Fréttablaðið - 29.01.2009, Page 4
4 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is
-2kr.
... með ÓB-lyklinum – alltaf!
TB
W
A
\R
EY
K
JA
VÍ
K
\
SÍ
A
DÓMSMÁL Karlmaður um fimm-
tugt hefur verið ákærður fyrir
stórfellda líkamsárás. Honum er
gefið að sök að hafa föstudag-
inn 11. júlí 2008 í Fógetagarð-
inum við Kirkjustræti í Reykja-
vík, slegið mann hnefahöggum í
andlit og líkama svo að sá síðar-
nefndi féll í götuna. Árásar-
maðurinn hélt barsmíðunum og
spörkunum áfram í höfuð og lík-
ama mannsins þar sem hann lá,
með þeim afleiðingum að hann
fékk lífshættulega blæðingu
utan við heilahvel vinstra megin.
Fórnarlambið krefst nær 600
þúsunda króna í skaðabætur.
- jss
Ríkissaksóknari ákærir:
Lífshættuleg
heilablæðing
VEÐURSPÁ
Alicante
Bassel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
9°
3°
2°
4°
4°
4°
3°
3°
19°
6°
15°
3°
22°
-1°
5°
17°
1°
Á MORGUN
8-15 m/s
Hvassast SA til.
LAUGARDAGUR
Fremur hægur
vindur um allt land.
5
2
4
4
3
2
2
3
3
5
2
5
-1
0
-2
-1
-3
-2
-2
2
0
1
-8
-1
-2 -3
-2
1
1
-1 -3
-3
0
SKÍÐAVEÐUR
Stund er milli stríða
í veðrinu í dag,
hægur vindur og
lítil úrkoma. Það
horfi r því ágætlega
fyrir skíðaiðkendur
og aðra unnendur
útivistar. Í kvöld
eða fyrramálið
kemur lægð upp
að suðausturströnd
landsins með
tilheyrandi úrkomu
og meiri vindi.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
VINNUMARKAÐUR Ögmundur Jónas-
son mun draga sig í hlé sem for-
maður BSRB verði hann gerð-
ur að ráðherra í stjórn Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar.
Ögmundur hefur verið orðaður
við heilbrigðisráðuneytið.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að nái flokkarnir saman
um stjórn, verði tilkynnt á föstu-
dag að Ögmundur dragi sig í hlé.
Þing BSRB verður haldið í haust
og þá verður staðan endurmet-
in. Verði Ögmundur ráðherra þá
gefi hann ekki kost á sér sem for-
maður á ný. Rætt er um að stjórn
Vinstri grænna og Samfylking-
ar haldi áfram eftir kosningar.
Ögmundur hefur verið formaður
BSRB síðan 1988. - kóp
Ögmundur verður ráðherra:
Dregur sig í hlé
frá starfi BSRB
EFNAHAGSMÁL Starfsstöð Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (AGS), sem
hefur störf í byrjun mars, hefur
verið úthlutað skrifstofu í hús-
næði forsætisráðuneytisins við
Hverfisgötu. Franek Rozwad-
owski, hagfræðingur AGS til
margra ára, mun fara fyrir starfi
sjóðsins hér á landi til ársloka
2010 samkvæmt upplýsingum frá
Bolla Þór Bollasyni, ráðuneytis-
stjóra forsætisráðuneytisins.
Auk Rozwadowski verða tveir
íslenskir starfsmenn ráðnir til
stöðvarinnar og verða þeir því
einnig starfsmenn AGS. Þau störf
verða auglýst til umsóknar fljót-
lega.
Rozwadowski, sem er bæði með
pólskan og svasílskan ríkisborg-
ararétt, var á landinu í vikunni í
húsnæðisleit. Hann mun búa hér
á landi ásamt fjölskyldu sinni. - kg
Starfsstöð AGS á Íslandi:
Tveir Íslending-
ar verða ráðnir
STJÓRNMÁL Vinna að málefna-
samningi nýrrar ríkisstjórnar
gengur mjög vel að sögn Jóhönnu
Sigurðardóttur frá Samfylkingu,
sem taka mun sæti forsætisráð-
herra, og Steingríms J. Sigfús-
sonar, formanns Vinstri grænna.
