Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 2

Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 2
2 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR Hæ hæ ég hlakka til H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 0 8 - 2 2 1 8 www.postur.is Í dag er síðasti öruggi skiladagur fyrir jólapakka og jólakort innanlands – ég á von á pakka! LÖGREGLUMÁL Tugir einstaklinga hafa verið handteknir vegna fíkniefnamála á Norðurlandi frá því í haust. Átak lögreglu gegn fíkniefnum sem hófst þá hefur skilað mjög góðum árangri. Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, segir að um sé að ræða samstarfsverkefni lögreglu- stjóranna á Norðurlandi sem sett hafi verið á laggirnar í haust og fram að áramótum. Lögreglu- stjórarnir sem um ræðir eru á Akureyri, Húsavík, Blönduósi, Sauðárkróki, svo og embætti ríkislögreglustjóra. „Þetta hefur gengið mjög vel og skilað miklum og góðum árangri,“ segir Gunnar. „Það færir okkur sönnur fyrir því að fíkniefnavandinn er ærinn. Það virðist ekkert slá á hann. Á þessu tímabili í haust sem átakið hefur staðið yfir er mikil aukning í fíkniefnamálum, bæði hvað varð- ar haldlögð fíkniefni svo og vímu- efnaakstur. Í tengslum við þau hafa 66 einstaklingar verið hand- teknir, farið hefur verið í fjöl- margar húsleitir, auk þess sem leitað hefur verið í bílum. Hald hefur verið lagt á talsvert magn af fíkniefnum, bæði kannabis- efni, amfetamín, kókaín og stera.“ Nær tuttugu af þeim sem hand- teknir hafa verið í átakinu eru grunaðir um að hafa stundað fíkniefnasölu, að því er Gunnar greinir frá. Þá hafa sumir ein- staklinganna verið handteknir oftar en einu sinni. Langflestir hafa verið teknir á Akureyrar- svæðinu, en fólk hefur einnig verið tekið í öllum hinum umdæm- unum á Norðurlandi. „Aukningin skilar sér um leið og farið er að vinna markvisst að þessum málaflokki,“ segir hann. Að sögn Gunnars var átaks- verkefnið sett saman af fjórum mönnum, tveimur lögreglumönn- um á Akureyri og öðrum tveimur frá Ríkislögreglustjóra og eru þeir staðsettir á Akureyri. Auk þessara eru ákveðnir tengiliðir við ofangreind lögregluembætti á Norðurlandi. Mikið og gott samstarf hefur verið milli lögreglumannanna fyrir norðan og fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Átaksverkefnið var fjármagn- að með aukafjárveitingu fram að áramótum. Að sögn Daníels Guð- jónsssonar yfirlögregluþjóns hefur nú fengist smá aukafjár- veiting til viðbótar, þannig að hægt verður að halda átakinu áfram eftir áramót. jss@frettabladid.is Tugir handteknir í átaki gegn fíkniefnum Tæplega sjötíu einstaklingar hafa verið handteknir í átaki gegn fíkniefnum sem staðið hefur yfir frá því í haust á Norðurlandi. Um tuttugu þeirra eru taldir vera sölumenn. Lögregla hefur tekið kannabisefni, amfetamín, kókaín og stera. LÖGREGLAN Á AKUREYRI Langflestir hafa verið teknir af lögreglu á Akureyrarsvæðinu, en fólk hefur einnig verið tekið í öllum hinna umdæmanna á Norðurlandi. FJÖLDI FÍKNIEFNAMÁLA – átaksverkefni á Norðurlandi* 20.8. - 7.12.2008 Fíkniefnamál 53 Vímuakstur 30 20.8. - 7.12.2007 Fíkniefnamál 20 Vímuakstur 10 20.8. - 7.12.2006 Fíkniefnamál 34 Vímuakstur 8 *BRÁÐABIRGÐATÖLUR LÖGREGLUMÁL Tveir íslenskir