Fréttablaðið - 29.01.2009, Blaðsíða 8
8 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL „Við vitum að núver-
andi flokkakerfi hentar mörgum
konum illa enda er það byggt upp
á gildum sem
við þurfum að
brjóta upp. Við
viljum því skapa
nýjan vettvang
með það að leið-
arljósi að auka
jafnrétti, virð-
ingu og velferð
al lra,“ segir
Katrín Anna
Guðmundsdótt-
ir, viðskipta- og
markaðsfræðingur og meðlimur í
samtökunum Neyðarstjórn kvenna.
Samtökin hafa boðað til stofnfund-
ar nýrrar stjórnmálahreyfingar
kvenna í kvöld.
Neyðarstjórn kvenna var stofnuð
í október til að bregðast við efna-
hagskreppunni. Yfirlýst markmið
samtakanna er að stuðla að upp-
byggingu þjóðfélagsins þar sem
höfð eru í heiðri viðhorf og gildi
sem fela í sér virðingu fyrir mann-
eskjunni, samfélaginu, lífinu, nátt-
úrunni og umhverfinu.
Katrín segist vonast til að sem
flestar konur, sem áhuga hafa
á kvennaframboði, láti sjá sig á
fundinum sem haldinn verður á
Hallveigarstöðum við Túngötu
klukkan 20.00 í kvöld, fimmtudag.
„Meginkjarninn er að við þurfum
breytingar. Við þurfum að skipta
út þeirri hugmyndafræði sem hér
ræður ríkjum og stuðla að rétt-
látu samfélagi þar sem jafnrétti og
virðing eru í hávegum höfð,“ segir
Katrín. - kg
Við þurfum að skipta út
þeirri hugmyndafræði
sem hér ræður ríkjum og stuðla
að réttlátu samfélagi þar sem
jafnrétti og virðing eru í háveg-
um höfð
KATRÍN ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
Í NEYÐARSTJÓRN KVENNA
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Auglýst er eftir listum vegna kosningar 4 stjórnarmanna og 82 fulltrúa í
trúnaðarráð skv. 3. tölulið 20. gr. laga VR.
Framboðslistum skal skilað á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
1. hæð, eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 12. febrúar nk.
Berist fleiri listar en listi trúnaðarráðs og trúnaðarmanna sem þegar liggur
fyrir skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla í félaginu um framkomna lista.
Nánari upplýsingar eru á vef VR www.vr.is. Þá má fá frekari upplýsingar hjá
kjörstjórn með því að hringja í síma VR 510 1700 eða senda tölvupóst á
kjorstjorn@vr.is.
Kjörstjórn VR.
Framboð lista við kjör
stjórnar og trúnaðarráðs
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti hefur heimil-
að ríkisstjórn Kaliforníu að setja
strangari reglur en alríkið um
útblástur bifreiða.
Heimildin þykir sigur fyrir
Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóra Kaliforníu, sem fékk ekki
þessa heimild hjá George W.
Bush, fyrrverandi forseta.
„Of lengi hefur stjórnin í
Washington verið sofandi við
stýrið í umhverfismálum,“ segir
Schwarzenegger.
Önnur ríki Bandaríkjanna geta
nú valið hvort þau fylgja alríkis-
reglunum um útblástur bifreiða
eða hinum strangari reglum Kali-
forníu. - gb
Sigur Schwarzeneggers:
Obama fellst á
strangari reglur
ARNOLD SCHWARZENEGGER Strangar
reglur um útblástur bifreiða.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TYRKLAND, AP Saksóknarar í Tyrk-
landi hafa ákveðið að ekki verði
höfðað mál á hendur hópi manna,
sem skipulögðu herferð á netinu
um að Tyrkir biðjist afsökunar á
þjóðarmorði á Armenum fyrir um
níutíu árum.
Meira en 28 þúsund manns
skrifuðu nafn undir afsökunar-
beiðni á netinu, en á móti var sett
upp önnur herferð á netinu þar
sem um 65 þúsund manns skrif-
uðu undir yfirlýsingu um að þeir
biðjist ekki afsökunar.
Hjá tyrkneska ríkissaksókn-
araembættinu var hafin rannsókn
á afsökunarherferðinni og hvort
hún varðaði við lög um þjóðníð.- gb
Afsökunarbeiðni til Armena:
Tyrkir falla frá
málshöfðun
Neyðarstjórn kvenna boðar til stofnfundar nýrrar stjórnmálahreyfingar:
Vill stuðla að breytingum
KATRÍN ANNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
1 Hverjir fengu Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir árið
2008?
2 Hvaða íslenska hljómsveit
flytur lagið Such Mistakes sem
vinsælt er á BBC?
3 Hvað hefur Manchester
United haldið hreinu í mörgum
leikjum í röð?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
Bjarndís Friðþjófsdóttir, starfs-
maður á innheimtuskrifstofu
Mér finnst þetta
frábært. Ég hef
meiri trú á vinstri
stjórn en Sjálf-
stæðisflokknum og
vonandi breytist
eitthvað. Jóhanna
er rétta manneskj-
an í starfið.
Erla Wigelund, kaupmaður
Ég vona bara að
vinstri stjórnin ráði
fram úr þessu.
