Fréttablaðið - 07.01.2009, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 7. janúar 2009 23
KÖRFUBOLTI KR-ingurinn Jakob Örn
Sigurðarson og Haukakonan Krist-
rún Sigurjónsdóttir stóðu sig best í
fyrri hluta Iceland Express-deild-
anna, að mati valnefndar KKÍ en
verðlaunin voru veitt í gær.
Jakob Örn Sigurðarson
hefur stýrt KR-liðinu sem
hefur unnið alla 11 leiki sína
fyrir áramót og er með 17,1
stig og 4,5 stoðsendingar að
meðaltali í leik. Aðrir í úrvals-
liðinu voru þeir Jón Arnór
Stefánsson (KR), Cedric Isom
(Þór), Páll Axel Vilbergsson
(Grindavík) og Sigurður Gunn-
ar Þorsteinsson (Keflavík).
Ísak Einarsson í Tindastól var
valinn dugnaðarforkurinn.
Nánast fullkomið hjá okkur
„Þetta er búið að vera nánast
fullkomið hjá okkur. Ég
finn mig vel í KR-bún-
ingnum og mér líður
mjög vel að fá að spila
með þessum strákum aftur.
Liðinu gengur vel og þá
gengur manni sjálfum
vel,“ segir Jakob sem veit
að það er mikið til ætlast
af liðinu.
„Það er rosalega
góður mórall og þar
vegur þungt að við þekkj-
umst allir vel og höfum
gert lengi. Við treystum hver á
annan og vitum hvernig menn vilja
fá boltann og hvar,“ segir Jakob
sem er klár í framhaldið á tímabil-
inu. „Mér líst mjög vel á fyrsta
leikinn á móti ÍR og ég lofaði því
að við verðum tilbúnir. Við vitum
að þetta er bara hálfnað og við
erum ekki búnir að vinna neitt
ennþá,“ sagði Jakob.
Kristrún Sigurjónsdóttir er fyr-
irliði Haukaliðsins sem hefur
unnið 10 af 11 leikjum sínum fyrir
áramót. Kristrún hefur skorað 21,4
stig í leik. Aðrar í úrvalsliðinu
voru þær Slavica Dimovska
(Haukum), Signý Hermanns-
dóttir (Val) og Keflvíkingarnir
Birna Valgarðsdóttir og Svava
Ósk Stefánsdóttir. Fanney
Lind Guðmundsdóttir í
Hamri var valin dugn-
aðarforkurinn.
Eins og að vinna í
lottóinu
„Ég er mjög ánægð
með árangur liðsins en það er
ekkert unnið með því að vera
í efsta sæti um jólin. Það er
gaman að fá svona viður-
kenningar en þær gefa
manni ekkert meira,“
segir Kristrún sem
segir færri útlend-
inga í deildinni
hafa skapað
tækifæri.
„Það er rosa-
lega gaman á
æfingum og það er virkilega
gaman að vera í Haukum núna,“
segir Kristrún sem er ánægð með
félaga sinn í bakvarðasveit
Haukanna Slavicu Dimovsku en
þær eru báðar í úrvalsliðinu.
„Það var eins og að vinna í lottó-
inu að fá Slavicu. Hún er frábær
leikmaður og mikill liðsmaður
bæði innan sem utan vallar,“
segir Kristrún. „Við megum
ekki slaka á núna og það er
áskorun fyrir liðið að halda
einbeitingu. Þegar
maður er svona ofar-
lega um jólin þá þýðir
ekkert annað en að
stefna hærra og það
þýðir bara að reyna
að vinna titlana sem
eru í boði.“
Svigrúm til að bæta sig
Bestu þjálfararnir þóttu
Einar Árni Jóhannsson,
þjálfari nýliða Breiða-
bliks í Iceland Express
deild karla, og Ari Gunn-
arsson, þjálfari Hamars í
Iceland Express-deild
kvenna.
„Ég er mjög stoltur af
liðinu en við erum ennþá í
bullandi fallbaráttu og megum
ekki tapa okkur í gleðinni. Fyrstu
tveir leikirnir á nýja árinu eru
gríðarlega mikilvægir,” segir
Einar Árni.
„Við erum búnir að lenda í frek-
ar skrautlegum meiðslum og veik-
indaveseni í vetur. Strákarnir
mega vera stoltir af því að hafa
náð að fara í gegnum þessar öldur
og ná í sigra. Eins ánægður og
maður er með fimm sigra þá er
maður pínulítið svekktur að vera
ekki með sjö,“ segir Einar Árni
sem er bjartsýnn á framhaldið.
„Ég veit að við höfum töluvert
svigrúm til að bæta okkur og ég
sannfærður um að við verðum
sterkari á nýja árinu,“ sagði
Einar.
Kvíðir því ekki að spila án
Juliu
Hamarskonur hafa
verið spútniklið vetr-
arins í Iceland
Express-deild kvenna
og er í 2. sæti deild-
arinnar með 9 sigra
og aðeins 2 töp.
Fyrir þetta tímabil var
Hamar aðeins búið að
vinna 9 af 44 leikjum
sínum í efstu deild.
