Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.01.2009, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 29.01.2009, Qupperneq 22
22 29. janúar 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Sem ég stóð ásamt konu minni í miðju mannhafinu á Aust- urvelli á laugardaginn var og hlýddi á þrumuræðu Guðmund- ar Andra Thorssonar rithöfund- ar, síðasta ræðumannsins að því sinni, hélt ég, að hápunkti fundarins hlyti að vera náð, svo firnagóð þótti mér ræðan. Fund- inum var þó ekki lokið. Að loknu máli Guðmundar Andra tók fríð- ur flokkur söngvara sér stöðu við tröppur Alþingis og söng Land míns föður og Hver á sér fegra föðurland? Við þurftum að færa okkur nær til að heyra vel. Sjaldan hef ég heyrt þessi ægi- fögru ættjarðarlög betur sungin og af dýpri og innilegri tilfinn- ingu. Tilefnið var ærið, einlæg- ur samhugur á Austurvelli og einvalasöngvarar í kórnum, þar á meðal heimssöngvarinn Gunn- ar Guðbjörnsson tenór, sem býr sig nú undir að syngja Siegfri- ed í samnefndri óperu Wagners í Þýzkalandi, og Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, reyndur og rómaður kirkjukórsöngvari. Hvað geta stjórnarvöldin gert, þegar óbreyttir borgarar og borðalögð lögreglan taka sér stöðu hlið við hlið fyrir framan Alþingishúsið og syngja ástríðu- fulla ættjarðarástarsöngva? Spurningin svarar sér sjálf: rík- isstjórnin baðst lausnar tveim sólarhringum síðar. Slíkur er máttur söngsins og kröftugs bumbusláttarins, sem síðustu vikur hefur verið eitt helzta kennimark friðsamlegra mót- mæla almennings gegn þeim, sem keyrðu Ísland í kaf. Bús- áhaldabyltingin hefur nú ásamt öðrum atburðum leitt til stjórn- arslita með sterkan málstað, söng, sleifar, potta og pönnur að vopni. Söngur kennir mönn- um kurteisi og alúð, og hvors tveggja er nú rík þörf, þegar ríki, land og þjóð leika á reiði- skjálfi af mannavöldum. Söngvabyltingin Söngur gegndi úrslitahlutverki í uppreisn Eystrasaltsþjóðanna gegni hernámi Sovétríkjanna 1990. Eistar segja sumir, að þeir hafi þraukað undir oki Sovét- valdsins í hálfa öld, þar eð menn- ing þeirra, þjóðerni, tunga og saga bundu þá saman og blésu þeim kjark í brjóst. Þessi lýs- ing á einnig við um Ísland allar götur frá lokum þjóðveldisald- ar fram að heimastjórn og allt fram á okkar daga. Þegar færi gafst og Eistar, Lettar og Lithá- ar, samtals aðeins um átta millj- ónir manns, áræddu að rísa upp gegn ofurefli Sovétveldisins með sínar næstum 300 milljónir, batt söngur þjóðirnar saman. Fólkið í Eystrasaltslöndunum bjó að gam- alli kórsöngshefð líkt og Norður- landaþjóðirnar og tók nú höndum saman og söng ættjarðarsöngva af lífs og sálar kröftum. Söngur þúsundanna fór eins og eldur í sinu um svæðið og heiminn. Við söngnum áttu Kommúnistaflokk- urinn og Rauði herinn ekkert svar. Hver ræðst gegn syngj- andi fólki? Sigurinn var í höfn. Fyrsti forseti Litháens eftir fall Sovétríkjanna var tónlistarpróf- essorinn Vytautas Landsbergis. Það er Íslandi til mikils sóma, að Íslendingar skyldu fyrir áræði og réttsýni Jóns Baldvins Hanni- balssonar, þá utanríkisráðherra, verða fyrstir þjóða til að viður- kenna sjálfstæði Eystrasaltsríkj- anna 1990. Fólkið þar austur frá gleymir því aldrei. Dýrð um vík og vog Þegar ég hugsa um söng og stjórnmál, rifjast einnig upp fyrir mér sagan af því, þegar ég var fyrir fáeinum árum kvadd- ur til Þórshafnar í Færeyjum til fundar við landsstjórnina þar um sjálfstæðismál. Fundinn í Þórshöfn sátu ráðherrarnir sjö, sem áttu þá sæti í landsstjórn- inni, og sjö ráðuneytisstjór- ar auk mín. Fundurinn hófst á því, að Jóannes Eidesgaard lög- maður kvaddi sér hljóðs, bauð mig velkominn og sagði síðan: Við skulum syngja. Ég hugsaði með mér: Einmitt svona ættu allir fundir að byrja, einkum ef mönnum semur ekki nógu vel eftir öðrum leiðum. Allir stóðu upp og sungu saman Dýrd á vík og vág, öll fjögur erindin í fal- legum ættjarðaróði eftir Jens Dam Jacobsen, skáld og prent- ara á dagblaðinu Dimmalætt- ing. Ég tók undir síðari erindin tvö, þegar ég hafði áttað mig á laginu. Lokaerindið hljómar svo: „Fagra, fjálga stund! Silvitni um sund. Fróir flúgva fuglar mill- um fjalla. Teirra káta mál berst um vall og vál. Gævi dagur aldri fór at halla!