Fréttablaðið - 19.12.2008, Qupperneq 6
6 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Þú getur alltaf treyst
á prinsinn
Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200
Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220
www.hafid.is
STJÓRNMÁL Magnús Reynir Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins, vill taka
fram, vegna úttektar Frétta-
blaðsins á því hvernig þingmenn
hafi fjármagnað prófkjörsbar-
áttu sína fyrir síðustu kosning-
ar, að engin prófkjör fóru fram á
vegum flokksins.
Hann vill enn fremur að fram
komi að hann líti svo á að hann
hafi svarað fyrir alla þingmenn
flokksins þegar hann var til
svara um útgjöld flokksins á síð-
asta kosningaári. Jón Magnús-
son og Kristinn H. Gunnarsson
svöruðu þó fyrir sig sjálfir. Í
svari Magnúsar Reynis segir:
„Frjálslynda flokknum er ekki
kunnugt um að stuðningur við
einstaka frambjóðendur fyrir
alþingiskosningarnar 2007 hafi
verið annar en fram kemur í
sameiginlegu bókhaldi flokks-
ins, sem skilað hefur verið til
Ríkisendurskoðunar. Þar er að
finna sundurliðun á stuðningi
einstaklinga og fyrirtækja, sam-
tals að upphæð 4.942.846 krón-
um.“ Þess má geta að það er ögn
minna en Helgi Hjörvar, Sam-
fylkingu, eyddi í sitt prófkjör.
Fréttablaðið hefur ítrekað
spurningar til þingmanna sem
ekki hafa enn svarað varðandi
fjármögnun við prófkjör sín
fyrir síðustu kosningar. Enn
hafa 34 ekki svarað. - jse
Frjálslyndi flokkurinn eyddi tæpum fimm milljónum árið 2007:
Eyddi minna en Helgi Hjörvar
JÓN MAGNÚSSON OG MAGNÚS ÞÓR
HAFSTEINSSON HJÁ FRJÁLSLYNDUM
Ekkert prófkjör var hjá frjálslyndum
enda eyddu þeir á við einn þingmann
kosningaárið 2007.
LÖGREGLUMÁL Meira þýfi fannst við
húsleit hjá fjórmenningum sem
grunaðir eru um að hafa ætlað að
koma miklu magni þýfis úr landi,
eins og fram kom í blaðinu í gær.
Um var að ræða snyrtivörur.
Bíll sem lögregla hafði leitað að
vegna málsins er einnig fundinn.
Var talið að flytja ætti hann úr
landi í gámi sem hlaðinn væri
þýfi. Bíllinn var hins vegar ekki
kominn um borð í gáminn þegar
hann fannst og reyndist ekkert
vera í honum.
Lithái situr í gæsluvarðhaldi
vegna málsins. Þrír landar hans
eru grunaðir um aðild en þeir
ganga lausir. - jss
Þjófagengið:
Meira þýfi
hefur fundist
STJÓRNSÝSLA Sjúkrahúsið á Akur-
eyri hefur sagt upp ferliverka-
samningi við Pál Tryggvason, yfir-
lækni barna- og unglinga geðdeildar,
þar sem forsendur samningins
brustu.
Að sögn Halldórs Jónssonar for-
stjóra var samningurinn við Pál
gerður fyrir nokkrum árum með
þeim fyrirvara að sjúkrahúsið
fengi sérstakar greiðslur frá
Tryggingastofnun ríkisins til að
standa straum af kostnaði við
hann. Slíkar greiðslur hafi aldrei
fengist. Nauðsynlegt sé að endur-
skoða alla ferliverkasamninga
sjúkrahússins í ljósi niðurskurð-
araðgerða vegna efnahagsástands-
ins. Slík endurskoðun standi yfir.
Páll er í 70 prósenta starfi við
sjúkrahúsið og hefur síðustu ár
sinnt öðrum læknisverkum innan
veggja þess, samkvæmt ferli-
verkasamningnum. Ráðningar-
samningi við Pál hefur ekki verið
sagt upp. Ferliverk eru skilgreind
sem læknisþjónusta við sjúkling
sem ekki þarfnast innlagnar.
Aðspurður segir Halldór að ekki
hafi verið rætt um að bjóða Páli
fullt starf á sjúkrahúsinu, það
komi hins vegar til greina en á
hinn bóginn sé honum frjálst að
reka sjálfstæða stofu, líkt og hann
gerði áður, samhliða störfum
sínum á sjúkrahúsinu.