Mér lýst ágætlega
á Jóhönnu, en
ég er Sjálfstæðis-
manneskja og held
meira upp á Geir
Haarde.
Áki Jónsson, starfsmaður í tölvu-
verslun
Mér lýst vel á
þetta, en maður
þarf að bíða og sjá
hvað gerist. Mér
lýst mjög vel á
Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Það vantar
nýtt fólk.
Halldóra Halldórsdóttir, starfar
hjá Stígamótum
Ég held að Jóhanna
sé eini kosturinn í
stöðunni eins og
er. Hún er eina
manneskjan sem
virðist hafa traust
fólksins þessa dag-
ana. Vonandi verða
kosningar.
Stefan Sabramowicz, starfsmaður
á bensínstöð
Ég er frá Póllandi
og gengur frekar
illa að botna í
öllum þessum
umræðum. En
ég er hér með
fjölskylduna mína,
við ætlum að búa
hér í nokkur ár í
viðbót og þess vegna verða hlutirnir
að breytast.
Soffía Óskarsdóttir, heimavinn-
andi húsmóðir
Er þetta ekki bara
ágætt? Ég ætla rétt
að vona að stjórnin
sem tekur við verði
skárri en sú sem
var. Það getur ekki
versnað.
HVERNIG LÝST ÞÉR Á VINSTRI-STJÓRN
OG JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR SEM
FORSÆTISRÁÐHERRA?
BANDARÍKIN Barack Obama hefur ekki setið
auðum höndum fyrstu viku sína í embætti
og hraðar sér að snúa af stefnu forvera síns,
George W. Bush, í hverju málinu á fætur öðru.
Strax fyrsta daginn hóf hann undirbúning að
lokun Guantánamo-fangabúðanna með því að
fara fram á að öllum réttarhöldum yfir föngum
þar verði frestað. Fáeinum dögum síðar undir-
ritaði hann tilskipun um að búðunum verði
lokað innan árs.
Daginn eftir embættistökuna hringdi hann
í ráðamenn Ísraela, Palestínumanna, Egypta
og Jórdana og tók þar skýrt fram að hann vildi
leggja sitt af mörkum til að leysa deilur Ísraela
og Palestínumanna.
Áhersla Obama á bætt samskipti við Mið-
Austurlönd, arabaheiminn og múslima kom
síðan enn betur í ljós þegar hann ákvað að
fyrsta sjónvarpsviðtal sitt í embætti yrði við
arabíska sjónvarpsstöð og bauð múslimaheim-
inum útrétta sáttahönd.
Strax fyrir helgi hafði hann skipað þá George
Mitchell og Richard Holbrooke að sinna erind-
um Bandaríkjanna í Austurlöndum nær og fjær.
Mitchell hafði átt stóran þátt í að miðla málum
á Norður-Írlandi en Holbrooke hefur reynslu af
friðarsamningum í Bosníustríðinu.
Á þriðjudaginn greip Obama síðan aftur sím-
ann og hringdi í Dmitrí Medvedev Rússlands-
forseta til að fullvissa hann um vilja sinn til
að bæta samskipti ríkjanna. Þetta símtal bar
árangur strax daginn eftir, þegar Medved-
ev skýrði frá því að Rússar hefðu hætt við að
setja upp flugskeyti á Kaliningrad-svæðinu við
Eystrasalt, skammt frá landamærum Póllands.
Rússar höfðu ætlað sér að setja upp flugskeyti
þar sem svar við áformum Bush-stjórnarinnar
um að koma sér upp flugskeytavarnakerfi í Pól-
landi og Tékklandi.
Efnahagsmálin gætu samt reynst Obama erf-
iðari viðureignar en utanríkismálin. Obama
hefur kynnt efnahagsráðstafanir, sem eiga að
koma fyrirtækjum og fjölskyldum til bjargar,
en deilur hafa verið um þær. Repúblikanar hafa
sagt þær kosta ríkissjóð of mikið og óvíst hvort
þær komi að tilætluðu gagni.
Umhverfismálin eru einnig komin á dagskrá.
Á mánudaginn undirritaði Obama tilskipanir
um hertar útblástursreglur og endurnýjanlega
orkuvinnslu, sem gerði Bandaríkin síður háð
innflutningi á olíu.
Þá hikaði Obama ekki við að taka á einu við-
kvæmasta deilumáli bandarískra stjórnvalda,
sem eru fóstureyðingar. Á þriðja degi nam hann
úr gildi tilskipun Bush-stjórnarinnar, þar sem
lagt var bann við því að alþjóðleg samtök fengju
styrki úr ríkissjóði ef þau styðja með einhverj-
um hætti fóstureyðingar. gudsteinn@frettabladid.is
Obama tekur til hendinni
Barack Obama hefur ekkert verið að tvínóna við hlutina fyrstu vikuna í embætti. Áherslan hefur einkum
verið á utanríkismál og efnahagsmál. Hann vill leggja sitt af mörkum til að leysa deilu Palestínu og Ísraels.
ÖNNUM KAFINN FORSETI Barack Obama undirritaði á mánudag tilskipanir um orkusparnað og loftslagsbreytingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?