karlmenn á fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að þeir reyndu að smygla fíkniefnum í ferðatöskum til landsins fyrr í vikunni. Annar mannanna kom til landsins á þriðjudag. Hann var handtekinn í Leifsstöð. Í ferðatösku sem hann hafði meðferðis reyndist vera í kringum eitt og hálft til tvö kíló af ætluðu hvítu, sterku fíkniefni. Hinn maðurinn hafði fengið búslóð senda í frakt hingað til lands. Í fyrradag, þegar hann kom að leysa sendinguna úr tolli, var hann handtekinn. Meðal hluta í fraktinni reyndist vera ferðataska sem innihélt meðal annars hvítt fíkniefni. Sá sem kom til landsins á þriðjudag var í fyrradag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. janúar. Hinn, sem kom til að sækja búslóðina, var í fyrradag úrskurðað- ur í gæsluvarðhald til 23. desember. Hann var með mun minna af fíkniefnum en sá sem kom á undan. Lögregla telur að þessi tvö mál tengist. Rannsókn þeirra er á frumstigi. - jss Karlmenn sem reyndu að smygla fíkniefnum til landsins í gæsluvarðhaldi: Tveir teknir með fíkniefni í kílóavís í ferðatöskum MEÐ FLUGI Mennirnir reyndu að koma fíkniefnum til landsins í ferðatöskum. DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja- víkur dæmdi í gær Davíð Smára Helenarson, 24 ára, í sjö mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Hann var sýkn- aður af þeirri þriðju. Davíð er dæmdur fyrir að hafa í ágúst í fyrra ráðist á dómara í utandeildarleik í knattspyrnu eftir að honum var vísað af velli. Davíð sparkaði undan dómaranum fót- unum með þeim afleiðingum að hann féll og rifbeinsbrotnaði. Þá er hann dæmdur fyrir að hafa fyrir ári ráðist á Hannes Þ. Sigurðsson, landsliðsmann í knattspyrnu, á Hverfisbarnum, hrint honum og slegið hann marg- sinnis í andlitið. Hannes tvíbrotn- aði í andliti við árásina og var frá knattspyrnuiðkun í mánuð. Segir í dómnum að hópur manna hafi verið með Davíð þegar árásin var framin, mennirnir hafi varnað því að einhver kæmi til hjálpar og hvatt Davíð áfram í bar- smíðunum. Davíð var einnig ákærður fyrir að hafa ráðist á mann á salerni skemmtistaðarins Apóteksins, kýlt hann og hoppað á fæti hans þannig að hann ökklabrotnaði og sleit liðband. Dómnum þykir ekki sannað að Davíð hafi verið þarna að verki og sýknar hann því. Davíð var dæmdur til að greiða dómaranum 200 þúsund krónur í miskabætur og Hannesi hálfa milljón. - sh Fékk sekt og fangelsisdóm fyrir að berja dómara og knattspyrnumann: Davíð Smári í sjö mánaða fangelsi Tveimur dögum eftir árásina á dómarann kom Davíð Smári fram í fjölmiðlum og skýrði frá sinni hlið mála. Í viðtali við RÚV sagði hann meðal annars: „Ég verð greinilega að gera eitthvað í mínum málum, það er alveg augljóst … þetta er bara endapunktur.“ Áður hafði hann tekið fram sérstaklega að hann vildi biðja dómarann „afsök- unar, alveg bara endalaust“. SAGÐIST IÐRAST Herbert, er hægt að ganga í burtu frá genunum? „You can´t walk away!“ Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmunds- son hefur troðið upp með sonum sínum að undanförnu og er afar ánægður með félagsskapinn. Herbert er sem kunnugt er höfundur hins ódauðlega eitís-slagara Can´t Walk Away. BAGDAD, AP Muntadhar al-Zeidi, íraski blaðamaðurinn sem henti skónum sínum í átt að George Bush Bandaríkjaforseta á blaðamannafundi fyrr í vikunni, hefur ritað bréf til forsætisráð- herra Íraks þar sem hann biðst afsökunar á athæfinu og náðunar. Jalal Talabani, forseta Íraks, er heimilt að náða blaðamanninn ef Nouri al-Maliki forsætisráðherra mælir með slíkri aðgerð. Haft hefur verið eftir ráða- mönnum í Írak að blaðamaðurinn al-Zeidi, sem nú er í fangelsi, verði líklega ákærður fyrir móðgun í garð erlends leiðtoga. Slíkur glæpur gæti varðað allt að tveggja ára fangelsi. - kg Íraskur blaðamaður: Biðst afsökunar og náðunar STJÓRNMÁL Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylking- arinnar, hætti í stjórn fasteigna- félagsins Miðkletts í kjölfar bankahrunsins, enda telur hann að hagsmunaárekstrar geti orðið í slíkri stöðu, í ljósi þess að ríkið á nú bankana. Þingmaðurinn segir Miðklett eiga og reka fasteignina að Borgartúni 33, sem er um 2.000 fermetra skrifstofuhúsnæði. Það sé allt og sumt. Sögusagnir um skuldaafskriftir félagsins í nýju bönkunum séu „glórulausar“. „Ég hef aldrei fengið nein sérkjör eða notið neinnar vildar vegna þessa,“ segir hann. Lúðvík á um fjórar milljónir króna að nafnvirði í félaginu, sem er um helmingshlutur. - kóþ Lúðvík Bergvinsson: Út úr Miðkletti eftir bankahrun VIÐSKIPTI Reynir Grétarsson, forstjóri Creditinfo Group, hefur selt þýska fyrirtækinu SCHUFA, sem starfar á sviði fjárhagsupp- lýsinga, hlut í erlendri starfsemi fyrirtækisins. Við söluna verður til nýtt félag, Creditinfo SCHUFA GmbH og verður aðsetur þess í Wiesbaden í Þýskalandi. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu beggja fyrir- tækjanna. Í tilkynningunni er haft eftir Reyni Grétarssyni að samningur- inn hafi verið í deiglunni síðan í desember í fyrra. - kg Sameining fyrirtækja: Creditinfo sam- einast SCHUFA FANGELSAÐUR Uppátæki Muntadhar al- Zeidi hefur vakið athygli um allan heim. VIÐSKIPTI Kauphöllin hefur ákveðið að áminna Kaupþing banka hf, eða gamla Kaupþing, opinberlega fyrir að hafa ekki tilkynnt Kauphöllinni þá ákvörð- un að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna vegna lána sem þeir fengu til hlutabréfa- kaupa í bankanum. Tilkynning þess efnis frá Kauphöllinni birtist á vef Viðskiptablaðsins í gær- kvöldi. Í tilkynningunni kemur fram að Kaupþing sé talið hafa gerst brotlegt við ákvæði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni. Ekki verði séð að það teljist til venjulegra við- skiptahátta að fella niður persónulegar ábyrgðir einstakl- inga vegna lána. - kg Ákvörðun frá Kauphöllinni: Kaupþing fær áminningu vegna afskrifta FJÁRMÁL Lánshæfismat Lands- virkjunar var lækkað í gær hjá Standard & Poor‘s úr BBB+ og A- 2 niður í BBB- og A-3. Framtíðarhorfurnar séu neikvæðar og er lækkunin sögð endurspegla „þá skoðun okkar að eigandi Landsvirkjunar, Íslenska lýðveldið, hafi minni getu en áður til að veita fyrirtækinu fjárhags- legan stuðning,“ segir í tilkynn- ingu frá Standard og Poor‘s. Matið er meðal annars byggt á yfirburðastöðu Landsvirkjunar á íslenska markaðnum og eign fyrirækisins á flutningskerfi. - kóþ Lánshæfismat S & P: Mat á Lands- virkjun lækkað SPURNING DAGSINS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.