Fréttablaðið - 31.12.2008, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 31. desember 2008 11
UM ÁRAMÓT
Ein dýpsta heimskreppa hag-sögunnar skall á í september
2008 þegar burðarvirki hins
reglulausa hnattræna fjármagns-
markaðar leystist upp fyrir aug-
liti allrar heimsbyggðarinnar.
Markaðurinn „leiðrétti“ sig ekki
sjálfur eins og markaðslögmálið
hafði kennt heldur flanaði stjórn-
laust að feigðarósi með vanmati
áhættu og ofmati eigna. Á þrem-
ur mánuðum hafa iðnvædd ríki
neyðst til að leggja stórfé úr sam-
eiginlegum sjóðum til björgunar-
aðgerða. Hin stjórnlausa frjáls-
hyggja hefur runnið sitt skeið á
enda.
Neyðaraðgerðir
Hin íslenska kreppa er bæði
heimskreppa og heimatilbúin.
Hún magnaðist ekki smátt og
smátt eins og í öðrum löndum
heldur skall á okkur eins og full-
komið fárviðri í byrjun október.
Með hruni bankakerfisins
fengu íslensk stjórnvöld í fangið
verkefni sem er stærra og flókn-
ara en nokkur dæmi eru um á síð-
ari tímum. Fyrsta skylda ríkis-
stjórnarinnar var að sjá til þess
að nýir bankar gætu risið á rúst-
um hinna gömlu, að greiðslukerfi
bankanna virkuðu og þjóðin gæti
orðið sér úti um gjaldeyri fyrir
nauðþurftum og til að stunda við-
skipti við umheiminn. Allt þetta
tókst.
Eitt brýnasta verkefni sem rík-
isstjórnin stendur nú andspænis
er endurskipulagning alls fjár-
málakerfisins og þar eru Seðla-
banki og Fjármálaeftirlit ekki
undanskilið. Sú vinna er þegar
hafin hvað varðar viðskiptabank-
ana og á nýju ári verður stjórn og
fyrirkomulag Seðlabankans og
Fjármálaeftirlitsins tekið til sér-
stakrar skoðunar með það að
markmiði að auka traustið á þess-
um mikilvægu eftirlitsstofnun-
um.
Heimilin og fyrirtækin í land-
inu standa andspænis miklum
erfiðleikum vegna samdráttar,
verðbólgu, hárra stýrivaxta og
mikillar lækkunar á gengi krón-
unnar. Ríkisstjórnin hefur þegar
gripið til margháttaðra aðgerða
til að mæta fólki og fyrirtækjum
í greiðsluerfiðleikum en til að
forða frekari upplausn í samfé-
laginu er nauðsynlegt að vinna
með öllum tiltækum ráðum gegn
fjölgun gjaldþrota og aukningu
atvinnuleysis.
Jafnaðarstefna í verki
Frá því að Samfylkingin tók við í
ríkisstjórn vorið 2007 höfum við
litið svo á að mikilvægasta hlut-
verk okkar væri að skapa hér á
ný samfélag jöfnuðar og félags-
legs réttlætis á Íslandi.
Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylkingin eru ólíkir flokkar, en
þessi ríkisstjórn hefur stigið mik-
ilvæg skref í velferðarmálum
með aðgerðaáætlun í þágu barna
og ungmenna, með stefnumótun
um uppbyggingu hundruða hjúkr-
unarrýma fyrir aldraða, með því
að koma í höfn því mikilvæga
réttindamáli öryrkja að greiða
þeim bætur án tillits til tekna
maka, með verulegri hækkun
lægstu lífeyrisbóta, hækkun
skattleysismarka, hækkun tekju-
tengdra barnabóta, nýjum jafn-
réttislögum, með afnámi hinna
illræmdu eftirlaunalaga og svo
mætti lengi telja.
Við lögðum á það mikla áherslu
við endurskoðun fjárlaga á dög-
unum að verja þennan árangur
og það tókst. Verkefni okkar á
næsta ári verður að freista þess
að verja grunnstoðir velferðar-
þjónustunnar. Það verður ekki
auðvelt verkefni en forsenda
þess að hér á landi verði sátt milli
stjórnvalda og þjóðar er að byrð-
unum verði réttlátlega dreift á
landsmenn, þannig að þeir sem
mest hafa, beri þyngstar byrðar
en aðrir léttari.
Sýn til framtíðar
Íslenskt samfélag mun draga
marga lærdóma af atburðum
haustsins. Einn sá mikilvægasti
varðar tengsl okkar við umheim-
inn og hvernig við tryggjum
okkur þá samstöðu nágranna
okkar sem við getum ekki verið
án. Í nútímanum eru heimsmálin
heimamál og öfugt. Í okkar ver-
öld er versti kosturinn að vera
ekki með. Ef við skipum okkur
hvergi í sveit á alþjóðavettvangi
verðum við eins og bátskríli á
úfnu hafi alþjóðlegra hræringa.
Samfylkingin leggur á það höf-
uðáherslu að gefa skýr skilaboð
um framtíðarskipan peningamála
í landinu. Við teljum að hagsmun-
um Íslendinga sé best borgið í
samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir
innan Evrópusambandsins og
vonandi eru forsendur að skapast
á stjórnmálasviðinu fyrir því að
hægt verði að sækja um aðild á
fyrri hluta næsta árs.
Samhliða skýrri sýn til fram-
tíðar þarf að móta gjörbreytta
hagstjórn byggða á grundvall-
ar afstöðu jafnaðarmanna þar
sem tekjugrundvöllur samneysl-
unnar er tryggður og samfélag
velferðar og ábyrgrar verðmæta-
sköpunar í atvinnulífi fest í sessi.
Við þurfum að skapa atvinnulíf-
inu skilyrði til að dafna, með
markvissum skrefum í átt til
stöðugra gengis og lægri vaxta.
Það verður ekki hjá því komist að
spara tugi milljarða í ríkisbú-
skapnum á komandi ári og það
verður best gert með því að
hreinsa til í ríkisbúskapnum, og
forgangsraða útgjöldum í sam-
ræmi við kröfur um almanna-
þjónustu.
Við þurfum að lyfta Grettistaki
á næstu misserum. Það verður
gríðarlegt átak og engin pólitísk
vinsældakeppni. Það verður erf-
iðast fyrst en árangurinn mun
koma í ljós. Íslendingar munu sjá
til nýs lands á nýju ári.
Höfundur er utanríkisráðherra og
formaður Samfylkingarinnar.
Ný landsýn – breytt stefna
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
...