Fréttablaðið - 19.12.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
19. desember 2008 — 347. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
HÁSKÓLABALL verður haldið á skemmtistaðnum
Nasa annað kvöld, laugardaginn 20. desember. Páll
Óskar Hjálmtýsson sér um að halda uppi stuðinu en
húsið opnar klukkan 23.00. Aldurstakmark er 20 ár.
Anna Björk Hilmarsdóttir er nem-andi í 10. bekk í unglingadeild
Álftamýrarskóla og sinnir einnig
starfi formanns nemendaráðs.
Hún er liðtæk við piparköku-skreytingar en hún lenti ásamt liði
sínu í fyrsta sæti skreytinga-keppninnar í fyrra
segir Anna Björk en auk hennar í
liðinu voru Katrín Steinunn Ant-onsdóttir, Karen Ósk Óskarsdóttir
og Soffía Lára Snæbjörnsdóttir.
Allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk
skólans tóku þátt í keppni ieinu i
Ég er bara dugleg að skreyta, en
ég baka stundum Betty Crocker.
Ef foreldrar mínir baka þá hjálpa
ég kannski til. Ég borða samt rosalega mikið f
Kökuhús Pocahontas
Álftamýrarskóli hefur staðið fyrir skreytingakeppni á piparkökuhúsum síðustu tvö ár. Nemendur í ungl-
ingadeild skólans taka þátt í liðakeppni um best skreytta húsið.
Anna Björk Hilmarsdóttir varð í öðru sæti með indíánahúsið ásamt Katrínu Steinunni Antonsdóttur, Karen Ósk Óskarsdóttur og
Soffíu Láru Snæbjörnsdóttur. Sigurvegarar í keppninni voru Ástrós Arnarsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Rakel Tara Þórarinsdóttir og Sylvía
Kristín Stefánsdóttir. Stúlkurnar eru allar í tíunda bekk Álftamýrarskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nýársveisla
1. janúar 2009
Gjafabréf Perlunnar
Gefðu einstaka kvö
ldstund í jólagjöf!
Þórir Baldurs og Þrjár raddir spila kvöldverðartónlist
& hljómsveit Þóris Baldurs spilar fyrir dansi.
9.990 kr.Verð með fjórum glösum af víni 14.500 kr.Spariklæðnaður — Húsið opnar kl. 19:00Pantið borð í síma 562 0200 eða með tölvu ó ti
Steikt hörpuskelmeð blönduðum skógarsveppum og blómkálsfroðu Humarsúpa
Rauðvínssoðin perameð foie gras ís og portvínsgljáaKryddlegið hreindýrafillemeð steiktum kantarellum, seljurótarmauki og „pomme Anna“ kartöflumLogandi „créme brûlée“með súkkulaðiís Kaffi og heimalagað konfekt
VEÐRIÐ Í DAG
SIGRÍÐUR THORLACIUS
Jólabarnið með
englaröddina
FÖSTUDAGUR FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
föstudagur
SYN
Sigríður Thorlacius söng eitt vinsælasta lagið 2008 og er alls ekki hætt.
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 19. desember 2008
ANNA BJÖRK HILMARSDÓTTIR
Indíánapiparkökuhúsið
hreppti annað sæti
• matur • tíska • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
VIÐSKIPTI Sjö lífeyrissjóðir hafa
ráðið sér sameiginlegan lögmann
til að gæta hagsmuna sinna gagn-
vart Samson, eignarhaldsfélagi
Björgólfsfeðga. Líkur eru á að
þrír lífeyrissjóðir bætist í hópinn.
Krafan er vegna útistandandi
skuldabréfa sem alls nema um 24
milljörðum króna. Óljóst er um
hlut lífeyrissjóðanna, en þó liggur
fyrir að þeir eru í hópi stærri
kröfuhafa í þrotabúi félagsins.
Viðar Lúðvíksson, lögfræðingur
hjá Landslögum, gætir hagsmuna
sjóðanna. „Þessi vinna er skammt
á veg komin og ég hef frest til að
vinna kröfulýsingu út næsta
mánuð. Sjóðirnir eru að safna
saman nauðsynlegum gögnum svo
ég treysti mér ekki til að segja um
hvaða upphæðir er hér um að tefla
fyrir hvern lífeyrissjóð fyrir sig,“
segir Viðar.
Að sögn Hauks Hafsteinssonar,
framkvæmdastjóra LSR, eru líf-
eyrissjóðirnir í landinu að skoða
nokkur mál í sameiningu vegna
taps sjóðanna í kjölfar hruns
bankakerfisins. „Í eignasafni hjá
LSR voru skuldabréf á marga aðila
og vegna kreppunnar eru ýmis
mál sem þarf að skoða. Meðan á
því stendur tel ég óráðlegt að ræða
það sérstaklega.“
Helgi Birgisson, skiptastjóri
þrotabús Samsonar, segir að heild-
arvirði útgefinna skuldabréfa Sam-
sonar sé um 24 milljarðar króna.
Það liggi hins vegar ekki fyrir
hverjir eigi þau. Ljóst sé þó að eign
lífeyrissjóðanna sé veruleg. Hann
segir ekkert hægt að segja til um
hvað kröfuhafar geti vonast eftir
að fá. „Eignir félagsins voru um
170 milljarðar og níutíu töpuðust
við fall Landsbankans. Það eru
síðan aðrar eignir sem unnið er við
að gera pening úr. En eins og stað-
an er í dag er þetta að stórum hluta
tapað.“
Heildarkröfur í þrotabú Samson-
ar nema um 112 milljörðum króna.
