Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.11.2008, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 21.11.2008, Qupperneq 28
2 föstudagur 21. nóvember núna ✽ eru einhverjir á lausu? þetta HELST Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.is Forsíðumynd Arnþór Birkisson Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Maður er ekki alveg búinn að átta sig á þessu,“ segir Eygló Harð- ardóttir sem tekur sæti á Alþingi í kjölfar afsagnar Guðna Ágústson- ar. „Ég var á leiðinni á Kirkjubæjar- klaustur þegar ég frétti þetta og var vinsamlegast beðin um að stoppa bílinn svo ég keyrði ekki út af. Síðan þá hef ég nánast verið í símanum,“ segir Eygló en hún sat á Alþingi í þrjár vikur á síðasta kjörtímabili og segir þingmennskuna leggjast vel í sig. „Það er mikil nýliðun hjá okkur og nú erum við fjórar konur af sjö, svo þetta er í fyrsta sinn sem konur eru í meirihluta í blönduðum flokki,“ segir Eygló, en meðalaldur flokksins hefur einnig lækkað tölu- vert við umskiptin. Eygló verður í Reykjavík og í Suð- urkjördæminu á virkum dögum, en fer heim til Vestmannaeyja um helgar þar sem hún á tvær dætur sem eru átta og tveggja ára. „Við Sigurður E. Vilhelmsson, maðurinn minn, erum harðákveðin í því að búa í Eyjum og teljum hvergi betra að ala upp börn,“ útskýrir Eygló. „Hann hefur alltaf stutt mig í því sem ég geri og ætlar að gera það áfram.“ - ag Eygló Harðardóttir tekur sæti Guðna Ágústssonar Eiginmaðurinn lætur hlutina ganga upp Á þing Eygló er bú- sett í Vest- mannaeyjum svo hún mun ferðast reglu- lega til og frá meginland- inu þegar hún hefur störf á Alþingi. BRYNJA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR „Maðurinn minn er búinn að vera í tökum alla vikuna svo að ég og sonur minn, Baltasar Logi, ætlum að njóta þess að vera með honum um helgina. Ég ákvað í byrjun nóvember að ég ætlaði að skreyta þessa helgi svo að hjá okkur verður tekið forskot á jólin, spilaður Bing Crosby og hengdar upp jólaseríur. Veitir ekki af í þessu þunglyndi sem ríkir í landinu.” Á rmann Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri, Singer & Friedlander, dótturfélags Kaupþings í Lund- únum, hefur sett glæsiíbúð sína að Vatnsstíg 21 á sölu. Innlit í íbúðina birtist í tímaritinu Veggfóðri í janúar 2006 en íbúð- in vakti mikla athygli fyrir glæsileika. Hún er hönnuð í hólf og gólf af stjörnuarkitektinum, Rut Káradóttur, og var ekkert til sparað við hönnun íbúðarinnar. Í greininni í Veggfóðri segir að Rut hafi leitast við að sýna samtíma- legt útlit sem á rætur að rekja til mínimal- isma tíunda áratugarins. Gólfefni eru kasm- írhvítt granít og parketið er svartbæsuð eik. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar, annaðhvort hvítar háglans eða úr svartbæsaðri eik. Íbúðin er ekki bara glæsilega hönnuð heldur er innbú- ið ekki af verri endanum, þar er leðurklæddur Svanur Arne Jacobsen, Uxi Hans J. Wegner, græj- ur frá Bang&Olufsen, stólar frá B&B Italia auk glæsilegra listaverka. Íbúðin er 164,7 fm og er á 10. hæð með svöl- um til suðurs og vesturs. Íbúðin er mjög björt og lofthæð er meiri en almennt gerist. Íbúðin skiptist í forstofu, tvær svefnálm- ur sem í eru tvö svefnherbergi, tvö baðher- bergi og þvottahús, borðstofu, stofu, sjón- varpsstofu, eldhús og 16,4 fm svalir. Í sam- eign er sérgeymsla og hjólageymsla, ásamt sérbílastæði í bílageymslu. Þar sem Ármann hefur verið bú- settur í Lundúnum hefur hann aðeins notað íbúðina þegar hann hefur verið á landinu. Í október 2006 festi Ár- mann kaup á 371 fm húsi við Dyngjuveg 2 í Reykjavík. Frá því hann fékk húsið afhent í maí 2007 hafa framkvæmd- ir staðið yfir en þeim er ekki nærri lokið. Húsið stendur því eins og hálfgert draugahús innan um allar villurnar í Vesturbrún. Lúxusíbúð Ármanns Þorvaldssonar er föl fyrir 85 milljónir DREGUR SAMAN SEGLIN Brúðkaup ársins Magnús Stephensen, fyrrver- andi forstjóri XL Leisure Group, lét kreppuna ekki stoppa sig þegar hann gekk að eiga kærustu sína til margra ára, Bergljótu Þorsteins- dóttur, fyrrverandi flugfreyju og ljósmyndara. Parið er búið að vera saman í nokkur ár og eiga tvo drengi saman. Veislan fór fram í Dómkirkjunni en veislan sjálf var haldin á Hilton. Brúðkaupsveisl- an var standandi með girnileg- um pinnamat og Föstudagur hefur heimildir fyrir því að á stuðmæli- kvarðann slái hún brúðkaupi ársins 2007 út þegar Jón Ásgeir gekk að eiga Ingibjörgu Pálma- dóttur. Það er kannski ekki svo skrýtið að halda því fram því brúðkaup Magnúsar og Berg- ljótar fór fram á árs- brúðkaupsafmæli Jóns Ásgeirs, 15. nóvember. Veggfóður Myndir úr íbúðinni birtust í tíma- ritinu Veggfóðri í janúar 2006 og vöktu mikla athygli. Dyngjuvegur 2 Ármann keypti húsið í október 2006. Framkvæmd- ir hafa staðið yfir síðan hann fékk húsið afhent í maí 2007 og ekki sér enn fyrir endann á þeim. Það bar mikið á Ármanni Þorvaldssyni í góðær- inu en talið er að hann hafi haldið hressustu ára- mótapartíin í Lundún- um en hann fékk til dæmis Duran Duran og Tom Jones til að syngja fyrir sig. Vatnsstígur 21 Glæsileikinn drýpur af hverju strái en stjörnuarkitektinn Rut Káradóttir hannaði íbúðina. Margrét keypti kjólinn Mikil leynd hefur hvílt yfir því hver hafi keypt Bjarkarkjólinn sem boðinn var upp á SUK- markaðnum í Perlunni í ágúst. Kjóllinn, sem er eftir Matt- hew Willi- amson, var sleginn á 120 þúsund krónur. Það voru ákveð- in vonbrigði að kjóllinn færi ekki fyrir hærri upp- hæð því sambærilegir kjólar eftir hönnuðinn eru mun meira virði. Það var hins vegar Margréti Írisi Baldursdóttur í hag að enginn yfirbauð hana. Fyrir þá sem ekki þekkja Margréti er hún unnusta Magnúsar Ármanns fjár- festis. Beyoncé var svartklædd frá toppi til táar þegar hún mætti í MTV-stúd- íóið í New York í vikunni, í níðþröng- um leðurbuxum. augnablikið Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Gott fyrir ræktina og mikið álag. Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu og glyccogen, því meira glycogen sem er til staðar í líkamanum við æfingar því betri árangur. Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu. Ef Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir æfingar eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald og einbeitingu. Dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf, truflar ekki svefn. Gæðastaðall ISO9001, ISO1401. 29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni. Aukið úthald, þrek og betri líðan V o ttað 100% lífræ nt www.celsus.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.