Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 90

Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 90
66 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR FÓTBOLTI Norska blaðið Nettavisen var með viðtal við Tryggva Guð- mundsson í gær undir fyrirsögn- inni: „Komið og náið í mig“. Auk- inheldur stóð í greininni að Tryggva dreymdi um að fara aftur til Noregs að spila fótbolta. „Þetta er svolítið ýkt. Mig hefur ekki enn dreymt þetta en hver veit hvort það gerist,“ sagði Tryggvi léttur sem þó viðurkennir fúslega að hafa litið í kringum sig og átt nokkur utanlandssímtöl þegar hann missti vinnuna sína á Skjá einum sem hann hefur reyndar fengið aftur. „Ég hef kynnst góðu fólki erlendis í gegnum árin og athugaði aðallega með atvinnu þó. Það hefði samt verið fínt að vera í vinnu og hafa fótboltann líka með.“ Tryggvi segir að ekkert hafi verið í gangi með önnur lið síðustu vikur en hann var engu að síður í viðræðum um vinnu í Kristians- and. Ekkert varð þó úr því sem stend- ur og Tryggvi því ekki á förum í augnablikinu. Tryggvi er samn- ingsbundinn FH og því yrði að kaupa hann færi svo að erlend félög sýndu honum áhuga. „Ég er raunsæismaður. Veit að ég er 34 ára gamall en veit líka að ég get enn vel spilað góðan fót- bolta. Ef það kæmi tilboð þá myndi ég að sjálfsögðu skoða það eins og allir Íslendingar,“ sagði Tryggvi sem er að mennta sig sem þjálfari og verður orðinn löglegur efstu deildar þjálfari í janúar. - hbg Tryggvi Guðmundsson segir frétt Nettavisen um sig ýkta og dreymi ekki Noreg: Er raunsæismaður og myndi skoða öll tilboð sem upp kæmu RAUNSÆISMAÐUR Tryggvi Guðmundsson segist þurfa að skoða allt með opnum huga líkt og aðrir Íslendingar í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Alex ítrekar í viðtali við breska götublaðið The Sun í gær að hann vilji yfirgefa herbúðir Chelsea þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. „Ég vildi fara frá Chelsea áður en keppnistímabilið byrjaði en þegar Scolari tók við sem knattspyrnustjóri var mér meinað að fara þrátt fyrir áhuga margra félaga á að fá mig. Staða mín er erfið hjá Chelsea þar sem félagið er með besta miðvarðapar í heimi, John Terry og Carvalho. Ég verð að hugsa um minn hag og ég vil spila reglulega í byrjunar- liðinu. Þess vegna vil ég fara,“ segir Alex. - óþ Alex, varnarmaður Chelsea: Vill enn fara frá Chelsea í janúar ALEX Vill finna sér annað félag þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Lassana Diarra verður tilkynntur sem nýr leikmaður Real Madrid eftir að Portsmouth samþykkti tilboð sem talið er nema á bilinu 18-22 milljónir punda. Diarra er ætlað að fylla skarð Rubens de la Red og „nafna“ síns Mahamadou Diarra sem verða frá vegna meiðsla út veturinn. Lauren, samherji Diarra hjá Portsmouth, líkir honum við aðra fyrrverandi stjörnu Real Madrid. „Hann minnir mig mikið á Claude Makelele hvað varðar hreyfingu á vellinum, líkamlega burði hans og varnarvinnuna. Hann er hins vegar frábrugðinn Makelele hvað varðar það að hann er líka frábær í sókninni,“ segir Lauren. - óþ Lassana Diarra: Gæti orðið næsti Makelele FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson verður fyrsti Íslendingurinn í tæp átján ár til þess að spila í frönsku úrvalsdeildinni en FC Nancy er búið að kaupa hann frá norska lið- inu Stabæk. Síðastur til að spila í deildinni var Arnór Guðjohnsen sem lék með Girondins Bordeaux tímabilið 1990-91. Veigar Páll er samt ekki eini Íslendingurinn sem mun spila í Frakklandi eftir áramót því knatt- spyrnukonan Hulda Jónsdóttir hóf að spila með FC Vendenheim í úrvalsdeild kvenna samhliða námi sínu í arkitektúr. Albert Guðmundsson spilaði fyrstur Íslendinga í Frakklandi fyrir 61 ári þegar hann samdi við FC Nancy. Albert átti glæsilegan feril í franska boltanum og nældi sér meira að segja í viðurnefnið hvíta perlan fyrir leikni sína inni á vellinum. Albert lék með þremur félögum í tveimur skömmtum frá 1947 til 1953 en tímabilið 1948 til 1949 lék hann með AC Milan á Ítalíu. Lengstan tíma lék Albert með Racing Club Paris en hann skoraði 30 mörk á þremur tímabilum með liðinu frá 