„Ég er aðallega ánægður
með dugnaðinn í stelpunum
því það er kjarni í liðinu sem
æfir mjög vel og er að skila
þessu í hús,“ sagði Ari Gunnarsson
sem hefur verið með liðið frá 2006.
Ari hefur ekki áhyggjur þó að hann
sé að missa Juliu Demirer sem var
með 17,8 stig og 13,9 fráköst að
meðaltali fyrir jól. „Hinar koma
bara tvíefldari til leiks og ég kvíði
því ekki að spila án hennar,“ sagði
Ari. ooj@frettabladid.is
Jakob og Kristrún
voru valin best
Einar Árni Jóhannsson og Ari Gunnarsson eru bestu
þjálfarar fyrri hluta Iceland Express-deildanna.
BEST Jakob Örn Sigurðarson og Kristrún Sigurjónsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Launa mið ar og
verk taka mið ar
Skila skyld ir eru allir
þeir sem innt
hafa af hendi
launa greiðsl ur,
hlunn indi, líf -
eyri, bætur, styrki,
happ drætt is - og
talna vinn inga
(skatt skylda sem
óskatt skylda), greiðsl ur
til verk taka fyrir þjón -
ustu ( efni eða vinnu) eða
aðrar greiðsl ur sem fram -
tals skyld ar eru og/ eða
skatt skyld ar.
Bif reiða hlunn inda mið ar
Skila skyld ir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða
ann arri starf semi hafa haft kostn að af kaup um,
leigu eða rekstri fólks bif reið ar.
Hluta fjár mið ar
Skila skyld eru öll hluta fé lög, einka hluta fé lög,
sam vinnu hluta fé lög og spari sjóð ir.
Launa fram tal
Skila skyld ir eru ein stakl ing ar með eigin at vinnu -
rekst ur, sem telja fram á papp ír, og óskatt skyld
félög sem ekki skila raf rænu skatt fram tali og
sem greiddu laun á árinu 2008.
Við skipti með hluta bréf
Skila skyld ir eru bank ar, verð bréfa fyr ir tæki og
aðrir þeir að il ar sem ann ast kaup og sölu, um -
boðs við skipti og aðra um sýslu með hluta bréf.
Bankainn stæð ur
Skila skyld ar eru allar fjár mála stofn an ir og aðrir
að il ar sem taka við fjár mun um til ávöxt un ar.
Lán til
ein stakl inga
(fast eigna veð lán, bíla lán og önnur
lán). Skila skyld ar eru allar fjár málastofn -
an ir (bank ar, spari sjóð ir, líf eyr is sjóð ir,
trygg inga fé lög, fjár mögn un ar leig ur o. s. frv.)
sem hafa lánað fé til ein stakl inga.
Stofn sjóð smið ar
Skila skyld eru öll sam vinnu fé lög,
þ. m. t. kaup félög.
Tak mörk uð skatt skylda
- greiðslu yf ir lit
Skila skyld ir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers
konar greiðsl ur til er lendra aðila og ann arra, sem
bera tak mark aða skatt skyldu hér á landi.
Greiðslu mið ar – leiga eða afnot
Skila skyld ir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers
konar greiðsl ur fyrir leigu eða afnot af lausa fé,
fast eign um og fast eigna rétt ind um eða öðrum
réttindum.
Hluta bréfa kaup
skv. kaup rétt ar samn ingi
Skila skyld eru öll hluta fé lög sem gert hafa kaup -
rétt ar samn inga við starfs menn sína sam kvæmt
stað festri kaup rétt ar á ætl un.
Nánari upplýsingar eru á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is
!
"
#$ "
$&
( )
) *
+
,&-
) /
0
1
)
!
3
/
(
/
'
1
1
+/
+"
5
+ +/
6
)
,
4
(
4
4
)
7!
/ 7
'
/
8
/1
) /
!!
!"
#"
'
4
.&-
0
;
4
2
!
5:
<2
:'
6=
;>
5
<6
@@
A
Skilafrestur á eftirtöldum gögnum
vegna framtalsgerðar 2009 er til
30. janúar en þeir sem skila á
rafrænu formi hafa þó frest
til 10. febrúar 2009
Skil á upp lýs ing um
vegna skattframtals 2009
Jón
a J
ón
sdó
ttir
Rim
a 2
4
112
Re
ykj
aví
k
21
02
72
-22
29
1.9
67
.04
3
78
.68
4
860
39
.34
0
86
0
1.9
67
.04
3
27
4.6
70
Kvöldskóli BHS
Borgarholtsskóli býður kvöldskólanám í málm- og véltæknigreinum.
Eftirtaldar greinar verða í boði:
Málmsuða: HSU, LSU, RLS og RSU
Málmsmíðar: HVM, PLV, VVR og REN
Teikningar: GRT, CAD, TTÖ og ITM
Véltækni: AVV og VÖK
Kennt er virka daga frá 18:10 til 22:30 og laugardaga frá 8:10 til13:50
Innritun verður 8. og 9. janúar kl. 17 – 19,10. janúar kl. 11 – 14
Kennsla hefst 12. janúar
Nánari upplýsingar eru á www.bhs.is og í síma 5351700