Jóhanna segir að stjórnin verði
mynduð annað hvort á föstu-
dag eða laugardag. Steingrímur
sagði í samtali við Fréttablaðið í
gærkvöldi að ef samstarf nýrrar
minnihlutastjórnar gengi vel fram
að kosningum væri eðlilegt að
álykta sem svo að hún héldi áfram
eftir kosningar. „Við erum svo sem
ekkert farin að segja opinberlega
um það ennþá,“ sagði hann. „Fyrst
þarf nú að mynda ríkisstjórnina
en það væri eðlilegt að álykta sem
svo að gangi þetta vel þá auki það
náttúrulega líkurnar á því að þetta
samstarf haldi áfram, að sjálf-
sögðu.“
Í málefnasamningnum, sem lík-
lega verður tilbúinn í dag, er þó
hvorki tekið á Evrópumálum né
stóriðjumálum. „Þau eru ekki inni í
þessum aðgerðapakka“ sagði Stein-
grímur J. að loknum fundi í gær.
„Aðalinntak þessarar samstarfs-
yfirlýsingar verður aðgerðapakki
gagnvart heimilum og atvinnulífi
í þessum landi, hreinsun í stjórn-
kerfinu; þessi brýnustu verkefni
næstu vikna.“
Steingrímur segir að rætt hafi
verið um verkaskiptingu en ekki
verið gengið frá ráðherraskipan.
Aðspurður um þá tilgátu að hann
verði fjármálaráðherra, Ögmund-
ur Jónasson heilbrigðisráðherra og
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra, segir hann „þetta eru
ekkert ólíklegar tilgátur þegar
menn horfa á það hvaða ráðuneyti
eru að losna og hvaða fólk tekur
sæti fyrir okkar hönd en þetta er
þó allt ófrágengið.“
Heimildir Fréttablaðsins herma
að ráðherrarnir verði tíu talsins
og verði fjórir frá hvorum flokki
en síðan tveir utanþingsráðherr-
ar. Líklegast yrði Kolbrún Hall-
dórsdóttir fjórði ráðherra Vinstri
grænna og þá sem umhverfisráð-
herra.
Kosningadagur hefur ekki verið
ákveðinn en Vinstri grænir leggja
á það mikla áherslu að hann verði
sem fyrst og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins er sömu skoðun-
ar.
Sigmundur Davíð var nokk-
uð efins um að skilyrði Vinstri
grænna um að kyrrsetja eignir
auðmanna við rannsókn á hruni
bankanna yrði með í málefna-
samningum.
„Þetta hefur komið fram í fjöl-
miðlaumræðu og okkur þótti það
heldur óheppilegt að einstök mál
væru sett af stað meðan verið er
að mynda nýja stjórn. En þó Fram-
sóknarflokkurinn vilji ganga jafn-
vel flokka harðast fram í rannsókn
á því sem gerðist í aðdraganda
bankahrunsins þá erum við jafn
vel meðvitaðir um að við verð-
um að starfa eftir þeirri stjórnar-
skrá sem er í gildi, enn að minnsta
kosti.“ jse@frettabladid.is
Langtímastjórn ef vel
gengur fram á vorið
Formaður Vinstri grænna segir eðlilegt að minnihlutastjórn starfi áfram eftir
kosningar ef vel tekst til fram að þeim. Málefnasamningur liggur væntanlega
fyrir í dag. Framsókn vill ekki kyrrsetningu eigna eins og Vg hefur boðað.
SAMGÖNGUMÁL Kristján L. Möll-
er samgönguráðherra tók nýlega
á móti þremur mönnum frá
Bandaríkj-
unum sem
kanna hugs-
anlega lagn-
ingu sæstrengs
milli Íslands
og Bandaríkj-
anna. Þeir
kynntu ráð-
herra áform
sín en engar
ákvarðanir
hafa verið teknar. Fyrir hópn-
um fór Steve Cowper, fyrrver-
andi landstjóri frá Alaska. Í við-
skiptahugmynd mannanna felst
að nýting sæstrengsins byggist á
gagnaverum hér á landi.