1949 til 1952 og náði að spila bikarúrslitaleik árið 1950. Albert endaði síðan ferillinn með Nice og lék eitt og hálft tíma- bil áður en hann sneri aftur heim til Íslands. Þórólfur Beck var næstur í röð- inni til að reyna fyrir sér í Frakk- landi en hann gerði rétt fyrir jólin 1966 sex mánaða samning við Rouen. Þórólfur var þá á samningi hjá skoska liðinu Glasgow Rang- ers en hafði fengið fá tækifæri og náði að fá sig lausan. Tími Þórólfs hjá Rouen varð hins vegar stuttur því hann fór um sumarið til St. Louis í Bandaríkjunum. Íslendingar áttu tvo leikmenn í frönsku deildinni frá 1981 til 1983 þegar Skagamennirnir Teitur Þórðarson og Karl Þórðarson léku báðir í deildinni. Teitur kom þá til RC Lens frá sænska liðinu Öster en Karl kom til Laval eftir að hafa leikið með La Louviere í Belgíu í þrjú tímabil. Karl er eini íslenski leikmaður- inn sem hefur unnið titil í Frakk- landi en hann varð franskur deild- arbikarmeistari með Laval sumarið 1982. Karl lék allan úrslitaleikinn þar sem Laval sigr- aði AS Nancy 3-2 á vellinum St. Ouen í París. Karl lék alls 96 deild- arleiki með Laval þessi þrjú tímabil og skoraði í þeim 12 mörk. Liðið stóð sig líka vel og endaði í 5. sæti bæði 1981-82 og 1982-83. Enginn Íslendingur hefur skor- að meira á einu tímabili en Teitur Þórðarson sem skoraði 19 mörk í 38 leikjum á sínu fyrsta ári með RC Lens 1981-82. Teitur náði ekki að fylgja þessari byrjun eftir og lék aðeins tíu leiki á næsta tíma- bili. Hann fór síðan til B-deildar- liðsins AS Cannes og lék með lið- inu í eitt ár áður en hann yfirgaf Frakkland. Síðastur á undan Veigari til þess að spila í frönsku úrvals- deildinni var síðan Arnór Guð- johnsen sem lék með Girondins Bordeaux 1990-91. Arnór kom til Bordeaux frá Anderlecht sem setti hann í æfingabann og á hann hátt kaupverð í kjölfar þess að hann neitaði að skrifa undir nýjan samning. Arnór gerði að lokum fjögurra ára samning við Bordea- ux en lenti svo í því að félagið var dæmt niður í B-deild vegna gjald- þrots. Arnór spilaði áfram með liðinu og hjálpaði því aftur upp með því að skora 8 mörk í 30 leikjum en óheppnin elti kappann á þessum árum og sumarið 1992 dæmdi Alþjóðaknattspyrnusambandið hann aftur til Anderlecht þar sem franska liðið hafði ekki staðið við skuldbindingar sínar á kaupleigu- samningi um Arnór. Bordeaux sagði í framhaldinu upp samn- ingnum við Arnór og hann fór síðan á endanum á láni til Hacken í Svíþjóð eftir að hafa ekkert leik- ið frá maí til desember vegna málaferlanna. Veigar Páll hefur staðið sig frá- bærlega í norska boltanum og það verður fróðlegt að sjá hvernig honum gengur í Frakklandi. AS Nancy er sem stendur í 13. sæti af 20 liðum og hefur verið á leið upp töfluna síðustu vikur eftir að hafa verið í 17. sæti um tíma. Þjálfari liðsins er Pablo Correa frá Úrúgvæ og hann þarf nauð- synlega á meiru að halda hjá sókn- armönnum liðsins sem hafa aðeins skorað saman sex mörk í fyrstu 18 leikjunum. Markahæsti leik- maður liðsins til þessa er Marókk- óbúinn Youssouf Hadji með þrjú mörk og enginn leikmaður liðsins hefur lagt upp fleiri en eitt mark. Frakkarnir treysta örugglega á að Veigar Páll hjálpi til á þessum víg- stöðum en hann kom að flestum mörkum í Noregi síðustu þrjú tímabil. ooj@frettabladid.is Fimm hafa spilað í frönsku deildinni Veigar Páll Gunnarsson verður sjötti íslenski knattspyrnumaðurinn sem spilar í frönsku úrvalsdeildinni en Albert Guðmundsson var sá fyrsti þegar hann spilaði með FC Nancy fyrir 61 ári. DEILDARBIKARMEISTARI Karl Þórðarson varð franskur deildarbikarmeistari með Laval árið 1982 og hér sést hann fyrir miðju í neðri röð. HVÍTA PERLAN Albert Guðmundsson sést hér með Björgvini Schram og öðrum leik- manni fyrir leik með Racing Club í Frakklandi í byrjun sjötta áratugsins. ÍSLENDINGAR Í FRÖNSKU ÚRVALSDEILDINNI Albert Guðmundsson Nancy 1947-48, RC Paris 1949-52, Nice 1952-53 Þórólfur Beck Rouen 1966-67 Karl Þórðarson Laval 1981-84 Teitur Þórðarson RC Lens 1981-83 Arnór Guðjohnsen Bordeaux 1990-91 Útsölustaðir: Fjarðarkaup, Hafnarfirði og Hagkaups verslanir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.