Fréttablaðið - 19.12.2008, Side 78
54 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ALDREI HOLLYWOOD
Harry Potter-stjarnan Emma Wat-
son hefur lýst því yfir að hún ætli sér
aldrei að flytja til Hollywood. Ástæð-
an: jafnöldrur hennar í bransanum
eru illa innrættar. „Ég hlakka yfir-
leitt mikið til að fara til Kaliforn-
íu og leika í kvikmynd. Veðrið
þarna er frábært og allir voða-
lega heilbrigðir. En ég gæti
aldrei búið þarna. Jafnöldr-
ur mínar eru með alltof
mikla stjörnustæla,“ sagði
Watson.
Sálin hans Jóns míns ætlar að
sljúka þessu heljarmikla afmælis-
ári með nokkrum tónleikum sitt-
hvoru megin við aðfangadag. Í
kvöld verður bandið á Players í
Kópavogi en í Sjallanum á Akur-
eyri á laugardagskvöldið, með
viðkomu í Hagkaupum á Akur-
eyri, hvar Sálverjar árita verk sitt
Hér er draumurinn á milli kl. 17
og 18.
Á milli jóla og nýárs leikur
bandið annars vegar á 800 Bar á
Selfossi á annan í jólum og hins
vegar í Officera-klúbbnum á
Keflavíkurflugvelli laugardags-
kvöldið 27. desember. Giggin á
milli jóla og nýárs verða tileinkuð
minningu Rúnars Júlíussonar, en
Stefán Hilmarsson hlaut eldskírn
sína í hljóðveri á Skólaveginum
hjá Rúnari haustið 1986 þegar
Sniglabandið tók þar upp sína
fyrstu skífu. Sálverjar ætla að
heiðra minningu Rúnars með því
að flytja nokkur lög sem hann
hljóðritaði á sínum ferli. Mjög
sjaldgæft er nú að Sálverjar flytji
tökulög en áður en lagasafn bands-
ins varð jafnþykkt og það er í dag
var stundum talið í lag Rúnars,
„Vilji Sveins“, sem upphaflega
kom út með Ðe lónlí blú bojs. - drg
Sálin heiðrar Rúnar
SLÚTTA AFMÆLISÁRINU Sálin verður á
þeytingi um hátíðarnar.
Bandaríski leikarinn og leikstjór-
inn Ben Affleck og Stones-goð-
sögnin Mick Jagger hafa sett af
stað gerð stuttmyndar um þann
ógnarvanda sem steðjar að flótta-
mönnum í lýðveldinu Kongó.
Myndin dregur nafn sitt af Stones-
laginu fræga Gimme Shelter frá
árinu 1969 sem var einmitt samið
um Víetnamstríðið.
Affleck leikstýrir myndinni en
tökur á henni fóru fram í héraðinu
Norður-Kivu en íbúar á svæðinu
hafa flúið bardaga milli kongóskra
hermanna og uppreisnarliða. Sam-
einuðu þjóðirnar áætla að rúmlega
ein milljón manna sé á flótta í land-
inu. „Ég er virkilega snortinn yfir
því að fá tækifæri til að sýna þann
hversdagsleika sem flóttamenn
þurfa kljást við,“ sagði Affleck
í samtali við BBC. „Mig lang-
aði bæði til að sýna fólki
hvernig það er að vera flótta-
maður í eigin landi en líka
fanga eitthvað sem fólk
hefur ekki séð áður,“ bætti
Affleck við.
Affleck og Jagger gera stuttmynd
GERA SAMAN HEIMILDARMYND
Ben Affleck og Mick
Jagger eru að gera
saman stuttmynd
um ástandið í
Kongó. Myndin
dregur nafn
sitt af Stones-
laginu fræga
Gimme
Shelter.
„Jú, jú, þetta er næturklúbbamúsík en Fríkirkjan
er einstaklega skemmtilegur tónleikastaður. Þó
ölið flæði ekki. En þetta er svo snemma. Maður
drífur bara fólkið með sér eitthvert annað í alls-
herjarpartí eftir tónleika,“ segir Óskar Guðjónsson
saxófónleikari.
