Fréttablaðið - 31.12.2008, Page 11

Fréttablaðið - 31.12.2008, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 31. desember 2008 11 UM ÁRAMÓT Ein dýpsta heimskreppa hag-sögunnar skall á í september 2008 þegar burðarvirki hins reglulausa hnattræna fjármagns- markaðar leystist upp fyrir aug- liti allrar heimsbyggðarinnar. Markaðurinn „leiðrétti“ sig ekki sjálfur eins og markaðslögmálið hafði kennt heldur flanaði stjórn- laust að feigðarósi með vanmati áhættu og ofmati eigna. Á þrem- ur mánuðum hafa iðnvædd ríki neyðst til að leggja stórfé úr sam- eiginlegum sjóðum til björgunar- aðgerða. Hin stjórnlausa frjáls- hyggja hefur runnið sitt skeið á enda. Neyðaraðgerðir Hin íslenska kreppa er bæði heimskreppa og heimatilbúin. Hún magnaðist ekki smátt og smátt eins og í öðrum löndum heldur skall á okkur eins og full- komið fárviðri í byrjun október. Með hruni bankakerfisins fengu íslensk stjórnvöld í fangið verkefni sem er stærra og flókn- ara en nokkur dæmi eru um á síð- ari tímum. Fyrsta skylda ríkis- stjórnarinnar var að sjá til þess að nýir bankar gætu risið á rúst- um hinna gömlu, að greiðslukerfi bankanna virkuðu og þjóðin gæti orðið sér úti um gjaldeyri fyrir nauðþurftum og til að stunda við- skipti við umheiminn. Allt þetta tókst. Eitt brýnasta verkefni sem rík- isstjórnin stendur nú andspænis er endurskipulagning alls fjár- málakerfisins og þar eru Seðla- banki og Fjármálaeftirlit ekki undanskilið. Sú vinna er þegar hafin hvað varðar viðskiptabank- ana og á nýju ári verður stjórn og fyrirkomulag Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins tekið til sér- stakrar skoðunar með það að markmiði að auka traustið á þess- um mikilvægu eftirlitsstofnun- um. Heimilin og fyrirtækin í land- inu standa andspænis miklum erfiðleikum vegna samdráttar, verðbólgu, hárra stýrivaxta og mikillar lækkunar á gengi krón- unnar. Ríkisstjórnin hefur þegar gripið til margháttaðra aðgerða til að mæta fólki og fyrirtækjum í greiðsluerfiðleikum en til að forða frekari upplausn í samfé- laginu er nauðsynlegt að vinna með öllum tiltækum ráðum gegn fjölgun gjaldþrota og aukningu atvinnuleysis. Jafnaðarstefna í verki Frá því að Samfylkingin tók við í ríkisstjórn vorið 2007 höfum við litið svo á að mikilvægasta hlut- verk okkar væri að skapa hér á ný samfélag jöfnuðar og félags- legs réttlætis á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn og Sam- fylkingin eru ólíkir flokkar, en þessi ríkisstjórn hefur stigið mik- ilvæg skref í velferðarmálum með aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna, með stefnumótun um uppbyggingu hundruða hjúkr- unarrýma fyrir aldraða, með því að koma í höfn því mikilvæga réttindamáli öryrkja að greiða þeim bætur án tillits til tekna maka, með verulegri hækkun lægstu lífeyrisbóta, hækkun skattleysismarka, hækkun tekju- tengdra barnabóta, nýjum jafn- réttislögum, með afnámi hinna illræmdu eftirlaunalaga og svo mætti lengi telja. Við lögðum á það mikla áherslu við endurskoðun fjárlaga á dög- unum að verja þennan árangur og það tókst. Verkefni okkar á næsta ári verður að freista þess að verja grunnstoðir velferðar- þjónustunnar. Það verður ekki auðvelt verkefni en forsenda þess að hér á landi verði sátt milli stjórnvalda og þjóðar er að byrð- unum verði réttlátlega dreift á landsmenn, þannig að þeir sem mest hafa, beri þyngstar byrðar en aðrir léttari. Sýn til framtíðar Íslenskt samfélag mun draga marga lærdóma af atburðum haustsins. Einn sá mikilvægasti varðar tengsl okkar við umheim- inn og hvernig við tryggjum okkur þá samstöðu nágranna okkar sem við getum ekki verið án. Í nútímanum eru heimsmálin heimamál og öfugt. Í okkar ver- öld er versti kosturinn að vera ekki með. Ef við skipum okkur hvergi í sveit á alþjóðavettvangi verðum við eins og bátskríli á úfnu hafi alþjóðlegra hræringa. Samfylkingin leggur á það höf- uðáherslu að gefa skýr skilaboð um framtíðarskipan peningamála í landinu. Við teljum að hagsmun- um Íslendinga sé best borgið í samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir innan Evrópusambandsins og vonandi eru forsendur að skapast á stjórnmálasviðinu fyrir því að hægt verði að sækja um aðild á fyrri hluta næsta árs. Samhliða skýrri sýn til fram- tíðar þarf að móta gjörbreytta hagstjórn byggða á grundvall- ar afstöðu jafnaðarmanna þar sem tekjugrundvöllur samneysl- unnar er tryggður og samfélag velferðar og ábyrgrar verðmæta- sköpunar í atvinnulífi fest í sessi. Við þurfum að skapa atvinnulíf- inu skilyrði til að dafna, með markvissum skrefum í átt til stöðugra gengis og lægri vaxta. Það verður ekki hjá því komist að spara tugi milljarða í ríkisbú- skapnum á komandi ári og það verður best gert með því að hreinsa til í ríkisbúskapnum, og forgangsraða útgjöldum í sam- ræmi við kröfur um almanna- þjónustu. Við þurfum að lyfta Grettistaki á næstu misserum. Það verður gríðarlegt átak og engin pólitísk vinsældakeppni. Það verður erf- iðast fyrst en árangurinn mun koma í ljós. Íslendingar munu sjá til nýs lands á nýju ári. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Ný landsýn – breytt stefna INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR ...

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.