Skuldir Samsonar við lánardrottna
nema um 87 milljörðum króna. Þeir
eru Landsbankinn, Straumur,
Kaupþing og Glitnir, auk þýsku
bankanna Commerzbank og
Standard. - shá, ikh
Lífeyrissjóðir í mál
vegna milljarða taps
Sjö lífeyrissjóðir hafa sameinast um að sækja rétt sinn gagnvart Samson eignar-
haldsfélagi. Þrír sjóðir bætast líklega við. Sjóðirnir hyggja á frekara samstarf.
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR SJÖ
■ Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
■ Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
■ Lífeyrissjóður verkfræðinga
■ Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
■ Lífeyrissjóður Vestfirðinga
■ Festa, lífeyrisjóður
■ Gildi, lífeyrissjóður
dagar til jóla5
Opið til 22
OPIÐ
TIL 22
Veigar Páll
verður sá sjötti
Fimm íslenskir
knattspyrnumenn
hafa leikið í frönsku
úrvalsdeildinni.
ÍÞRÓTTIR 66
FÓLK „Þetta hefur ekki verið gert
áður í áætlunarflugi,“ segir
Sigríður Klingenberg spákona
sem setti heimsmet síðastliðinn
fimmtudag þegar hún spáði fyrir
198 manns í 37.000 feta hæð í
flugi Iceland Express til og frá
Kaupmannahöfn.
„Þetta voru 98 Íslendingar og
100 Danir sem voru flestir að fara
að koma og versla á Íslandi. Ég
spáði fyrir öllum farþegunum,
nema þeim sem voru sofandi, en
sendi þeim bara hugarspá. Ætli
maður hafi ekki verið tengdari
almættinu en ella þarna í háloft-
unum,“ segir Sigríður og hlær, en
verið er að skrá metið í heims-
metabók Guinness. - ag / sjá síðu 70
Spáði fyrir 198 flugfarþegum:
Setti heimsmet
í háloftunum
ÉL VESTAN TIL Í dag verður hæg
breytileg átt, 3-8 m/s. Él vestan
til, bjart með köflum á landinu
austanverðu annars stöku él á
stangli. Frost yfirleitt á bilinu 0-12
stig, kaldast á Austurlandi.
VEÐUR 4
-2
-6
-9
-4
-3
Dísa tilnefnd
Bryndís Jakobsdóttir
er meðal þeirra
sem tilnefndir eru til
Íslensku tónlistar-
verðlaunanna.
FÓLK 60
Flaggskip
háskóla í Kína
Háskóli Íslands
hefur hafið samstarf
við tvo virta háskóla í
Peking.
TÍMAMÓT 44
Frá geðveiki til
gæfuspors
Hugarheimur geðsjúkra einstakl-
inga er oft martröð líkastur, skrifar
Steindór J. Erlingsson.
UMRÆÐAN 40
BÓKMENNTIR Vetrarborgin, glæpa-
saga Arnaldar Indriðasonar, fær
lofsamlega dóma í breskum fjöl-
miðlum. Vetrarborgin var bók vik-
unnar hjá The Mirror sem segir
Arnald standa
upp úr miklu
flóði norrænna
glæpasagnahöf-
unda. „Arnaldur
Indriðason er
einhver skær-
asta stjarnan á
alþjóðavett-
vangi glæpahöf-
unda,“ skrifar
gagnrýnandinn.
Arnaldur
segir það skipta sig mestu máli
hvernig íslenskir lesendur taki
bókum hans. „Þeir hafa alltaf tekið
mér hvað best,“ segir Arnaldur í
samtali við Fréttablaðið.
Nýjasta bók Arnaldar, Myrká,
er hreinlega rifin út úr bókabúð-
um. Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst var fyrsta prentun
þrjátíu þúsund eintök. Hún er nú
á góðri leið með að verða uppseld.
- fgg / sjá síðu 70
Arnaldur Indriðason:
Ein skærasta
stjarna glæpa-
sagnaheimsins
ARNALDUR
INDRIÐASON
DÓMSMÁL Systkinin Jón Ásgeir
Jóhannesson og Kristín Jóhannes-
dóttir ásamt Tryggva Jónssyni og
félögunum Baugi og Gaumi hafa
verið ákærð fyrir skattalagabrot.
Í ákæru setts ríkislögreglustjóra
sem birt var í gær er talið upp hvern-
ig þremenningarnir og félögin sem
þau stýrðu eiga að hafa á árunum
1998 til 2003 skotið undan skatti,
launatekjum og fjármagnstekjum.
Þannig hafi skatturinn orðið af
hundruðum milljóna króna.
Gestur Jónsson, lögmaður Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, segir að
fram sé komin þriðja ákæran í
„gamla Baugsmálinu“. Svo virðist
sem ákæruvaldið taki hvorki mark á
fyrri dómi Hæstaréttar í Baugsmál-
inu né dómi Héraðsdóms Reykjavík-
ur frá í fyrradag í öðru skattamáli.
„Persónuleg skattamál ákærðu sem
og skattamál Baugs og Gaums sem
ákært er fyrir hafa hlotið endanlega
niðurstöðu hjá skattyfirvöldum,“
segir í yfirlýsingu Gests.
- gar / sjá síðu 4
Ríkislögreglustjóri ákærir fyrir meiri háttar skattalagabrot árin 1998 til 2003:
Baugsfólk sakað um skattsvik
JÓLASTEMNING Það ríkti sannkölluð jólastemning á Laugaveginum í gær enda kyngdi snjónum niður. Eftirvæntingin magnast
enda aðeins fimm dagar til jóla. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL.