Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 42
2 föstudagur 19. desember
núna
✽ jólabónus?
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Ritstjóri Marta
María Jónasdóttir martamaria@365.is
Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabla-
did.is Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsing-
ar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstu-
dagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512
5000
Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
„Ég ákvað að loka Londonkaflan-
um um tíma,“ segir tónlistar-
konan Þórunn Antonía Magn-
úsdóttir, sem er nýflutt aftur
til landsins eftir sex ára bú-
setu í London. Þórunn á ekki
langt að sækja tónlistarhæfileik-
ana því hún er, eins og flestum er
kunnugt, dóttir tónlistarmannsins
Magnúsar Þórs Sigmundssonar, en
saman gáfu þau út plötuna Those
litle things fyrir um sex árum.
Síðan þá hefur Þórunn gert það
gott í Bretlandi. „Eftir að ég hætti
í Honeymoon, hljómsveitinni sem
ég flutti út útaf í upphafi, ákvað ég
að drífa í að gera sólóplötu númer
tvö. Svo tók Junior Senior við, þar
sem ég söng bakraddir, og Fields
strax þar á eftir svo nú ætla ég að
fara að vinna að sólóplötu,“ segir
Þórunn Antonía, en hún spilaði
á hljómborð og söng með hljóm-
sveitinni Fields.
„Ég hef verið að semja tónlistina
mína víða um heim, inni á hótel-
herbergjum eða baksviðs, en gaf
mér aldrei nægan tíma til þess.
Nú sé ég fyrir mér tækifæri til
þess og ætla að gefa mér svigrúm
til að gera þetta án þess að vera í
samstarfi við plötufyrirtæki. Ég vil
ekki að of margir séu með puttana
í þessu,“ bætir hún við, en Þórunn
frumflutti nokkur af sínum nýj-
ustu lögum á Café Rósenberg á
Airwaves-hátíðinni í haust.
„Ég trúi því að stórborgir hafi
ákveðinn líftíma fyrir mann, eftir
um það bil fimm ár er hringekj-
an svolítið búin og þá þarf maður
annaðhvort að fara í næstu ferð
eða fara eitthvert annað,“ útskýr-
ir Þórunn og segist líka vel að vera
komin heim til Íslands þrátt fyrir
efnahagsástandið. „Mér finnst
yndislegt að vera komin heim.
Maður finnur eldmóðinn og hvað
þjóðarsálin er sterk. Það er sam-
staða þrátt fyrir að það séu erfið-
ir tímar.“ - ag
ÞÓRUNN ANTONÍA MAGNÚSDÓTTIR TÓNLISTARKONA:
FLUTT AFTUR
HEIM TIL ÍSLANDS
Ánægð Þórunn Antonía er ánægð að
vera flutt aftur heim til Íslands og er byrj-
uð að vinna að nýrri sólóplötu.
Kreppa í kirkjunni
Það mætti halda að kreppan væri
komin af fullum þunga til Pálma
Matthíassonar, sóknarprests í Bú-
staðakirkju. Und-
anfarna mánuði
hefur hann nefni-
lega kappkost-
að við að fá góðan
afslátt í verslun-
um. Föstudagur
hefur heimildir fyrir
því að hann hafi
mætt í gleraugnaverslun eina og
reynt að fá ókeypis gleraugu fyrir
sjálfan sig því hann væri
svo ansi góð auglýsing.
Á svipuðum tíma mætti
hann í gólfefnaverslun og
reyndi slíkt hið sama. Bíla-
kostur prestsins er þó ekki
með kreppulegasta móti því sést
hefur til hans á splunkunýrri jeppa-
bifreið. Ætli hann keyri frítt á bílnum
því hann sé svo góð auglýsing?
Söngdívan Birgitta Haukdal og eiginmaður
hennar, Benedikt Einarsson, eiga von á sínu
fyrsta barni með vorinu. Parið gekk í hjóna-
band um miðjan október og því má segja
að þetta sé allt eftir bókinni og í réttri röð.
Það mun ekki væsa um barnið því Birgitta
og Benedikt eru að gera upp hús við Bakka-
flöt í Garðabæ sem þau festu kaup á fyrr
á árinu. Ef allt gengur upp ná þau að flytja
áður en erfinginn kemur í heiminn.
BARN Á LEIÐINNI
Andersen & Lauth vinsælt
úti í heimi
Upp á síðkastið hefur verið ansi
mikil umfjöllun um íslenska merk-
ið Andersen & Lauth í erlendum
blöðum, sérstaklega í Frakklandi.
Það er þó fátt sem toppar Ung-
frú Frakkland 2008 þar sem hún
skartar kjól frá fyrirtækinu á forsíðu
Him Magasine.
PÉTUR GAUTUR MYNDLISTARMAÐUR
Á morgun verð ég með opið á vinnustofunni minni á Njálsgötu frá fjögur til sex en
fyrr um daginn fer ég í árlega skötuveislu til tengdamömmu minnar. Á sunnudag-
inn ætlum við stórfjölskyldan upp í Hvalfjörð til að höggva okkar eigið jólatré.
helgin
MÍN
Ég trúi því að stórborgir hafi ákveð-
inn líftíma fyrir mann, eftir um það bil
fimm ár er hringekjan svolítið búin