Tíminn - 31.10.1982, Síða 27

Tíminn - 31.10.1982, Síða 27
SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982 27 nútlminn — segir Halldór Fannar Ellertsson, fangi á Litla Hrauni og einn meðlima fangahljómsveitarinnar Fjötra ■ Meðlimir Fjötra árita Rimlarokkið. F.v. Halldór, Sævar og Rúnar. Á bak við eru Ragnar Hauksson, sem hannaði umslag og Bjöm Einarsson, starfsmaður Vemdar. Tímamynd Róbert „ER FEGINN ÞVÍ AÐ ÉG LENTI Á LITLA HRAUNI” ■ Óvenjulegasta plata sem um getur á Islandi er kornin út. Er þetta platan „Rimlarokk“ með hljómsveitinni Fjöt- rar, en allir meðlimir hljómsveitarinnar em fangar á vinnuheimiiinu á Litla Hrauni, að einum undanskildum sem er fyrrverandi fangi. Það er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því hvað mikið þrekvirki hefur verið unnið með útgáfu þessarar plötu, en segja má að þar hafi hjálpast að fangar, fangaverðir, forstjóri Litla Hrauns, starfsmenn fangahjálpar- innar Verndar, háttsettir embættismenn í dómsmálaráðuneytinu og síðast en ekki síst sjálfur dómsmálaráðherra, til þess að gera þetta mögulegt. - Við fengum hugmyndina að þessari plötu fyrir þó nokkru síðan og ræddum þá fyrst við Ásgeir H. Eiríksson hjá Vernd um þá möguleika sem væru fyrir hendi. Ásgeir og Björn Einarsson hjá Vernd tóku síðan þetta mál upp við yfirvöld og hvarvetna sem þeir komu var þeim vel tekið og ég vil sérstaklega nefna þann mikla velvilja sem Helgi Gunnars- son, forstjóri Litla Hrauns hefur sýnt okkur föngunum. Hann hefur sýnt það og sannað að hann er sá besti vinur sem við höfum átt völ á og til að sýna þakklætisvott okkar, þá tileinkuðum við honum og öðrum vinum okkar hljóm- sveitarmanna, hér á Litla Hrauni þessa plötu. Sá sem þetta segir er Halldór Fannar Ellertsson, orgelleikari Fjötra, en hann afplánar nú tæplega þriggja ára dóm fyrir ávísunarfals og þjófnaði. Halldór tók því ljúfmannlega að ræða við Nútímann um bæði plötuna og málefni fanganna á „Hrauninu" og tók það fram Defunkt funk, mjög jazzað á köflum en einnig æðislega „heitt“ og eins undirritaður getur vel tekið undir það sem sendur í kynningarbæklingi um Defunkt að ef þú ert ekki að dansa, eða allavega hreyfa þig, er þú hlustar á þá ættirðu að athuga púlsinn á þér. Textar þeirra Defunkt eru mjög beinskeyttir og oft á tíðum þannig orðaðir að þeir fá ekki spilum í mörgum útvarþsstöðvum vestra. Allur ieikur þeirra er pott- þéttur, sándið á plötunni frábært og ég vil ljúka þessu með því að geta sérstaklega básúnuleik Bowie því hann er á köflum, eins og égsá skrifað einhversstaðar, engu líkur síð- an Jimi Hendrix hvarf aftur til þess staðar sem hann kom frá. - FRI ■ Halldór Fannar EUertsson. Túnamynd Róbert í upphafi að gífurleg breyting hefði orðið varðandi málefni fanga innan veggja vinnuheimilisins undanfarin ár. Nú væri kominn tími til að sú þróun héldi áfram utan rimlanna. Gífurlegt traust - Við vissum eiginlega ekki við hverju við áttum að búast þegar við hreyfðum þessu útgáfumáli fyrst. A.m.k. áttum við ekki von á að þetta fengist fyrirhafnarlaust, en sá ótti var ástæðu- laust. Allir þeir sem talað var við tóku þessu vel og vildu allt fyrir okkur gera. Það fórnfúsa starf sem Ásgeir og Björn hafa unnið í málinu á vissulega sinn stóra þátt, en að embættismennirnir tækju þessu svona vel, var meira en okkur óraði fyrir, segir Halldór og það er greinilegt að hann og félagar hans í fangahljómsveitinni kunna að meta það sem gert hefur verið fyrir þá. Félagar Halldórs, þeir Sævar Ciecielski og Rúnar Þór Pétursson (Sigurður Pálsson, bassaleikari var ekki viðstaddur) taka