Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 36
36 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is
ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
SPOTTIÐ
UMRÆÐAN
Ármann Kr. Ólafsson skrifar um
fjárlagagerð
Sama dag og síðari umræða fjárlaga fyrir árið 2009 fór fram lagði ég
fram svohljóðandi þingsályktunartil-
lögu: Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að endurskoða vinnubrögð
við gerð fjárlaga þar sem kannaðir
verða kostir þess að tekin verði upp
núllgrunnsfjárlög.
Breyttir tímar kalla á ný vinnu-
brögð. Fjárlagagerð sem gengur út á
að horfa eingöngu til þess hversu
miklu hefur verið eytt í einstaka liði á undan-
förnum árum og bæta við þá eða lækka lítillega
á milli ára er úrelt. Hefðarréttur í fjárveiting-
um gengur ekki við þær aðstæður sem við
stöndum frammi fyrir. Hann brenglar mark-
mið fjárlagagerðarinnar þar sem hækkun
fjárveitinga frá einu ári til annars er gerður að
mælikvarða á árangur.
Fjárlagagerð byggð á núllgrunni (zero-base
budgeting) er vinnuaðferð þar sem markmiðið
er að draga úr sjálfvirku hækkunarferli
núverandi fyrirkomulags. Gildi aðferðarfræð-
innar felst fyrst og fremst í því að fjárveiting-
arvaldið samþykkir ekki fjárveitingar án þess
að ítarlegur rökstuðningur liggi að baki
einstökum verkefnum. Ríkisstofnanir og
ráðuneyti sem eru stærstu
notendur fjár úr opinberum
sjóðum eru því neydd til að
endurmeta og rökstyðja öll sín
útgjöld frá grunni. Verkefni
ríkisins eru lögð til grundvallar en
ekki einstaka fjárlagaliðir.
Núllgrunnurinn ýtir undir að
hugsað sé út frá hreinu borði og
horft til ákveðinna verkefna í stað
einstakra fjárlagaliða, stofnana
eða ráðuneyta. Nálgunin er
tilvalin um leið og sett eru fram
markmið um fækkun stofnana.
Dæmi um verkefnanálgun er að
skilgreina verkefni sem gæti t.d.
heitið; Húsnæðisumsýsla ríkisins en hún heyrir
undir fjölda ráðuneyta og stundum undir fjölda
liða í hverju ráðuneyti þrátt fyrir að til sé
sérstök stofnun sem heitir Fasteignir ríkisins.
Verkefnanálgunin myndi ganga þvert á
ráðuneytin, stofnanirnar og einstaka liði og ýta
undir heildarsýn og stærðarhagkvæmni. Þá
gæti annað verkefni heitið; Náttúra og
umhverfi og næði yfir alla heildina í stað þess
að vera skipt niður á Náttúrufræðistofnun,
Umhverfisstofnun, Landgræðslu ríkisins,
Skógrækt ríkisins o.s.frv.
Rík þörf er á róttækum aðgerðum til að bæta
vinnslu og framkvæmd fjárlaga. Ríkisútgjöldin
eru alltof há eftir fall bankanna.
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ný vinnubrögð við gerð fjárlaga
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
Xerodent 28,6 mg/0,25 mg munnsogstöflur.
Notkunarsvið og skömmtun: Hver tafla inniheldur eplasýru 28,6 mg og natríumflúoríð samsvarandi 0,25
mg af flúor. Xerodent er lyf til varnar tannskemmdum notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks
og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk.
Skammtastærðir fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag. Við mikinn munnþurrk má
auka skammtinn í 12 töflur á dag í takmarkaðan tíma. Töfluna á að láta bráðna hægt í munni. Dreifa skal
skammtinum jafnt yfir daginn.
Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna ættu ekki að nota
Xerodent. Við meðhöndlun með Xerodent skal forðast að nota önnur lyf sem innihalda flúor. Xerodent má
ekki nota á landsvæðum þar sem flúorinnihald drykkjarvatns er hátt. Vegna þess að Xerodent inniheldur
xylitól getur það haft hægðalosandi verkun.
Meðganga/brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta við notkun á meðgöngu. Natríumflúoríð skilst ekki út í
brjóstamjólk. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. 29. nóvember 2007.
Þreföld virkni Xerodents
Eplasýra – örvar munnvatnsframleiðslu
Flúor – ver tennurnar gegn skemmdum
Xylitol – hemur bakteríuvöxt í munni
Xerodent
Við munnþurrki
Ekki um jólin
Sagt var frá því í fréttum í gær að
umboðsmaður Alþingis rannsakar
enn hvort Árni Mathiesen hafi brotið
gegn góðum stjórnsýsluháttum þegar
hann skipaði Þorstein Davíðsson í
embætti dómara. Málinu var skotið
til umboðsmanns í janúar en 18.
mars svaraði Árni erindi hans. Síðan
eru liðnir níu mánuðir og ekki víst
hvort niðurstaða fáist á þessu ári.
Mögulega verður Árni horfinn
úr ráðherraembætti þegar nið-
urstaða umboðsmanns liggur
fyrir. Og Árna sem
grunaði að umboðs-
maður hefði verið
búinn að komast
að niðurstöðu
fyrirfram.
