Fréttablaðið - 31.12.2008, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 31.12.2008, Qupperneq 43
Laugavegur 15 - 101 Reyk jav ík - 511 1900 - www.sv i s s . i s Árið 1909 stofnaði J. Frank Michelsen úrsmíðameistari fyrirtækið F. Michelsen úr & gullsmíði á Sauðárkróki. Einn sona hans, Franch Michelsen úrsmíðameistari lærði úrsmíði hjá föður sínum og fór til Kaupmannahafnar í frekara úrsmíðanám árið 1937. Að námi loknu starfaði hann hjá Carl Jonsén, konunglegum hirðúrsmið í Kaupmannahöfn, þar sem hann m.a. gerði við úr Alexandrinu Danadrottningar og bauðst að verða útnefndur konunglegur hirðúrsmiður. Franch sneri heim til Íslands árið 1940, opnaði aðra Michelsen úrsmíðavinnustofu og verslun í Reykjavík og skapaði sér fljótt nafn sem vandvirkur og traustur úrsmiður. Á næstu fjórum áratugum kenndi Franch tólf Íslendingum úrsmíðafagið, þ.á.m. syni sínum, Frank Úlfari Michelsen úrsmíðameistara, sem er núverandi eigandi fyrirtækisins. Frank Ú. fór árið 1978 til náms í WOSTEP, heimsþekkts úrsmíðaskóla í Sviss, fyrstur Íslendinga. Frank Ú. hefur haldið áfram á þeirri braut sem faðir hans vann markvisst að, að vera traustur og fagmannlegur úrsmiður. Sonur Franks Ú, Róbert F. Michelsen, lærði úrsmíði fyrst hjá föður sínum og hóf síðan nám í WOSTEP í Sviss þar sem hann mun útskrifast á 100 ára afmæli Michelsen úrsmiðanna og hefur þá lært öll réttu handbrögðin í þessari fíngerðu og nákvæmu iðn. Það er því ljóst að saga Michelsen úrsmiðanna er langt í frá lokið og svo lengi sem Michelsen úrsmiðirnir eru til staðar, munu Íslendingar hafa tök á að fylgjast með tímanum. Á þessum 100 árum hafa Michelsen úrsmiðirnir selt og þjónustað mörg af þekktustu úramerkjum heims, með Rolex þar fremst í flokki. Þeim hefur verið treyst fyrir þjónustu á afar vönduðum úrum hvaðanæva að úr heiminum og orðspor þeirra hefur farið víða. Úrsmiðir í 100 ár

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.