Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 96
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er föstudagurinn
19. desember, 354. dagur ársins.
11.21 13.24 15.29
11.38 13.09 14.42
Af öllu hyskinu hennar Grýlu hefur mér alltaf þótt jólakött-
urinn verstur. Strákapör jóla-
sveinanna þrettán má fyrirgefa en
gæludýrið á heimilinu er svo ófor-
skammað að maður getur ekki
annað en fyllst hryllingi við til-
hugsunina. Grýla étur bara óþæg
börn sem eiga það skilið en köttur-
inn hennar leggst svo lágt að ráð-
ast á fátæklinga sem enga nýja
flík fá fyrir jólin.
TIL allrar hamingju hefur jóla-
kötturinn haft sig lítt í frammi
undanfarin ár. Ég minnist þess all-
tént ekki að hafa lesið í blöðunum
um dularfull mannshvörf á þess-
um árstíma sem rekja má til fata-
leysis. Við höfum líka flest átt nóg
af rándýrum tískufatnaði nema
þeir allra fátækustu og yfirdrátt-
arlausu sem hafa getað reitt sig á
græðgi okkar hinna sem neyðumst
til að gefa Rauða krossinum og
mæðrastyrksnefnd það sem flýtur
út úr fataskápnum eða er orðið of
þröngt yfir kviðinn. Líklegast er
kötturinn löngu dauður úr hor,
þökk sé ofneyslu og kaupæði
landans.
EN köttur kemur í kattar stað og
nú er önnur skaðræðisskepna á
sveimi. Hún á það skítlega eðli
sameiginlegt með ketti Grýlu og
Leppalúða að ráðast á þá efna-
minnstu. Ég veit ekki hvað best er
að kalla þetta óargadýr en í frétt-
um hefur það fengið nöfn eins og
Kreppan og Ástandið. Enginn
hefur bókstaflega verið étinn en
dýrið er farið að narta all græðgis-
lega í suma. Jólakötturinn er eins
og gælinn kettlingur í samanburði
við þessa skepnu. Hann mátti var-
ast með því að útvega þó ekki væri
nema nýja sokka fyrir jólin og var
svo kurteis að láta okkur í friði
nema rétt yfir hátíðirnar. Þessi
nýja bleyða er hins vegar sest að í
mannabyggð um óákveðinn tíma
og enginn veit hvernig á að verjast.
Líkt og kötturinn Bakkabræðra
sem át allt dundar hún sér við að
éta upp ævisparnað landsmanna
og ellilífeyri gamla fólksins.
Í nótt heyrði ég grimmilegt hvæs
fyrir utan gluggann og mér fannst
eins og það væri klórað í glerið.
Ég veit það var ekki jólakötturinn
því ég á glænýjan kjól inni í skáp.
Ég þori varla að fara að sofa í
kvöld. Trúlega hefur kreppukisi
enga lyst á mér en er kominn til að
éta upp launin mín, hækka
matvælaverðið og hrifsa af mér
húsnæðið.
SÍÐAN – þegar ég þarf að selja
jólakjólinn til að eiga fyrir nauð-
þurftum – kemur jólakötturinn og
klárar verkið.
Jólakötturinn
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is