Fjárfestarnir kynntu sér
aðstæður í því skyni að meta
frekar áætlanir sínar og kynn-
ingu meðal fjárfesta vestanhafs.
- shá
Bandarískir fjárfestar á Íslandi:
Hafa áhuga á
nýjum sæstreng
KRISTJÁN L.
MÖLLER
FERÐBÚINN EFTIR LANGAN FUND Steingrímur J. Sigfússon gerir sig ferðbúinn eftir að
hafa setið langan fund í þinghúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
VIÐSKIPTI Sex fyrrverandi fram-
kvæmdastjórar og forstöðumenn
Gamla Kaupþings afsöluðu að
fullu húseignum sínum til eig-
inkvenna sinna á tímabilinu 31.
ágúst til 8. október á síðasta ári.
Þann 9. október var ljóst að bank-
inn var kominn í þrot. Þetta kom
fram í kvöldfréttum Ríkissjón-
varpsins í gær. Á þessu sama
tímabili höfðu hins vegar yfir-
menn bankans fullyrt að bankinn
stæði ekki höllum fæti.
„Kannið þið hvort það sé eitt-
hvert vit í þessu áður en þið spyrj-
ið svona heimskulegra spurn-
inga,“ sagði Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings þegar Fréttablaðið
ræddi við hann. „Það er til hell-
ingur af fjölmiðlamönnum sem
spyrja og spyrja en skrifa svo
rugl. Kannaðu það fyrst.“ - jse
Yfirmenn Kaupþings:
Eiginkonur yfir-
tóku eignirnar
SJÁVARÚTVEGUR Allar frysti-
geymslur eru fullar af fiski hjá
Samskipum og sumum fiskfram-
leiðendum. Gunnar Kvaran, for-
stöðumaður útflutnings hjá Sam-
skipum, segir að samtals um 6.500
til 7.000 tonn af frystum fiski bíði
eftir að vera skipað út. Það sé
fimmtungi meira en í fyrra og ekki
hægt að taka við meiru.
Í frystigeymslum Samskipa
eru nú samtals um 5.000 tonn af
fiski. Til viðbótar eru rúmlega
1.500 til 2.000 tonn af frystum
fiski í geymslu í gámum. „Þetta er
óvenjulega mikið. Til viðbótar er
hellingur í gámum þannig að það
er ákveðin birgðasöfnun í gangi
og sölutregða,“
segir Gunnar.
Birgðasöfnun-
in hefur staðið í
fjóra til fimm
mánuði. Gunnar
telur að það hafi
haldist í hendur
við það þegar
krónan féll, þá
hafi byrjað að
hökta í sölumál-
um. „Svo eru stórir markaðir mjög
erfiðir, til dæmis baltnesku ríkin,
Úkraína og fleiri lönd. Það eru
erfiðleikar þar og menn ná ekki
að selja fisk þangað eins og venju-
lega.“
Ekki hefur verið óeðlilega mikil
birgðasöfnun í geymslum hjá
Eimskip. Ólafur Hand, markaðs-
stjóri hjá Eimskipum, bendir á
að skipaferðum til og frá landinu
hafi fækkað um tæpan þriðjung
þannig að frystur fiskur bíði leng-
ur í geymslunum.
Gunnar Tómasson framkvæmda-
stjóri segir Þorbjörn í Grindavík
einungis eiga birgðir af gulllaxi
sem sé óvenjulegt miðað við árs-
tíma. Hægt hafi á sölunni til Aust-
ur-Evrópu vegna efnahagsþreng-
inga. Um leið og gulllaxinn hafi
farið að staflast upp hafi veiðum á
honum verið hætt og áhersla lögð
á aðrar tegundir. - ghs
Allar frystigeymslur eru fullar af frystum fiski hjá Samskipum:
Treg sala til Austur-Evrópu
ÓLAFUR HAND
GENGIÐ 28.01.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
190,9445
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,20 117,76
167,24 168,06
155,19 156,05
20,820 20,942
17,465 17,567
14,691 14,777
1,3118 1,3194
176,87 177,93
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR