið hjá sér. Nú fussa kannski
margir og sveia en sannleikurinn er sá að gervigrasið hefur reynst
henni vel og vekur ávallt athygli. Ekki er erfitt að fitja upp á um-
ræðuefni við gesti þegar gervigras blasir við í eldhúsinu og getur
svona hugmyndaauðgi í hönnun því nýst vel á á ýmsan máta.
Skrítnir og skemmtilegir hlutir eru ákaflega vel til þess fallnir að
örva heilabúið og koma af stað samræðum sem síðan geta færst um
víðan völl. Ágætis samræðukveikjur eru til dæmis bollarnir hans
Hrafnkels Birgissonar, sem kallast „Hoch die Tassen“, en þar notar
hönnuðurinn gamla bolla og skellir þeim á háan glerfót. Einnig er
gaman að eiga í íbúðinni að minnsta kosti eitt áberandi húsgagn eða
skrautmun sem vekur athygli.
Ef hluturinn er fjörgamall og
sérstakur í útliti þá er oftar en
ekki skemmtileg saga á bak við
hann en einnig getur sagan af því
hvernig hluturinn endaði á nú-
verandi stað verið áhugaverð.
Þótt vissulega sé gaman að
kaupa sér nýja og fallega hluti
og hugvitssama hönnun þá þarf
ekki endilega að leita langt yfir
skammt. Hægt er að láta gamla
og lúna hluti ganga í endur-
nýjun lífdaga með smá máln-
ingu eða skrauti en auk þess
má velta fyrir sér hvort hægt
sé að nýta hlutinn á óhefðbund-
inn hátt, samanber gervigras
sem gólfefni. Dæmi um öðruvísi
innanhússhönnun er til dæmis
að hengja myndir á hvolf til til-
breytingar eða hengja þær upp
á sóhefðbundnum stöðum. Litlar
hillur má nota sem náttborð, sturtuhengi sem borðdúk, vírherðatré
sem skartgripasnaga, gardínur sem rúmteppi, skyrtur í koddaver,
kistur sem borð, hengja má upp hluti og ramma í kringum þá, sultu-
krukkur má nýta sem ljósaluktir og svona mætti lengi telja.
Nýir notkunarmöguleikar bjóða upp á nýja sýn og hressa upp á
heimilið. Auk þessa má líka velta fyrir sér hagnýtu notagildi og nýtni
og þá má til dæmis nota litla kassa til að hólfa niður skúffur, keflið
úr klósettpappírnum má skreyta og nota til að halda snúrum á sínum
stað en einnig er hægt að nota teygjubindi og afklippta sokka í sama
tilgangi, sýna má fjölskyldumyndir í spjaldskrá og geyma má klós-
ettpappír í háum og kringlóttum glervösum inni á baði. Sturtuhillur
nýtast vel fyrir hvaðeina, til dæmis hreinlætisvörur og þvottaefni og
hólfaskiptir skópokar geta breyst í fína kryddhillu. Möguleikarnir eru
óþrjótandi og því er um að gera að láta hugann reika og vera ófeiminn
við að prófa nýjar útfærslur. Útkoman gæti orðið snilldarleg!
Skrítnir og skemmtilegir hlutir
eru ákaflega vel til þess fallnir að
örva heilabúið og koma af stað
samræðum sem síðan geta færst
um víðan völl.
HEIMILISHALD
HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR
Hugsað á nýjan máta
● Forsíðumynd: Arnþór Birkisson tók mynd á
heimili Ölfu Freysdóttur Útgáfufélag: 365 miðlar
ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000
Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is
og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Aug-
lýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439
Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
● heimili&hönnun
Listamaðurinn Geir Helgi kaupir
bæði húsgögn og hljóðfæri á net-
inu. Flestöll hljóðfæri sín hefur
hann keypt á vefnum en af þeim
heldur hann mest upp á trommu-
heila frá Svíþjóð og Rhodes-raf-
magnspíanó frá New York.
Trommuheilinn heitir Elektorn
Machinedrum. „Þetta er ótrúlega
tryllt tæki og örugglega fallegasta
hljóðfæri sem ég hef séð,“ segir
Geir Helgi.
Á trommuheilann býr hann til
heilu og hálfu lögin þótt hann noti
gjarnan fleiri tæki og tól við þá
iðju. „Hann er keyptur notaður á
„vintage-synth“-spjallborði en er
þó alveg eins og nýr,“ segir Geir
Helgi sem kaupir auk þess mikið
á eBay og craigslsist.com sem er
bandarísk smáauglýsingasíða.
Þótt Geir Helgi líti fyrst og
fremst á sig sem listamann er
hann í hljómsveitinni Golden line
og býr bæði til bakgrunns-, stemn-
ings-, dans- og popptónlist. „Sum
lögin bý ég eingöngu til á trommu-
heilann og þá allt eins uppi í sófa,“
segir hann hæstánægður með
þessi góðu kaup.
Rókókósófann keypti hann líka
á Netinu. „Mér finnst skemmtileg-
ast að kaupa hluti á Netinu og held
að sú baktería sé komin frá pabba
mínum sem kaupir mikið af veiði-
dóti á vefnum.“
Geir Helgi, sem er nemandi í
grafískri hönnun við Listaháskóla
Íslands, var nýlega valinn í hóp
framúrskarandi ungra listamanna
hjá Art is It, sem er vettvang-
ur ungra listamanna frá öllum
heimshornum, og stefnir að því að
sækja um í Universität der Kunst
í Berlín í vor. - ve
Kaupir húsgögn og
hljóðfæri á Netinu
● Geir Helgi Birgisson gerir góð húsgagna- og hljóðfærakaup á Netinu. Hann heldur mest
upp á trylltan trommuheila frá Svíþjóð sem hann mundar í gömlum rókókó-sófa.
Geir Helgi situr hér í rókókó-sófanum með tryllta trommuheilann, sem hann varð sér úti um á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● KÖKU- OG TÆKIFÆRISDISKAR Keramiklistakonan Þóra
Breiðfjörð á heiðurinn að þessum fallegu köku- og tækifæris-
diskum. Hugmyndin að þeim er sprottin út frá gömlu riffl-
uðu álbökunarformunum sem mæður okkar og ömmur hafa
notað í gegnum árin til að töfra fram alls kyns góðgæti. Þóra
blæs nýju lífi í þetta gamla form með það að markmiði að vekja
gleði og kátínu þeirra sem njóta, en diskarnir fást í hinum ýmsu past-
ellitum. Diskarnir fást í Kraum í Aðalstræti 10.
Hannaðu heimilið með Tengi
Smiðjuvegi 76 Kópavogur | Baldursnes 6 Akureyri | www.tengi.is | Opið virkadaga 8.00 -18.00 laugardaga 10.00 -15.00
Mikið úrval hreinlætistækja
1. NÓVEMBER 2008 LAUGARDAGUR2