Í heimsókn hjá Óskari og félögum er nú staddur
brasilískur vinur og tónlistarmaður, Ife Tolentino,
sem spilar á gítar og syngur. Vitanlega er talið í
konsert. Þar verður leikin brasilísk tónlist, bossa-
nova, xoto og baio-ryþmar munu leika um sali
Fríkirkjunnar í kvöld frá klukkan níu.
Ife er alsæll með Ísland, hefur komið hingað
reglulega frá árinu 2002 en er hér fyrsta sinni að
vetrarlagi. Honum líst vel á sig og kann að svara
spurningunni: How do you like Iceland?
„I love the people, the food, the musicians, the
wheather …“ allt rétt hjá Ife.
Óskar segist því miður ekki hafa komið til Bras-
ilíu, það hafi staðið til að fara í nóvember en þær
fyrirætlanir breyttust. „Með krónunni. Þegar hún
fór á sitt frábæra flug… niður á við.“
Með Óskari og Ife spila Ómar bróðir Óskars,
Davíð Þór á hljómborð, Matthías Hemstock á
trommur og Ágústa Eva syngur bæði á portúgölsku
og íslensku.
„Og gerir það guðdómlega vel,“ segir Óskar.
En hún er einmitt mágkona þín eins og fram
hefur komið?
„Nei.“
Nú? En ... er hún þá kærastan þín?
„Nei, ekki heldur.“
Hvaða vitleysa er þetta þá?
„Ég bara, hef ekki hugmynd,“ segir Óskar. - jbg
Bossanova í Fríkirkjunni
IFE OG BRÆÐURNIR Brasilískir tónar óma um Fríkirkjuna
í kvöld þegar Ómar og Óskar Guðjónssynir spila með Ife
Tolentino. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bandarískir fjölmiðlar telja
nokkuð víst að hjónaband
Jennifer Lopez og Marcs
Anthony standi á brauðfót-
um. Parið reyndi að slá á
allar kjaftasögur með því
að birtast opinberlega í
vikunni en það bragð virðist
ekki hafa sannfært neinn.
Sögusagnirnar fóru fyrst á kreik
þegar Jennifer Lopez mætti ein
til frumsýningar á kvikmyndinni
The Curios Case of Benjamin
Button með Brad Pitt í aðalhlut-
verki. Mynd birtist á forsíðu US
Weekly með fyrirsögninni „Hring-
urinn er horfinn“. Skömmu síðar
fóru að berast skrautlegar sögur
af djammlíferni Marcs Anthony.
Til hans sást á bar þar sem hann
setti það ekki fyrir sig að bjóða
þremur stúlkum upp á drykk og
fá þær síðan yfir á básinn sinn.
Að sögn sjónarvotta kunni Anth-
ony félagsskapnum ansi vel og lét
vel að einni stúlkunni. Talsmaður
hjónanna vísaði öllum sögusögn-
um á bug og sagði að allt væri í
hinmnalagi hjá hjónakornunum,
hann hefði bara farið út með
„félögunum“ og hún með „vinkon-
um“ sínum.
Hins vegar ku Jennifer vera að
leggja á ráðin um að koma ferli
sínum aftur á flug eftir mögur ár.
Daily Mail greinir frá því að hún
sé búin að fá nóg af daðri eigin-
mannsins og ráðríki hans. Hann
hafi viljað múlbinda hana og það
hefur vakið athygli að Jennifer
sýnir ekki jafnmikið hold og forð-
um daga á opinberum vettvangi.
Þá hefur flottum og fínum bílum
verið skipt út fyrir hefðbundnari
farartæki. Að sögn Daily Mail
þráir Jennifer ekkert heitar en að
komast aftur í sviðsljósið og hvort
það verður með Marc Anthony
eða ekki verður tíminn einn að
leiða í ljós.
LOPEZ Á BARMI SKILNAÐAR
RÁÐRÍKUR EIGINMAÐUR Marc Anthony er sagður ráðríkur eiginmaður sem elskar að
daðra við ókunnugar konur og er Lopez sögð vera búin fá sig fullsadda af framkomu
hans.
LÚR - BETRI HVÍLD
Eigum til á lager Slide Back rúm
tilbúin til afgreiðslu strax
Kíktu á nýja og
uppfærða heimasíðu:
www.lur.is
11:00 – 18:00lau.20. des.
Opið:
sun.
21. des.13:00 – 18:00