Fréttablaðið - 21.11.2008, Qupperneq 6
6 21. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Delicatessen
®
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
STJÓRNMÁL Júlíus Hafstein segir
það ósatt að hann hafi lagt til að
forseta Íslands yrði vikið til hliðar
í hátíðarhöldum 17. júní, eins og
fram kemur í bók Guðjóns Frið-
rikssonar, Saga af forseta, sem
fjallar um forsetatíð Ólafs Ragn-
ars Grímssonar.
Við undirbúning hátíðarhald-
anna fyrir 17. júní 2003 óskaði
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur (ÍTR), sem annast skipu-
lagningu hátíðarhaldanna, eftir að
forsætisráðuneytið tæki aukinn
þátt í framkvæmdinni. Ráðuneyt-
ið brást við með því að boða til við-
ræðufundar. Fyrir hönd borgar-
innar mættu Anna Kristinsdóttir,
þáverandi borgarfulltrúi og for-
maður ÍTR, og Gísli Eggertsson,
embættismaður hjá Reykjavíkur-
borg, en Júlíus Hafstein mætti
fyrir hönd forsætisráðuneytisins.
Í bókinni er haft eftir Önnu að
Júlíus hafi lýst því yfir að forsæt-
isráðuneytið gæti vel hugsað sér
að breyta hátíðarhöldunum, til
dæmis teldi það ekki endilega rétt
að forseti Íslands legði blómsveig
að styttu Jóns Sigurðssonar. Anna
kveðst í bókinni hafa verið furðu
lostin en sagt við Júlíus að sér
þætti þetta áhugaverð tillaga og
bað hann að senda sér hana skrif-
lega. Það hafi hann ekki gert og
málið fallið niður. „Enginn velktist
í vafa um hvaðan Júlíusi kom sú
hugmynd að víkja forsetanum til
hliðar með þessum hætti,“ skrifar
Guðjón Friðriksson í bókinni, og á
við að hugmyndin hafi verið að
undirlagi Davíðs Oddssonar,
þáverandi forsætisráðherra.
Júlíus Hafstein segir frásögn-
ina ósanna. „Þetta er haugalygi.
Það var ekkert í þessa veru rætt á
fundinum. Og mér finnst það ekki
góð sagnfræði hjá Guðjóni að
hafa ekki leitast eftir að heyra
mína hlið á málinu.“ Gísli Egg-
ertsson, embættismaður hjá
Reykjavíkurborg, segist ekki
reka minni til þess að Júlíus hafi
borið upp neina tillögu í þessa átt.
„Ég man ekki eftir neinu slíku,“
segir Gísli. Spurður hvort hann
hafi verið viðstaddur allan fund-
inn, segist hann ekki muna það
með vissu.
Ekki náðist í Önnu Kristinsdótt-
ur símleiðis en hún svaraði fyrir-
spurn í tölvupósti og hafði þetta
eitt að segja: „Þessi ummæli mín
eru rétt eftir mér höfð. Að öðru
leyti mun ég ekki tjá mig um
málið.“ Guðjón Friðriksson segir
að Anna sé hans eina heimild um
hvað fór fram á fundinum. „Hér
standa orð gegn orði.“
bergsteinn@frettabladid.is
Segir logið upp á sig
í bók um forsetann
Júlíus Hafstein, fyrrverandi starfsmaður forsætisráðuneytisins, segir Önnu
Kristinsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa, ljúga upp á sig í bók um forseta Ís-
lands. Anna stendur við orð sín. Orð gegn orði, segir höfundur bókarinnar.
ANNA
KRISTINSDÓTTIR
JÚLÍUS HAFSTEIN
SÁTTAHÖND Í bók Guðjóns Friðrikssonar er því haldið fram að Davíð Oddsson hafi
staðið á bak við hugmyndir um að víkja forsetanum til hliðar við hátíðarhöldin 17.
júní. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég hefði aldrei framkvæmt slíka
hjónavígslu nema ég teldi að hún
hefði verið fullkomlega lögleg og
ég tel að hún hafi verið það,“ segir
Guðmundur Sophusson, sýslumað-
ur í Hafnarfirði, um hjónavígslu
forsetahjónanna Ólafs Ragnars
Grímssonar og Dorritar Moussaieff.
Guðmundur gaf hjónin saman í
maí 2003. Í bók Guðjóns Friðriks-
sonar sagnfræðings um forsetatíð
Ólafs Ragnars segir, að þrátt fyrir að
sýslumaðurinn hafi fullvissað forset-
ann um að hann hefði öll nauðsyn-
leg gögn undir höndum hafi hann
haft samband við lögfræðing Ólafs
Ragnars nokkrum vikum síðar og
óskað eftir pappírum sem sýndu
fram á að fyrra hjónabandi hennar
væri í raun lokið. Tíu vikum eftir
athöfnina skrifaði Davíð Oddsson,
þáverandi forsætisráðherra, Ólafi
Ragnari bréf, þar sem hann átaldi
hjónavígsluna fyrir alvarlega ágalla
og sagði sýslumanninn hafa gert
mistök að gefa hjónin saman án
þess að formsatriðum hefði verið
fullnægt.
Guðmundur sýslumaður var
staddur erlendis þegar Fréttablaðið
náði tali af honum. Hann sagðist
ekki hafa getað kynnt sér fréttir af
málinu og vildi því ekki tjá sig um
það að öðru leyti en að hann teldi
að hjónavígslan hafi verið fullkom-
lega lögleg.
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri
og fyrrverandi forsætisráðherra,
svaraði ekki fyrirspurnum blaðsins
um málið. - bs
Vísar ávirðingum um embættisafglöp á bug:
Sýslumaður segir vígsl-
una hafa verið löglega
NEYTENDUR Dæmi eru um að verð á
einstökum matvörum hafi hækkað
um yfir 100 prósent frá mars og til
október. Algengt er að matvaran
hækki um 30 til 50 prósent. Hækk-
unin er mest í lágverðsverslunum
og hefur dregið saman með þeim
og öðrum verslunum í verði.
Verð á brauði, pasta og hrís-
grjónum hækkaði í flestum tilvik-
um yfir 50 prósent í lágverðsversl-
unum, en minna í hinum. Mjólk
hefur hækkað um 25 til 30 prósent
í verði síðan í vor.
Grænmeti og ávextir hafa
hækkað mikið í verði frá því í
mars. Kílóverðið á banönum hefur
hækkað um 83 prósent í Bónus,
svo dæmi sé tekið. Sú vara sem
hækkaði mest frá í vor er púður-
sykur frá Dansukker, en hann
hefur hækkað um 106 prósent í
Krónunni.
Henný Hinz, verkefnastjóri hjá
ASÍ, segir könnunina sýna slá-
andi hækkanir síðan í vor. „Mest
hækkar verðið í lágverðsverslun-
unum og það er verulega að draga
saman með þeim og öðrum í verði.
Þetta hefur náttúrlega mikil áhrif
á heimilin. Matvara er einn af
stóru útgjaldaliðunum og þegar
þrengir að hjá fólki vegur hún
kannski meira í útgjöldum heim-
ilanna.“
Kannanirnar voru gerðar 27.
mars og 18. nóvember 2008. Mælt
er það verð sem er í gildi á hverj-
um tíma í versluninni og getur til-
boðsverð haft áhrif á verðbreyt-
ingar einstakra vara. - kóp
Verðkönnun ASÍ sýnir gríðarlega verðhækkun á einstökum matvörum:
Verð tvöfaldast á hálfu ári
MATUR HÆKKAR Í VERÐI Dæmi eru um
yfir 100 prósent verðhækkun á einstakri
matvöru frá því í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
„Af því að lesa þetta bréf getur
maður ekki fullyrt að þáverandi for-
sætisráðherra hafi með því beinlínis
farið út fyrir verksvið sitt eða brotið
með skýrum hætti gegn reglum
um verkaskiptingu innan stjórnsýsl-
unnar,“ segir Trausti Fannar Valsson,
lektor í stjórnsýslurétti við Háskóla
Íslands.
Trausti bendir á að Hagstofa
Íslands hafi farið með málefni sem
vörðuðu þjóðskrána og almenna
skráningu og Davíð hafi verið ráð-
herra hennar. „Það hefur þó vænt-
anlega ekki verið hefðbundið að
ráðherra hlutaðist til með þessum
hætti um meðferð einstakra mála,
án þess að ég þekki það.“
Ekki sé heldur nauðsynlegt að
skilja bréfið þannig að Davíð sé
með því að skikka forsetann til að
fylgja tilmælum sýslumanns, að
öðru leyti en því sem tengist hlut-
verki Hagstofunnar, þótt sýslumenn
heyri almennt undir dómsmálaráð-
herra. - sh
ÓHEFÐBUNDIÐ
EN LÍKLEGA EKKI
ÓLÖGLEGT
Komast stelpurnar okkar upp úr
dauðariðlinum á EM í knatt-
spyrnu í sumar?
Já 67,1%
Nei 32,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að boða til kosninga á næst-
unni?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
VINNUMARKAÐUR Kynning verður
á störfum í ýmsum Evrópulönd-
um í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
frá fimm til níu í kvöld og á
morgun frá klukkan tólf til sex.
EURES-ráðgjafar frá Dan-
mörku, Noregi, Hollandi, Belgíu,
Austuríki, Þýskalandi, Litháen og
Póllandi verða á staðnum til að
kynna atvinnutækifæri og veita
ráðgjöf varðandi atvinnuleit í
sínum löndum.
Þá munu fulltrúar nokkurra
stórfyrirtækja í byggingariðnaði
í Evrópu verða á staðnum og
kynna laus störf innan sinna
fyrirtækja og taka á móti
umsóknum. - ghs
Ráðhús Reykjavíkur:
Kynning á
vinnu erlendis
KJÖRKASSINN