Gísli og Gísli
Morgunblaðið sló mögulega Íslands-
met í aðsendum greinum í gær þegar
um tuttugu síður voru lagðar undir
bréf frá lesendum. Tvær greinar vöktu
sérstaka athygli, önnur fjallaði um
tilfinningar í sjávarútvegi og var eftir
Gísla Frey Valdórsson, stjórnarmann
í Félagi ungs fólks í sjávarútvegi. Hin
fjallaði um ágæti Davíðs Oddssonar
og var eftir Gísla Frey Valdórsson,
blaðamann og stjórnmálafræði-
nema.
Áfangasigur
Unnendur harmóníkna með
hljómbassa unnu
sætan sigur
í gær þegar
eftirfarandi
tilkynning birtist á heimasíðu mennta-
málaráðuneytisins: „Vegna ábendinga
og athugasemda ákvað mennta-
málaráðuneytið að endurskoða
kafla um harmóníku í Aðalnámskrá
tónlistarskóla. Bætt hefur verið kafla
um miðnám svo nemendur geti
einnig lokið miðprófi í harmóníku
með hljómbassa, en í gildandi aðal-
námskrá er eingöngu gert ráð fyrir
miðprófi á harmóníku með tónbassa.“
Ei er þó kálið sopið þótt í ausuna
sé komið. Drög að breytingum á
harmóníkunámskránni hafa verið
sett á vef ráðuneytisins
og óskast athugasemdir
fyrir 20. janúar 2009. Að
því loknu verður aðal-
námskráin staðfest.
bergsteinn@frettabladid.isÞ
að er lítið mál að skila góðum rekstri þegar vel
árar. Vandamálin koma fyrst upp á yfirborðið þegar
harðnar á dalnum. Þetta má þingheimur nú reyna,
þegar reynt er að hamra saman nýrri útgáfu af fjár-
lagafrumvarpinu. Auk vandamálanna við stórfelldan
niðurskurð bætist við óvissan um skatttekjur og atvinnuleysi á
næsta ári. Önnur óvissa ræður miklu um það hve mikið verður
til skiptanna á komandi ári. Hin óvissan snýr að útgjöldunum.
Gert er ráð fyrir sautján milljörðum í Atvinnuleysistrygginga-
sjóð á næsta ári þar sem búist er við að meðalfjöldi atvinnu-
lausra verði 9.500 manns, sem er einungis 400 fleiri en nú eru
atvinnulausir.
Þegar tekjur ríkisins dragast saman líkt og mun gerast á
næsta ári og útgjöldin aukast er komist hjá „blóðugum niður-
skurði“ á fjárlagafrumvarpinu. Annað væri ekki góð efna-
hagsstjórnun. Stjórnarandstaðan leggur áherslu á sparnað í
Varnarmálastofnun og sendiráðum. Auðvitað kemur slíkt til
greina, en dugar varla til. Þrátt fyrir þrengingar hér heima
fyrir megum við ekki við því að loka alveg á umheiminn.
Nánast allir þeir sem verða fyrir niðurskurði kvarta, sem
eðlilegt er. Jafnvel er talað um að slátra gullgæsum, því vitað
er að margar þessara fjárfestinga, sem verið er að hætta við,
eru til framtíðar og til lengri tíma litið eru þær skynsamlegar.
Vandamálið er bara að peningarnir þurfa að vera til svo hægt
sé að eyða þeim. Ríkisstjórnin þarf nú að búa sig undir enn
frekari niðurskurð á fjárlögum fyrir árið 2010 og eins erfitt
og það er leggst sá niðurskurður ekki bara á utanríkisráðu-
neytið heldur einnig á velferðarmálin sem við viljum verja og
tryggja.
Það sem þarf núna er skapandi hugsun í fjárlagagerð. Bæði
fyrir þriðju umræðu fjárlaga fyrir 2009 og þegar leggja á lín-
urnar fyrir fjárlögin 2010. Það verður ekki nóg að líta á fjár-
lög síðasta árs og klípa aðeins af öllum liðum, eða fara fram
á tíu prósenta flatan niðurskurð allra ráðuneyta. Einnig þarf
að huga að því að auka tekjurnar. Ekki getur ríkið fundið sér
aukavinnu og tíminn er óheppilegur til einkavæðingar. Stofn-
inn mun því verða skattahækkun, og líklega meiri hækkun en
það eina prósentustig sem nú hefur verið boðað.
Í grunninn þarf að skilgreina hvað er grunnþjónusta og hvað
ríkið muni leggja til hennar. Síðan er hægt að horfa til þess
hvað sé hægt að leggja í aðra mikilvæga, en ekki eins nauðsyn-
lega, þætti ríkisrekstursins. Allar gullgæsirnar sem væru góð
fjárfesting, væru einhverjir fjármunir eftir til fjárfestingar.
Ein lítil sparnaðarhugmynd gæti til dæmis verið að ráðast
loksins í sameiningu ráðuneyta eins og rætt hefur verið um
svo lengi.
Slík hugmynd gengur skammt ein og sér, líkt og hugmyndin
um að leggja niður Varnarmálastofnun en einhvers staðar hlýtur
að þurfa að byrja án þess að enda í sífelldum smáklípum.
Umræður um fjárlög ríkisins:
Blóðugur skurður
er nauðsynlegur
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR SKRIFAR