Höskuldur Þórhallsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, tók
málið upp á Alþingi í gær. Sagði
hann standa til að segja lækninum
upp og innti heilbrigðisráðherra
eftir viðbrögðum. Ráðherra sagð-
ist ekki þekkja til málsins og því
ekki geta tjáð sig um það. - bþs
Sjúkrahúsið á Akureyri segir upp samningi við barna- og unglingageðlækni:
Forsendur samningsins brustu
EFNAHAGSMÁL „Efnahagsáætlun
Íslands, sem studd er af Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum gengur vel,“
sagði Poul Thomsen í gær þegar
fjögurra daga heimsókn sendi-
nefndar sjóðsins hér á landi lauk.
Á meðan á heimsókninni stóð
ræddi sendinefndin við meðlimi
ríkisstjórnarinnar, þingmenn og
ýmsa fræðimenn.
Thomsen sagðist hafa fulla trú
á að Ísland muni hafa getu til að
borga til baka þau erlendu lán
sem þurfi að taka. Um 60 prósent
af kostnaði við bankahrunið verði
vegna endurfjármögnunar við-
skiptabanka og Seðlabanka, sem
verði innlendar skuldir ríksins
vegna endurfjármögnunar bank-
anna. Erlendar skuldir vegna inn-
stöðutrygginga munu líklega fást
endurgreiddar af eignum gömlu
bankanna.
Í október var gert ráð fyrir að
kostnaður vegna bankahrunsins
væri um 85 prósent af vergri
þjóðarframleiðslu „en það verður
mun minna“, sagði Thomsen.
Hann var ekki viss hversu miklu
minna en giskaði á 20-30 prósent.
Helsta skammtímamarkmið
áætluninnar var að verja stöðu
krónunnar, vegna þess hve hátt
hlutfall lána er hér í erlendri
mynt. „Ég tel að því markmiði
hafi verið náð,“ sagði Thomsen.
Meðal annars hafi minna af gjald-
eyrisvaraforðanum verið notað
til að verja krónuna en áætlað
hafi verið.
Snemma á næsta ári ætti að
vera komin áætlun um að lækka
stýrivexti og afnema þau gjald-
eyrishöft sem enn eru í gildi.
Lýst var ánægju með fjárlaga-
frumvarpið sem lagt hefur verið
fram og sagði Thomsen að tillög-
urnar og fjárlagahallinn væru í
samræmi við það sem hafði verið
rætt. Tekjur ríkisins verði þó lík-
lega eitthvað lægri en áætlað
hafði verið í október, um 0,25 pró-
sent af vergri þjóðarframleiðslu.
Fyrir fjárlagaárið 2010 þurfi þó
að þrengja fjárlagarammann um
tvö prósent af þjóðarframleiðslu
frá fjárlögum 2009. „Þið standið
frammi fyrir alvarlegum fjár-
hagsvanda,“ sagði Thomsen. En
vandanum yrði að hluta frestað
um eitt ár til þess að ekki þurfi að
taka á honum í krísu. Nú þurfi
hins vegar að taka erfiðu ákvarð-
anirnar um niðurskurð á árinu
2010.
Thomsen staðfesti að fastur
starfsmaður Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins mun starfa hér á landi
frá og með janúar. Í upphafi
febrúar mun sendinefndin snúa
aftur og þá mun fyrsta formlega
endurmatið á efnahagsáætlunni
fara fram. svanborg@frettabladid.is
Meiri niðurskurður
boðaður á næsta ári
Megnið af skuldum Íslands vegna bankahrunsins verður í íslenskum krónum
og mun lægra en gert var ráð fyrir í október, sagði Poul Thomsen, formaður
sendinefndar AGS. Ákveða þurfi strax hvar eigi að skera niður í fjárlögum 2010.
POUL THOMSEN Hefur fulla trú á að Íslendingar hafi getu til að borga erlendar skuldir
sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
Styrkir þú hjálparstarf fyrir
jólin?
Já 54,5%
Nei 45,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er réttlætanlegt hjá ríkislög-
reglustjóra að fækka lögfræð-
ingum í efnahagsbrotadeild?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
KJÖRKASSINN