líka heilshugar undir þegar Halldór vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem gerðu útkomuna mögulega. - Okkur hefur verið sýnt gífurlegt traust og okkur hafa veirð lánuð dýr hljóðfæri og tæki, bæði frá Birni Hrafnssyni og Jakobi Magnússyni og ég vona að við höfum sýnt að við vorum þessa trausts verðir, segir Halldór Fannar Ellertsson. Um sjálfa plötuna segir Halldór: - Rimlarokkið var tekið upp í stúdíó Nema héma í sveitinni og alls fóru um 150 tímar í upptökurnar. Upptökur hófust 31. ágúst sl. og stjórnaði Helgi Kristjánsson öllum tökkum og tólum. Ég held að við megum vera ánægðir með útkomuna og ég bara vona að þessi plata geti látið gott af sér leiða. Þess má geta að ef ágó§i verður af sölu plötunnar, þá mun helmingurinn renna til húsa þeirra sem Vernd rekur á Skólavörðustíg og Ránargötu, en 17% renna til trúnaðarráðs vistmanna á Litla Hrauni. Afgangurinn rennur svo til hljóðfæraleikaranna og lætur því nærri að hver og einn fái um 8% af hugsanlegum ágóða í sinn hlut og þykir það ekki mikið. 20 ára sukk Halldór hefur nú setið í um eitt ár á Litla Hrauni og á því eftir að afplána tæp tvö ár samkvæmt þeim dómi sem hann fékk. Við spyrjum Halldór hvenær hann búist við að losna út? - Ég get lítið sagt um það, en maður vonar jú alltaf að maður fái reyslulausn. 70-80% þeirra sem sitja inni á Litla Hrauni, eru það vegna afbrota sem tengd eru áfengi. Þeir hafa líkt og ég framið afbrot til að verða sér úti um áfengi og ég tel að menn sem sýnt hafa bót og betrun og jafnvel náð því að endurgreiða það sem þeir urðu sér úti um á óheiðarlega hátt til baka, þeir fái tækifæri til að komast út í lífið að nýju. - Hvernig hefur þér Iiðið eftir að þú komst á Litla Hraun? - Það er alltaf stingandi að vera í fangelsi, en ég verða að segja að ég er þakklátur fyrir að hafa verið settur inn. Fram að þeim tíma er ég lenti hér, hefði ég verið 20 ár í sukki og það er fyrst nú sem ég er að átta mig á því hvað ég hef gert við líf mitt. Það hefur líka verið mér ákaflega mikill styrkur að eiginkona mín og fjölskylda hafa staðið með mér og styrkt mig á alla lund í þessum erfiðleikum. - Hvað með málefni fanga á íslandi. Hefur þeim málum verið nægilega sinnt að þínu viti? - Þessi mál hafa öll breyst mjög mikið og þá sérstaklega eftir að Björn Einarsson, sem er fyrrverandi fangi kom til starfa hjá Vernd. Það er geysilegur stuðningur af mönnum sem honum og mönnum eins og Ásgeiri H. Eiríkssyni, sem vill allt fyrir okkur gera og fórnar til þess bæði tíma og fjármunum. Ég get nefnt það að þetta er í fyrsta skipti í tíu ár sem ég á ekki von á einhverjum bankareikingum frá þjóðfélaginu fyrir syndir mínar. Björn Einarsson hefur gengið í að hreinsa til í mínum málum og fengið því framgengt að þau hafa verð gerð upp, þannig að ég ætti að geta nokkurn veginn um frjálst höfuð strokið þegar ég slepp út. - Nú ert þú alkahólisti. Ertu hættur að drekka? - Það getur enginn alkóhólisti nokkurn tíma sagt að hann sé hættur að drekka. Ég stefni að því að halda þessum sjúkdómi í skefjum og fræðslu- fundirnir hér á Litla Hrauni hafa hjálpað mér ákaflega mikið. Þá skiptir ekki minnstu máli að að ég hef eignast ákaflega sterka trú á Guð og hann hefur hjálpað mér mikið. - ESE li— á besta stað í bænum. Þægileg vel búin herbergi. Lipur þjónusta. Kaffistofan... allan daginn. Heitur matur, brauð, kaffi og kökur. Vistlegt umhverfi. Barnabílstólar og bílbelti hafa margsannað gildi sitt. Smásala -Heildsala. gnau SlÐUMÚLA 7-9, SlMI 82722 st h.t

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.