Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 24
24 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Þjóðarmorðin í Rúanda
Stanslausar óeirðir og mótmæli hafa átt sér stað í borgum Grikklands frá
því hinn 15 ára Alex Grygoropoulos var skotinn til bana af lögreglumanni í
hverfinu Exarhía í Aþenu hinn 6. desember síðastliðinn. Talið er að um 400
til 500 verslanir hafi orðið fyrir verulegu tjóni í óeirðunum. Grikkland hafði
ekki farið varhluta af efnahagskreppunni og vonuðust verslunareigendur til
að rétta sinn hlut í jólaönnunum en þær vonir eru úti hjá flestum. Kostas
Karamanlis forsætisráðherra situr undir mikilli gagnrýni fyrir aðgerðarleysi.
Sá stjórnmálamaður sem hvað mestrar virðingar hefur notið í
Grikklandi er Andreas Papandreou sem lést árið 1996. Í
hans stjórnartíð kom upp svipað mál þar sem lögreglu-
maður skaut 15 ára nemanda og voru allir helstu yfir-
menn lögreglunnar reknir í kjölfarið. Karamanlis hefur
hins vegar ekki þótt bregðast við af slíkri röggsemi, til
dæmis sættist hann ekki á afsögn innanríkisráðherra.
Þetta hefur vakið reiði almennings. Georg Papandreou,
forystumaður stjórnarandstöðunnar og leiðtogi PASOK-
flokksins, hefur krafist afsagnar Karamanlis og að efnt
verði til kosninga. Hann er sonur Andreas.
Á síðustu árum hefur almenningur í Grikklandi haft
mun meira aðgengi að lánsfé en áður. Einnig hækk-
aði vöruverð en ekki laun þegar Grikkir tóku
upp evru í byrjun árs 2001. Karamanlis
er því illa í stakk búinn til að takast á við
efnahagsþrengingarnar og ekki er það
til að sefa reiðina.
FBL. GREINING: STJÓRNMÁLAÁSTANDIÐ Í GRIKKLANDI
Ráðherrann stenst
ekki samanburðinn
Theonoste Bagosora
ofursti er sagður höfuð-
paurinn á bak við þjóðar-
morðin í Rúanda árið 1994.
Hann var í gær dæmdur í
ævilangt fangelsi.
Alþjóðlegur stríðsglæpadóm-
stóll, með aðsetur í Tansaníu,
hefur allar götur síðan 1994 feng-
ist við atburðina sem urðu í
Rúanda það ár, þegar meira en
500 þúsund manns voru myrtir á
fáeinum vikum. Dómstóllinn
hefur til þessa fellt 42 dóma yfir
mönnum, sem sannað þykir að
hafi tekið þátt í þjóðarmorðinu.
Sex þeirra voru sýknaðir, en
flestir fengu langa fangelsis-
dóma.
Í gær féll svo dómur yfir mann-
inum, sem talinn er bera höfuðá-
byrgðina á þjóðarmorðunum.
Hann heitir Theonoste Bagasora
og var ofursti í Rúandaher þegar
ósköpin hófust fyrir nærri fimmt-
án árum.
Dómstóllinn sagði hann hafa
notfært sér aðstöðu sína og bein-
línis skipað hermönnum að myrða
tútsa í stórum stíl, og hófsama
hútúa sömuleiðis. Hann var
dæmdur sekur um þjóðarmorð
og glæpi gegn mannkyni og
dæmdur í ævilangt fangelsi.
Bagasora er orðinn 67 ára.
Hann sagði ekki neitt þegar
dómur var kveðinn upp yfir
honum í gær og sýndi lítil svip-
brigði. Bagasora var handtekinn
í Kamerún árið 1996 og fluttur til
Tansaníu árið eftir. Hann hefur
því dvalist í fangelsi hálfan annan
áratug nú þegar.
Upphaf óaldarinnar má rekja
til þess að flugvél var skotin
niður í aðflugi að flugvellinum í
Kígalí, höfuðborg Rúanda, hinn
6. apríl árið 1994. Um borð í vél-
inni var Juvenal Habyarimana,
forseti landsins, sem var hútúi.
Ekki er vitað hverjir voru þar að
verki.
Bagasora, sem einnig er hútúi,
var þá æðsti yfirmaður á flug-
vallarherstöðinni og brá strax
hart við. Aðeins fáeinum klukku-
stundum eftir að flugvélin var
skotin niður höfðu herskáir hútú-
ar sett upp vegatálma úti um alla
höfuðborgina. Daginn eftir hóf-
ust fjöldamorðin, með fullum
stuðningi ríkisstjórnar landsins,
sem var í höndum hútúa.