“ Mér fannst ég vera heima. Við ræddum sjálfstæð- ismál Færeyja fram og aftur, en um þau var og er djúpstæð- ur ágreiningur um eyjarnar. Ég sagði við gestgjafa mína og vini: Kvíðið engu. Íslendingar tóku rétta ákvörðun í sjálfstæðismál- inu á sínum tíma. Engin áföll munu nokkurn tímann raska þeirri niðurstöðu. Máttur söngsins Í DAG | ÞORVALDUR GYLFASON UMRÆÐAN Ragnhildur Sigurðardóttir skrifar um stjórnmál Neyðarstjórn kvenna er grasrótar-hreyfing sem spratt upp á vef- síðunni Facebook í kjölfar efnahags- hrunsins í október 2008. Markmiðið með grasrótinni var að leggja okkar af mörkum til að byggja hér upp betra samfélag með jafnrétti, virðingu og vel- ferð allra að leiðarljósi. Við í Neyðar- stjórninni finnum að mikil þörf er fyrir hreyfingu sem kemur sjónarmiðum kvenna á framfæri og styður þær til áhrifa í stjórnmálum og atvinnulífi. Neyðarstjórn kvenna mun vinna að þessum markmiðum með öllum tiltækum ráðum, þar á meðal með kvennaframboði í komandi alþingiskosningum. Í „gróðærinu“ voru hafin til vegs og virðing- ar gildi sem fram að því höfðu verið talin fólki til lasts fremur en lofs. Græðgi og fífldirfska töldust nauðsynlegir drifkraftar og forsenda þátttöku í nýjum og hnattvæddum heimi. Á meðan færðust hógværð, umhyggja og fyrirhyggja niður virðing- arstigann. Fjórflokkakerfið skapaði gróðærið og hefur allt frá upphafi, skipt efnum og gæðum þessa lands bróðurlega á milli sín. Þessi sama klíka hefur leynt eða ljóst staðið fyrir einkavinavæðingu á eigum okkar og látið almannahagsmuni lönd og leið. Þessu verðum við að breyta. Nú eftir hrunið, stöndum við frammi fyrir meiri efnahagsþrengingum en nokkur önnur þeirra þjóða sem við berum okkur gjarnan saman við. Það hvernig við tökum á kreppunni kemur til með að hafa úrslitaáhrif á hversu djúp hún verður og hversu lengi hún mun vara. Uppbygging til framtíðar verður að byggja á nýjum grunni velferðar og sið- ferðis. Þess vegna verður hvert og eitt okkar að þora að takast á við breytingar og fylgja sannfær- ingu sinni og gildismati. Í kvöld fimmtudaginn 29. janúar kl. 20, verður hreyfingin Kvennastjórn, formlega stofnuð á Hall- veigarstöðum. Kosið verður í stjórn hennar, nýr samfélagssáttmáli lagður fram, ásamt kröfugerð. Því hvetjum við alla, sem vilja endurreisa íslenskt samfélag með jafnréttishugsjónina að leiðarljósi, til að mæta. Höfundur skrifar fyrir hönd Neyðarstjórnar Nýtt kvennaframboð RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR Gjaldþrotagenið Gengi Decode hefur verið mikið í umræðunni síðustu árin. Fyrir nokkru keypti hálf þjóðin sér hlutabréf í fyrirtækinu og ætlaði að græða á tá og fingri. Síðan hefur allt legið niður á við. DV birti úttekt á stöðu fyrirtækisins í gær og fullyrðir að samanlagt tap frá stofnun Decode sé 55 milljarðar. Engu að síður mallar allt áfram hjá fyrirtækinu og nýverið fékk það lánafyrirgreiðslu frá Landsbank- anum. Gárungarnir síkátu hafa stungið upp á því að sennilega hafi Dec- ode fundið upp lækningu við gjaldþroti. Það væri þá eitthvað sem íslenska þjóðin gæti nýtt sér. Hið íslenska Guantánamo Mikil sigling er á Vinstri grænum þessa dagana og flokkurinn á leið í ríkisstjórn. Það er enda völlur á formanni flokksins þessa dagana. Steingrímur var á fjölmennum flokks- ráðsfundi á þriðjudag og tilkynnti þá vígreifur að hans fyrsta verk yrði að hreinsa út úr