Næstu vikurnar fóru flokkar
hútúa um landið, leituðu uppi
tútsa og hófsama hútúa og drápu
miskunnarlaust. Þeir beittu
sveðjum og hvers kyns bareflum,
öllum vopnum sem þeir komust
yfir, hversu fátækleg sem þau
voru. Alþjóðasamfélagið stóð að
mestu aðgerðarlaust hjá meðan
ósköpin gengu yfir. Morðöldunni
linnti ekki fyrr en rúmum þrem-
ur mánuðum síðar þegar tútsar
frá nágrannaríkinu Úganda höfðu
komið þjóðflokki sínum til bjarg-
ar. Þeir héldu hópum saman yfir
landamærin til Rúanda og tókst
að hrekja alhörðustu hútúana úr
landi.
Meira en 60 þúsund manns eru
grunaðir um að hafa tekið virkan
þátt í morðunum. Í þeim hópi
voru jafnt stjórnarhermenn, her-
skáir þjóðernishópar og almenn-
ir borgarar, sem réðust gegn
nágrönnum sínum í þorpum og
bæjum landsins.
Útvarpi var óspart beitt til að
hvetja almenning til að ráðast
gegn tútsum og drepa sem flesta,
jafnt karla, konur sem börn.
Áður en þessi skelfilega
atburðarás hófst hafði Bagasora
árum saman tekið þátt í alþjóð-
legum viðræðum, sem höfðu það
markmið að finna friðvænlega
lausn á langvarandi stjórnmála-
deilum í landinu, sem einkum
voru deilur á milli hútúa, sem
réðu stjórninni, og uppreisnar-
sveita tútsa, sem voru þá eins og
nú í meirihluta landsmanna.
Bagasora þótti hins vegar full-
trúar stjórnarinnar sýna fulltrú-
um tútsa alltof mikla linkind.
Samkvæmt dómsúrskurðinum
sagðist hann ætla að snúa heim
frá viðræðunum til Rúanda bein-
línis til þess að „undirbúa ham-
farirnar“.
Talið er sannað að hann hafi
verið helsti hugmyndasmiður
fjöldamorðanna og öflugur drif-
kraftur þeirra. Hann stóð þó
engan veginn einn að verki.
Dómstóllinn felldi í gær einnig
dóma yfir nokkrum félaga hans.
Bæði Anatolel Nsegiyumva og
Allos Ntabakuze, sem voru yfir-
menn í hernum, voru einnig
dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir
þjóðarmorð. Herforinginn Grati-
en Kabiligi var hins vegar sýkn-
aður af öllum ákærum og leystur
úr haldi.
Höfuðpaur þjóðarmorðs
hlaut ævilanga fangavist
HÚTÚAR Í VÍGAHAM Franskir hermenn aka framhjá hópi hútúa sem virðast til alls líklegir. Myndin er tekin í júní 1994 þegar
óöldin stóð sem hæst. NORDICPHOTOS/AFP
THEONESTE BAGOSORA Ofurstinn
leiddur út úr dómshúsinu í Tansaníu.
Myndin er tekin fyrr á þessu ári.
YFIRFULL FANGELSI Talið er að tugir þúsunda hafi tekið virkan þátt í fjöldamorðun-
um. Í apríl árið 1995 voru fangelsi í Rúanda yfirfull, eins og sjá má á þessari mynd
sem tekin var í Kígalí. NORDICPHOTOS/AFP
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
FINNLAND Bannað verður að skjóta
upp flugeldum í miðborg Helsinki
og ýmsum torgum í Helsinki í
Finnlandi á gamlárskvöld. Þetta
er gert til að draga úr líkunum á
slysum, að sögn Hufvudstadsbla-
det.
„Þetta er fyrst og fremst spurn-
ing um að koma í veg fyrir slys á
fólki. En við vonumst líka til að
minnka hávaða, reyk og rusl á
víðavangi,“ segir Yrjö Niiranen,
vaktstjóri hjá björgunarsveitinni.
Niiranen segir að svona bann
hafi bætt ástandið víða í Finnlandi
og í Osló í Noregi þar sem lengi
hefur verið bannað að skjóta flug-
eldum. - ghs
Nýársnótt í Helsinki verður með breyttu sniði:
Flugeldar verða
bannaðir miðsvæðis
Við bjóðum öllum börnum fæddum
árið 2008 að þiggja 5.000 króna
Framtíðarsjóð í jólagjöf frá Byr.
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
Jólagjöf Byrs 2008
Taktu fyrsta skrefið í næsta
útibúi Byrs eða á byr.is