Seðlabankanum. Þetta yrði eins og með Guantánamo og Bandaríkin, en nýr forseti lét það verða sitt fyrsta verk að tilkynna lokum búðanna alræmdu. Kannski Steingrím- ur líti á sig sem Obama Íslands? Tónlistarkjördæmið Guðmundur Steingrímsson hefur tilkynnt að hann vilji leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvestur- kjördæmi. Þar er löng hefð fyrir góðum árangri harmonikkuleikandi frambjóðenda, samanber Gísla S. Einarsson frá Akranesi. Á Akranesi býr einnig Friðrik Jónsson, sem íhugar framboð í sama sæti og Guðmundur. Sá samdi einmitt Framsóknars- mellinn Árangur áfram ekkert stopp! Óvíst er hvað Magnús Stefánsson, þingmaður flokksins í kjördæminu og meðlimur Upplyft- ingar, gerir. kolbeinn@frettabladid.is Söngur og stjórnmál V erkefnin sem bíða þeirrar ríkisstjórnar sem væntan- lega tekur við völdum áður en vikan er öll eru ærin. Mörg þessara verka hefði löngu átt að vera búið að vinna en reyndust fráfarandi ríkisstjórn ofviða. Nú eru liðnir tæpir fjórir mánuðir frá setningu neyðarlaganna í byrjun október. Fyrstu dagana á eftir virtist ríkisstjórnin hafa tök á málum en fljótlega eftir fyrstu bráða- aðgerðir virtist ákvarðanatökufælni taka völdin. Aðgerðaleysi og vanmáttur ríkisstjórnarinnar olli stöðugt dvín- andi trausti í garð stjórnvalda, ekki síst sú staðreynd að mánuð- irnir liðu án þess að nokkur stjórnmálamaður eða embættismaður axlaði ábyrgð með brotthvarfi af pósti sínum. Greinilegt var að vaxandi óánægja var með ríkisstjórnina, traustið fór minnkandi og tiltrú almennings á stjórnvöld. Skoðanakannanir hafa endur- speglað þetta; fyrst hrundi fylgið af Sjálfstæðisflokknum og á síðustu vikum einnig af Samfylkingunni. Til tíðinda hlaut því að draga. Fulltrúa fráfarandi stjórnarflokka greinir á um ástæður þess að upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu slitnaði. Samfylkingarmenn segja að aðalásteytingarsteinninn hafi verið ágreiningur um það hvort bankastjórn Seðlabankans ætti að fara frá. Sjálfstæðismenn skýra þetta hins vegar með því að Samfylkingin hafi krafist þess að skipt yrði um forystu í ríkisstjórninni, eða verkstjórnarvald, eins og það er orðað. Ef að er gáð er þó um sama hlut að ræða því meðan forsætis- ráðherra hafði ekki mátt til að taka á bankastjórn Seðlabankans þá hlaut að liggja fyrir að ekki væri á það treystandi að flokks- systir hans kæmi því borðleggjandi verki í framkvæmd, verki sem fræðimenn og stjórnmálaskýrendur og raunar meirihluti þjóðarinnar sá og taldi að vinna ætti strax á fyrstu dögum eftir hrunið. Þó ekki væri nema af þeirri ástæðu var ljóst að skipta þurfti um í brúnni. Mikið þurfti þó að ganga á áður en ráðherrar Samfylkingar horfðust í augu við að meðvirkni þeirra með hinum stjórnar- flokknum var komin út yfir öll mörk. Í grasrót flokksins kraum- aði óánægjan með ríkisstjórnarsamstarfið allt frá því í haust en það var ekki fyrr en óánægja almennings var komin að þol- mörkum og vikuleg mótmæli, misfjölmenn, breyttust í allt að því sólahringsvaktir og búsáhaldasláttur tók við af ræðuhöldum, að höggvið var á hnútinn. Frá félagsfundum Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og félaga út um landið í síðustu viku komu skýr skilaboð um að slíta bæri ríkisstjórnarsamstarfinu og viðskiptaráðherrann fann loks sinn vitjunartíma og sagði af sér. Sú ríkisstjórn sem nú tekur við völdum hefur ekki nema úr fáeinum vikum að spila. Á þeim vikum verður hún að láta verkin tala. Almenningur verður að finna að unnið sé að því að bjarga því sem bjargað verður, bæði hvað varðar fjárhag heimila og í atvinnulífinu. Það er fyrsta skrefið til þess að endurreisa tiltrú almennings á stjórnvöld í landinu. Vítahringur meðvirkni rofinn: Betra seint en ekki STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.